Morgunblaðið - 28.06.1998, Side 48
48 SUNNUDAGUR 28. JÚNÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
Einföld hönnun fremur
en dramatískir búningar
SMIRN OFF-fatahönnun-
arkeppnin var haldin á
Jónsmessunótt undir
berum himni á Vega-
mótastíg í Reykjavík.
Þrátt fyrir að rigndi á áhorfend-
ur var umgjörðin hin glæsileg-
asta með tiiheyrandi reyk og
flóðljósum. Tíu keppendur voru
* valdir til að sýna á úrslitakvöld-
inu og komu dómarar frá Bret-
landi til að velja sigurvegarann.
Að þeirra sögn er lögð áhersla á
að flíkumar séu klæðilegar og
söluhæfar og hefur þróunin verið
sú að „búningahönnun" með
dramatísku og ævintýralegu yfir-
bragði hefur vikið fyrir einfald-
ari hönnun.
Sigurvegarinn að þessu sinni
varð hin 26 ára gamla Ragnheið-
ur Jónsdóttir og er þetta í annað
sinn sem hún tekur þátt í keppn-
inni. Ragnheiður lauk sveinsprófi
í kjólasaumi frá Iðnskólanum nú
í vor en tekur sér sæti í textíl-
deild Myndlista- og handíðaskól-
ansíhaust.
Það vakti athygli áhorfenda að
einn einfaidasti kjóll keppninnar
skyldi sigra, enda hefur hönnun
keppninnar siðstu ára einkennst
af sérstökum efnum í dramat-
ískri og skrautlegri útfærsiu.
Þemað að þessu sinni var „ham-
skipti“ eða „metamorphosis" og
máttu keppendur útfæra hug-
myndina eftir eigin sköpunar-
gleði.
Að sögn Ragnheiðar hefur
þróun Smirnoff-keppninnar ver-
ið sú að meiri áhersla er lögð á
að hanna fót fremur en búninga.
Með því sé verið að stuðla að
tískuhönnun söluvænlegs fatn-
aðar, enda keppninni ekki ætlað
að vera listræn keppni í bún-
bví meira sem eg 6 r .A.
ffgrímur "
Axelsdóttir, sem hrepy
SIGURVEGARINN í keppninni: TOLIE - „léreftsprufa er lykilatriði í
hamskiptum hugmyndar yfir í fl£k“. Hönnuður: Ragnheiður Jónsdóttir.
ingahönnun. „Ég reyndi að fara
alveg eftir þeim linum sem voru
lagðar og dómnefndin var mjög
ánægð með það hvað kjóllinn
var sölulegur en samt ferskur,"
sagði Ragnheiður, en kjólinn
saumaði hún sjálf úr hvítum
hör.
Ragnheiður verður fulltrúi Is-
lands í lokakeppninni, sem haldin
verður í Berlín i júlí. Framundan
er annasamur undirbúningur hjá
henni því samkvæmt reglum
keppninnar má hún útfæra hönn-
un sína enn frekar og búa til fleiri
eintök. „Áður var keppnin þannig
að gerðar voru þijár útgáfur af
sömu hugmynd. Núna ertu með
hugmynd sem er svo breytt í
fjöldaframleiðshiútgáfu. Ég má
breyta sniðinu en yfirbragðið
verður það sama. Nýi kjóll-
inn verður flóknari og
öfgakenndari en sá fyrri.“
Að sögn Ragnheiðar er
Smirnoff-fatahönnunar-
keppnin mjög virt og
sigurvegarinn hefur
mikla möguleika á að
koma sér á framfæri
sem hönnuður. Keppnin
sé mjög mikilvæg fyrir
hönnun hérna heima og
eigi skilið mikla at-
hygli. Framtíð Ragn-
heiðar sjáifrar er
ósniðið efni en draum-
urinn er að mennta
sig enn frekar í
fataiðnaðinum er-
lendis og aldrei að
vita nema kjólar
hennar verði sýnd-
ir á sýningarpöll-
um Parísar innan
fárra ára.