Morgunblaðið - 16.07.1998, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 16. JÚLÍ 1998 7
Skál fyrir grænmeti
Það er gott að vera við
skál því þá er auðvelt að
teygja sig í hana og lífga
upp á grænmetisbrosið
Ef þú kannt að búa til klaka, geturðu gert grænmetissalat. Hráefnið er ferskt íslenskt
grænmeti; tómatar, gúrkur, paprikur, laukar, sveppir, margvíslegt kál og ýmislegt fleira
úr grænmetisdeildinni. Svo má bæta hinu og þessu við til að gera máltíðina enn
ríkulegri, eins og þurrkuðum beikonbitum, skinkubitum, ostbitum, eggjum og ýmsu
snakki - allt eftir smekk.
Salatsósan eða olían gerir svo útslagið og enn eru það smekksatriðin sem ráða ferðinni.
Góðar salatsósur fást í miklu úrvali í verslunum en aðferðin við þær heimalöguðu
byggist á samspili vandaðrar matarolíu, ediks og ýmissa kryddtegunda. Svo hefst
smökkun sósunnar og þá bæta sælkerarnir oft við einhverju, sem þeir telja að geri
útslagið, líkt og sterku sinnepi og hvítlauksolíu.
Einfalt og gott grænmetissalat frískar upp á máltíðina og lífgar uppá tilveruna í
ferðalaginu eða í garðinum á sólardegi.
Áttu skál?
ÍSLENSK GARÐYRKJA
c£attu/ JlcA/ LíÁcv •íæÍL