Morgunblaðið - 17.07.1998, Blaðsíða 54

Morgunblaðið - 17.07.1998, Blaðsíða 54
54 FÖSTUDAGUR 17. JÚLÍ 1998 MORGUNBLAÐIÐ Uppstokkun á feg- urðarsamkeppninni UMGJÖRÐINNI um fegurðar- samkeppnina í Bandaríkjunum hefur verið breytt til þess að hrista aðeins upp í keppninni sem þótti heldur stöðnuð. Þátt- takendur, sem eru 51 talsins, munu dansa í þætti á MTV-sjón- varpsstöðinni við tónlist Michaels W. Smith, tekin verða „opinská og persónuleg“ viðtöl við þá sem komast í úrslit og á opnunarhá- tíðinni verða keppendur í eigin flíkum. Keppnin fer fram 19. september næstkomandi. SlimLite Sá allra þynnsti! Crafískur skjár 50 tímar í bið 2.5 tímar í tali Léttur og nettur: 137 gr. Titrari í stað hringingar Klukka, SMS, ofí. ofí. SMS textaskilaboð TALhólf i SlimLine 41 tímarbið 2 tímar í tali 19S gr. 130 nr. minni Sími með númerabirti. Ceymir 30 númer. Leðurtöskur Bílhleðslutæki Festing í bíl Beltisklemma ml titrara 2.990 Handfrjáls búnaður 4.990 ofí. ofl. GSM TALkort BT • SKEIFAN 11 • SlfVll 550-4444 FÓLK í FRÉTTUM KVIKMYNDIR/Háskólabíó sýnir gamanmyndina Blues Brothers 2000 sem John Landis leikstýrir og er þetta eins konar framhald myndarinnar The Blues Brothers sem hann gerði árið 1980 og sló sú mynd rækilega í gegn. Með aðalhlutverkin í myndinni fara Dan Aykroyd, John Goodman, Joe Morton og J. Evean Bonifant. Blúsbræður enn í fullu fjöri Frumsýning í Blues Brothers 2000 er þráður- inn tekinn upp 18 árum eftir að þeir blúsbræður voru kvaddir í myndinni The Blues Brothers og er Elwood Blues (Dan Aykroyd) nú laus úr fangelsi. hann kemst að því að ýmislegt hefur breyst þann tíma sem hann hefur setið á bak við lás og slá. Félagi hans, Jake, er látinn, hljómsveitin hans er horfin út í veður og vind, og munaðar- leysingjahælið þar sem hann ólst upp hefur verið jafnað við jörðu. Jafnvel Curtis, forstöðumaður þess, sem hafði á höndum forræði þeirra Jakes og Elwoods, er látinn. Hann hefur þó látið eftir sig hinn óskilgetna Cabel (Joe Morton) sem er því nokkurs konar stjúp- bróðir Elwoods. Cabel er lögga sem í einu og öllu fer eftir bókinni og þykir honum lítið til þessara „fjöískyldubanda" koma. Er hann sannfærður um að Elwood sé enn við sama heygarðshornið og láti lítið gott af sér leiða. Elwood leitar ásjár gamla kennarans síns, nunn- unnar Mary Stigmata sem nú stjórnar spítala, en hún á í mesta basli með hinn 10 ára Buster (J. Evan Bonifant) sem þarf sárlega á að halda einhverri fyrirmynd í líf- inu. Elwood er sannfærður um að vegir Guðs séu órannsakanlegir og hann gerir sér fljótlega grein fyrir að hann hefur fengið nýtt hlut- EINN af mörgum bílakirkjugörðum Blúsbræðra. ÞEIR Blúsbræður draga hvergi af sér á sviðinu. LEIKSTJÓRINN John Landis les upp úr heilagri ritningu. fram margir af þeim sem léku á sínum tíma í Blues brothers og fer Dan Aykroyd þar fremstur í flokki og auk hans James Brown, Aretha Franklin, Steve Lawrence og Frank Oz. Meðal annarra sem fram koma í myndinni eru B.B. King, Paul Shaffer og Wilson Pickett. Dan Aykroyd á nú að baki rúm- lega 35 kvikmyndir, en hann átti á sínum tíma sinn þátt í því að breyta bandarísku sjónvarpi ásamt öðrum frumherjum í skemmtiþættinum Saturday Night Live árið 1975. Þar kynntist hann John Belushi og stofnuðu þeir The Blues Brothers Band og árið 1979 gáfu þeir út metsöluplötuna Bri- efease Full of Blues. Ari síðar léku þeir svo í myndinni The Blues Brothers og í kjölfarið fóru þeir í mikla hljómleikaferð og luku við upptökur á plötunni Made In America. John Belushi lést árið 1982 og fóru þar með áætlanir þeirra um fleiri sigra á skemmt- anasviðinu út um þúfur. verk. Hann á að endurvekja gömlu hljómsveitina og láta hana taka þátt í hljómsveitakeppni í Louisi- ana, og einnig á hann að leiða hinn unga Buster inn á réttar brautir. Þetta leiðir þá félaga hins vegar inn á fatafellubúllu þar sem þeir taka höndum saman við barþjóninn Mighty Mack McTeer (John Goodman) sem sjálfur veit sitt af hverju um blúsinn. Þeir þrír leggja land undir fót til að koma hljómsveit- ínni saman og reyna hvað þeir geta til að komast undan Cabel og öðrum löggum sem eru á hælunum á þeim, en einnig eru þeir hundeltir af Chicagodeild Moskvumafíunnar og herskáum hægriöfgamönnum. í Blues Brothers 2000 koma bæst í hópmn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.