Morgunblaðið - 16.07.1998, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 16.07.1998, Blaðsíða 33
32 FIMMTUDAGUR 16. JÚLÍ 1998 MORGUNBLAÐIÐ STOFNAÐ 1913 ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík. FRAMKVÆMDASTJÓRI: Hallgrímur B. Geirsson. RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. EINKAVÆÐING BANKANNA EFTIR að skýrslur Ríkisendurskoðunar um ríkis- bankana þrjá hafa verið birtar opinberlega og al- mennar umræður farið fram um þær, þótt þær hafi að langmestu leyti snúizt um málefni Landsbankans, er tímabært, að ríkisstjórnin snúi sér að því að taka ákvarðanir um það, hvernig standa skuli að einkavæð- ingu bankanna. I kjölfar athugasemda Ríkisendurskoð- unar hafa forráðamenn bankanna og stjórnvöld gripið til margvíslegra aðgerða til þess að bæta úr því sem mis- farið hefur. Með því hefur andrúmsloftið í kringum bankana verið hreinsað, þótt eftir standi rannsókn Lind- armálsins, sem væntanlega mun taka töluverðan tíma. Nú er ekkert því til fyrirstöðu að horfa fram á við og taka ákvarðanir um hagræðingu í bankakerfinu, sem mun leiða til verulegs sparnaðar í rekstri bankanna og bæta afkomu þeirra mjög, ef að líkum lætur. Hagræðing með fækkun banka og stækkun stendur yfir um allan hinn vestræna heim og jafnframt er talin brýn þörf á róttækum umbótum í bankakerfinu í Asíu. Tækniþróun- in stuðlar mjög að þessari hagræðingu. Hinn almenni viðskiptavinur banka þarf sjaldnar að koma í afgreiðslur bankanna en áður. Hann getur bæði stundað viðskipti sín í hraðbönkum og einnig með beinni tölvutengingu frá heimili sínu eða vinnustað. Ríkisstjórnin hefur fyrir alllöngu gefið ákveðnar vís- bendingar um fyrirætlanir sínar í málefnum bankanna. Pví hefur verið lýst yfir, að á þessu ári verði 49% af hlutafé Fjárfestingarbanka atvinnulífsins hf. seld og full ástæða til að fylgja þeim áformum fast eftir. Fjárfest- ingarbankinn nýtur nokkurrar sérstöðu í bankakerfinu og eðlilegt að mið verði tekið af því, þegar kemur að ákvörðunum um sölu hans. Framundan eru einnig fyrstu skrefin í sölu hlutabréfa í Landsbanka íslands hf. og Búnaðarbanka Islands hf. En jafnframt er ljóst, að í viðskiptabönkunum þremur er áhugi á sameiningu einhverra tveggja banka vegna þess, að með því næst mest hagræðing í rekstri bank- anna. Það er auðvitað mikið álitamál, hvernig standa skuli að slíkri ákvarðanatöku. Æskilegast er, að þar ráði ferðinni hrein viðskiptaleg og markaðsleg sjónarmið en að pólitísk viðhorf komi þar ekki við sögu. Það er hins vegar flóknara mál, hvernig að því yrði staðið. I öðrum löndum mundi þetta væntanlega gerast þannig, að sá banki eða þeir bankar, sem teldu sér hag- kvæmt að sameinast þriðja banka eða kaupa þriðja banka, mundu gera þeim hinum sama tilboð um kaup eða samruna á ákveðnum forsendum. Er fráleitt, að það geti gerzt hér? Er óhugsandi, að erlendir bankar eða fjárfestar komi hér við sögu? Eignaraðild erlendra aðila að íslenzka bankakerfinu mundi m.a. gera það óháðara þeim margslungnu hagsmunahópum og tengslum, sem einkenna íslenzkt samfélag. Bankakerfið stendur á þeim vegamótum, að stjórn- málaflokkarnir eru að sleppa hendinni af því. Ahrif stjórnmálaflokkanna í bankakerfinu eiga sér sögulegar forsendur, sem engin ástæða er til að gera lítið úr. Þá voru aðrir tímar og aðrar aðstæður. Nú er þessi breyt- ing að verða og þá er mikilvægt, að stjórnmálaflokkarnir leitist við að standa þannig að henni að engin tilraun verði gerð til þess að framlengja þessi áhrif. Þetta er hins vegar ekki auðvelt verk. Það skiptir t.d. miklu máli að standa þannig að einkavæðingu bankanna, að niðurstaðan verði ekki sú, að örfáir aðilar nái undir- tökunum í þeim. Margir mundu líta svo á, að farið væri úr öskunni í eldinn, ef einkavæðing bankanna yrði til þess að þeir skiptust á milli þeirra tveggja viðskipta- blokka, sem menn hafa séð móta fyrir í viðskiptalífinu á undanförnum árum. Á þessum áratug hefur orðið ótrúleg breyting á við- horfum í þjóðlífinu. Þessi breyting er árangurinn af starfi tveggja ríkisstjórna, sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur haft forystu fyrir og unnið fyrst með Alþýðuflokki og síðan með Framsóknarflokki. Þessi áratugur er orð- inn mesta umbótatímabil í lýðveldissögunni ásamt Við- reisnarárunum svonefndu. Það yrði glæsilegur áfangi á þessum ferli, ef núverandi ríkisstjórn tækist að hrinda af stað á næstu mánuðum einkavæðingu bankanna og endurskipulagningu bankakerfisins. Morgunblaðið/Arnaldur FRÁ fyrsta fundi nýkjörinnar borgarstjórnar. HALMSTRA R-LISTANS Borgarstjórnarflokkur Sjálfstæðisflokksins dregur í efa að Reykjavíkurlistanum sé heimilt að skipta varamönnum inn í borgar- stjórn í annarri röð en þeirri sem þeir eru kosnir. Páll Þórhallsson reifar þau sjónar- mið sem líta þarf til við mat á ágreiningnum. SJÁLFSTÆÐISMENN hafa mótmælt aðferð Reykjavíkur- listans við að skipta vara- mönnum inn í borgarstjóm. Að sögn Ingu Jónu Þórðardóttur, oddvita sjálfstæðismanna í borgar- ráði, hefur verið ákveðið að kæra framferði meirihlutans til félagsmála- ráðherra. Málið snýst um þá stöðu sem kom upp í kjölfar sveitarstjóm- arkosninganna í vor þegar Hrannar B. Amarsson, í 3. sæti R-listans, óskaði eftir tímabundnu leyfi frá störfum. Tók Pétur Jónsson sæti hans en hann er varamaður í 13. sæti Reykjavíkurlistans. Ekki var sem sagt gripið til varamanna í 9.-12. sæti. Sveitarstjórnarlögin eru allskýr varðandi það hvaða reglur eigi að gilda um varamenn. Þannig segir í 24. gr. nýju sveitarstjórnarlaganna nr. 45/1998 (ákvæði sem er sam- hljóða í þeim eldri): „1. mgr. Varamenn taka sæti í sveit- arstjórn í þeim röð sem þeir eru kosnir þegar aðalfulltrúar þess lista sem þeir eru kosnir af falla frá, flytj- ast burtu eða forfallast varanlega á annan hátt eða um stundarsakir frá því að sitja í sveitarstjórn. 2. mgr. Nú er framboðslisti borinn fram af tveimur eða fleiri stjórn- málaflokkum eða samtökum og geta þá aðalmenn listans komið sér saman um mismunandi röð varamanna eftir því hver aðalmanna hefur forfallast. Yfírlýsing um slíkt samkomulag skal lögð fram á fyrsta eða öðrum fundi sveitarstjórnar eftir kosningar." Borinn fram af einum eða fleiri samtökum? Allt veltur þá á því hvort Reykja- víkurlistinn telst borinn fram af mis- munandi flokkum eða samtökum. Ef sú er raunin er heimilt að skipta varamönnum inn á í annarri röð en þeirri röð sem þeir eru kosnir. Ef hins vegar listinn telst borinn fram af einum samtökum þá skulu vara- menn taka sæti í sveitarstjóm í þeiiTÍ röð sem þeir em kosnir. Eins og kunnugt er er ekki að öllu leyti staðið eins að framboði Reykja- vfkurlistans 1994 og 1998. Fyrir kosningarnar 1994 óskuðu aðstand- endur listans eftir því við yfirkjör- stjórn að listinn yrði borinn fram af Reykjavíkurlistanum og þannig yrði þetta á kjörseðli. Yfirkjörstjórn hafnaði þessu á sínum tíma með úr- skurði sem varpar ljósi á framhaldið: „Á framboðslista þeim, sem barst yfírkjörstjórn fyrir lok framboðs- frests og auðkenndur hefur verið með listabókstafnum R, segir orð- rétt: „Alþýðubandalagið, Alþýðu- flokkurinn, Framsóknarflokkurinn og Kvennalistinn hafa ákveðið að bjóða fram sameiginlegan lista við borgarstjórnarkosningarnar í Reykjavík sem fram eiga að fara 28. maí 1994. Heiti listans er Reykjavík- urlistinn og óskað hefur verið eftir listabókstafnum R.“ Af þessum til- vitnuðu orðum verður ekki annað ráðið en listinn sé borinn fram af fyrrgreindum fjórum stjómmála- flokkum eða -samtökum. Eins og listinn er úr garði gerður lítur yfir- kjörstjóm svo á, að „Reykjavíkurlist- inn“ sé heiti á listanum en ekki á stjómmálasamtökum, sem að honum standa.“ Akvað yfirkjörstjórn þá að á kjör- seðli skyldi standa fyrir ofan nöfn frambjóðenda á R-lista: „R. Listi borinn fram af Alþýðubandalagi, Al- þýðuflokki, Framsóknarflokki og Kvennalista." Við kosningarnar 1994 lék sem sagt enginn vafi á því að R-listinn var borinn fram af ólíkum stjórn- málaflokkum. Fyrir kosningarnar nú í vor brá hins vegar svo við að stofn- uð vom ný samtök með formlegum hætti til að bera fram R-listann. Um þetta sagði Ingibjörg Sólrún Gísla- dóttir í samtali við Morgunblaðið sem birtist 5. maí 1998: „Þegar boðið var fram fyrir fjómm áram var farið fram á það við yfir- kjörstjórnina í Reykjavík að þetta yrði með þessum hætti, þ.e.a.s. að R- listinn yrði borinn fram af Reykja- víkurlistanum, og það yrði einvörð- ungu þannig á kjörseðlinum. Því var vísað frá af þáverandi yfirkjörstjórn á þeirri forsendu að þessi samtök væru ekki til og þau yrðu að vera til með formlegum hætti til þess að list- inn gæti verið borinn fram af þeim. Núna var verið að fullnægja þessu formsatriði, að til væra samtök á bak við R-listanafnið, sem eru þá Reykja- víkurlistinn og kosningabandalag þessara fjögurra flokka og óflokks- bundins fólks. Breytingin er í raun- inni bara formsatriði og breytir engu um eðli Reykjavíkurlistans." Mikilvægi formsatriða Formsatriði sem breytir engu um eðli? Þar liggur kannski hundurinn grafinn. Eins og allir vita er form- hyggja óvíða meiri en í lögfræðinni og hætt er við að þessi breyting, sem í augum borgarstjórans er formsat- riði, skipti töluverðu máli. Það á ekki síst við um framkvæmd kosninga þar sem formsatriði vega mjög þungt. Það þýðir væntanlega lítið að halda því fram að það sé á allra vitorði að Reykjavíkurlistinn sé afsprengi til- tekinna flokka. Það hefur heldur ekki endilega mikla þýðingu að R- listinn var valinn með próíkjöri þar sem þær reglur giltu að sjö efstu sætunum var skipt á milli fjögurra stjórnmálaflokka, Samtaka um kvennalista, Alþýðubandalags, Framsóknarflokks og Alþýðuflokks. Fyrirfram var ákveðið að Ingibjörg Sólrún skipaði 8. sætið. Hún ráðstaf- aði sjálf 9. sætinu. Eftir prófkjörið var svo raðað í sætin þar fyrir neðan með tilliti, meðal annars, til jafnrar skiptingar milli flokkanna og óháðra. Það sem hefur mesta þýðingu í þessu sambandi hlýtur að vera hvernig framboðið er tilkynnt ski’if- lega í hendur yfirkjörstjórn á grand- velli 21. gr. laga um kosningar til sveitarstjórna nr. 5/1998, ákvæðisins sem mælir fyrir um að öll framboð skuli tilkynnt ski-iflega yfirkjörstjórn í síðasta lagi þremur vikum fyrir kosningar. Eins og áður segir var listinn bor- inn fram af Reykjavíkurlistanum, sem er lögpersóna með sjálfstæða kennitölu. Framboðinu fylgdi þó að sögn Eiríks Tómassonar, formanns yfirkjörstjórnar, skrifleg yfirlýsing um að að framboðinu stæðu stjórn- málaflokkarnfr fjórir auk óháðra. Hætt er við að sú yfirlýsing eigi eftir að koma til skoðunar við mat á því hvort skilyrði 2. mgr. 24. gr. sveitar- stjórnarlaga séu uppfyllt. Ekki skal sagt um hvort hún ræður úrslitum en án þessa hálmstrás hefði málstaður MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. JÚLÍ 1998 33 Morgunblaðið/Kristínn Ingvarsson Aukin þekk- ing hefur skipt mestu Helsta ástæða þess að yfirmenn tóbaksfyrir- tækja hafa loks viðurkennt að reykingar séu hættulegar er sú að almenn þekking hefur aukist og ekki er lengur hægt að villa um fyrir fólki, segir Julius Richmond, fyrrverandi landlæknir í Bandaríkjunum. Hann hefur borið vitni og gefið yfirlýsingar í dómsmálum gegn tóbaksfyrirtækjum. Kristján G. Arngrímsson ræddi við hann. R-listans að minnsta kosti verið erf- iðari. Vandinn er samt sá að yfirlýs- ing þessi kemur að því er best verður séð ekki með nokkram hætti til vit- undar kjósenda og því spurning hversu mikið vægi hún eigi að hafa. Það er samt sem áður afstaða Reykjavíkurlistamanna að þegar Hrannar B. Arnarsson hverfi úr þriðja sætinu, sem hann hreppti í prófkjöri sem fulltrúi Alþýðuflokks- ins, þá eigi Alþýðuflokksmaðurinn Pétur Jónsson að koma í staðinn. Lögðu þeir fram yfirlýsingu á fundi í borgarstjórn 2. júlí síðastliðinn þar sem segir að Reykjavíkurlistinn hafi samþykkt að ef um forföll borgarfull- tráa til lengri tíma sé að ræða taki varaborgarfulltrúi frá sömu stjórn- málasamtökum sæti í borgarstjórn. I öllum öðrum tilvikum taki varamenn sæti í borgarstjórn í þeirri röð sem þeir eru kosnir. Losaraleg framkvæmd Einhverjir hafa orðið til að benda á að framkvæmdin hafi nú verið fremur losaraleg í þessu efni í Reykjavík og annars staðar, jafnvel á Álþingi. Það er auðvitað rétt að meðan enginn kærir frjálslegar inn- áskiptingar varamanna þá viðgang- ast þær. Hins vegar er erfiðara að ímynda sér að losaraleg framkvæmd geti haft þýðingu komi slíkt mál til úrskurðar þegar tiltölulega afdrátt- arlausar lagareglur eiga í hlut. Einnig hefur því verið haldið fram að ef varamenn í 9.-12. sæti hreyfi ekki mótbárum þá sé ekkert því til fyrirstöðu að varamaðurinn í 13. sæti komi inn. Nú er nokkuð ljóst að það er ekki þetta sem gerðist í borg- arstjórn. En væri þessi leið fær? Væntanlega yrði þá að minnsta kosti að gera eins og tíðkast á Al- þingi að bréf berist frá þeim vara- mönnum, sem ofar eru, um að forföll banni að þeir taki sætið sem losnað hefur. tírskurðarvald félags- málaráðuneytis Þá þarf að huga að því hvort hægt sé með einhverjum hætti að láta á þetta reyna, ef pólitískur vilji er á annað borð fyrir hendi að gera veður út af þessu. Ef allir una þessu, bæði aðrir varafulltrúar Reykjavíkurlistans, minnihluti Sjálfstæðismanna og kjósendur, þá verður auðvitað ekkert að gert. Samkvæmt 103. gr. sveitarstjórnar- laga úrskurðar félagsmálaráðuneyt- ið um ýmis vafaatriði sem upp kunna að koma við framkvæmd sveitarstjórnarmálefna. Ekki er tekið á því í lögunum hverjir hafi rétt til kæru, hverjir eigi aðild eins og það heitir á fagmáli. Haft var eftir Ingibjörgu Sólrúnu Gísladótt- ur í Morgunblaðinu 5. júlí að póli- tískir andstæðingar ættu ekki að skipta sér af því með hvaða hætti kjör varamanna færi fram þar sem sveitarstjórnarlögin væru skýr. Lögin væru ekki til að tryggja rétt andstæðinganna heldur þeirra sem stæðu að kosningabandalaginu. Þessi afstaða er nú ekki sannfær- andi. Ef þetta er einkamál Reykja- víkurlistans, til hvers eru þá reglur um að listi skuli boðinn fram með frambjóðendum í tiltekinni röð? Er ekki hugsunin sú að kjósendur taki afstöðu til listans sem heildar og greiði honum atkvæði í þeirri trú að þeir sem ofar eru komi fyrr til áhrifa en þeir sem neðar eru? Það er að vísu rétt að málið varð- ar ekki minnihlutann nema óbeint. Fyrst og fremst eru hagsmunir kjósenda í Reykjavík í húfi. Þar sem þeir hagsmunir eru fremur óá- þreifanlegir er ekki við því að búast að nokkur þeirra beri fram kæru. En vissulega má halda því fram að það sé eitt af hlutverkum minni- hlutans að hafa gætur á meirihlut- anum og finna að því þegar hann virðir ekki settar leikreglur. Þess vegna er ekki sennilegt að félagsmálaráðherra Páll Pétursson geti hafnað aðild borgarstjórnar- flokks Sjálfstæðisflokksins þegar honum berst kæra sú sem Inga Jóna Þórðardóttir oddviti hans seg- ir að sé í uppsiglingu. Kæruna verði sem sagt að taka til efnismeðferðar. Þá niðurstöðu má svo væntanlega bera undir dómstóla ef því er að skipta. JULIUS Richmond gegndi emb- ætti landlæknis 1977-81 í stjórnartíð Jimmys Carters, og var þá einnig aðstoðai-heilbrigð- isráðherra. Hann segir lögfræðinga hafa leitað til sín nú sem fyrrverandi iandlæknis og kveðst hann yfirleitt ekki taka greiðslu fyrir vitnisburð. Fyrsta málið sem hann hafi komið ná- lægt var höfðað í Miami í júlí og ágúst í fyrra af núverandi og fyrrverandi flugfreyjum sem mega þola óbeinar reykingar í starfi sínu. „Minn vitnis- burður var fyrfr hönd flugfreyjanna um skaðsemi tóbaksreyks. Þau réttar- höld skiptu miklu vegna þess að flug- freyjurnar neyðast til að anda að sér tóbaksreyk starfs síns vegna." Þegar málflutningur hafði staðið í fjóra mánuði ákváðu sígarettufram- leiðendur að bjóða dómssátt. Gengið var að henni á þeim grundvelli að framleiðendur greiddu 300 milljónir til þess að flugfreyjumar gætu komið á fót stofnun til þess að rannsaka áhrif óbeinna reykinga. Þær fengu engar greiðslur sjálfar heldur fara pening- amir allir tfl stofnunarinnar. Málinu var áfrýjað og enn hefur ekki verið kveðinn upp úrskurður. 430 þúsund dauðsföll I Bandaríkjunum deyja um það bil 430 þúsund manns árlega af völdum sjúkdóma sem rekja má til reykinga. „Við höldum því fram að sígarett- ureykingar séu banvænasti skaðvald- urinn sem hægt væri að vinna bug á,“ segir Richmond. ,Áf þessum 430 þúsundum dauðs- falla eru um 160 þúsund af völdum lungnakrabba. Hin eru af völdum ann- arra tegunda ki-abbameins, t.d. í munni, og hjartasjúkdóma af öllum gerðum. Og þar sem hjartasjúkdómar eru algengasta orsök dauðsfalla í Bandaríkjunum má telja að reykingar eigi þar stóran þátt.“ Riehmond full- yrðir að hægt væri að koma í veg fyrir hvert einasta af þessum 430 þúsund dauðsföllum. Yfirmenn tóbaksfyrirtækjanna við- urkenndu ekki fyrr en á síðasta ári að sígarettureykingar gætu verið valdar að krabbameini. Fram að því höfðu lögfræðingar jafnan ráðlagt þeim að viðurkenna slíkt ekki, því þeir töldu sig geta fullyrt fyrir réttinum að það væri ekki óyggjandi að sígarettur séu sjúkdómsvaldar. „Fyrir réttinum hafa þefr verið að- gangsharðir við mig og reynt að fá mig til að segja að reykingar valdi ekki ki-abbameini. Ég held því fram að faraldursfræði byggi á tölfræðilegum tengslum. Þeir nefna að til séu dæmi um það að fólk, sem ekki reykir, fái lungnakrabbamein. Það þýðir samt ekki að reykingar valdi ekki lungna- krabba. Þrátt fyrir einstök dæmi um lungnakrabba hjá fólki sem ekki reyk- fr þarf maður að útskýra hvers vegna reykingafólk er tíu sinnum líklegra til að fá lungnakrabba, og þefr sem reykja mikið eru tuttugu sinnum lík- legri. Þetta er óvefengjanlegt." Richmond segir að hér sé reyndar ekki um að ræða að sýnt sé fram á að reykingar séu beinlínis orsökin að krabbameini. „Þeir segja að ekki sé vitað hvaða efni í sígarettureyk koma krabbameini af stað. Ég svara því til, að þótt við vitum ekki allt er ekki þar með sagt að við vitum ekkert. En á undanförnum árum hafa frumurann- sóknii- leitt í ljós að í sígarettureyk era ákveðin efni sem „slökkva á“ stýrikerfi frumnanna með þeim afleið- ingum að þær taka að vaxa óstjórn- lega, líkt og gerist við krabbameins- vöxt.“ Richmond tekur fram að þessar rannsóknir séu ekki fullunnar, en vís- bendingarnar séu sterkar. Mestu skiptir, um breyttan fram- burð yfirmanna tóbaksfyi'irtækjanna, að almenningur skilur orðið svo vel að reykingar valda sjúkdómum, að ekki dugi að halda því fram við kviðdóm, eins og gert hefur verið, að ekki sé fyllilega ljóst að reykingar valdi sjúk- dómum. „Lögfræðingar tóbaksfyrirtækj- anna hafa því snúið við blaðinu og í nýjustu dómsmálunum hafa lögfræð- ingarnir sagt sem svo við kviðdómend- ur: Þessi maður reykti og fékk krabbamein, hann hefði mátt vita að það gæti gerst; það vita allir að reyk- ingar valda sjúkdómum, hvers vegna ætti þessi maður að fá skaðabætur?" Richmond nefnir að dómsmál gegn tó- baksfyrirtækjum hafí tapast á þessum forsendum. Allsheijarsamkomulag I júní i fyrra náðu dómsmálaráðheiT- ar í 40 ríkjum samkomulagi við stærstu tóbaksfyrirtækin í Bandaríkjunum um greiðslu 368,5 milljarða dollara til að standa straum af kostnaði vegna heilsutjóns af völdum reykinga. Richmond var á vitnalistanum íyifr nokkur ríkjanna, m.a. Flórída og Texas. Áður en til vitnisburðarins kom náðist dómssátt í báðum málunum, í Flórída sættust framleiðendur á að greiða 11 milljarða dala og í Texas 15 milljarða. Ennfi'emur náðu Minnesota og Miss- issippi dómssátt við framleiðendur. Þegar allsherjarsamkomulag ríkj- anna 40 kom fyrir öldungadeild bandaiíska þingsins þótti oddvita deildai'innar, John McCain, repúblik- ana frá Ai'izona, sem 368 milljarðar væra ekki nóg og ákváð nefndin, er hann veitir forsæti, að talan skyldi verða 512 milljarðai'. „Þá spymtu sígarettuframleiðendm- við fótum og vildu ekki ganga að sam- komulaginu. Þeir hófu auglýsingaher- ferð, eyddu 40 milljónum dollara á ein- um mánuði áður en samkomulags- frumvarpið var lagt fyrir þingið. Framleiðendurnir voru ekki að halda því fram að frumvarpið væri slæmt vegna þess að það væri ekkert athuga- vert við reykingar, heldur sögðu þeir að það væri verið að breyta því í frum- varp um hækkun skatta.“ Richmond segir þetta vera hefð- bundna röksemdafærslu Repúblikana- flokksins - að stjórnin sé of stór og eigi ekki að hafa meiri peninga. „Þetta olli nægjanlega miklum pólitískum deilum til þess að fon-áðamenn öld- ungadeildarinnar - sem eru repúblík- anai' - bera samkomulagið ekki undir atkvæði. Þar af leiðandi hafa engin lög orðið til en menn eru að velta því fyrir sér að annað frumvarp verði lagt fram.“ Sígaretturframleiðendur voru fylgj- andi frumvarpinu, segii' Richmond, í þeiiTÍ von að þeir gætu sett mörk við því hversu mikils væri hægt að krefj- ast af þeim í skaðabætur. Samkvæmt upphaflega frumvai-pinu hefðu hóp- málsóknir, eins og sú sem flugfreyj- urnai- hófu, verið óheimilar. Einungis einstaklingar hefðu getað höfðað mál á hendur framleiðendunum, en það myndi hafa reynst erfitt fyrir einstak- linga að reiða fram fé til að ráða sér lögfræðinga og standa straum af öðr- um kostnaði. Mál Carters En það sem skaut tóbaksiðnaðinum skelk í bringu var aðallega tvennt, segir Richmond. I fyi’sta lagi, að fyrir fjórum árum ákvað lögfræðingur í Jacksonvflle í Flórída að taka að sér mál manns nokkurs sem heitir Carter. Carter hafði fengið lungnakrabbamein eftir að hafa reykt í þrjátíu ár. „Þetta varð í fyrsta sinn sem dómur féll tó- baksreykingamanni í vil. Honum voru dæmdir 750.000 dollarar, sem kannski hljómai' ekki sem mikið í dag. Málinu var áfrýjað og úrskurður hefur enn ekki verið kveðinn upp.“ Richmond rifjai- upp, að The Wall Street Joumal hafi sagt frá því að þegai' dómurinn féll Carter í vil hafi yfirmaður bresk/bandaríska sígar- ettufyrirtækisins Brown & Williamson sent skilaboð til yfírmanna bandarísku tóbaksfyrirtækjanna Philip Morris og RJR og sagt sem svo: „Þetta skulum við láta verða fyrsta og síðasta málið sem við töpum.“ Hann hafi óttast að fleiri mál myndu fylgja í kjölfarið. Skömmu síðar hófu yfinnenn tóbaks- fyrirtækjanna að funda með sak- sóknurum í Bandaríkjunum. Með „djúpa vasa“ „Annar mikilvægur þáttur í að fá tó- baksfyrirtækin tfl að vilja ganga til samninga var að dómsmálaráðherrann í Mississippi, Michael Moore, fékk þá hugmynd að það væri hægt að höfða mál á hendur tóbaksfyrirtækjunum og krefjast skaðabóta fyrir kostnaðinn við opinberri heilsugæslu fyi'ir reyk- ingafólk sem ekki getur greitt sjúki'a- húskostnaðinn sjálft og reiðir sig á op- inbera heflsugæslu. Þetta hafði engum hugkvæmst áður, og nú höfðu tóbaks- fyrirtækin í fyrsta sinn andstæðinga með það sem við köllum „djúpa vasa“ og höfðu efni á því að reka mál.“ Riehmond telur líklegt, og einnig æskflegt, að í stað allsherjarsam- komulagsins muni hvert og eitt ríki nú gera samkomulag við tóbaksframleið- endur. Hann bendir á að fjögur ríki hafi nú þegar náð slíkum samningum. „Það væri æskflegt að framhaldið yrði þannig, því að það myndi halda um- ræðunni vakandi í fjölmiðlum og hefði þannig mikil menntunaráhrif. Því meira sem þetta er rætt því betur verður ljóst að reykingar eru hættu- legar.“ Richmond kveðst þó ekki telja lík- legt að framhaldið verði með þessum hætti. Tóbaksframleiðendur vilji það ekki og muni reyna að ná allsherjar- samkomulagi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.