Morgunblaðið - 17.07.1998, Blaðsíða 20
20 FÖSTUDAGUR 17. JÚLÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
ÚR VERINU
Morgunblaðið/Gunnlaugur Helgason
HJÁ Skipasmíðastöðinni Skipavík í Stykkishólmi er mjög mikið að gera við viðhald og breytingar á bátum
þessa dagana. Á myndinni sjást bátarnir sem nú eru í slipp, Sveinbjörn Jakobsson úr Ólafsvík, Friðrik Berg-
mann úr Ólafsvík og Ársæll frá Stykkishólmi.
Mikið að gera hjá Skipa-
vík hf. í Stykkishólmi
Stykkishóimur. Morgunblaðið.
FYRIR nokkrum árum voru
miklir erfiðleikar hjá skipa-
smfðastöðum á íslandi og þurfti
að veita mörgum þeirra aðstoð.
Verkefnastaða hjá skipasmíða-
stöðvunum hefur breyst mjög til
hins betra á síðustu misserum.
Hjá Skipasmiðastöðinni Skipavík
hf. í Stykkishólmi er mikið að
gera um þessar mundir og mörg
verkefni liggja fyrir. Það eru
mörg ár síðan að þar hafa verið
mörg skip í slippnum í einu, en
nú á dögunum voru 3 bátar í
slipp til viðgerðar og endurbóta.
Hjá Skipavík hf. starfa nú 43
starfsmenn og hefur þeim fjölgað
mikið síðustu vikurnar. I júní
voru ráðnir 10 trésmiðir sem áð-
ur störfuðu hjá Trésmiðjunni Nes
hf. og með komu þeirra jukust
umsvifin hjá fyrirtækinu. Enn
vantar fólk til starfa, sérstaklega
lærða suðumenn.
Að sögn Ólafs Sigurðssonar
framkvæmdastjóra hefur verið
erfiðast í rekstrinum til þessa
hve stutt hægt er sjá fram í tím-
ann, en vonandi er nú að verða
breyting á.
Norsk yfirvöld þyngja skattbyrði
útgerðarmanna
Fyrirhuga bann
við afskriftum
á veiðirétti
SKATTAYFIRVÖLD í Noregi
hyggjast seinna á þessu ári setja
nýjar reglur sem kveða á um að
verðmæti veiðiréttar sem fluttur er
af einu skipi yfir á annað séu bók-
færð sérstaklega og ekki afskrifuð.
Þetta þýðir þyngri skattbyrði fyrir
norska útgerðarmenn.
í Noregi er ekki hægt að versla
með kvóta líkt og á íslandi. Stórum
togurum og nótaskipum er hins
vegar heimilt að flytja kvóta af einu
skipi yfir á annað að því tilskildu að
annað skipið sé selt úr landi eða því
fargað. Vegna hagstæðs verðs á
skipum hefur verið nokkuð um stór-
ar sölur á togurum í Noregi að und-
anfömu. Útgerðarmenn hafa hing-
að til ekki aðskilið verð skips frá
verði kvóta og reiknað afskrifth- af
öllu kaupverði. Norsk skattayfir-
völd hyggjast síðar á árinu koma á
nýjum reglum þess efnis að sé verð
á skipum mjög hátt geti kaupandin
ekki afskrifað verðmæti veiðiréttar-
ins sem fylgir skipinu.
Hærri skattgreiðslur
Nýju reglumar þýðar í raun bann
við afskrift á veiðirétti. Það verður
þá til þess að skattgreiðslur þein-a
sem kaupa skip með kvóta verða
hærri en ella. Reglurnar þýða lægri
frádrátt fyrir útgerðarmenn og þar
af leiðandi meiri skattaskyldur. Hér
er því verið að skerpa skattgreiðsl-
ur sem útgerðarmenn standa
frammi fyrir.
Sem dæmi má nefna útgerðar-
mann sem kaupii- skip með kvóta á
50 millj. norskar krónur, leggur því
og flytur kvóta þess yfir á eigið
skip. Verðmæti skipsins er áætlað
um 30 milljónir NOK og verðmæti
veiðiréttarins um 20 milljónir. Af-
skriftir á verðmæti skipsins geta
samkvæmt norskum skattalögum
numið 30 milljónum 'á 5 árum en
samkvæmt túlkun norskra skattayf-
iivalda verður útgerðin að greiða
fullan skatt af veiðiréttinum eða á
bilinu 5,6 til 8 milljónir NOK á 5 ár-
um, allt eftir eignarhlutdeild kaup-
andans í fyrirtækinu.
Deilt um verðlagninguna
Vegna þess að í Noregi er enginn
markaður fyrir kvótaviðskipti er nú
harðlega deilt um verðlagninu á
veiðiréttinum, þ.e. hve stór hluti af
kaupverði skips er fyrir skipið sjálft
og hve stór hluti er fyi-ir kvótann
sem því íylgir.
Búist er við að verði nýju skatta-
reglumar samþykktar komi fram
kröftug mótmæli frá útgerðarmönn-
um og málinu líklega skotið til dóm-
stóla.
2 39.900 kr.
HAGKAUP
Alltaf betri kaup
góðar ástæður
fyrir þig að eiga garðskúr
• öll garðáhöldin geymd á einum stað.
• Sláttuvélin fær sitt eigið heimili.
• Sólhúsgögnin á vísum stað.
• Bíllinn kemst loksins í bílskúrinn.
• Þægilegra að vinna í garðinum.
Bræla á
loðnumið-
unum
ENGIN loðnuveiði var á miðunum í
gær og fyrradag vegna veðurs.
Fjöldi skipa var þó á miðunum um
200 mílur norður af Horni, enda um
sólarhrings sigling til hafnar í var.
Hólmaborg SU var þó á landleið í
gær með um 800 tonn og mörg skip
eru einnig í höfn eða á leið á miðin
eftir landanir í fyrradag.
172.400 tonn á land
Islensk loðnuskip hafa nú veitt
um 140 þúsund tonn það sem af er
sumarvertíðinni og því eru nú um
550 þúsund tonn eftir af útgefnum
loðnukvóta. Erlend skip, einkum
færeysk, hafa landað hér á landi
um 32.500 tonnum og því hefur
samtals verið tekið á móti 172.400
tonnum hérlendis á vertíðnni.
Mestu hefur verið landað hjá
verksmiðju SR Mjöls á Siglufirði,
um 23.600 tonnum. Þá hefur tæpum
19 þúsund tonnum verið landað hjá
Sílaivinnslunni hf. á Neskaupstað
og Hraðfrystihúsi Eskifjarðar hf.
og 17.300 tonnum hjá SR Mjöli á
Raufarhöfn.