Morgunblaðið - 15.07.1998, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 15.07.1998, Blaðsíða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 15. JÚLÍ 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Héraðsdómur Reykjavíkur staðfestir ökuleyfíssviptingu til bráðabirgða Andstæður úrskurði frá 10. júlí í GÆR var staðfest með úrskurði í Héraðsdómi Reykjavíkur ákvörðun lögreglustjórans í Reykja- vík um sviptingu ökuréttar manns sem tekinn var á 66 km hraða þar sem leyfilegur hámarks- hraði er 30 km. Ökumaðurinn var sviptur öku- réttindum til bráðabirgða í tvo mánuði en með úrskurðinum er sviptingin stytt í einn mánuð eins og lögreglustjóri óskaði staðfestingar á. Þessi úrskurður er andstæður úrskurði Hér- aðsdóms Reykjavíkur frá því sl. fóstudag þar sem ógilt var svipting lögreglunnar á ökurétti til bráðabirgða þai- sem ökumaður hafði verið stöðv- aður á 64 km hraða á Njarðargötu þar sem aka má á 30 km hraða. Þann úrskurð kvað Hjörtur 0. Aðalsteinsson upp. Ökumaður var stöðvaður af lögreglunni í Reykjavík í Hamrahlíð 16. júní eftir að bíll hans var mældur á 66 km hraða úr kyrrstæðum lög- reglubíl. Hámarkshraði á götunni er 30 km. Kærði bar fyrir dómi að hafa eldð Hamrahlíðina en ekki yfir leyfilegum hámarkshraða. Hann hafi verið í öðrum gír en viðurkenndi að hafa ekki litið á hraðamæli bílsins. í úrskurði Arngríms ísberg héraðsdómara segir m.a. „Samkvæmt 101. gr. umferðarlaganna verður að telja það vítaverðan akstur, ef hann sannast, að aka á meira en tvöföldum leyfilegum hámarkshraða. Lögreglustjóra bar því sam- kvæmt 103. grein umferðarlaganna að svipta kærða ökuleyfi til bráðabirgða á grundvelli hraðamælingar lögreglunnar. Gögn málsins bera með sér að lögreglan hafi staðið að hraðamæling- unni á venjubundinn hátt, prófað ratsjártækið fyrir og eftir mælingar og hafa lögreglumenn staðfest aðgerðir sínar með skýrslum og dagbók- arfærslum. Gegn þessum gögnum er aðeins framburður kærða um að hann hafi ekki ekið yfir löglegum hámarkshraða.“ Ekki efni til að fella sviptingn úr gildi Segir héraðsdómari ekki efni til að fella úr gildi sviptingu ökuréttarins til bráðabirgða og er hún því staðfest í mánuð frá 16. júní. Georg Kr. Lárusson, lögreglustjóri í Reykja- vík, segir að þessir úrskurðir sýni nauðsyn þess að fá efnislegan dóm í málum sem þessum, þ.e. hvort svipta megi menn ökurétti til bráðabirgða eftir að þeir hafa ekið á meira en tvöföldum há- markshraða. I 101. grein umferðarlaga segir að svipta skuli mann rétti til að stjóma vélknúnu ökutæki sem ökuskírteini þarf til ef hann hefur orðið sekur um mjög vítaverðan akstur slíks öku- tækis. Mikið malbikað „ÁÆTLANIR gerðu ráð fyrir miklum malbikunarframkvæmd- um í sumar og má því segja að þurrviðrið hafi verið afskaplega heppilegt," segir Valur Guð- mnndsson, framkvæmdastjóri Malbikunarstöðvarinnar Höfða, sem sér um malbikun á götum borgarinnar. Hann segir framkvæmdir hafa gengið vel, búið sé að malbika mikið í Austurbænum en fram- kvæmdirnar séu að færast í Vest- urbæinn. Valur segir þá þurfa að haga vinnu sinni töluvert eftir aðstæðum, t.d. malbiki þeir aldrei á stórum umferðargötum á föstudögum og ef loka þurfi álagsgatnamótum sé reynt að gera j)að eftir klukkan 6 á kvöld- in. Þeir reyni að nýta tímann vel þegar álag er sem minnst en í íbúðarhverfum sé ekki hægt að malbika lengur en til 10 á kvöld- in, þeir megi svo byrja hálfátta á morgnana. f gær var verið að malbika einn áfanga á Sæbraut. Morgunblaðið/Arnaldur Þrjú íslenzk mál bíða EFTA-dóms ÞRJÚ íslenzk dómsmál eru nú til meðferðar hjá EFTA-dómstólnum í Lúxemborg, þar sem óskað hefur verið eftir ráðgefandi áliti dómsins. Dómstóllinn tók til starfa í ársbyrjun 1994 og barst honum engin ósk um ráðgefandi álit frá íslandi fyrstu | tæplega fjögui- starfsárin. Öll málin j þrjú hafa borizt dómnum á undan- förnum níu mánuðum. Síðast var dómstólnum sent mál frá íslenzkum dómstóli 26. júní síð- astliðinn. Hæstiréttur óskaði þá eftir ráðgefandi áliti í máli Fagtúns hf. gegn byggingarnefnd Borgarholts- skóla og þeim, sem að henni standa, þ.e. ríkinu, Reykjavíkurborg og Mosfellsbæ. Málið snýst um það hvort tiltekin ákvæði í EES-samn- ingnum banni að í verksamning séu sett ákvæði um að við það verði mið- að að þakeiningar séu smíðaðar á Is- landi. Málið verður líklega sent málsaðilum og ríkisstjórnum aðildar- ríkja Ewópska efnahagssvæðisins í þessum mánuði og gefst þá tveggja mánaða frestur til að skila greinar- gerðum. I apríl síðastliðnum óskaði Hér- aðsdómur Reykjavíkur eftir ráðgef- andi áliti í máli Samtaka verzlunar- innar - Félags íslenzkra stórkaup- manna gegn heilbrigðisráðherra og lyfjaverðsnefnd. I því máli er um það að ræða að í desember 1996 tilkynnti lyfjaverðsnefnd innflytjendum lyfja að nefndin hefði samþykkt breyting- ar á hámarksverði lyfja frá og með 1. janúar 1997, sem talið var að myndu lækka tekjur lyfjaheildsala um 46 milljónu króna miðað við óbreytta heildarlyfjaveltu. Telja innflytjendur ákvörðun nefndarinnar brjóta í bága við EES-samninginn. Frestur aðila málsins og ríkisstjórna EES til að skila greinargerð í málinu er til 27. júlí næstkomandi og verður mál- flutningur líklega 1. október. Þriðja málið barst EFTA-dóm- stólnum í nóvember á síðasta ári og varðar skaðabótakröfu starfsmanns, sem sagt var upp hjá einkafyrirtæki, á hendur ríkinu fyrir að hafa ekki lagað íslenzk lög réttilega að EES- samningnum. Málflutningur verður 17. september næstkomandi. Kærir meinta ólögmæta handtöku lögreglu í Reykjavrk vegna umferðarlagabrots Telur stjórnarskrárbund- in mannróttindi brotin LÖGMAÐUR í Kópavogi hefur kært meinta ólögmæta handtöku lögreglunnar í Reykjavík á öku- manni sem tekinn var fyrir of hrað- an akstur í Suðurhlíðum. Ökumað- urinn var sviptur ökuréttindum til bráðabirgða. Lögmaðurinn telur að með „handtöku og frelsissviptingu lögreglu í Reykjavík hafi verið brot- in stjómarskrárbundin mannrétt- indi á umbjóðanda mínum þar sem handtökuheimOd hafi ekki verið fyr- ir hendi“, segir m.a. í kæru lög- mannsins til ríkissaksóknara. Lögreglan í Reykjavík svipti um- ræddan ökumann ökuréttindum til bráðabirgða en honum var gefið að sök að hafa ekið á 65 km hraða þar sem hámarkshraði er 30 km/klst. á Suðurhlíð. Ökumaður mótmælti ekki hraðamælingu lögreglunnar en benti á að merkingum um hámarks- hraða væri ábótavant. Hafði hann ekki veitt athygli skOti um hámarks- hraða. í kæru lögmannsins segir að lögreglumenn hafi lýst þeirri skoðun sinni við yfirheyi’slu hjá varðstjóra að það kæmi málinu ekki við, það væri málefni Reykjavíkurborgar. Þegar lögreglumenn höfðu til- kynnt ökumanni ætlað brot var jafn- framt tOkynnt að hann yrði hand- tekinn vegna brotsins, fluttur á lög- reglustöðina og þar yrði hann svipt- ur ökuréttindum til bráðabirgða í einn mánuð. Lögreglan neitaði boði farþega ökumanns að hann æki hon- um á lögreglustöð. Þegar þangað var komið var tekin mynd af öku- manni að lokinni skýrslutöku. Kærir lögmaðurinn einnig þá háttsemi lög- reglu og segir ekkert réttlæta slíka myndatöku. Þá segir í kæru lögmannsins: „Eg tel að með framangreindri handtöku og frelsissviptingu lögreglu í Reykjavík hafi verið brotin stjórnar- skrárbundin mannréttindi á um- bjóðanda mínum þar sem handtöku- heimild hafi ekki verið fyrir hendi. Hér er einnig brotið gegn grundvall- armannréttindum skv. Mannrétt- indasáttmála Evrópu. Með handtök- unni og frelsissviptingu og eftirfar- andi niðurlægjandi flutningi í lög- reglubifreið á lögreglustöð var gróf- lega brotið gegn meðalhófsreglunni. Engar rannsóknarnauðsynjar lágu til þess að handtaka umbjóðanda minn og lögreglumönnum í lófa lagið að kveðja umbjóðanda minn til skýrslutöku á lögreglustöð á tiltekn- um tíma. Ef þeirri kvaðningu hefði ekki verið sinnt hefði aftur á móti verið heimilt að handtaka hann.“ Segir lögmaðurinn jafnframt að ekki séu uppfyllt skilyrði fyrstu málsgreinar 97. greinar laga um op- inber mál um nauðsyn handtöku. Telur lögmaðurinn einnig að með bráðabirgðasviptingu, sem var 3. júní, hafi verið brotinn réttur á um- bjóðanda sínum þar sem sviptingin verði runnin út áður en fjallað verði um málið af yfirvöldum. Georg Kr. Lárusson, lögreglu- stjóri í Reykjavík, segir þetta verk- lag lögreglunnar aflagt, ekki sé venjan að handtaka menn til skýrslutöku á lögreglustöð og segir að þetta hljóti að hafa verið mistök. Hann segir mál sem þessi yfirleitt útkljáð á vettvangi og mönnum bent á að hafi þeir athugasemdir fram að færa skuli þeir koma á lögreglustöð og ræða við aðalvarðstjóra. Lög- reglustjóri segh’ eima eftir af fyrri lögum með þessu verklagi þar sem heimOt hafi verið að færa menn á lögreglustöð og hafi ekki verið litið á sem handtöku. Sagði hann menn nú ekki tekna á lögreglustöð nema handtaka færi fram. Sérblöð í dag • Æ&l ► VERIÐ fjallar í dag meðal annars um aflabrögð af I ýmsu tagi, í'slenskt fiskvinnslufyrirtæki í Bandaríkjunum, * notkun rafeindamerkja við þorskrannsóknir og vinnslu á • ufsa sem fluttur er á markað í Karíbahafinu. * Sjálfsmynd oghús • Heimsmet • Scala til HBV, Leiftur ; í 1.500 m j Real j og Grinda- • haupi : Madrid : vík áfram • _____ • _________ • -------- ! ci j ci j C3 Fylgstu með nýjustu fréttum www.mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.