Morgunblaðið - 16.07.1998, Blaðsíða 22
22 FIMMTUDAGUR 16. JÚLÍ 1998
ERLENT
MORGUNB LAÐIÐ
ÚR VERINU
K - ' §
k . F
Morgunblaðið/Alfons
Anægður með
stórþorskana
SUMARBLÍÐAN í Ólafsvík að
undanfdrnu hefur gert trillusjó-
mönnum Iífið létt. Menn hafa
notað blíðuna vel til sjósóknar
og er Hermann Sigurðsson á
Þresti SH þeirra á meðal. Hann
sést hér hampa tveimur stór-
þorskum sem hann fékk á færi í
Breiðafirðinum og Ieynir það
sér ekki að Hermann er
hinn ánægðasti með feng dags-
ins.
Góð veiði á gulllaxi á árinu
Aukinn áhugi á er-
lendum mörkuðum
FRAMLEIÐENDUR segjast verða
varir við aukinn áhuga á gulllaxi á
erlendum mörkuðum, en veiðin hér
hefur aldrei verið meiri en á þessu
fískveiðiári, eða um 11 þúsund tonn.
Skip Þorbjarnar hf. í Grindavík
hafa landað mestum afla eða um
2.500 tonnum að verðmæti 120 millj-
ónir króna. Eiríkur Tómasson fram-
kvæmdastjóri segir hér um verulega
búbót að ræða: „Þetta er fyrsta árið
sem við stundum þessar veiðar að
einhverju marki og árangurinn hefur
verið afar ánægjulegur. Fiskurinn
veiðist aðallega í júní og á haustin en
aflinn er að stærstum hluta seldur til
Rússlands. Fiskistofa gaf út tilkynn-
ingu um að veiðum skyldi hætt 9.
júlí, en við munum taka upp þráðinn
á ný í haust.“
Velðist aðallega í
kringum Vestmannaeyjar
Fiskurinn veiðist aðallega í kring-
um Vestmannaeyjar en auk Þor-
bjarnar hf. hafa útgerðarfélögin
Bergur-Huginn og Vinnslustöðin i
Vestmannaeyjum bæði haft skip við
veiðar á gulllaxi. Vinnslustöðin hefur
verkað um 2.000 tonn á árinu og tel-
ur Sighvatur Björgvinsson fram-
kvæmdastjóri að framleiðsluverð-
mæti aflans liggi nálægt 130 milljón-
um. Félagið hefur gert út tvö skip á
miðunum og að sögn Sighvats hefur
þetta ár verið eitt hið besta frá því
veiðarnar hófust 1993.
Magnús Kristinsson, fram-
kvæmdastjóri Bergs-Hugins, tók í
sama streng: „Við höfum landað tæp-
lega 2.000 tonnum á þessu ári, sem er
vel viðunandi. Þetta er fímmta árið
sem félagið stundar veiðar á gulllaxi
og segja má að það sé fyrst nú sem
áhugi virðist vera að vakna á erlend-
um mörkuðum, aðallega í Eystra-
saltslöndunum og Rússlandi, eftir
fremur erfítt tímabil í upphafí.“
---------------
Húsnæði
Fiskifélags-
ins til leigu
HÚSNÆÐI Fiskifélags íslands í
Ingólfsstræti 1 í Reykjavík hefur
verið auglýst til leigu. Að sögn
Bjama Grímssonar fískimálastjóra
er verið að kanna hvort hagur sé í
því fyrir Fiskifélagið að leigja hús-
næðið og leigja annars staðar fyrir
þá starfsemi sem nú er í húsnæðinu.
„Við eram að skoða mál hjá okkur
og átta okkur á því hvers eðlis húsa-
kostur er og svo fram eftir götum,“
sagði Bjami. „Þetta er að ákveðnu
leyti vinsæll staður og það er spurn-
ing hvort við sjáum okkur hag í því
að leigja annars staðar eða leigja öðr-
um. Við óskum tilboða og verðum
bara að sjá hvað kemur út úr því máli
og þegar það liggur fyrir verður tek-
in ákvörðun um hvemig mál þróast."
Húsnæði Fiskifélags íslands er á
þremur hæðum og er það samtals
um 1.200 fermetrar. Hefur eignin
verið auglýst til leigu í einu lagi eða í
smærri einingum. Fiskifélagið er til
hús á efstu hæð hússins, en Fiski-
stofa er á neðri hæðunum tveimur.
Vopnahlé vegna
hungursneyðar
Nairobi. Reuters.
HINN svokallaði Frelsisher Súd-
ans (SPLA) lýsti í gær yfir ein-
hliða þriggja mánaða vopnahléi í
því skyni að auðvelda flæði hjálp-
argagna til svæða þar sem hung-
ursneyð hefur gripið um sig í
skugga borgarastyrjaldarinnar,
sem geisað hefur í landinu með
hléum frá árinu 1983. Talsmenn
hjálparstofnana fögnuðu yfírlýs-
ingu SPLA í gær en kváðust engu
að síður telja að hún hefði lítil
áhrif.
Justin Yaac, talsmaður SPLA í
Nairobi í Kenýa, sagði að vopna-
hléð hæfíst á miðnætti að staðar-
tíma (kl. 21 í gærkvöldi að ísl.
tíma) og ætti við um héruðin Bahr
el Gazar og Efri-Nfl. Til greina
kæmi að stækka svæðið.
Sagði talsmaðurinn að SPLA
hefði tekið þessa ákvörðun vegna
þrýstings frá þjóðum heims, án sam-
komulags við stjórnina í Khartoum.
SPLA áskildi sér hins vegar rétt til
að veijast, ef stjómai’herinn reyndi
að nýta sér einhliða vopnahlésyfir-
lýsinguna til að sækja fram.
„Þjóðir heims þrýsta á okkur að
sjá til þess að óbreyttum borgurum
sé bjargað og við skoram á þær að
koma og hjálpa þjóð okkar,“ sagði
Yaac.
Talið er að yfir tvær milljónir
manna í suðurhluta Súdans séu í
hættu vegna hungursneyðar, aðal-
lega í Bahr el Gazar-héraði, að mati
Matvælaaðstoðar Sameinuðu þjóð-
anna.
Derek Fatchett, ráðherra utan-
ríkis- og samveldismála í brezku
ríkisstjórninni, hitti fulltrúa SPLA
í fyrradag til að þrýsta á um að ör-
yggi flutningleiða hjálpargagna
verði tryggt. Starfsmenn hjálpar-
stofnana segja að öruggar ílutn-
ingaleiðir myndu gerbreyta stöð-
unni til batnaðar, þar sem óöryggi
og vopnuð átök hafa hindrað flutn-
inga hjálpargagna til þessa.
I borgarastríðinu í Súdan takast
í grófum dráttum á arabískir
múslimar í norðri og kristnir svert-
ingjar í suðri.
Reuters
Til sölu
BYGGINGIN sem hýsir pakistanska forsætisráðuneytið í höfuðborg-
inni Islamabad er til sölu. Talið er að kostnaðurinn við bygginguna
hafi numið um einum milljarði rúpía, eða sem svarar einum og hálfum
milljarði íslenskra króna, og er markmiðið með sölunni að greiða
skuldirnar. í byggingunni eru 372 skrifstofur, 113 baðherbergi, 29
eldhús, ráðstefnusalur, pósthús og banki. Nawaz Sharif forsætisráð-
herra flutti út í síðasta mánuði til þess að leggja áherslu á sparnaðar-
ráðstafanir sem gripið var til vegna efnahagsþvingana sem Pakistanar
hafa verið beittir í kjölfar þess að þeir gerðu kjarnorkutilraunir í maí.
Baráttan gegn ETA
Dagblaði og
útvarpi lokað
Madrid. Reuters.
SPÆNSKUR dómari fyrirskipaði
lögreglunni í gær að loka dagblaði
og útvarpsstöð vegna meintra
tengsla þeirra við aðskilnaðar-
hreyfingu Baska, ETA.
Jaime Mayor Oreja innanríkis-
ráðherra sagði á blaðamannafundi
að dagblaðinu Egin og útvarps-
stöðinni Egin Irratia hefði verið
lokað tímabundið í gærmorgun
þegar spænska lögreglan handtók
11 manns sem sakaðir eru um að
hafa aðstoðað ETA.
„Það hefur verið sannað að náin
tengsl eru milli ETA og Egin ...
Egin starfar fyrir ETA,“ sagði Ma-
yor Oreja.
Egin, sem er gefið út í 50.000
eintökum, hefur verið málpípa
ETA og birt yfirlýsingar aðskilnað-
arhreyfingarinnar. Þeir sem voru
handteknir í gær voru flestir
starfsmenn Egin í Guipuzcoa-hér-
aði, vígi baskneskra aðskilnaðar-
sinna.
S
Ihuga málshöfðun á hend
ur tóbaksfyrirtækjum
Washington. Reuters.
TALSMAÐUR Bandaríkja-
stjórnar greindi frá því á
þriðjudag að til greina kæmi að
sljórnvöld höfðuðu mál á hend-
ur tóbaksiðnfyrirtækjum til
þess að endurheimta fjármuni
sem varið hafi verið í heilsu-
gæslu vegna sjúkdóma er
tengdust reykingum. Yrði grip-
ið til þessa ráðs ef öldungadeild
þingsins samþykkti ekki víð-
tækt frumvarp um aðgerðir
gegn reykingum.
Embættismenn sögðu að
málshöfðun væri eitt margra
úrræða sem kæmu til greina í
kjölfar þess að öldungadeildin
afgreiddi ekki frumvarp er
byggt var á samkomulagi 40
ríkja við tóbaksfyrirtækin,
sem gert var í fyrra, um að
fyrirtækin greiddu 368 millj-
arða dollara til heilbrigðis-
mála er tengdust sjúkdómum
af völdum reykinga. I meðför-
um deildarinnar hafði upphæð-
in reyndar hækkað í 516 millj-
arða. Tóku fulltrúar stjórn-
valda af allan vafa um að tó-
baksiðnfyrirtæki yrðu Iátin
reiða fram fjármuni.
Mike McCurry, talsmaður
Bandaríkjaforseta, tjáði frétta-
mönnum að þótt málshöfðun
kæmi til greina hefðu yfírvöld
fyrst og fremst áhuga á laga-
setningu. „Við munum halda
áfram tilraunum til að vernda
börn gegn tóbaksreykingum
og vinna gegn áhrifum tóbaks-
auglýsinga og tóbaksfíknar,“
sagði McCurry.
Talsmaður tóbaksiðnfyrir-
tækjanna lét í ljósi efasemdir
um að sljórnvöldum væri stætt
á málsókn. „Alríkisstjórnin hef-
ur áður athugað þennan mögu-
leika og það hefur komið fram
[í þinginu] að stjórnin getur
ekki haft sjálf frumkvæði að
slíku,“ sagði Scott Willams,
talsmaður fyrirtækjanna.
Frumvarpið, sem öldunga-
deildin afreiddi ekki, fól í sér
að tóbaksiðnfyrirtækjum yrði
gert að standa strauin af kostn-
aði við aðgerðir er miðuðu að
því að koma í veg fyrir reyk-
ingar unglinga; að greiða ríkj-
um bætur vegna kostnaðar við
heilsugæslu og kosta læknis-
fræðilegar rannsóknir og bóta-
greiðslur til tóbaksbænda. Full-
trúar fyrirtækjanna og allra 50
ríkjanna í Bandaríkjunum hafa
aftur tekið upp viðræður um
allsherjarsamkomlag um bóta-
greiðslur og hafa fundir staðið
í Coloradoríki í þessari viku.
Hafa viðræðurnar aðallega
beinst að möguleikanum á
milljarða dollara bótagreiðsl-
um án þess að alríkisstjórnin
komi þar nærri og án þess að
þörf verði á samþykki þings-
ins.
Gegn því að reiða af hendi
bætur vilja tóbaksfyrirtækin fá
tryggingu fyrir því að takmörk
verði sett á skaðabótaskyldu
þeirra og möguleika á máls-
höfðunum gegn þeim.
Fjármálaráðuneytið áætlar
að reykingar kosti ríkissjóð um
130 milljarða dollara á ári, þar
af fari um heliningur til
greiðslu á sjúkrakostnaði. Um
20 milljarðar eru greiddir af
alrikissjúkrasamlaginu, Med-
icare, og alríkis- og ríkja-
sjúkrasamlaginu Medicaid.
■ Aukin þekking/33