Morgunblaðið - 16.07.1998, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 16.07.1998, Blaðsíða 8
8 FIMMTUDAGUR 16. JÚLÍ 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Steingrúnur J. Sigfússon segir sig úr Alþýðubandalaginu Stofnun nýs stjórnmála- félags í undirbúningi OG hvar vilt þú svo liggja, góurinn??? Dúxaði í tannlækningum í Háskólanum í Bergen Stefndi snemma á tannlækningar HELGI Sigurðsson lauk í júní prófí í tannlækningum frá Há- skólanum í Bergen með glæsi- brag. Helgi útskrifaðist með hæstu einkunn í árganginum 10,54 (á skalanum 1-12) en 46 nemendur útskrifuðust með honum í vor. Helgi kom heim í lok júní og er strax byrjaður að vinna á tannlæknastofu á Selfossi, hann segir gaman að vera byijaður að vinna, hann hafi hlakkað til þess. Helgi segist hafa verið ákveð- inn í að leggja tannlækningar fyrir sig frá því hann var 16 ára gamall. Hann lauk stúdents- prófí frá Fjölbrautaskóla Suð- urlands á þremur og hálfu ári og fór svo í tannlæknanám í Háskóla íslands. „Það árið voru sjö teknir inn en ég var sá átt- undi í röðinni, ég ákvað þá að reyna að komast inn í Háskól- ann í Bergen en það fer gott orð af skólanum. Eg komst þar inn en stúdentsprófseinkunnir eru metnar og tekið inn í skól- ann eftir þeim,“ segir Helgi. Mikill lestur Helgi segist hafa verið mjög ánægður með skólann, nemend- ur fái mikla starfsþjálfun og mikil áhersla sé lögð á rann- sóknir í skólanum m.a. í tann- holdssjúkdómum. Námið tekur fímm ár en skólaárið nær frá ágúst fram í júní og skiptist í þrjár annir og lýkur hverri þeirra með prófum. „Engin upplestrarpróf eru svo maður þarf að lesa jafnt og þétt. Skóladagurinn er frá átta til fjögur og svo þurfti að lesa fram á kvöld, þetta var mikill lestur. Þetta var erfíðast fyrst Morgunblaðið/ Sigurður Fannar HELGI Sigurðsson, nýútskrif- aður dúx í tannlækningum úr Háskólanum í Bergen, ánægður að vera kominn til starfa. meðan maður var að ná tungu- málinu en dönskukunnáttan hjálpaði mikið, ég ákvað líka strax að taka prófin á norsku en ekki ensku til að komast sem fyrst inn í málið.“ Sælusnúðar Ömmu Pizza 450g Lambi eldhúsrúllur 4 stk. ianilsnúðar Lajmbi wc pappír 6 rúllur pepperone og skinka INNI HEIM • UM LAND ALLT Veiðar villtra fugla og spendýra Kóng'urinn vildi hvftar rjúpur Áki Ármann Jónsson Hhlutverk emb- ættis veiðistjóra, sem hefur aðset- ur á Akureyri, er skilgreint í lögum sem yfirleitt eru nefnd villi- dýralögin og er verksviðið vemd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýram á Islandi. Veiðistjóri heyrir undir umhverfisráðherra og hef- ur stjóm á þeim aðgerðum opinberra aðila sem ætlað er að hafa áhrif á stofn- stærð og útbreiðslu villtra dýra eða tjón af völdum þeirra. Tveir eru í fullu starfi hjá embættinu en auk þess eru nokkur hlutastörf. Áki Armann Jónsson, nýskip- aður veiðistjóri, segir að störfin séu margvísleg, m.a. ráð- stafanir vegna ágangs álfta og gæsa á túnum, umsjón refa- og minkaveiða, talning á hreindýra- stofninum á Austurlandi og ákvörðun veiðikvóta, rekstur hundabús 1 Mosfellsbæ fyrir minkaveiðimenn og umsjón veiði- kortakerfisins. -Eru veiðikortin dýr? „Gjaldið er 1.500 krónur á ári. Kortin voru 11.200 í fyrra og tekjurnar milli 18 og 19 milljónir króna, líklega aðeins minni á þessu ári. Féð rennur í sjóð sem notaður er til rannsókna og nið- urstöður þeirra eru síðan notað- ar til að áætla m.a. stofnstærð og taka út frá þeim upplýsingum ákvarðanir um veiðar. Veiði- mennirnir standa nú með greiðslum fyrir kortin sjálfir undir rannsóknum á stofnum sem þeir nýta.“ -Hvernig hefur reynslan af kerfínu verið? „Við tókum veiðikortakerfið í notkun í maí 1995 og mér finnst hún vera mjög góð. Við höfum átt ágætt samstarf við Skotvís og skotveiðimenn almennt. Aður var lítið vitað um veiðistofna hér á Islandi. Um veiðarnar gilda svokölluð rammalög. I reynd má segja að öll villt dýr séu friðuð í grund- vallaratriðum en ráðherra leyfir takmarkaðar veiðar á um 30 fuglategundum auk fáeinna spendýrategunda. Alls eru veidd- ir um 500 þúsundir fuglar árlega á íslandi, mest af lunda eða 200- 250 þúsund." - Erlendis skjóta menn mikið af hrossagauk og fleiri fuglum sem enginn veiðir hér. Af hverju er þetta bannað? „Þetta er góð spuming, hrossagaukastofninn er talinn vera um ein milljón. Hrossa- gaukur var skotinn hér á landi til 1918 en friðaður síðan. Fyrir því eru engin vistfræðileg rök, ein- göngu tilfinningaleg. Rjúpnaveiði byrjar í október og lýkur í desember. Engin stofnvistfræðileg rök eru fyrir því að byrja ekki að veiða hana fyrr. Kóngurinn í Kaupmanna- höfn vildi á sínum tíma frekar fá hvíta rjúpu og þess vegna var bannað að veiða hana fyrr en 15. október. Þetta er gömul hefð en líklega væri hægt að nýta stofninn betur með því að byrja fyrr á haustin.“ -Hvað viltu segja um gæsa- veiðina? „Við fylgjumst vel með gæsa- stofnunum vegna þess að sam- starfið við þá sem fara með þessi mál á Bretlandseyjum, þar sem ► ÁKI Ármann Jónsson á ættir að rekja til Melrakkasléttu en er fæddur í Reykjavík árið 1967. Hann lauk stúdentsprófí frá náttúrufræðibraut Menntaskólans við Sund 1987 og prófí í líffræði við Háskóla íslands 1993. Áki vann eftir nám við rannsóknir á æðarfugli hjá Tilraunastöðinni að Keldum en einnig hjá Blómavali og við ýmis önnur verkefni. Hann réðst til embættis veiðistjóra í mars 1995, vann þar m.a. að undirbúningi veiðikorta- kerfisins og var settur veiðistjóri nú í ársbyxjun, skipaður frá 1. júlí. Áki á eitt barn, eiginkona hans er Alda Þrastardóttir framhaldsskólakennari. heiðagæsin og grágæsin hafa vetursetu, er afar gott. Heiðagæsinni hefur fjölgað, stofninn fór fyrir nokkrum árum í meira en 200 þúsund fugla en virðist ekki stækka núna. Svona stór stofn þolir þó greinilega meiri veiði en við stundum núna, hann er vannýttur. Grágæsin hefur hins vegar staðið í stað, er um 80.000 fuglar. Við viljum ekki að gengið sé á stofninn og grá- gæsin er á mörkunum núna þótt ekki sé hægt að tala um neina hættu. Upplýsingar sem við fengum með merkingum, veiðikortakerf- inu og skýrslum sem korthafar verða að senda okkur urðu til þess að við gátum áttað okkur betur á stöðunni. Áður voru þetta nánast allt ágiskanir hjá okkur. ímyndaðu þér fiskifræðing sem fengi aldrei neinar aflatölur í hendurnar!" - Segja menn satt og rétt frá í skýrsiunum? „Rjúpnaveiðin hefur t.d. aukist í samræmi við okkar tölur um meiri stofnstærð svo að þessu virðist bera saman. Veiðamar eru hóflegar og endurspegla ástand stofnsins, hafa ekki áhrif á hann en eru eins og náttúruleg afföll. Skýrslumar eru nafnlausar þannig að menn gera þetta ein- göngu upp við eigin samvisku. Við sjáum samt að flestir vanda sig, skrifa kannski fyrst sex rjúpur en stroka út og skrifa sjö. Sömu mennimir skrökva auk þess nokkurn veginn í sömu hlutfóllum frá ári til árs, hvort sem þeir nú draga frá eða ýkja, vegna skattamála eða ann- ars. Það er erfitt að sjá fyrir sér að nógu margir geti tekið sig saman um að blekkja til að fá niðurstöðu á landsvísu sem þeir telja sér æskilega." Alls veiddir um 500.000 fuglar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.