Morgunblaðið - 28.06.1998, Page 42
42 SUNNUDAGUR 28. JÚNÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
9
FLUG TIL
STOKKHÓLMS
...kr. 22.400
-aðra leiðina kr. 14.900.
Brottför 6., 16., 20. júli og
heimkoma 20. eða 26. júlí.
NDRRÆNA
FE RÐAS K RIFSTO FAN
Laugavegur 3 • Sími 562 6362 • smyril-icelanil@isholf.is
m oesn i
Léttir störf og
fjölgar frístundum
•Verbfrá 14.900 kr.
Afl 0,8 til 2,5 hestöfl
Eigum hörkutæki fyrir
erfiðustu aðstæðurnar
VETRARSOL
Hamraborg I -3 (norðanmegin)
Kópavogur • Sími 564 1864
Sími: 533 -4040
ÁLFTAHÓLAR - ÚTSÝNI. Mjög góð og mikið endurnýjuð 3ja herb. ib. á 3. hæð í litlu
fjölb. Parket og flísar. Stórar suðursv. Hús og sameign í góðu ástandi. Stutt í þjónustu og
skóla. Verð 6,3 millj. Mikið útsýni. 9163
KAPLASKJÓLSVEGUR - LAUS. 3ja herb. íb. á 4. hæð með herb. í risi. Mikið útsýni. Hús
viðgert og málað. Góð staðsetning. Áhv. 3,5 millj. Verð 7,1 millj. LAUS STRAX. 9158
SÖRLASKJÓL. Góð 4ra herb. íb. á 2. haeð í góðu þríbýli með frábæru útsýni. 3 svefn-
herbergi. Hús í góðu standi, fallegur garður. Góð staðsetning. Áhv. 5 m. Hagst. lán. Verð
7,9 millj. 9160
FROSTAFOLD - BILSKÚR. Mjög góð 3ja herb. íb. á jarðhæð með sérinngang og -garði.
Vandaðar innr. og tæki. Þvhús og búr. Stærð 79 fm auk bílskúrs. Hús I mjög góðu ástan-
di. Áhv. 5,1 m. Byggsj. rík. Ekkert greiðslumat. 9134
LANGHOLTSVEGUR. Vorum að fá í sölu góða 4ra herb. íbúð á miðhæð í þríbýli með
góðum garði og geymsluskúr. 3 svefnherb. íbúð og hús í góðu ástandi. Verð 7,8 millj.
9171
HLIÐARHJALLi - KÓP - BÍLSK. Nýl. 131 fm neðri sérhæð í tvíb. ásamt stæði i bílsk. 3
svefnherb. 2 stofur, sjónvarpshol, allt sér. Baðherb. allt flísal. Hús i góðu ástandi. Frábær
staðsetning. Áhv. 5,0 m. byggsj. Verð 11,2 millj. Ath. skipti á minni eign mögul. 9101
VESTURBERG - GLÆSIL. ÚTSÝNI. Vorum að fá í einkasölu mjög gott og vel umgengið
einbýlishús á fallegum útsýnisstað með suðvesturverönd og sólskála. Stærð 202 fm.
Sérbygg. 33 fm bilskúr. Hús í toppstandi. Verð 14,5 m. 9169
LAUFÁSVEGUR - LAUST. Mjög gott 265 fm einbýlishús á þremur hæðum. Mögul. að
hafa séríb. í kj. Á miðhæð eru stofur, herbergi og eldhús og 3 rúmg. herb. og baðherbergi
uppi. Húsið er í mjög góðu ástandi, vel staðsett með góðri lóð. Allar nánari uppl. á skrif-
st. 9074
Ármúla 21
DAN V.S. WIIUM, hdl. lögg. fasteignasali.
Leitin að réttu eigninni
hefst hjá okkur
í DAG
VELVAKAMDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Það má skrifa mér á
dönsku eða ensku og yrði
ég mjög glöð og þakklát
þeim sem skrifa mér.
Heimilisfangið er:
Hanne Burmester,
Lille Vraj,
Dk-4400 Kalundborg,
Danmark.
Tapað/fundið
Veski týndist
í Arbænum
Hver þekkir viðkomandi?
ER EINHVER sem þekkir hafa samband við verslun
viðkomandi á þessari Hans Petersen, Austurveri,
mynd? Þeir sem það gera í síma 570 7555 eða
eru vinsamlegast beðnir að 570 7556 (Gunnar Kristinn).
Rangt farið með
í fréttum
í FRÉTTUM Sjónvarpsins
var verið að sýna nýja stóla,
að gott væri að hafa góða
stóla fyrir fyrirmenn þegar
þeir koma í heimsókn til
landsins. I sömu frétt var
sagt að þegar Winston
Churchill kom til landsins
1941, hefði hann gist í
Höfða, en það er ekki rétt.
Hann gisti aldrei í Höfða.
Þetta er í annað skipti í röð
sem Sjónvarpið birtir um
þetta frétt. í öldinni okkar
1941 má sjá allt um þennan
jiðburð og þar kemur ekki
fram að hann hafí gist í
Höfða.
Pétur Pétursson.
Frímerkjasafnarar
VILL ekki einhver sem
safnar frímerkjum deila
áhugamáli sínu með danskri
konu? Ég hef safnað ís-
lenskum frímerkjum nokk-
uð lengi og langar að kom-
ast í bréfasamband við ís-
lenskan safnara.
VESKI týndist í Árbænum
föstudaginn 19. júní, líklega
á leiðinni úr Sparisjóði vél-
stjóra að Landsbanka í
Rofabæ. Veskið er svört
hliðartaska. Skilvís finnandi
hafi samband í síma
557 5676 eða 567 2300.
Fundarlaun.
Armbandsúr týndist
ARMBANDSÚR týndist sl.
fimmtudag í Laugai'dain-
um. Skilvís finnandi hafi
samband í síma 561 3948.
Dýrahald
Kettlingur í óskilum
LÍTILL, svartur kettling-
ur, svolítið loðinn með app-
elsínugul augu, er í óskilum
í Grænatúni í Kópavogi.
Þessi kettlingur hefur verið
í reiðileysi undanfarna
daga. Upplýsingar í síma
564 2163.
Páfagaukur týndist í
Seljahverfi
GRÆNN og gulur páfa-
gaukur, mjög gæfur, týnd-
ist frá Seljabraut í Selja-
hverfi fyrir rúmum 3 vik-
um. Þeir sem hafa orðið
hans varir vinsamlega láti
vita í síma 557 5413 eftir kl.
14.
Tveir kettlingar óska
eftir heimili
TVEIR kettlingar óska eft-
ir góðu heimiii. Kassavanir.
Upplýsingar í síma
552 8396 eftir kl. 20.
Kettlingar fást gefins
KISUMAMMA og fjórir
kassavanir yndislegir kett-
lingar, þai' af einn blandað-
ur skógarköttur, fást gef-
ins. Upplýsingar í síma
554 1676.
Læða og kettlingur
óska eftir heimili
ÁRSGÖMUL yndisleg læða
ásamt svörtum 13 vikna
kettlingi óskar eftir góðu
heimili. Upplýsingar í síma
899 8539 og 564 1041.
SKAK
llmsjón Margcir
Pétursson
Staðan kom upp á
atskákmótinu í Dortmund í
Þýskalandi í síðustu viku.
Jan Timman (2.635),
Hollandi, hafði hvítt
og átti leik gegn
Andras Adoijan
(2.490),
Ungverjalandi.
20. Rxf7!
Rc5(Svartur mátti
ekki þiggja
riddarafórnina, 20. _
Kxf7 má svara með
21. Rd4 _ Dc8 22.
Rxe6 _ Hxe6 23.
Hxe6 _ Dxe6 24.
Hd7+ og svarta
drottningin fellur)
21. Hd8+ _ Hxd8
22. Rxd8+ _ Rxb3 23. Rxc6
_ Hxel+ 24. Rxel _ Rcl 25.
Rxa7 _ Rxa2 26. Rd3
(Endataflið er nú auðunnið.
Hvítur er peði yfir og svarti
riddarinn er í prísund á a2)
_ Bh6 27. Rc8 _ b5 28. Ra7
_ Rcl 29. Rxcl _ Bxcl 30.
b4 _ Kf7 31. Kfl _ Ke6 32.
Ke2 _ Kd5 33. Kd3 og
Adorjan gafst upp.
HVÍTUR leikur og vinnur
HOGNI HREKKVISI
// ettu twer-fekÁ: ^tóraséu<QÍi}s
jngasamnmginn, um iþrðtiasho'^!''
Víkverji skrifar...
RÍKISBANKARNIR hafa leikið
við þjóðarsálina síðustu mánuði
og misseri, nánast matað hana á um-
ræðuefnum. Það er við hæfi að minna
á það nú, þegar júlímánuður fer í
hönd, að það var 1. dag júlímánaðar
fyrir 112 árum (1886) að starfsemi
Landsbanka íslands hófst. Hinn rík-
isbankinn, Búnaðarbankinn, hóf
einnig starfsemi 1. júlí en 44 árum
síðar en Landsbankinn (1930).
Landsbankinn er þó ekki elzta
starfandi peningastofnun í landinu.
Það er Sparisjóður Siglufjarðar,
stofnaður 1873.
Víkverji ætlar ekki að bera vatn í
bakkafullan [laxajlækinn með frekari
umfjöllun um bankastarfsemi á land-
inu bláa.
XXX
GALDUR og kukl koma við þjóð-
arsöguna allt frá landnámi. Það
var þó ekki fyrr en eftir siðaskipti
sem galdrafárið náði hámarki. Stein-
inn tók sum sé úr á seinni hluta 16.
aldar. Þá voru meintir galdramenn á
bál bornir. Alls voru 22 íslendingar
brenndir (21 karl, 1 kona). Tveir voru
líflátnir með öðrum hætti. Það var 4.
dag júlímánaðar árið 1685 sem síð-
asta galdrabrennan brann á íslandi.
Hjátrú og hindurvitni voru ær og
kýr þess aldarháttar sem hér kemur
við sögu. Fyrirmyndin að galdra-
brennum var reyndar utanaðkom-
andi. Á Alþingi árið 1630 var lesinn
upp boðskapur frá Kristjáni konungi
IV., gefinn út í Danmörku 1617, sem
fjallaði um refsingu þeirra er fóru
með galdur. Galdrabrennur voru
m.ö.o. ekki séríslenzkt fyrirbrigði, en
ljótur blettur engu að síður á þjóðar-
sögunni.
Spurning er hvort menn séu ekki
bornir á „mannorðsbál" enn í dag,
þótt nútímalegri aðferðir séu nýttar,
þegar sá gállinn er á almenningsálit-
inu og þjóðarsálinni.
XXX
VIÐSKIPTARÁÐHERRA svar-
aði fyrir stuttu fyrirspurn um
eignir og skuldir íslenzkra heimila.
Þau reyndust í sæmilegum álnum.
Ái'ið 1997 voru eignir taldar sem
hér segir (samsvarandi tölur frá 1990
innan sviga): 1) Bifreiðar 90.479
m.kr. (60.051 m.kr.). 2) íbúðir
589.237 m.kr. (422.000 m.kr.). 3)
Fjáreignir án lífeyrissjóða 241.219
m.kr. (131.285 m.kr.). 4) Lífeyrissjóð-
ir 341.506 m.kr. (125.560 m.kr.).
Samtals töldust eignir heimilanna
1997 með lífeyrissjóðum kr. 1.262.441
m.kr. (738.905 m.kr. 1990). Skuldir
heimilanna sama ár námu 385.736
m.kr. (170.726 m.kr. 1990), þar af kr.
217.163 m.ki'. við húsnæðislánasjóði
(78.883 m.kr. 1990).
Tæplega helmingur eignanna,
46,7%, er í húsnæði. Annar stærsti
eignaþáttur eru lífeyrissjóðir, rúm-
lega fjórðungur, 27,1%. Fjáreignir
nema tæpum fimmtungi heildar-
eigna, 19,1%. Loks bílaflotinn, 7,2%.
XXX
SKULDIR heimila í landinu hafa
samt sem áður vaxið hlutfallslega
meir en eignir á þessu árabili, 1990 til
1997. Skuldir heimila sem hlutfall (%)
af ráðstöfunartekjum hafa aukizt úr
80,2% árið 1990 í 133 % árið 1996 og
135,4% í fyrra (áætlað). Langstærst-
ur hluti heildarskulda eru húsnæðis-
lánaskuldir, 56,3%. Fimmtungur
heildarskulda er við innlánsstofnanir,
20,6%. Skuldir við lífeyrissjóði 10,2%,
LIN 9,8%, tryggingafélög 2,1% og
eignaleigur 1% heildarskulda.
í svari ráðherra kemur fram að
samanburður á hreinni eign og
skuldum milli landa sé ýmsum ann-
mörkum bundinn. Skuldir sem hund-
raðshluti af ráðstöfunartekjum eru
133 hér á landi, 113 í Japan, 109 í
Bretlandi og Kanada, 69 í Frakk-
landi, 34 á Italíu. Hrein eign á sama
mælikvarða er 663 í Japan, 651 á
Ítalíu, 556 í Bretlandi, 548 í Banda-
ríkjunum, 502 í Kanada, 478 á íslandi
og 449 í Frakklandi.
Sá hefur nóg sér nægja lætur,
sögðu spakir menn fyrr á tíð!