Morgunblaðið - 16.07.1998, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 16.07.1998, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. JÚLÍ 1998 25 FERÐALÖG Nýr ferðaþjónustu- skáli í Þórsmörk Selfossi - Þann 16. júní síðastliðinn opnaði Austurleið formlega nýjan skála á svæði félagsins við Húsadal í Þórsmörk. Skálinn er 180 fm og var byggður af SG Húsum á Sel- fossi. Að sögn Oskars Sigurjónssonar, stjórnarformanns Austurleiðar eru nokkrir skálar á svæði félagsins í Þórsmörk. Skálarnir taka samtals 100 manns í gistingu. Nýi skálinn tekur 140 manns í sæti og í honum er einnig salernis- og eldunarað- staða. Ferðamannastraumur um Þórs- mörk hefur aukist jafnt og þétt síð- astliðin ár og telja menn að sífellt fleiri kjósi frekari þægindi á ferða- lögum sínum. Miðað við þær bók- anir sem nú þegar hafa verið gerð- ar í sumar þá er ljóst að skálinn mun verða vel nýttur. Nýi skálinn er glæsileg bygging sem Austur- leiðamenn geta verið stoltir af. Morgunblaðið/Sig. Fannar. SIGURÐUR Guðmundsson frá SG Húsum og Óskar Sigurjónsson stjórnarformaður Austurleiða við nýja skálann í Þórsmörk. BOMRG Jarðvegsþjöppur og hopparar Skútuvogi 12A, s. 568 1044. Vandaðir gönguskór fyrir meiri- og minni- háttar gönguferðir. Verð frá kr. 5.900 Persónuleg og fagleg þjónusta spo^t ÚTIVISTARBÚÐIN http://www.mmedia.is/sportieigan Morgunblaðið/Jenný Jensdóttir HÓPUR erlendra ferðamanna í sjóstangaveiði á Sundhana ST-3. Sigling og sjóstangaveiði frá Drangsnesi Drangsnesi - Þjónusta við ferðamanninn er sífellt að aukast og einnig kröfur ferða- mannsins um afþreyingu með- an á dvöl stendur. Stranda- menn bregðast við þessum kröfum eins og aðrir. Það nýjasta sem boðið er upp á á Ströndum eru siglingar og sjóstangaveiði frá Drangsnesi. Ásbjörn Magnússon á Drangsnesi hefur byggt yfir Sundhana ST-3 sem gerður er út á innfjarðarrækju yfír vetr- armánuðina. Er hann nú gerð- ur út til siglinga með ferða- menn og getur tekið ailt að 16 farþega í ferð. Býður hann nú upp á siglingar og sjóstanga- veiði og hvalaskoðun ef vill. Það var sannarlega alþjóðlegt um borð í Sundhana þegar fréttaritari brá sér í siglingu út á Steingrímsfjörð með hon- um. Farþegarnir voru frá fimm þjóðlöndum, bæði frá Af- ríku og Evrópu. Fyrst var siglt umhverfís Grímsey og fuglalífið skoðað og vakti hinn gífurlegi fjöldi lunda mikla athygli. Síðan var reynd sjóstangaveiði og gekk bara bæriiega. Um borð í Sundhana eru 8 nýjar sjóstangir og voru farþegarnir fljdtir að komast upp á lag með að veiða þó þeir hefðu sumir hverjir aldrei haldið á veiðistöng fyrr. Var hveijum fiski ákaft fagnað. Aflinn var síðan flakaður fyrir veiði- mennina og tóku þeir hann með sér í land. Ekki þótti þeim síðra að sólin skein allan tím- ann og speglaðist í haffletinum þó að langt væri liðið á kvöld. Sigling og sjóstangaveiði er greinilega áhugaverður kostur sem hægt er mæla með þegar ferðast er um Strandir. FiSBiSje FERÐASÍÐA ALLA FIMMTUDAGA í S.UMAR Hólar í Hjaltadal Náttúran í nýju ljósi LAUGARDAGINN 18. júlí hefur verið skipulagt náttúrurölt á Hól- um í Hjaltadal. Þátttakendur eiga þess kost að ganga um nágrenni Hóla og upplifa umhverfi á lífríki staðarins á nýjan og spennandi hátt, að því er segir í fréttatilkynn- ingu. Sérstök áhersla verður lögð á vötn og votlendi. Lagt verður af stað í ferðina klukkan 11 og er áætlaður tími tveir og hálfur til þrír tímar. Leið- sögumaður verður Dr. Skúli Skúla- son, líffræðingur. Verð fyrir full- orðna er 500 krónur og 250 krónur fyrir 6-13 ára börn. Léttar veiting- ar eru í boði. -------------- Göngusum- ar í Grund- arfirði Grandarfjörður - FAG, félag at- vinnulífsins í Grundarfirði stendur fyrir gönguferðum í Eyrarsveit í sumar. Fyrsta gangan var farin á Jónsmessunótt á Klakk. Síðan hef- ur verið gengið umhverfis Kirkju- fell og yfir Tröllaháls. Framundan era eftirfarandi göngur: Laugar- daginn 25. júlí kl. 10: Háls, um- hverfis Kirkjufell. Sunnudaginn 26. júlí kl. 14: Hallbjarnareyri, Eyrar- oddi. Eyrbyggjuslóðir. Laugardag- inn 1. ágúst kl. 15: Bláfeldur, Arna- dalsskarð. Laugardaginn 8. ágúst kl. 14: Lárkot, Stöð og laugardag- inn 15. ágúst kl. 14: Hamrar, Skáladalur-Grundarmön. Skráning fyrir 29. júM. Þátttöku- gjald er 200 kr. í allar gönguferð- irnar. Fargjald í rútu Grundar- fjörður-Bláfeldur 1. ágúst 500 kr. Leiðsögumenn eru Marteinn Njálsson, Gunnar Kristjánsson, Þórunn Kristinsdóttir, Hallur Páls- son, Ólafur Jónsson, Guðmundur Pálsson, Jón Böðvarsson, Anna Guðrún Aðalsteinsdóttir, Guðlaug Pétursdóttir og Kristmundur Harðarson. Bílaleigubílar og sumarhús í Danmörku Ódýrir bílaleigubílar fyrir íslendinga Opel Corsa Opel Astra Opel Astra station Opel Vectra Vikugjald dkr. 1.795 dkr. 1.995 dkr. 2.195 dkr. 2.495 3ja vikna gjald dkr. 4.235 dkr. 5.015 dkr. 5.530 dkr. 6.150 Fáið nánari verðtilboð. Nú til afgreiðslu m.a. á Kastrup-flugvelli. Innifalið í verði: Ótakmarkaður akstur og tryggingar. (Allt nema bensín, stöðumælasektir og sektir fyrir of hraðan akstur.) Aðrir litlir og stórir bílar, minibus og rútur. Utvegum sumarhús, íbúðir og bændagistingu. Höfum íbúðir til leigu í orlofshverfum með skiptidögum samkvæmt samkomulagi. Fáið nánari upplýsingar hjá umboðsmanni okkar; International Car Rental ApS. Danmörku Fylkir Agústsson, Isafirði, sími 456 3745. alpina gönguskór C3 LYFJA f »„, Lágmúla 5, sími 533 2300 Dreifing: Donna, Hafnarfiröi PÓSTSENDUM Sól og,sumar ----- angjo Nær en þig grnnar og nú eru HvalQarðargöngin kominl Spennandi vélsleða- og snjóbílaferðir fyrir alla, einstaklinga, fjölskyldur, félaga- og starfsmannahópa. |, i ðKmntNMRSBtti GRð a i m m > i Allar nánari upplýsingar í síma 5671205 Langjökull ehf. Almennilest ferðalas um Sýrland og Jórdaníu 5.-25. október. Verð kr. 250 þús./mann. Kínaklúbbur Unnar, sími 551 2596. R35 AFE þú gengur á þjöll tyrir bragðið.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.