Morgunblaðið - 16.07.1998, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 16.07.1998, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. JÚLÍ 1998 37 AÐSENDAR GREINAR þessi öfl gegn Ólafi Ragnari Grímssyni í formannskjöri og töp- uðu. Árið 1995 stóðu svo til sömu öfl gegn Margréti Frímannsdóttur í formannskjöri og töpuðu. A landsfundi 1997 stóð þingflokkur Alþýðubandalagsins einangraður í hverju málinu af öðru. Síðan hefur þingflokkurinn, með Steingi'ím m.a. í forystu, reynt að gera Mar- gréti og samherja hennar Bi-yndísi Hlöðversdóttur lífíð þar sem óbærilegast. Og hvernig tekur aukalandsfundur Alþýðubanda- lagsins tilburðum meirihluta þing- flokksins? Styður Margréti! Það er þetta sem er í raun og veru að gerast. Litlir smákóngar heima í héraði, sem hrakið hafa fé- laga úr flokknum hver á sínum stað og í einu tilfelli fækkað kjós- endum flokksins um helming, ákveða að hefna þess í héraði sem hallaðist á á landsfundi. Eftir fundinn er farið til vina og skyld- menna og þau beðin að fara með forkólfunum úr flokknum. Skír- skotað er til vináttu og ekki síst sameiginlegra andstæðinga, innan flokks og utan. Sumir gera eins og um er beðið og er athöfninni þá lýst í hvert skipti í fjölmiðlum. Merkileg sýn blasir við: Sjálfút- nefndir máttarstólpar heils stjórn- málaflokks hverfa frá honum en það er varla að flokkurinn hallist þrátt fyrir brottfalhð. Er að undra þótt nokkrir stórmerkilegir karlar séu eitthvað súrir í lund um þessar mundir? En menn fara ógjarnan úr flokki án þess að tylla sér í leiðinni við einhverja ástæðu. Vinsælasta til- efnið eins og sakir standa er svo- nefnd „hægriþróun“ Alþýðubanda- lagsins. Slík dýr orð er auðveldara að segja í almennu orðalagi en með einstökum dæmum. Því að málin eru þannig vaxin að samfylkingar- hugsjónin er ótvíræð vinstristefna, hún snýst um það verkefni að veikja stöðu hægriaflanna með sameiginlegu framboði vinstri- manna. Að snúast gegn samfylk- ingu má auðveldlega túlka sem þjónkun við Framsóknarflokk eða Sjálfstæðisflokk. Það er vissa mín að margir, þó engan veginn allir, sem nú tala ákveðnast gegn sam- eiginlegu framboði Alþýðuflokks og Alþýðubandalags eygi nú ákveðna útgönguleið í átt að Framsóknarflokki. Því er öruggast að nefna tylliástæðuna aðeins í al- mennu orðalagi og sem minnst með einstökum dæmum. Lítum á málefni einstakra for- ystumanna hugsanlega aflsins sem teljast á „til vinstri við Alþyðu- bandalag". Hjörleifur Guttorms- son hefur lengi haft sérstöðu í flokknum í stefnumálum sínum. Mörg eru þau virðingarverð en hann hefur lítinn áhuga sýnt kjaramálum þeirra sem minna mega sín í samfélaginu. Ögmundur Jónasson hefur undanfarna mán- uði einkum vakið athygli fyrir and- stöðu sína við Reykjavíkurlistann. Steingrímur J. Sigfússon hefur hins vegar verið ötulasti stuðn- ingsmaður kvótakei’físins í Al- þýðubandalaginu. Jafnframt fínnum við raunveru- lega „vinstri sósíalista" víða um land, þó mest í Reykjavík. Hvernig þeir ætla að sameinast fyrrgreind- um héraðshöfðingjum í einhverju afli „til vinstri“ er mér hulin ráð- gáta. Hér er nefnilega um ennþá sundurleitari hóp að ræða en allt Alþýðubandalagið hefur verið hingað til og þessi hópur getur að- eins sameinast á neikvæðum for- sendum, í því að eiga sameiginleg- an óvin: Stefnu Alþýðubandalags- ins að vinstrimenn vinni vel saman gegn hægriöflunum í einum kosn- ingum. Hve lengi sameinar slík „hugsjón“? Höfundur er háskólakennari og varaformaður fulltrúaráðs Alþýðu- bandalagsfélaganna í Reykjavík. HUS málaranna. Morgunblaðið/Ásdis Engilberts, meðal annars vegna þess að SÍM virðist vera haldið þeirri þráhyggju að koma upp vinnustofum fyrir útlendinga(l). Þannig hugsa engin metnaðarfull hagsmunasamtök listamanna er- lendis, því skrifstofur geta verið all- staðar, sérbyggðar vinnustofur með ofanljósi fáar, samtökin til að mæra innlenda list og listamenn, og hús með jafn sögulegu gildi er tengist rismiklum brautryðjendum enn færri. Borgin og þjóðfélagið allt á þessum málurum er í húsinu bjuggu ómælda skuld að gjalda, jafnframt er það vissa mín að hér megi gera sælureit fyrir borgar- búa, Islendinga alla og erlenda ferðamenn, halda um leið minningu þessara valmenna vakandi. Gangi það ekki eftir teldist eðlilegast að húsið yrði bústaður starfandi mál- ara til lengri eða skemmri tíma, helst heiðursbústaður í líkingu við slíka vlða erlendis. Höfundur er listmálari. Vönduð - ryðfrí HUSASKILTI Nicorette* innsogslyf Þegar líkaminn saknar nikótíns og hendumar sdkna vanans. NICORETTE Við stöndum meðþér Nicorette® innsogslyf samanstendur af munnstykki sem (er sett rör sem inniheldur nikótín. Nicorette® innsogslyf er ætlaö til að auðvelda fólki að | hætta að reykja. Algengur skammtur er a.m.k. 6 rör á dag en þó ekki fleiri en 12 á dag ( a.m.k. 3 mánuði og venjulega ekki lengur en 6 mánuði. Nicorette® innsogslyf getur valdið aukaverkunum eins og hósta, ertingu ( munni og hálsi. Höfuðverkur, brjóstsviði, ógleði, hiksti, uppköst, óþægindi ( hálsi, netstffla og blöðrur ( munni geta einnig komið fram. Við samtlmis inntöku á gestagenöstrógen lyfjum getur, eins og við reykingar, veriö aukin hætta á blóðtappa. Nikótín getur valdið bráðum eitrunum hjá börnum og er efnið þvl alls ekki ætlað börnum yngri en 15 ára nema I samráði við lækni. Gæta skal varúöar hjá þeim sem hafa hjarta- og æöasjúkdóma. Pungaðar konur og konur með barn á brjósti ættu ekki að | nota lyfið nema (samráði við lækni. Lesið vandlega leiöbeiningar sem fylgja hverri pakkningu lyfsins. Markaðsleyfishafi: Pharmacia & Upjohn AS, Danmörk. Innflytjandi: Pharmaco hf., Hörgatúni 2, Garðabær. Það er ljóst að Sverrir ætlar ekki að berjast fyrir afnámi aflakvót- anna, segir Einar Odd- ur Kristjánsson, heldur vill hann selja þá á upp- boði og þannig skatt- leggja sjávarútveginn. forystu Sjálfstæðisflokksins og sunginn hefur verið um áratuga- skeið af íslenskum sósíalistum. Sverrir lætur nú illyrðin dynja á Hannesi Hólmsteini. Þetta er rúss- neska aðferðin. Gömlu komma- bófarnir kunnu þessa list vel, skömmuðu Albaníu þegar allir vissu að þeir meintu Kína. Þessi málflutningur Sverris þarf þó ekki að koma neinum á óvart, það er fullt samræmi í honum. Sverrir Hermannsson sækir nú allar helstu hugmyndir sínar til íslenskra sósí- alista. Svona fór þá fyrir honum. Nýkratinn Höfundur er alþingismaður. Tvær litlar athugasemdir SVERRIR Hermannsson hefur nú stigið á stokk og gert heyrin- kunna stefnu sína í sjávarútvegs- málum. Einnig hefur hann tjáð sig með afgerandi hætti um Sjálfstæðisflokkinn og forystu hans. Und- irritaður vill gera tvær athugasemdir við mál- flutning Sverris Her- mannssonar. í smiðju Ágústs Einarssonar Sverrir hefur boðað að hann hyggist fara í strið gegn kvótakerf- inu. En á fundi á Isa- firði nú í vikunni kom í ljós að meginuppistaða hinna „nýju“ hug- mynda Sverris eru gömlu __ kenningarnar hans Ágústs Einars- sonar, Þjóðvaka, um uppboð afla- heimilda. Það er því ljóst að Sverr- ir ætlar ekki að berjast fyrir af- námi aflakvótanna, heldur vill hann selja þá á uppboði og þannig skatt- leggja sjávarútveginn. Og hann hefur rækilega gengið í smiðju til Ágústar því hann leggur einnig til að á næstu fimm árum eigi þessi skattur að hækka upp í það að samsvara nettó tekjuskatti ríkis- sjóðs - nákvæmlega sama hug- mynd og hjá Ágústi. Skoðum þetta aðeins nánar. Nettó tekjur ríkis- sjóðs af tekjuskattinum eru nú um 18 milljarðar. Heildartekjur ís- lenskra útgerðarfyrirtækja námu á síðasta ári rúmum 60 milljörðum króna. Hinn nýi skattur Svenis á sjávarútveginn nemur því rúmlega fjórðungi af öllum tekjum útgerð- arfýrirtækjanna. Ég trúi því ekki að nokkur maður sé svo glám- skyggn að hann sjái ekki hvaða af- leiðingar slíkt hefði fyrir sjávarútvegs- byggðir eins og Vest- firði þegar meira en fjórðungur allra tekna útgerðarfyrirtækj - anna er tekinn í nýjan skatt. Hrakyrðaflaumur Sverrir Hermanns- son hefur veist mjög harkalega að forystu Sjálfstæðisflokksins. Ég man vel þá tíð þeg- ar hinn róttæki vinstri maður Einar Olgeirs- son hamaðist með ómældum vömmum og skömmum gegn Sjálf- stæðisflokknum og formanni hans, Ólafi Thors. Þannig hefur það alltaf verið. Hörðustu andstæðing- ar Sjálfstæðisflokksins hafa alltaf reynt að halda þeirri öfugmæla- þulu á lofti að Sjálfstæðisflokkur- inn og forystumenn hans væru handbendi hinna verstu auð- valdsafla og létu sig engu varða þjóðarhag. Það er því greinilegt hvar Sverrir Hermannsson vill marka sér bás þegar hann hefur upp nákvæmlega sama sönginn um Einar Oddur Kristjánsson ÞÍN FRlSTUND - OKKAR FAG BllDSHÖFÐA - Blldshöfða 20 - Slmi: 510 8020 úrvali! www.mbl.is/fasteignir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.