Morgunblaðið - 16.07.1998, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 16.07.1998, Blaðsíða 26
26 FIMMTUDAGUR 16. JÚLÍ 1998 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR V eröld spunans Þjónn í súpunni, sýning með leikhópi og áhorfendum, verður frumsýnd 1 Iðnó í kvöld. Grunnurinn er veitingastaðurinn Al- veg við Tjörnina en að öðru leyti getur allt gerst, eins og Orri Páll Ormarsson fékk að reyna þegar hann brá sér á æfingu. AÐ ER ár og dagur síðan ég kom í Iðnó. Ég gef mér því góðan tíma til að litast um - finna leiklistarsög- una umlykja mig. Það jaftiast ekk- ert á við hús með sál! En skyndi- lega er ég truflaður. Ung þema tekur þéttingsfast í höndina á mér. Hún virðir mig sem snöggvast fyr- ir sér, segir ekkert. Hárið fellur í jörpum lokkum niður eftir bakinu. Því næst dregur hún mig af stað og leiðir mig til sætis við langt borð sem er þéttsetið fólki. Takk, segi ég, þegar ég er búinn að koma mér fyrir. Þernan virðir mig ekki svars, virðir mig raunar ekki við- lits - heldur bara áfram í höndina á mér. Fólk horfir á okkur. Var ég ekki nógu kurteis, hugsa ég með mér, og ákveð að bæta ráð mitt. Kærar þakkir, ungfrú! Allt kemur fyrir ekki. Það er ekki fyrr en önn- ur þema, sem augljóslega er ofar í metorðastiganum, kemur storm- andi á vettvang og gefur stöllu sinni skýr fyrirmæli um að taka einhverja útlendinga upp á sína arma, að hún sleppir takinu. A þessu augnabliki er mér ljóst að ég á ekkert venjulegt kvöld í vænd- umj Ég er staddur á veitingastaðn- um Alveg við Tjömina. I Ijós kem- ur að þemurnar tvær em systur og yfirþjónninn er kvæntur annarri þeirra. Kokkurinn er pabbi hans. Kynlegir kvistir, svo vægt sé til orða tekið. Skömmu eftir að súpa dagsins er fram reidd lendir feðgunum, kokkinum og yfirþjóninum, saman. I kjölfarið er ónefndur þjónn ráð- inn af dögum í eldhúsinu. „Hver djöfullinn, ég hef skotið vitlausa skepnu,“ fullyrðir kokkurinn þeg- ar hann sér syni sínum bregða fyr- ir andartaki síðar. Ogæfusama þjóninum er komið fyrir í svörtum mslapoka og hent í Tjömina. Hefst þá leit að nýjum þjóni úr röðum matargesta. Nokkrir fá að spreyta sig áður en sá rétti finnst. Hann var þó ekki að gefa kost á sér. „Ég ætlaði bara að fara að pissa,“ segir hann og streitist á móti. En engu tauti er við starfs- liðið komið. Hann skal standa sína plikt. Þannig líður kvöldið. Systumar daðra, hvor með sínum hætti, við gestina. Kokkurinn leggur sitt af mörkum annað veifið og yfirþjónn- inn reynir eftir fremsta megni að hafa hemil á atburðarásinni - án árangurs! Hvemig á svo sem að hafa stjóm á hlutunum þegar eng- inn veit hvað gerist næst? Abbast upp á gesti Hugmyndin að Þjóni í súpunni er mnnin undan rifjum Eddu Björgvinsdóttur, sem jafnframt leikur í sýningunni. Kveikjan er, UNDARLEGUM aðferðum er beitt við að taka af borðum. Kjartan Guðjónsson, Edda Björgvinsdóttir, Stef- án Karl Stefáns-son og Margrét Vilhjálmsdóttir í hlutverkum sínum. Morgunblaðið/Jim Smart VILTU súpu, væna? Þernan (Edda) aðstoðar einn matargesta. að hennar sögn, leikhópurinn Café Colbert, sem „abbaðist upp á gesti“ á veitingahúsum í Reykjavík á Listahátíð um árið. „Þetta er ákveðin tegund af spunaleikhúsi sem við íslendingar höfum haft lítið af til þessa, þar sem þátttaka áhorfenda er nauð- synleg - ræður hreinlega at- burðarásinni. Vísir að þessu var sýningin Hár & hitt, sem færð var upp í Borgarleikhúsinu í fyrra>“ segir Edda sem var þar meðal leikenda. Kveðst hún lengi hafa alið þann draum í brjósti að gera tilraun með þessa tegund spunaleikhúss - ekki endilega leikrit, miklu frek- ar röð af uppákomum, ellegar samvemstund með gestum og leik- hópi, þar sem allt gæti gerst. Þannig stund er Þjónn í súpunni. „Þetta er ekki hefðbundið leikrit með upphaf, miðju og endi - og verður það aldrei!“ Til að gera drauminn að vem- leika „dró“ Edda Maríu Sigurðar- dóttur leikstjóra „nauðuga" inn í myndina, „af því að hún er besti leikstjóri í heimi, ásamt Þórhildi Þorleifsdóttur“. Tvennum sögum fer reyndar af þessum atburði því María staðhæfir að hún hafi viljað „allt til þess vinna að fá að vera með í þessu ævintýri". Kjami ARKITEKTAR OG TÆKNIFRÆÐINGAR I Lífeyrissjóður arkitekta og tæknifræðinga hefur hafið starfsemi Lifeyrissjóður arkitekta og Lifeyrissjóður Tæknifræðingafélags íslands hafa verið sameinaðir og inneignir og réttindi sjóðfélaga flutt i Lífeyrissjóð arkitekta og tæknifræðinga. Lífeyrissjóður arkitekta og tæknifræðinga er blandaður lífeyrissjóður með tveimur deildum, séreignar- og trygginga- deild. Iðgjöld í séreignardeild eru færð á sérreikning sjóð- félaga auk vaxta og verðbóta á ári hverju en með greiðslum í tryggingadeildina geta sjóð- félagar tryggt sér lífeyris- greiðslur til æviloka og varið sig og fjölskyldu sína fyrir tekjumissi vegna örorku og/eða dauða. Sjóðurinn er opinn fyrir arki- tektum og tæknifræðingum en jafnframt geta aðrir aðilar sem vinna sambærileg störf sótt um aðild að sjóðnum. Nánari upp- lýsingar um sjóðinn eru veittar á skrifstofu sjóðsins 588-9170 eða hjá VÍB í síma 560-8900. STJÓRN LÍFEYRISSJÓÐS ARKITEKTA OG TÆKNIFRÆÐINGA Astríður sýnir í Hveragerði í HEILSUSTOFNUN Náttúm- lækningafélags íslands í Hveragerði stendur nú yfir sýning á verkum Astríðar Andersen. Sýnd em 50 ný og gömul málverk, olía og akrýl. Myndimar em málaðar hér á landi og erlendis. ------------- Sýning framlengd SÝNINGIN „Beðið eftir Baltasar Kormáki" eða 42 andlitsmyndir úr Grímsnesinu eftir Baltasar sem nú stendur yfir í Listasafni Ámesinga á Selfossi, verður framlengd til 31. júlí. ---------♦-♦-♦-- Sýningu lýkur MYNDLISTARSÝNINGU Ragnars Lár, í Galleríi Sölva Helgasonar að Lónakoti í Skagafirði, sem er þver- snið af verkum hans í gegnum tíðina, lýkur sunnudaginn 19. júlí. > l I > > > > > > > > >
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.