Morgunblaðið - 15.07.1998, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 15. JÚLÍ 1998 7
FRÉTTIR
Islandsmótinu í svifflugi
lauk um helgina
Kristián Sveinbjörns-
son Islandsmeistari
KRISTJÁN Sveinbjörnsson bar
sigur úr býtum á íslandsmótinu
í svifflugi sem fór fram dagana
4. til 12. júlí á Helluflugvelli.
Krislján flaug TF-SKG, LAK-12
svifflugvél, og hlaut alls 4742
stig.
Sjö keppendur tóku þátt í
mótinu, flogið var 6 daga og
voru þar af 5 gildir. Að sögn
Baldurs Jónssonar fram-
kvæmdastjóra mótsins náðist
góður árangur. Hann segir skil-
yrði hafa verið mjög góð, bjart-
viðri og gott hitauppstreymi.
Það teljist mjög gott að ná flmm
gildum dögum á móti, keppend-
ur hafi samtals flogið rúmlega
3000 km og það sé óvanalega
langt.
Nýir leiðarreikningar voru
notaðir á mótinu og keppendur
fengu nákvæm kort af leiðunum
með hnitum. Segir Baldur það
hafa mælst mjög vel fyrir og
verði framvegis hafður sá hátt-
ur á. Keppendur þurfa svo að
taka mynd innan ákveðins geira
á hverjum enda eða hornpunkti.
I þríhyrningsfluginu voru horn-
punktarnir Búrfellsvirkjun,
Skálholtskirkja og svo Hellu-
flugvöllur.
íslandsmet í
þríhyrningsflugi
Keppt er um þrjá farandbik-
ara auk Islandsmeistaratitils-
ins. Flogið var tvisvar sinnum í
100 km þríhyrningsflug, póst-
flug, fram og til baka 50 km
flug og fram og til baka 107 km
flug.
Sem fyrr segir er Kristján
Sveinbjörnsson Islandsmeistari
í svifflugi og hlaut Jóhannesar
ISLANDSMEISTARINN i
svifflugi 1998, Kristján Svein-
björnsson.
Hagan bikarinn. Fyrir bestan
árangur í 100 km þríhyrnings-
flugi er veitt Pfaffskálin, hana
hlaut Steinþór Skúlason. Hann
sló íslandsmetið í 100 km þrí-
hyrningsflugi tvisvar en hann
náði mestum hraða 101,41
km/klst í seinna fluginu. Stein-
þór hlaut einnig Olísbik-
arinn fyrir bestan ár-
angur í póstflugi. Aldurs-
for-setinn í hópi keppenda,
Þórður Hafliðason hlaut svo
ráðherrabikarinn fyrir bestan
árangur í fram og til baka
flugi.
STEINÞÓR Skúlason sem sló
Islandsmetið í þríhyrningsflugi
á vél sinni TF-SIS.
ÚTSALAN HEFST Á M0RGUN