Morgunblaðið - 17.07.1998, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913
159. TBL. 86. ÁRG.
FÖSTUDAGUR 17. JÚLÍ 1998 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Reuters
HERMENN bera kistu með líkamsleifum Nikulásar II Rússakeisara og
Alexöndru, konu hans. Verða þau og dætur þeirra þrjár jarðsettar í
dag, réttum 80 árum eftir að þau voru tekin af lífi.
Útför rússnesku keisarafjölskyldunnar
„Erum að sætt-
ast við fortíðinau
Sankti Pétursborg. Reuters.
LÍKAMSLEIFAR Nikulásar II
Rússakeisara og fjölskyldu hans
voru fluttar í gær til Sankti Pét-
ursborgar, gömlu keisaraborg-
arinnar, þar sem þær verða
lagðar til hinstu hvflu í dag.
Verður Borís Jeltsín, forseti
Rússlands, viðstaddur útförina.
Nokkrir tugir ættingja keis-
arafjölskyldunnar voru saman
komnir á Púlkovo-flugvelli þeg-
ar komið var með kistumar frá
Jekaterínborg þar sem keisara-
fjölskyldan var skotin í júlí árið
1918. Jeltsín, sem hefur áður
gefið í skyn, að hann ætlaði ekki
að vera við útförina, hefur nú
snúist hugur.
„Sannleikanum hefur verið
haldið leyndum í 80 ár en við
verðum að þekkja hann og segja
hann héðan í frá. Eg vil eiga
þátt í því,“ sagði Jeltsín.
Villimennska
Níkolaj Romanov, sem nú er
litið á sem höfuð Romanov-ætt-
arinnar, fagnaði mjög sinna-
skiptum Jeltsíns og sagði, að
útförin væri mjög mikilvægur
atburður. „Með henni erum við
að sættast við og kveðja fortíð-
ina.“
Jeltsín, sem var leiðtogi
kommúnistaflokksins í Sverd-
lovsk-héraði á síðasta áratug, sá
um það sjálfur samkvæmt skip-
unum sljórnmálaráðsins að rífa
niður húsið þar sem keisarafjöl-
skyldan var tekin af lífi. Var það
gert til að uppræta allt, sem á
hana minnti í huga Rússa. I ævi-
sögu sinni segir Jeltsín, að þessi
„villimennska" haf! verið
skammarleg og fyrir hana verði
seint bætt.
Líkamsleifar keisarafjölskyld-
unnar, Nikulásar, Alexöndru,
konu hans, og dætra þeirra
þriggja, Olgu, Tatjönu og
Anastasíu, voru grafnar upp
1991 og rússneskir, breskir og
bandarískir sérfræðingar stað-
festu með DNA-mælingum, að
um þetta fólk væri að ræða. Á
því væru 99,99% líkur. Rúss-
neska rétttrúnaðarkirkjan, sem
hefur Nikulás í miklum háveg-
um, hefur þó ekki látið sannfær-
ast og segist þess vegna líta á
jarðsetninguna í dag sem
„bráðabirgðaútför".
Albanar í Kosovo
stofna eigið þing
Kosovo. Reuters.
STJÓRNMÁLAFLOKKAR Alb-
ana í Kosovo stofnuðu í gær eigið
þing, sem hvorki stjóm Serbíu né
ráðamenn í öðr-
um ríkjum viður-
kenna, og serbn-
eska lögreglan
kom nokkrum
mínútum of seint
til að hindra
fundinn.
Um 90 fulltrú-
ar sátu fundinn,
sem var haldinn í
höfuðstöðvum
stærsta flokks Albana í héraðinu,
Lýðræðisbandalags Kosovo, í Prist-
ina. Ibrahim Rugova, leiðtogi
flokksins og „forseti" albanska
meirihlutans í héraðinu, var fund-
arstjóri. Fulltrúarnir höfðu kosið
þingforseta og svarið hollustueið
þegar vopnaðir lögreglumenn réð-
ust inn í bygginguna og skipuðu
fulltrúunum að slíta fundinum.
Um 20 óeinkennisklæddir lög-
reglumenn, vopnaðir rifflum, voru
síðan á verði við bygginguna meðan
Ibrahim
Rugova
lögreglumenn lögðu hald á skjöl um
stofnun þingsins. Mikil spenna var á
staðnum en enginn var handtekinn.
„Lögreglumennirnir beittu ekki
ofbeldi en þeir voru mjög ákveðnir.
Við fengum tvær mínútur til að
taka skjöl okkar og fara,“ sagði
Nekibe Kelmendi, ritari Lýðræðis-
bandalagsins.
„Okkur hefur tekist það,“ sagði
Rugova við fréttamenn og stuðn-
ingsmenn hans fógnuðu honum
ákaft þegar hann gekk út úr bygg-
ingunni.
Ætla næst að
mynda stjórn
Serbneska innanríkisráðuneytið
gaf út yfirlýsingu þar sem það
kvaðst hafa hindrað „ólöglega til-
raun til að stofna svokallað þing
lýðveldis Kosovo“.
„Ég styð aðgerðir lögreglunnar
algjörlega," sagði Momcilo Trajk-
ovic, leiðtogi andspyrnuhreyfingar
serbneska minnihlutans í héraðinu.
Talsmaður Bandaríkjastjómar
sagði að hún viðurkenndi ekki þing-
ið sem opinbera pólitíska stofnun
en viðurkenndi hins vegar rétt
flokkanna í Kosovo til fundafrelsis.
Fulltrúarnir á fundinum sögðu
að næsta skrefið væri að mynda
ríkisstjóm. „í þetta sinn verður það
stjórn í Kosovo, ekki útlagastjórn,“
sagði Gjergji Dedaj, sem var til-
nefndur einn af þremur varaforset-
um þingsins. „Þetta er mjög sögu-
legur dagur, sem markar upphaf
frjáls, lýðræðislegs og sjálfstæðs
ríkis í Kosovo,“ bætti hann við áður
en fundurinn leystist upp.
Ekki er þó enn Ijóst hversu mik-
ilvægur fundurinn vai- þar sem ekk-
ert ríki viðurkennir þingið. Þótt
ráðamenn á Vesturlöndum líti á
Rugova sem leiðtoga Albana í
Kosovo viðurkenna þeir að staða
hans hefur veikst vegna uppgangs
aðskilnaðarsinna í Frelsisher
Kosovo, sem segist hafa náð helm-
ingi héraðsins á sitt vald. Frelsis-
herinn viðurkennir ekki Rugova
sem forseta og hefur sagt að enginn
stjórnmálaflokkur geti talað fyrir
hans hönd.
Efasemdir um
vopnahlé í Súdan
Mandela
áttræður
NELSON Mandela, forseti
Suður-Afrfku, hóf í gær hátíða-
höld í tilefni þess að hann verð-
ur áttræður á rnorgun með því
að bjóða um þúsund munaðar-
lausum börnum til veislu í Krug-
er-þjóðgarðinum. Forsetinn
dansaði á sviði í garðinum við
fjörlega popptónlist með fjórum
ungum stúlkum og skar
stóra afmælistertu.
Nairobi. Reuters.
RÍKISSTJÓRNIN í Súdan féllst í
gær á þriggja mánaða vopnahlé til
að greiða fyrir matvælasendingum
til svæða í suðurhluta landsins þar
sem hungursneyð hefur ríkt. Daginn
áður hafði Frelsisher Súdans
(SPLA) lýst yfir þriggja mánaða
vopnahléi í þessu skyni. Fulltrúar
hjálparstofnana voru þó efins um að
bardögunum linnti.
Matvælahjálp Sameinuðu þjóð-
anna (WFP) sagði að tveir af staifs-
mönnum hennar hefðu neyðst til að
flýja dreifingarmiðstöð í miðhluta
Súdans vegna ótta við bardaga. Þeir
höfðu hafið dreifingu matvæla til
30.000 manna í bænum Leer í hérað-
inu Efri-Níl þegar þeir flúðu í skóg í
nágrenninu.
„Þetta er einmitt það sem við ótt-
uðumst,“ sagði Michele Quintaglie,
talsmaður hjálparstofnunarinnar. ,A
sama tíma og allir eru að tala um
vopnahlé þarf okkar fólk að flýja ör-
yggisleysið."
Talsmenn hjálparstofnana telja að
vopnahléið komi of seint. Bent hefur
verið á að hentugt hafi verið fyrir
stríðandi fylkingar að semja um
vopnahlé nú, því regntímabil sé að
ganga í garð í landinu, en þá liggur
hernaðurinn yfirleitt niðri vegna
þess að vegir eru ófærir. Af sömu
ástæðu er erfitt fyrir hjálparstofnan-
ir að koma hjálpargögnum til lands-
manna. Vopnahléinu á að ljúka í
þann mund sem regntímabilinu lýk-
ur og vegir verða færir á ný.
Vopnahléið á eingöngu við héruðin
Bahr el Gazar og Efri-Níl, þar sem
talið er að yfir tvær milljónir manna
séu í hættu vegna hungursneyðar.
Talsmenn stjórnarinnar sögðu í gær
að til greina kæmi að láta vopnahléið
ná yfir öll átakasvæðin í landinu.
Frelsisher Súdans berst fyrir
sjálfstæði suðurhluta landsins, þar
sem kristnir svertingjar eru í meiri-
hluta, en norðurhlutinn er aðallega
byggður múslímum. Friðarviðræður
eru áfoi-maðar milli fylkinganna í
Eþíópíu í næsta mánuði.