Morgunblaðið - 17.07.1998, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 17.07.1998, Blaðsíða 10
10 FÖSTUDAGUR 17. JÚLÍ 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Bréf til Der Spiegel vegna greinar um Is- lenska erfðagreiningu EFTIRFARANDI bréf frá nítján sérfræðing- um til ritstjóra Der Spiegel hefur borist Morg- unblaðinu: „Til ritstjóra Der Spiegel. Greinin sem birtist í blaði yðar 6. júlí um starfsemi Islenskrar erfðagreiningar hefur fengið mikla umfjöllun á Islandi, vakið tals- verða gremju, og hugsanlega einnig spillt fyrir fyrirtækinu og íslenskri vísindastarfsemi á al- þjóðlegum vettvangi. Við erum sem læknar ábyrgðarmenn fyrir um 20 rannsóknaverkefni sem unnin eru í samvinnu við þetta fyrirtæki. Okkur fínnst umfjöllun í blaði yðar um starfsemi Islenskrar erfðagreiningar, for- stjóra þess og íslensku þjóðina bæði ómálefna- leg og lítilsvirðandi. Að okkar mati felst í greininni tilraun til að vega að því trausti sem hefur ríkt milli vísindamanna og Islendinga sem hafa langflestir verið fúsir að leggja mik- ilvægum heilbrigðisrannsóknum lið, ef fram- kvæmd þeirra er í samræmi við Helsinkisátt- málann. Við óttumst einnig að greinin geti spillt orðstír íslenskrar vísindastarfsemi á al- þjóðavettvangi. í grein yðar er ítrekað vegið á ósmekklegan hátt að persónuleika Kára Stefánssonar for- stjóra íslenskrar erfðagreiningar. Samskipti okkar við hann og þetta fyrirtæki hafa verið mjög traustvekjandi. Vinnubrögð hans og ann- arra starfsmanna fyrirtækisins hafa verið markviss, vönduð og heiðarleg, og þau hafa einnig einkennst af mjög ströngum vísindaleg- um kröfum. Það öryggiskerfí sem fyrirtækið hefur byggt upp í samráði við stjórnvöld til að koma í veg fyrir misnotkun á persónulegum upplýsingum er ótvírætt það traustasta sem til er á Islandi í dag, og þótt víðar sé leitað báðum megin Atlantshafs. Þar sem við berum læknisfræðilega trúnað- arábyrgð á þeim rannsóknum sem við vinnum að í samstarfi við Islenska erfðagreiningu, finnst okkur afar hæpið að blaðamaður yðar skyldi ekki tala við neinn okkar. íslenska þjóðin er mjög fámenn og hagkerfi hennar hefur til þessa byggst í allt of ríkum mæli á veiðum hverfulla fiskistofna. Erlend fjárfesting til uppbyggingar á hátækni sem grundvallast á vísindastarfsemi er þess vegna ómetanleg. Þannig hefur fyrirtækið Islensk erfðagreining nú þegar haft mikil og jákvæð áhrif á íslenskt samfélag. Eins og kom fram í tímariti yðar eru skoð- anir eðlilega skiptar um það hvort byggja eigi upp miðlægan læknisfræðilegan gagnagrunn og einnig hvort slíkur gagnagrunnur eigi að vera háður einkaleyfi. Endurskoðað frumvarp um það verður lagt fyrir Alþingi í haust. Grein blaðs yðar um Islenska erfðagrein- ingu verður varla skilin öðruvísi en svo, að mikill meirihluti íslensku þjóðarinnar láti, með forsætisráðherra í broddi fylkingar, teyma sig á asnaeyrum af manni sem ekki er treystandi. Islendingar eru hins vegar vel menntuð þjóð, með langa lýðræðishefð sem hefur þróast á friðsamlegan hátt. Þeir eru því færir um að ákveða sjálfir hvað þeir vilja leggja af mörkum til mikilvægra heilbrigðisrannsókna, sem jafn- framt geta bætt þjóðarhag. Framsýni og já- kvæðni íslendinga á þessu sviði verðskuldar ekki að hún sé kynnt umheiminum í spéspegli. Peep-Show im Wikingerreich Wands eauÍRC' Uioteíhnadabriíí roöchle nícht rnefar nadi Gencn wxfaen. Mit etner ItooujjcrricBen Dalcnbonk wiH ue atte P»lienl«n<hHcii <1m Landct an Phannafirann rcrmictóa. Knlihcr lörchten um den Dacntchutz - und tcbcn slch cincnt Rcnctiichcn Gbcra-uchungsstaat njfcc OPNAN úr Der Spiegel þar sem fjallað var um Kára Stefánsson og íslenska erfðagrein- ingu, og sem nítjánmenningarnir sem rituðu bréfið gagnrýna harðlega í bréfi sínu til rit- stjóra þýska tímritsins. Árni Pórsson, dósent, yfírlæknir, Sjúkrahúsi Reykjavíkur Bárður Sigvrgeirsson, Ph.D., forstöðulækn- ir, Hú ðlæknas töðin n i Bjarni Þjóðleifsson, Ph.D., dósent, yfírlæknir, Landspítalanum Davíð Gíslason, yfírlæknir, Vífílsstöðum Prófessor Einar Stefánsson, Ph.D., forseti læknadeildar Háskóla Islands Guðmundur Þorgeirsson, Ph.D. dósent, yfírlæknir, Landspítalanum Prófessor Gunnar Sigurðsson, Ph.D., yfírlæknir, Sjúkrahúsi Reykjavíkur Hallgrímur Guðjónsson, sérfræðingur, Landspítalanum Prófessor Hannes Péturs- son, Ph.D. yfírlæknir, Landspítalanum Prófessor Helgi Valdimarsson, yfírlæknir, Landspítalanum John Benedikz, FRCP., sérfræðingur, Landspítalanum Jón Snædal, yfírlæknir, Landakoti Pálmi Jónsson, dósent, yfírlæknir, Sjúkrahúsi Reykjavíkur Prófessor Reynir T. Geirsson, Ph.D., yfirlæknir, Landspítalanum Sigurður Björnsson, sérfræðingur, Sjúkrahúsi Reykjavíkur Unnur Steina Björnsdóttir, sérfræðingur, Vífilsstöðum Vilmundur Guðnason, Ph.D., yfhiæknir, Hjartavernd Þórarinn Gíslason, Ph.D., yfírlæknir, Vífílsstöðum Prófessor Þórður Harðarson, Ph.D., yfírlæknir, Landspítalanum." Avis kaupir 15 Daihatsu Terios NOKKRAR bílaleigur hafa að undanförnu keypt Daihatsu Ter- ios-aldrifsbfla. Bflaleigan Avis fékk nýlega afhenta 15 slíka bfla. Bflaleigur sem keypt hafa Terios eru Bflaleiga Akureyrar, Bflaleiga Gullfoss og Geysis, Bflaleiga Bónuss og Avis. I frétt frá Daihatsu-umboðinu, Brim- borg, segir að bflaleigumar hafi valið Terios þar sem verðið hafi þótt hagstætt fyrir vel búinn bfl. AVIS fékk nýlega 15 Daihatsu Terios-aldrifsbíla. Gísli Jón Bjarnason (t.v.) afhenti Pálmari Sigurðssyni, framkvæmdastjóra Avis, bílana. Fiskimálastjóri lætur af störfum í GÆR var gengið frá starfsloka- samningi við Bjarna Kr. Grímsson fiskimálastjóra. í fréttatilkynningu frá Fiskifélagi íslands kemur fram að það hafi verið gert á stjórnar- fundi og Bjarni, sem hefur sagt upp störfum hjá félaginu, féllst á þá ósk stjórnarinnar að starfa áfram hjá fé- laginu fram eftir árinu. í fréttatilkynningunni er einnig tekið fram að enginn ágreiningui- er á milli Bjarna og stjórnar Fiskifé- lagsins um starfslokin eða áherslur í starfi félagsins en því var haldið fram í hádegisfréttum Bylgjunnar í gær. Á næstunni lítur út fyrir frek- ari breytingar á starfsmannahaldi Fiskifélagsins og er skýringin breyttar áherslur í starfi félagsins. Fiskifélag íslands hefur breyst úr því að vera vettvangur áhugamanna um sjávarútveg í að vera samstarfs- vettvangur allrar greinarinnar, með megináherslu á umhverfismál í stað hagsýslu. Frá og með næstu ára- mótum verða t.d. ýmis verkefni sem félagið hefur unnið fyrir sjávarút- vegsráðuneytið unnin af þeim opin- beru stofnunum sem hafa nýtt sér þau. Samkeppnisráð um álagningu fasteignagjalda af gistihúsnæði Mismunandi gjald stenst ekki landslög SAMKEPPNISRÁÐ telur það stríða gegn markmiði samkeppn- islaga að húseignir sem nýttar eru í samkeppnisrekstri á gistimarkaði beri mismunandi hlutfall af álagn- ingarstofni í fasteignagjöld og rekstraraðilum sé þannig mismunað í kostnaði við öflun tekna af starf- semi sinni. Tiiefni málsins er það að gistiað- staða, sem komið hafði verið upp á bújörð hafi verið látin bera 0,5% fasteignagjöld eins og um mann- virki til landbúnaðar væri að ræða, en samkeppnisrekstur í sama sveit- arfélagi greiddi 1,4%. Samkeppnisráð beinir í nýlegum úrskurði sínum þeim tilmælum til félagsmálaráðherra að hann hlutist til um að framkvæmd laga um tekjustofna sveitarfélaga verði á þann veg að fullvíst sé að sumarhús, bændagisting, rekstur gistihúsa í skólum, heimavistum og féiags- heimilum eða annar rekstur gisti- húsa í hagnaðarskyni falli ekki und- ir undantekningarákvæði um greiðslu fasteignaskatta samkvæmt lögum um tekjustofna sveitarfélaga. 1,4% á hótel en 0,5% á sveitagistingu Samband veitinga- og gistihúsa leitaði til samkeppnisyfirvalda vegna mismununar sem fælist í því að samkvæmt lögum um tekju- stofna sveitarfélgaa beri að greiða allt að 0,5% af álagningarstofni fyrir hús á bújörðum sem tengdar eru landbúnaði og sumarbústaði en greiða allt að 1,32% af álagningar- stofni fyrir allar aðrar fasteignir. Sveitarstjóm er síðan heimilt að hækka þessi gjöld um allt að 25%. Tilefni kvörtunarinnar var m.a. það að á Blönduósi greiði gististað- urinn Sveitasetrið 1,4% í fasteigna- gjöld en í sama bæjarfélagi sé ferðaþjónustufyrirtækið Glaðheim- ar sem leigi sumarbústaði til ferða- manna og greiði 0,5% í fasteigna- skatt. „Samkeppnisráð telur að smá- hýsi, sem rekin eru sem gististaðir fyrir ferðamenn ailt árið geti verið í samkeppni við ýmsa aðra gististaði, t.d. gistiheimili, sem samkvæmt lög- um um veitinga- og gististaði er skilgreint sem gististaður með tak- markaða þjónustu, gistiskála, sem er svefnpokagisting í herberjum eða svefnskálum og bændagistingu, sem samkvæmt úrskurði yfirfast- eignamatsnefndar fellur ekki undir utantekningarákvæði a-liðar 3. mgr. 3.gr. laga nr. 4/1995 [um tekjustofna sveitarfélga],“ segir í álitinu. Þar er vísað til þess að yfirfasteignanefnd hafi fellt þann úrskurð að bændag- isting, þar sem ákveðinn hluti húss hefur verið innréttaður gagngert til þess að leigja til gistingar, falli utan ramma venjulegs landbúnaðar og falli því sá hluti hússins ekki undir untantekningarákvæðið um greiðslu 0,5% af álagningarstofni. Einnig segir í úrskurðinum að að smáhýsi eða sumarhús, sem fyrir- tæki leigja í hagnaðarskyni sem gistiaðstöðu fyrir ferðamenn allt ár- ið falli ekki undir skilgi-einingu byggingareglugerðar á sumarbú- stöðum, sem séu hús sem aðeins eru ætluð til samfelldrar dvalar að sumri til, en á öðrum árstímum að- eins til styttri dvalar, t.d. yfir helg- ar. Telur samkeppnisráð að fram- kvæmd laganna sé ekki í samræmi við vilja löggjafans og að lögin séu ekki nægilega skýr til þess að taka af allan vafa um framkvæmd þeirra. Skattskyld not skólahúsnæðis í úrskurði samkeppnisráðs er jafnframt fjallað um álagningu gjalda á t.d. skólamannvirki, sem notuð eru sem gististaða hluta úr ári. Þar segir: „Samkvæmt 1. mgr. 5. gr laga um tekjustofna sveitarfé- laga eru m.a. skólar, heimavistir, barnaheimili og íþróttahús undan- þegin fasteignaskatti. Samkvæmt 3. mgr. 5. gr. segir að séu þessi hús jafnframt notuð til annars, svo sem til íbúðar fyrir aðra en húsverði, greiðist skatturinn hlutfallslega miðað við slík afnot. Samkvæmt heimildum samkeppnisyfirvalda er framkvæmd þessarar greinar víða ábótavant. Á fasteignir, s.s. skóla og heimavistir, sem nýttar eru til reksturs gististaða hluta úr ári, séu í sumum sveitarfélögum ekki lögð fasteignagjöld hlutfallslega í sam- ræmi við notkun húsnæðisins." Vegagerð ríkisins Tilboð opnuð VEGAGERÐIN hefur opnað tilboð í verk á Laugarvatnsvegi, Bessa- staðavegi, Snæfellsnesvegi og Bfldudalsvegi. Kostnaðaráætlun Vegagerðarinn- ar vegna brúar yfir Andalæk á Laugai-vatnsvegi hljóðaði upp á rúmlega 14,6 millj. kr. en lægsta til- boðið í verkið gerðu J.Á. verktakar á Selfossi, 10,6 millj. Feðgar ehf. í Hafnarfirði buðu 10,9 m.kr., G-verk ehf. á Selfossi 11,4 m.kr. Árborg ehf. á Selfossi 14,4 m.kr. og Bygg- ingafélagið Borg í Borgarnesi 14,5 m.kr. Vegagerðin áætlaði kostnað við verk á Bessastaðavegi 11 m.kr. en Loftorka Reykjavík ehf. bauð 8,9 m.kr. og Malbik og völtun ehf. og Jón og Tryggvi ehf. 10,7 m.kr. í verkið á Snæfeilsnesvegi við Berserkjaá buðu fjórir verktakar, Bjami Vigfússon á Kálfárvöllum tæpar 6 m.ki-., Þór Sigurðsson o.fl. í Stykkishólmi rúmar 6 m.kr. Vöru- flutningar L.G. ehf. og Tak ehf. rúmar 7 m.kr. og Oddur Magnússon í Grundarfirði 7,7 m.kr. Kostnaðar- áætlun Vegagerðarinnar hljóðaði upp á tæplega 7,2 milljónir króna.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.