Morgunblaðið - 17.07.1998, Side 12

Morgunblaðið - 17.07.1998, Side 12
12 FÖSTUDAGUR 17. JÚLÍ 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Barnaheill afhenda Barnaspítala Hringsins íbúð til afnota fyrir foreldra Mikilvægt fyrir börnin að hafa fjölskylduna nærri BARNAHEILL afhentu í gær Barnaspítala Hringsins íbúð á Skúlagötu 10 til afnota. fbúð- in er ætluð foreldrum lang- veikra barna utan af landi sem dveljast á Sjúkrahúsi í Reykjavík. Haustið 1996 hófu Barna- heill landssöfnun til að kaupa íbúð fyrir aðstandendur veikra barna af landsbyggð- inni. Einar Gylfi Jónsson, for- maður Barnaheilla, segir sam- tökin vilja bæta úr brýnni þörf foreldra utan af landi til að geta dvalið nærri börnum sínum sem þurfa að dvelja á sjúkrahúsum borgarinnar. Það sé erfitt fyrir margar fjölskyldur að þurfa ofan á veikinda barna sinna að þurfa að búa inni á öðru fólki eða kosta miklu til að leigja hús- næði. Hann segir undirtektir al- mennings og fyrirtækja við söfnuninni hafa verið góðar og í apríl 1997 voru fest kaup á íbúð á Rauðarárstíg sem af- hent var barnadeild Sjúkra- húss Reykjavíkur. Einar segir Barnaheill hafa átt mjög gott samstarf við barnadeildirnar tvær og við afhendingu íbúð- anna sé gerður samningur við þær um að sjá um nýtingu þeirra. fbúðin á Rauðarárstíg hafi verið fullnýtt og mikil þörf á fleiri slíkum. Við af- hendingu íbúðarinnar sagðist Einar vonast til að Barnaheill geti afhent eina íbúð til við- bótar og jafnvel fleiri. Bætt úr brýnni þörf Atli Dagbjartsson yfirlæknir tók við lyklum að íbúðinni fyrir hönd Barnaspitala Hringsins. Atli segir það skipta miklu fyr- ir börnin að hafa fjölskyldur sínar sem næst sér, það auki lífsvilja þeirra og það hafi mik- Morgunblaðið/Ásdls EINAR Gylfi Jónsson, formaður Barnaheilla, og Atli Dagbjartsson, yf- irlæknir á Barnaspítala Hringsins, í íbúðinni á Skúlagötu 10 sem Barnaheill færðu Barnaspítala Hringsins í gær. ið að segja. fbúðirnar bæti úr mjög brýnni þörf. „Sífellt betri árangur í með- ferð langvinnra, illvígra sjúk- dóma hjá börnum þýðir að fleiri mikið veik börn eru í langri og strangri meðferð á sjúkrahús- um. Sum þeirra þurfa að koma í reglubundna meðferð eða eftir- lit,“ segir Atli. Hann segir að þar sem flestar slíkar meðferðir fari fram í Reykjavík og séu íbúðirnar kærkomnar fyrir for- eldra barnanna. Atli segir að jafnaði íjögur til sex börn með langvinna sjúkdóma vera á göngudeild Barnaspítalans hverju sinni. Ginseng kært til heilbrigðis- eftirlits SIGURÐUR Þórðarson hjá Eðalvörum ehf. hefur kært rót- arendaginseng, sem flutt er inn af Lyfju hf. og selt er í Lyfju og lyfjabúðum Hagkaups undir nafninu „Rautt Eðal Ginseng", til Heilbrigðiseftirlits Reykja- víkur. Lyfja flytur rótarendagins- engið frá Þýskalandi en Eðal- vörur flytja ginseng inn frá Kóreu. Með kæru sinni leggur Sigurður fram plagg sem sýnir niðurstöður mælinga Hollustu- verndar rikisins á varnarefnum í ginsengi frá Þýskalandi og Kóreu. Þar kemur fram að í ginsenginu frá Þýskalandi eru 0,13 mg af skordýraeitrinu hexaklórbensen í einu kílói en ekkert mælist í ginsenginu frá Kóreu. Sigurðui- bendir í kærunni á að hér á landi eru engin há- mai-ksgildi fyrir skordýraeitur í heilsuvörum en í nágrannaríkj- unum er ginseng venjulega flokkað með tei. „Væri sú regla viðhöfð varðandi rótai'endavör- una er hún þrettánfalt yfír leyfi- legum mörkum hérlendis skv. mælingu Hollustuverndar ríkis- ins,“ segh’ í kærunni. Morgunblaðið/Ásdís Lýst eftir vitnum og eiganda húfu LÖGREGLAN í Reykjavík lýsir eftir vitnum sem gætu gefið upplýsingar um ferðir þriggja pilta á hlaupum austur yfir Kj-inglumýrai-braut síðast- liðið sunnudagskvöld. Er það í tengsl- um við rannsókn lögreglunnar á ráni í versluninni Heijólfi við Skipholt. Piltarnir sem rændu verslunina höfðu ekki margar þúsundh' króna upp úr krafsinu. Piltarnir hlupu yfir Kringlumýrarbraut á móts við Álfta- mýri og síðan um göngustíg við Háa- leitisbraut og Safamýri um klukkan 21.30 á sunnudagskvöld. Þá biður lögreglan þann, sem telur sig eiga húfuna á meðfylgjandi mynd, að gefa sig fram eða þá sem gætu gefið upp- lýsingar um eiganda hennar að hafa samband við sig í síma 569 9231 eða 896 5840. Samband íslenskra sparisjóða telur lengingu afgreiðslutíma í samræmi við kjarasamninga Sjá ekki grundvöll fyrir mótmælum SIB ÞÓR Gunnarsson, formaðui' Sam- bands íslenskra sparisjóða, segir Sparisjóð Hafnarfjarðar og Sparisjóð Reykjavíkur og nágrennis hafa und- irritað samkomulag við starfsmanna- félög sín um lengingu afgreiðslutíma. Það sé í samræmi við núgildandi kjarasamninga, hann telji því engan grundvöll fyrir mótmælum Sam- bands íslenskra bankamanna Þór segir að samkvæmt ákvæði núgildandi kjarasamnings sé heimilt að haga vinnudegi öðruvísi en að hann sé frá 9-17 mánudaga til fóstu- daga, sé um það samkomulag milli hlutaðeigandi starfsmanna, stjórnar starfsmannafélags og banka. Það sé því inni í kjarasamningum heimild til að breyta vinnutíma og þeir hafi gert um það samkomulag við starfs- mannafélög og starfsmenn eins og samningar geri ráð fyrir. Efast um að ákvæði kjarasamn- ings standist samkeppnislög Þór finnst líka skjóta skökku við að SÍB mótmæli lengingu af- greiðslutíma þegar það hafi sam- þykkt að í Leifsstöð sé opið banka- útibú allan sólarhringinn. Hann segir líka að lengingin skapi fleiri störf en auki ekki álag á þá sem fyr- ir séu. „Þessir starfsmenn byrja ekki að vinna fyrr en 12 og ráða sig sjálfviljugir. Það hentar ekki öllum að finna 9 til 5 vinnu. Þetta er allt innan þess ramma sem kjarasamn- ingurinn setur. Ég leyfi mér reynd- ar hreinlega að efast um að þetta ákvæði í kjarasamningum standist nútíma samkeppnislög, að starfs- menn banka og sparisjóða geti ákveðið þjónustustig og bankar og sparisjóðii' sammælist um að hafa bara opið frá klukkan 9-5,“ segir Þór. Hann segir að eðlilega hafi verið staðið að lengingu afgi'eiðslutíma og í fullri samvinnu við starfsmannafé- lög, samkomulag hafi verið undirrit- að. Þeir túlki kjarasamninginn þannig að þeir þurfi ekki að ræða sérstaklega við Samband íslenskra bankamanna. Starfsmannafélög einstakra banka hafi fullt vald til að skrifa undir samninga á sínum vinnustað. Morgunblaðið/Ásdís : | .1 'fM ’ý ■ I fWfiiL / ’ Jp ' 'm \ WBSt ■ / . Eiginkona Michaels Crichtons var meðal gesta á Landsmóti hestamanna Gaf ekki upp fullt nafn við komu sína til landsins ANN-Marie Crichton, eigin- kona Michaels Crichtons, rit- höfundar og framleiðanda Bráðavaktarinnar, var stödd á landsmótinu á Melgerðis- melum. Ann-Marie er lítið gefin fyrir athygli fjölmiðl- anna og notaði því ekki sitt rétta nafn heldur gekk undir nafninu Ann-Marie Martin. Ann-Marie Crichton hefur átt íslenska hesta um nokkurt skeið og á nú, samkvæmt heimildum Morgunblaðsins, átta íslenska hesta ásamt hestum af öðrum kynjum. Hún hefur búið í Kaliforníu en er nú flutt til New York. Tveir af íslensku hestunum hennar eru geymdir á Hawaii til þess að vera til taks þegar hún á leið þar um. Hún er sögð góður reiðmaður og hef- ur meðal annars sótt nám- skeið í reiðmennsku á ís- lenskum hestum hjá Bruno Podlech í Wiesenliof í Þýska- landi. ANN-Marie Chrichton mátar húfu í einum af sölubásunum á landsmótinu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.