Morgunblaðið - 17.07.1998, Page 4

Morgunblaðið - 17.07.1998, Page 4
4 FÖSTUDAGUR 17. JÚLÍ 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR Flugvöllurinn í Eyjum met inn fyrir flutning Keikos Allt bendir til að hægt verði að lenda C 17-flutningavélinni á V estmannaeyjaflugvelli Vestmannaeyjum. Morgunblaðið. FULLTRÚAR bandaríska flug- hersins hafa verið í Vestmannaeyj- um undanfarna daga til að taka út flugvöllinn og gera á honum at- huganir. Er þetta gert vegna fyrir- hugaðs flutning háhymingsins Keikos til Eyja en ráðgert er að flytja hann frá Bandaríkjunum flugleiðis beint til Eyja. Flugvélin sem á að flytja Keikó með er af gerðinni C 17 og er vélin nýjasta flutningavél bandaríska flughers- ins og sú önnur stærsta sem hann hefur yfir að ráða. Borað í gegnum klæðningu Fulltrúar hersins gerðu mæling- ar á flugbrautunum til að kanna þjöppunargildi flugbrauta vallarins og styrkleika þeirra í heild en einnig könnuðu þeir yfírborð brautanna og umhverfí vallarins. Borað var í gegnum klæðninguna og með slaglóði á stöng var síðan gerð svokölluð DMT-mæling til að finna út styrkleikann. Að sögn Jims Kervins, fulltrúa hersins, og Páls Zophóníassonar bygginga- tæknifræðings sem verið hefur Bandaríkjamönnum til aðstoðar eru niðurstöður mælinganna í gróf- um dráttum þær að brautimar séu sterkbyggðar og C 17-vélinn ætti með góðu móti að geta lent í Eyj- um þess vegna. Páll sagði að við rannsóknimar hefði komið í ljós að styrkur braut- anna væri eins og til var ætlast þegar flugbrautimar voru endur- byggðar fyrir 8 ámm. Þá var fjar- lægt burt efni úr brautunum og sett í staðinn 50 sentímetra lag af sterku efni í staðinn. 10 sentí- metra, jöfnunarlagi hefði síðan ver- ið þjappað ofan á það og ofan á það hefði síðan verið lagt 2,5 til 3 sentí- metra lag af klæðningu. Þetta ætti að vera nægjanlegt samkvæmt nið- urstöðum athugananna til að völl- urinn geti borið svo stóra og þunga vél sem C 17, en hún vegur 120 til 130 tonn. Styrkleiki brauta mældur Auk þess að mæla styrkleika brautanna hafa Bandaríkjamenn- irnir kannað allan aðbúnað við flugvöllinn, bmnavarnir, öryggis- eftirlit, veður og ýmislegt fleira og munu þeir nú gefa yfirmönnum sínum í Pentagon skýrslur sem þeir munu síðan nota til að ákveða hvort þeirt telja að óhætt sé að lenda C 17-vélinni í Eyjum. Þrátt fyrir að ákvörðun liggi ekki fyrir benda þær niðurstöður sem feng- ust úr rannsóknunum á vellinum til þess ekkert þurfi að fram- kvæma við völlinn, eins og talið var í fyrstu, til að hægt verði að fljúga með Keiko beint frá Banda- ríkjunum til Vestmannaeyja með C 17-vélinni eins og ráðgert hefur verið. Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson UNNIÐ að mælingum með slaglóði á stöng á flugbrautinni í Eyjum. Aldrei hafa fleiri sótt um vist í MS VÍSA þurfti rúmlega 140 ný- nemum frá við Menntaskólann við Sund fyrir næstkomandi skólaár og hefur sá fjöldi aldrei verið meiri. Umsóknir nýnema til skólans voru 358 en hann getur tekið við 210 nemendum. Að sögn Péturs Rasmussen, konrektors skólans, er þetta 40% fleiri en ó síðasta ári en þá var 100 umsóknum hafnað. Segir hann athyglisvert að fleiri stúlkur sæki um skólavist en drengir og einnig sé frönskunám að verða með vin- sælli greinum í skólanum en bæta þurfti við heilum bekk vegna þess. Ástæðu þessarar fjölgunar segir Pétur ekki liggja ljósar fyrir en hugsan- lega megi rekja hana til þess að skólinn býr við bekkjar- kerfi. Segir hann það vera val- kost sem margir kjósa en framboð á því sé minna en eft- irspum. Dómsmálaráðherra um gagnrýni vegna málefna ungra fanga Mörg álitaefni uppi ÞORSTEINN Pálsson dómsmála- ráðherra segir að ráðuneytið muni fara yfir aðfinnslur umboðsmanns bama um ástand í málefnum ungra fanga. Þeim sem í hlut eiga verði gefinn kostur á að tjá sig um efni skýrslunnar og síðan verði henni svarað ski-iflega. „Það eru nokkuð ólík vinnubrögð hjá umboðsmanni bama og umboðsmanni Alþingis,“ segir Þorsteinn Pálsson. „Umboðs- maður Alþingis gætir þess að bera umkvörtunarefni undir þá sem í hlut eiga áður en álit er látið uppi, en umboðsmaður barna kýs að byrja á því að senda fréttatilkynn- ingar til fjölmiðla." Ákveðið var í vor, að sögn Þor- steins, að setja á fót starfshóp með félagsmálaráðuneytinu sem færi yfir málefni ungra fanga, refsiúr- ræði og gerði tillögur um nýjar leiðir. Mörg álitaefni væm uppi í þessu sambandi, en að vísu væm mjög fáir einstaklingar sem þama ættu hlut að máli. „I ýmsum tilvik- um gæti virkari meðferð haft góð áhrif. Menn hafa hins vegar líka bent á að ef sérstakt unglingafang- elsi er fyrir hendi, þá gæti verið hætt við fleiri óskilorðsbundnum dómum. Það gæti því verið heppi- legra að stýra þróuninni meira inn á skilorðsbundna dóma þar sem gerðar em kröfur um sérstaka meðferð." Þúsund mflur á hafí úti milli Noregs, fslands, Hjaltlands og Færeyja á hraðbát HAFSTEINN Jóhannsson siglingakappi á hraðbátnum Úthafskappa. Morgunblaðið/Kristinn Laus við lénsmann og prest 431 hefur sagi sig úr Þjóð- kirkjunni ALLS sagði 431 einstaklingur sig úr þjóðkirkjunni á fyrstu sex mán- uðum þessa árs en 93 létu á sama tíma skrá sig í þjóðkirkjuna. Þannig em brottskráðir umfram nýskráða 338 á tímabilinu. Af þeim 431 sem sagði sig úr þjóðkirkjunni gengu 114 í Óháða söfnuðinn en 107 kusu að standa utan trúfélaga. Aðr- ir dreifðust á hin ýmsu trúfélög. Alls vora gerðar 724 breytingar á trúfélagsskráningu í þjóðskrá, en það svarar til þess að 0,3% lands- manna hafi skipt um trúfélag. Svipaðar vom breytingamar á sama tíma á síðasta ári, eða 762, en á fyrri helmingi ársins 1996 vom breytingar á trúfélagsskráningu alls 1.579, sem svarar til þess að 0,6% landsmanna hafi skipt um trúfélag á þeim tíma. ------------- Sprungin pera gang- setti kerfið BRUNAVARNAKERFI í Iðnó í Reykjavík hrökk í gang laust fyrir hádegi í gær þegar pera sprakk. Er talið að neistar frá pemnni, sem sprakk raunverulega, hafi gangsett kerfið. Slökkviliðið í Reykjavík sendi lið á vettvang kl. 11.30 en þegar séð var hvað var á ferðinni var ljóst að ekki var þörf fyrir aðstoð liðsins. Veitingastaðurinn hafði verið opn- aður og æfingar stóðu yfir en at- burðurinn olli ekki stórkostlegum tmflunum á iðju manna í húsinu. HAFSTEINN Jóhannsson lagði að bryggju í smábátahöfninni í Kópavogi síðastliðinn mánudag eftir að hafa Iagt að baki þúsund mflur á litlum hraðbát. Hafsteinn er búsettur í Noregi og er líklega þekktastur fyrir siglingu sína umhverfis hnöttinn á seglskútu sinni Eldingu. Seglskútuna teiknaði hann sjálf- ur og smíðaði og fór svo einn síns liðs á henni umhverfis jörðina á 241 degi. Frá Noregi siglir hann mikið á Eldingu og hefur stundum áhöfn með sér. Þeir sigla niður til Evrópu, til Hjaltlands og Skotlands og í fyrra kom hann til íslands. í þeirrri ferð tók hann léttabátinn af aðstoðarbjörgun- arbátnum Eldingu með sér til Noregs. Bátnum hefur svo verið breytt í vetur og lengdur um einn og hálfan metra. Núna er hann 5,60 m á lengd og 1,40 m á breidd. Erindi Hafsteins til Islands nú var að skila léttabátnum sem kallaður er Úthafskappi. Hann lagði af stað frá Noregi 26. júní og sigldi til Hjaltlands. Þar beið hann í 13 daga eftir hagstæðu veðri. Þá fór hann til Færeyja og kom svo á mánudaginn í smá- bátahöfnina í Kópavogi. Þá var hann búinn að sigla tæpar 1.000 mflur en siglingartíminn sjálfur var rúmar 50 klukkustundir og segir hann um 500 lítra af bens- íni hafa farið í ferðina. Best að smíða bátana sjálfur Hafsteinn segir best að sigla bátum sem maður hafi smíðað sjálfur. „Þegar maður er búinn að byggja bátinn sjálfur og hefúr fjórgengisvéi aftan á, þá getur maður farið í svona ferð án þess að vera með lífið í lúkunum, mað- ur þekkir bátinn.“ Um þá tilfinn- ingu að vera einn síns liðs úti á i hafi segir Hafsteinn: „Við segjuni að það sé gott að koma sér frá fastalandinu, þá sé maður laus við lénsmann og prest.“ Hafsteinn segir bátinn komast á 30 mflna hraða en hann fari ekki mikið hraðar en á 20 mflum á hafi úti. Um 130 mflum frá ís- landsströnd fékk hann svo vont veður, stinningskalda, og þurfti að fara niður í 7 mflna hraða um tima. Hafsteinn skilur bátinn Út- i hafskappa eftir hér en tekur sér far með Norrænu til baka og seg- ir hann að það verði síðasta sigl- ing sumarsins.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.