Morgunblaðið - 15.07.1998, Blaðsíða 40
40 MIÐVIKUDAGUR 15. JÚLÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
BIRTAN
ÓTRÚLEG
Á ÍSLANDI
Bandaríski ljósmyndarinn Ranjit Gewal
var staddur fyrir skömmu hér á landi við
tökur fyrir tískuritið Harper’s Bazaar.
Rakel Þorbergsdóttir tók hann tali.
HÓPUR á vegum tískurits-
ins Harper’s Bazaar var
við ljósmyndatökur í Vest-
mannaeyjum og Bláa lóninu fyrr í
mánuðinum. Æ algengara verður
að erlendir aðilar leiti til Islands
sem tökustaðar ljósmynda eða
auglýsingagerðar og áhugavert að
vita hver þróunin verður. Lands-
lagið virðist vera helsta aðdráttar-
aflið en sumarbirtan og vinalegar
móttökur hafa þó sitt að segja.
- Hvemig leist þér á að koma
til íslands?
„Mér fannst þetta frábær hug-
mynd ogýg hafði heyrt mikið um
ísland. Ég kynnti mér land og
þjóð líka aðeins áður en ég kom.
Þetta er í fyrsta skiptið sem ég sé
„tungl“-landslag, mér líður eins
og ég sé á annarri plánetu héma á
íslandi.“
- Hvernig gengu tökurnar?
„Mjög vel, Vestmannaeyjar eru
einn besti tökustaður sem ég
komið á. Það em ekki margir
staðir í heiminum sem hafa hraun,
sjó, kletta, gras og fjölskrúðugt
plöntulíf á sama punktinum. Eg
hef aldrei séð uppmnalegt lands-
lag af þessu tagi áður á einni og
sömu eyjunni."
- Hvernig býrðu þig undir
myndatöku af þessu tagi?
„Við komum til landsins á und-
an hinum í hópnum. Ég og Gina,
aðstoðarmaður minn, fórum um
Vestmannaeyjar í tvo daga og
tókum Polaroid-myndir til að fá
einhveija hugmynd um hvaða
staðir kæmu til greina. Þegar
stflistinn kom til landsins með föt-
in fómm við yfír þau og settum
saman föt og tökustaði. Það er
mjög mikilvægt að undirbúa sig
áður en tökur hefjast því þrátt
fyrir að ákveðin hugmynd hafi
verið í gangi áður en á tökustað er
komið þá er henni venjulega
fleygt til hliðar. Þess vegna þýðir
lítið að skipuleggja áður en komið
er á staðinn."
- Var eitthvað sem kom þér á
óvart á Islandi?
„Það er fallegra en að öðra leyti
eins og ég hafði búist við. Birtan,
sem er næstum allan sólarhring-
inn, er ótrúleg."
- Er það ekki kostur fyrir ljós-
myndara?
„Við voram við tökur frá klukk-
an átta á kvöldin fram undir
morgun en venjulega hefur maður
kannski um tvo tíma á dag fyrir
myndatökur."
- Heldurðu að ísland geti orðið
vinsæll tökustaður?
„Já, það er ekki spuming. Fólki
verður kannski þrælað út í vinnu
vegna birtunnar en þetta er al-
gjörlega óuppgötvaður tökustað-
ur. Island er ótrálegur staður,
fólkið og landslagið er til fyrir-
myndar."
- Starfar þú sjálfstætt?
„Já, ég var aðstoðarmaður ljós-
myndara en hætti hjá honum í
janúar og ákvað að reyna fyrir
mér sjálfstætt."
- Gengur vel?
„Enn sem komið er en ég er svo
nýbyrjaður að það er engin
reynsla komin á það. Ég vona að
ferill minn verði farsæll og ég
kynntist mörgum þegar ég var að-
stoðarljósmyndari í New York og
þau sambönd nýtast mér vel. Jú,
framtíðin er björt.“
-Hver er næsti áfangastaður
þinn?
„Ég fer héðan til New York og
bý mig undir tökur í Pennsylvaniu
fyrir Harper’s Bazaar.“
- Ei-tu eingöngu tískuljósmynd-
ari?
„Nei, ég vil verða góður ljós-
myndari á öllum sviðum en ekki
aðeins sem tískuljósmyndari. Það
starf er hins vegar mjög gott því
auk þess sem það gefiír vel í aðra
hönd þá eru ekki mörg störf sem
krefjast þess að maður þvælist um
heiminn til að taka myndir af fal-
legum konum. Til að verða góður
tískuljósmyndari er nauðsynlegt
að hafa almenna ljósmyndaástríðu.
Mér finnst gaman að taka lands-
lagsmyndir, nektarmyndir, tísku-
ljósmyndir... Menn eins og Ric-
hard Avedon og Irwin Penn urðu
til dæmis frægir sem tískuljós-
myndarar en era frábærir á öðram
sviðum greinarinnar. Þeir höfðu
gaman af öllu. Þetta era menn sem
ég tek mér til fyrirmyndar.“
-Hver er uppáhaldstökustað-
urinn þinn í heiminum, fyrir utan
ísland?
„Fjölskylda mín er upprana-
lega frá Indlandi og ég held mildð
upp á það. Marokkó er hins vegar
fallegasti staður sem ég hef komið
á, það er alveg ótrálegur staður."
- Er ekki eyðimörk þar að
mestu leyti?
„Jú, en arkitektúrinn er ótrá-
legur og skammt frá Marakesh er
fjalllendi og fjölbreyttara lands-
lag. Brasilía finnst mér hins vegar
áhugaverð vegna fólksins sem er
alveg frábært. Það er í raun erfitt
að velja einn uppáhaldsstað, þeir
era svo margir."
-Kemst Island ofarlega á list-
ann?
„Það er engin spurning, það er
komið í hóp þriggja áhugaverð-
ustu landanna." (Þrátt fyrir hlátur
leikur enginn vafi á að þetta er
einlægt svar.)
-Hvenær byrjaðirðu að taka
myndir?
„Ég byrjaði í menntaskóla en
það var ekki fyrr en ég var kom-
inn í háskóla að ég fór út í þetta af
alvöra. Ég byrjaði í kjamorku-
verkfræði í háskóla og valdi ljós-
myndun sem valfag á fyrsta ári. A
öðra ári var ég hættur að sækja
tíma í kjarnorkuverkfræði og mál-
in þróuðust þannig að ég fór til
Kalifomíu og kláraði nám í ljós-
myndun. Ég vann svo hjá Michael
Thomson í New York í tvö og
hálft ár áður en ég fór að starfa
sjálfstætt."
Spennandi keppni
lauk á sveitaballi
GRUNNSKÓLARNIR í Kópavogi
luku annasömum vetri á sveitaballi
með Sóldögg á Borg í Grímsnesi og
var það lokahátíð Stigakeppni
grunnskóla Kópavogs sem stóð yfir
í allan vetur. Þetta var annað árið
sem keppnin fór fram og lögðu allir
skólar sitt af mörkum til að senda
keppendur í allar greinar því gefin
voru stig fyrir mætingu. Einnig
voru gefín stig fyrir fjögur efstu
sætin. Skólamir sem tóku þátt voru
Smáraskóli, Hjallaskóli, Digranes-
skóli, Snælandsskóli, Þinghólsskóli
og Kópavogsskóli.
Keppnin hófst á handboltakeppni
hjá HK í haust og var síðan keppt í
knattspyrnu á gervigrasinu í Smár-
anum í hörkufrosti í desember, að
sögn Dagnýjar Bjarkar Pjeturs-
dóttur, tómstundafulltrúa Kópa-
vogs. í janúar fór fram karókí-
keppni í Ekkó og tóku sigurvegar-
amir, Benjamín Magnússon og Pét-
ur Rafnsson úr Hjallaskóla, þátt í
karókí-keppni félagsmiðstöðva og
höfnuðu í öðra sæti af 28.
Keppni í frjálsum dönsum fór
fram í Hjallaskóla í febrúar og voru
sýnd 14 atriði. Þrír hópar og þrír
einstaklingar unnu sér inn rétt til
þátttöku í íslandsmóti félagsmið-
stöðva í Tónabæ. Þar náði hópurinn
Kúksarnir úr Hjallaskóla, sem skip-
aður er Laufeyju Einarsdóttur,
Anný Rós Ævarsdóttur, Sigríði
Guðmundsdóttur, Maríu Kristjáns-
dóttur og Guðlaugu Einarsdóttur
öðru sæti en alls tóku 24 hópar þátt
í keppninni.
^öökaupsveislur—úfísamkomur—skemmfanir—tónleikar—sýningor—kynntngar og fl. og fi. og fl.
“\
99
IaSr EkkJ 1
LJskÍDuleaaiaóeftii
..og ýmsir fylgihlutir
r Ekki treysta ó veöriö þegar
skipuleggja ó eftirminnilegan viðburð -
Tryggiö ykkur oa leigið stórt tjald ó
staðinn - það marg borgar sig.
Tjöld af öllum stœrðum fró 20 - 700m2.
Einnig: Borð, stólar, tjaldgólf og
tjaldhitarar.
Digranesskóli bar sig-
ur úr býtum í skákmóti
Taflfélags Kópavogs í
mars og mættu til leiks
unglingalið frá öllum
skólunum. Það hefur
ekki gerst hjá Taflfélagi
Kópavogs í mörg ár.
Loks var haldin mynd-
sköpunarkeppni undir
yfirskriftinni Mannlífið
í Kópavogi í umsjá
Myndlistarskóla Kópa-
vogs í apríl og körfu-
boltamót á vegum
Breiðabliks í maí.
Verðlauna- og vor-
hátíð grannskólanna í
Kópavogi var svo
haldin í maí og var yf-
ir 800 unglingum úr
Kópavogi ekið á
sveitaball með Sól-
dögg. Þar var afhent-
sinni. In3björg,S'S'X?ÍngakePÍ)nÍna að 1>('SSU
skd,a’ASSSL
ymsum greinum úr skólanum °fUm '
FORMENN nemendaráða
grunnskólanna í Kópavogi tog-
ast á um bikarinn áður en úr-
slitin voru kunngjörð, frá
vinstri: Sólborg úr Digranes-
skóla, Telma úr Smáraskóla,
Guðmundur úr Snælandsskóla,
Guðrún úr Þinghólsskóla, Ingi-
björg úr Hjallaskóla og Birgir
úr Kópavogsskóla.
ur farandbikar Visa og einnig
verðlaunapeningar fyrir fyrstu
þrjú sæti í hverri grein. „Stefn-
an með þessari stigakeppni er
að hvetja alla unglinga í Kópa-
vogi til að skoða það framboð
sem er af góðri afþreyingu við
allra hæfi, aðra en sjoppuna og
vímuefnin og vonum við að til-
gangingum sé náð með þessari
keppni,“ sagði Dagný Björk um
keppnina.