Morgunblaðið - 17.07.1998, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 17. JÚLÍ 1998 35
SKOÐUN
ERU ENDALOK NORÐUR
MJÓDDAR SEM ÚTI-
VISTARSVÆÐI RÁÐIN?
LESENDUR Morgunblaðsins
hafa vafalaust tekið eftir því, að
nokkrar umræður hafa að undan-
fömu orðið í blaðinu um svonefnda
Norður-Mjódd í Breiðholti. Ástæð-
an er sú, að ferhyrningur sá fyrir
vestan Stekkjahverfi, sem enn er
að mestu óbyggður og takmarkast
af Reykjanesbraut að vestan og
Stekkjarbakka að norðan og aust-
an og Alfabakka að sunnan, hefur
enn orðið ágreiningsefni milli borg-
aryfirvalda og íbúa Breiðholts-
hverfis. Verður ekki ofsögum sagt,
að réttur íbúanna til þess að hafa
þetta opið, óbyggt og grænt úti-
vistarsvæði, eins og lofað var í upp-
hafi Breiðholtsbyggðar, hefur verið
lítilsvirtur af ráðamönnum borgar-
innar. Hefur í raun engu skipt,
hver þar hefur haldið um stjómvöl
á þeim 30 árum, sem liðin era frá
búsetu fyrstu íbúa Breiðholtsins.
Sú raunasaga var skilmerkilega
rakin í grein minni í Mbl. 31. maí
sl.
í Mbl. 2. þ.m. mátti svo lesa
það, að meiri hluti borgarráðs hef-
ur veitt Gróðurvöram ehf. vilyrði
fyrir starfsemi í Norður-Mjódd
þrátt fyrir eindregna andstöðu
okkar, sem byggjum hverfið næst
téðu svæði, og eins fjölmargra
annarra Breiðhyltinga. I fréttinni
segir, að um sé að ræða „1,5 hekt-
ara lóð fyrir gróðrarstöð og versl-
un“. Hér er strax hallað réttu
máli, ef rétt er hei-mt í Mbl., því
að lóðaumsókn Gróðurvara ehf.
hljóðar upp á um 3 hektara. Þá
segir í frétt Mbl., að minni hluti
borgarráðs hafi mótmælt téðri
samþykkt og óskað þeirrar bókun-
ar, „að ótímabært væri að gefa
einum aðila fyrirheit um lóð, þeg-
ar ekkert hefði verið ákveðið um
deiliskipulag svæðisins". Enn
fremur segir í bókun þeirra, „að
kynningu hafi verið ábótavant og
lítið tillit tekið til mótmæla mörg
hundruð íbúa 1 næsta nágrenni
vegna fyrirhugaðrar uppbygging-
ar svæðisins". Fulltrúar R-listans
létu hins vegar bóka, „að tillaga að
deiliskipulagi reitsins hefði verið
kynnt ítarlega og fyrirhuguð notk-
un hans væri í samræmi við stað-
fest aðalskipulag".
Hér er enn verulega hallað réttu
máli af hálfu meiri hluta borgar-
ráðs. Sannleikurinn er sá, að
grenndarkynning hefur næstum
engin verið og raunar auðsætt, að
reynt var að leyna þessari fyrir-
huguðu lóðaúthlutun fyrir þeim,
sem hana skiptu mestu máli, og
það þrátt fyrir gefin heit Þorvalds
S. Þorvaldssonar, forstöðumanns
Skipulags borgarinnar, við mig fyr-
ir hönd þeirra, sem mótmæltu
næstsíðustu atlögu að umræddu
svæði 1992. Var ætlun borgarráðs í
byrjun febrúar síðastliðins að
keyra málið í gegn án löglegrar
grenndarkynningar. Þá tókst að
fresta því um sinn.
Fyrir hreina tilviljun frétti ég og
aðrir þeir, sem þarna höfðu hags-
muna að gæta, af þeim fundi borg-
arráðs, þar sem átti að afgreiða
téða lóðaumsókn og eins aðra um-
sókn um lóðastækkun frá hálfu
Stekks hf., sem rekur Staldrið svo-
nefnda.
Þegar ég hafði spumir af þess-
um umsóknum, hafði ég samband
við Þorvald S. Þorvaldsson í síma,
eins og ég rakti í fyrri grein minni.
Minnti ég hann á loforð hans frá
árinu 1992 um það, þegar hætt var
við - vegna eindreginna mótmæla
okkar - að veita Olís hf. leyfi til
töluverðrar stækkunar og fram-
kvæmda á athafnasvæði félagsins,
að ekkert yrði framvegis gert á
þessu svæði, nema við fengjum
fyrirfram um það vitneskju sam-
kvæmt skýlausum rétti okkar.
Þegar ég minnti Þorvald á þetta
loforð hans, þorði hann ekki að
þræta fyrir það og sagði aðeins:
„Fyrst þú segir það, hlýtur það að
vera rétt.“ Jafnframt óskaði ég
þess, að grenndarkynning yrði
helzt ekki haldin, meðan ég væri
fjarverandi. Því treysti hann sér
ekki til að lofa, og var í raun lítið
hægt að segja við því.
Fundur var svo í framhaldi af
samtali okkar boðaður bréflega
með einhverjum hluta íbúa
Eg vil vart trúa því,
segir Jón Aðalsteinn
Jónsson, að fyrirvari
meirihluta borgar-
ráðs sé eintóm
skinhelgi - og þó.
Stekkjahverfis 25. febrúar. Þar
sem ég sat ekki þann fund, hef ég
frásagnir af honum frá þeim, sem
hann sátu, og eins af fundargerð,
sem skrifstofustjóri borgarstjóra
var svo vinsamlegur að láta mér
síðar í té.
Þegar menn komu til þessa
fundar, þótti þeim það undarlegt,
að sjálfur lóðaramsækjandinn
skyldi einnig boðaður á hann.
Þangað kom hann svo með fullbún-
ar teikningar af þeim byggingum,
sem hann hugðist reisa þar, og eins
öðra því skipulagi, sem hann ætlaði
að koma þar á. Var fundarmönnum
þá ljóst, að umsækjandi hafði haft
fullt samráð við Borgarskipulag,
enda hafði það þegar hafizt handa
um skipulag svæðisins, þegar um-
sókn Gróðurvara ehf. lá fyrir seint
á árinu 1995. Þetta er allt rakið í
fyrri grein minni og því óþarft að
endurtaka það hér.
Þegar þetta gerðist síðla árs
1995 og í byrjun árs 1996, datt Þor-
valdi S. Þoi-valdssyni ekki í hug að
hafa samband við íbúana þrátt fyr-
ir gefin heit við okkur. Er þáttur
hans í þessu máli - því miður -
ófagur gagnvart íbúum Breiðholts.
Er nú líka loks orðið ljóst, þótt ég
hafi ekki viljað trúa því að
óreyndu, eins og ég vék að í fyrri
grein, að Þorvaldur hefur hér alla
tíð, sem hann hefur vélað um Norð-
ur-Mjódd og nýtingu hennar, leikið
tveim skjöldum og verið reyndar
illur veftur í því vaðmáli, sem borg-
aryfirvöld hafi ofið Breiðhyltingum
kringum Norður-Mjóddina. Og nú
virðist hann eygja sigur í þessari
deilu við samborgara sína, en ég
held sá sigur verði honum nú tæp-
lega mjög sætur, og framkoma
hans og brigðmælgi við Breiðhylt-
inga verður honum aldrei til sóma.
En fleiri hafa komið hér að máli.
Það era valdamenn R-listans. Þyk-
ir mér rétt að rekja þessi síðustu
skipti við R-lista fólkið í aðalatrið-
um og þá ekki sízt vegna þess, að
það vill kenna sig við félagshyggju
og sérstaka vernd fyrir hinn al-
menna borgara. Verður þess
vegna að vænta öllu meiri skiln-
ings frá þessu fólki, sem þannig
gumar af góðvild sinni í garð al-
mennings, en þeim,
sem það segir hreina
kapítalista, sem vOji
fyrst og fremst vernda
þá, sem meira eiga
undir sér og þá einkum
í skjóli fjárráða og þess
valds, sem þeim fylgja
oftast. Jafnframt talar
þetta fólk mikið um
græn, opin svæði í
borgarlandinu. Heldur
virðist nú samt hafa
farið lítið fyrir þessum
eiginleikum í skipu-
lagsmálum, þegar á
reynir og í hlut eiga
þeir, sem era á hægra
brjósti núverandi borg-
aryfirvalda og þurfa sérstaka fyr-
irgreiðslu. Þannig mun einmitt
standa á að þessu sinni í sambandi
við Norður-Mjóddina. Um slíka
fyrirgreiðslu núverandi borgaryf-
irvalda eru skýr dæmi úr öðram
hlutum borgarinnar, sem þarflaust
er að minnast nánar á hér, enda
þeim vel kunn, sem orðið hafa að
kljást við Borgarskipulagið, eins
og við höfum þurft að gera hér í
Breiðholtinu á síðustu mánuðum.
Sjálfsagt þótti að rita formanni
Skipulagsnefndar, Guðrúnu
Agústsdóttur, bréf, þar sem saga
Norður-Mjóddar var rakin enn
einu sinni fyrir nefndinni. Er það
bréf frá 13. maí sl. Jafnframt var
fyrirhugaðri nýtingu svæðisins
mótmælt og minnt á upphaflegan
tilgang þess. Enn í dag hefur Guð-
rún og Skipulagsnefnd ekki látið
svo lítið að svara bréfi okkar beint.
Raunar urðum við að ganga eftir
því, hvort bréfið hefði borizt til
hennar, á fundi, sem fjórir okkar,
sem næst búum við margumrætt
svæði, áttum 20. maí með Kristínu
Arnadóttur, aðstoðarkonu borgar-
stjórans, þar sem sjálfur borgar-
stjórinn gat ekki veitt okkur
áheyrn sökum anna.
Oskuðum við fyrst og fremst eft-
ir þeim fundi til þess að afhenda
borgarstjóra undirskriftir um 300
Breiðhyltinga, sem mótmæltu því
gerræði og tillitsleysi við þá að
breyta landnýtingu Norður-Mjódd-
ar. Kom þá í ljós, að bréfið til
Borgarskipulags hafði legið
óhreyft á skrifstofu Skipulags-
nefndar um hálfan mánuð, þótt
ábyrgðarbréf væri og stílað beint
til formanns hennar. Virtist því lít-
ill áhugi á þeim bæ að kynna sér
efni bréfs okkar.
Þess skal getið, að afrit téðs
bréfs var að sjálfsögðu sent borg-
arstjóra, Ingibjörgu Sólrúnu Gísla-
dóttur.
Á eins konar grenndarkynningu
29. apríl sl., sem fram fór í húsa-
kynnum Borgarskipulags sam-
kvæmt beiðni minni og nokkurra
annarra íbúa í Stekkjahverfi, lét
Þorvaldur S. Þorvaldsson ekki sjá
sig, heldur lét Ágústu Sveinbjörns-
dóttur, arkitekt hjá Skipulaginu,
koma í sinn stað. Ljóst var og e.t.v.
ekki nema vonlegt, að Ágústa vissi
harla lítið um fyrri deilumál okkar
við Skipulagið og borgaiyfirvöld.
Hún útskýrði engu að síður eftir
beztu getu það skipulag Norður-
Mjóddar, sem nú liggur fyrir og á
auðsæilega að þjóna sem bezt lóð-
aramsækjendum Gróðurvara og
Staldui’sins, að því er séð verður.
Þar sem við vorum ekki að öllu
ánægð með þau svör, sem við gát-
um fengið, óskuðum við eftir öðr-
um fundi og þá með formanni
Jón Aðalsteinn
Jónsson
Skipulagsins fyrir lok
grenndarkynningar,
sem hafði verið fram-
lengd um hálfan mán-
uð eða til 29. maí.
Ekki var að heyra á
Ágústu, að nokkuð
gæti verið því til fyrir-
stöðu. Vafalaust hefur
hún komið beiðni okk-
ar um téðan fund á
framfæri við yfirmann
sinn, en gert var ráð
fyrir, að fundurinn
gæti farið fram í
Breiðholtsskóla og þá
vitaskuld með fleiri
íbúum en vora þarna í
húsnæði Borgarskipu-
lags. Ekkert hefur orðið af þeim
fundi, og í bréfi Þorvalds S. Þor-
valdssonar til skrifstofustjóra
borgarstjórnar, sem ég hef afrit
af, víkur hann að beiðni okkar um
þennan fund með nokkru steigur-
læti og raunar háðsglósum, sem
vafalaust era fyrst og fremst ætl-
aðar mér. Mátti ljóst vera af eftir-
farandi niðurlagsorðum bréfsins:
„Hvort enn á að boða til fundar og
hvenær hlýtur að vera matsatriði
miðað við aðstæður,“ að Þorvaldur
hafði aldrei í hyggju að halda ann-
an fund með Breiðhyltingum en
þann frá 25. febrúar.
Af framansögðu má þvi öllum
ljóst vera, að Þorvaldur S. Þor-
valdsson hefur aldrei ætlað sér að
efna loforð sitt frá 1992. Þá fram-
komu hans í garð Breiðhyltinga
læt ég öðrum eftir að dæma. En ég
hlýt að játa, að álit mitt á honum
og allri framkomu hans í þessu
máli er hér í frá ekkert.
Þegar mér varð ljóst, að Þor-
valdur ætlaði auðsæilega ekki að
verða við beiðni um annan gi’ennd-
arfund með Breiðhyltingum, skrif-
aði ég að sjálfsögðu borgarstjóra
bréf fyrir okkar hönd 2. júní sl. Þar
rakti ég enn gang mála og skipti
okkar við Borgarskipulagið og for-
stöðumann þess. Síðan óskaði ég
þess í lok bréfsins, að hún sæi til
þess, að forstöðumaðurinn efndi
áðurgefin loforð við mig og eins
okkur, sem báðum um sérstakan
fund fyrir 29. maí. Borgarstjóri
hefur ekki haft fyrir því að svara |
bréfi mínu, og dæmi nú hver fyrir
sig þau vinnubrögð í garð okkar
Breiðhyltinga.
Eitt atriði í sambandi við sam-
þykkt meiri hluta borgarráðs 30.
júní um vilyrði hans til Gróðurvara
ehf. bendir þrátt fyrir allt til þess,
afi borgaryfirvöld hafi einhverja
samvizku í þessu máli gagnvart
okkur, sem höfum streitzt við um
aldarfjórðung, að staðið verði við
það upphaflega skipulag, að Norð-
ur- Mjóddin - eða það, sem enn er
óráðstafað af henni, yrði grænt, op- -m
ið útivistarsvæði með grasflötum
og bekkjum. Hér á ég við þá
ábendingu okkar, að með tilkomu
þeiraa fyrirtækja, sem þarna eiga
að rísa, eykst öll umferð gífurlega
um Stekkjarbakka fyrir framan
þau hús, sem eru austan hans. Höf-
um við lagt ríka áherzlu á það
ónæði, sem hlýtur að fylgja þessari
auknu umferð, og er þó vart bæt-
andi á þá umferð, sem fyrir er og á
víst eftir að aukast enn til muna
með breytingu á akstursleið stræt-
isvagna, þ.e. að demba henni inn á
Stekkjarbakka af fullum þunga.
Af samþykkt meiri hluta borgar-
ráðs er ljóst, að hann virðist nokk- _
uð hugsi í þessu máli. Hann víkur '
að fundi Skipulags- og umferðar-
nefndar 29. júní og óskar þá eftir
„að hugaðyrði nánar að umferð og
aðkornu að svæðinu áður en skipu-
lagið yrði endanlega samþykkt".
Síðan segir áfram eftir frétt Mbl.:
„I ljósi þessa samþykkti borgarráð
í fyrradag að gefa Gróðurvörum
ehf. fyrirheit um áðurgreinda lóð
og skal það bundið þeim fyrirvara
að deiliskipulagstillagan verði
samþykkt að lokinni áðurgreindri ,
athugun á umferð og aðkomuleið-
um. “(Leturbr. mín.)
Enda þótt reynsla okkar af borg-
aryfirvöldum um aldarfjórðung
hafi orðið bitur, vil ég vart trúa því,
að þessi fyrirvari núverandi meiri
hluta ráðsins um umferðina sé ein-
ungis eintóm skinhelgi og gerð til
þess eins að fela að einhverju leyti
vonda samvizku í garð okkar
Breiðhyltinga vegna þessarar lóða-
úthlutunar. Og þó. Við hverju er
annars ekki hægt að búast af þeim,
þegar miðað er við það tillitsleysi
og þær brigðir, sem við höfum
mátt þola frá upphafi baráttunnar
fyrir Norður-Mjódd sem opnu,
grænu útivistarsvæði? í.
Höfundur er fv. Orðabdkarstjóri.
BOLURNAR BURT!
Nýir áhrifaríkir bóluplástrar;
- þurrka upp óhreinindi úr bólum
- háofnæmisprófaðir
- glærir og lítt áberandi
- gefa skjótan árangur
VICHY
PATCH
NOUV£AU/NfW
RSfvtr oífWÉ
PATtNtS PfNOING
EXPRESS
m&M omjutm
mmm múmn
ffA4t ffMi
niAV PATTJIfí
NORIVIADERM
PEAUX JEUNES A PROBIÉMES
FOR YOUNG PROBIEM SKIN
mit HYTOMURGÍ NIQUt • HWAUHQtWC
i m&w&wr&ffö
AtylHWSÍWH VJtf)
ASSÉCHEIES BOUTONS DÍS tA 1** NUIT
DRIES SPOTS FROM DAY ONE
O/l RATCHCS COSMÉDQUES
COSMETJC PATCHCS
VICHY
ORATOIRES
HEILSULIND HUÐARINNAR
Fæst eingöngu i apótekum