Morgunblaðið - 17.07.1998, Page 31

Morgunblaðið - 17.07.1998, Page 31
30 B'ÖSTUDAGUR 17. JÚLÍ 1998 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ + STOFNAÐ 1913 ÚTGEFANDI FRAMKVÆMDASTJÓRI RITSTJÓRAR Árvakur hf., Reykjavík. Hallgrímur B. Geirsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. BARATTAN GEGN TÓB AKSRE YKIN GUM BANDARÍKJAMENN hafa verið í fararbroddi í baráttunni gegn tóbaksreykingum. Þetta er þeim mun merkilegra, þar sem tóbaksframleiðend- ur eru hvergi jafn áhrifamiklir og í Bandaríkjun- um. Engu að síður hafa bandarísk stjórnvöld geng- ið fram fyrir skjöldu og þá ekki sízt Clinton, Bandaríkjaforseti, sjálfur. Að baki honum stendur mesti baráttumaðurinn gegn tóbaksreykingum, sem nú gegnir áhrifastöðu þar í landi, sem er A1 Gore, varaforseti, sem hefur að tjaldabaki skorið upp herör gegn tóbaksframleiðendum. Það hefur líka vakið athygli vegna þess, að fjölskylda hans efnaðist mjög á tóbaksframleiðslu - en systir hans dó af völdum tóbaksreykinga. í grein í Washington Post fyrr á þessu ári var fullyrt, að varaforsetinn hefði á fundi í Hvíta húsinu um þessi mál sagt um tóbaksframleiðendur: þeir eru morðingjar. Barátta bandarískra stjórnvalda gegn tóbaks- reykingum hefur orðið baráttumönnum gegn þess- um skaðvaldi í lífi fólks um allan heim mikil hvatn- ing. í hverju landinu á fætur öðru í hinum vest- ræna heimi a.m.k. feta stjórnvöld í fótspor Banda- ríkjamanna. Slík eru hins vegar áhrif tóbaksfram- leiðenda vestan hafs, að fyrir skömmu unnu þeir mikinn sigur, þegar þeim tókst að stöðva framgang tímamótafrumvarps á Bandaríkjaþingi, sem hefði skyldað þá til að greiða yfir 500 milljarða dollara til þess að standa straum af kostnaði vegna heilsutjóns af völdum reykinga. Kom þetta m.a. fram í viðtali, sem birtist hér í blaðinu í gær við fyrrverandi landlækni Bandaríkjanna. Skilningur á skaðsemi tóbaksreykinga hefur far- ið hraðvaxandi hér á landi en betur má ef duga skal. Það er tímabært, að Alþingi og ríkisstjórn taki stefnu stjórnvalda í þessum efnum til nýrrar skoðunar. Ríkissjóður hefur miklar tekjur af inn- flutningi og sölu tóbaks. í ljósi þeirrar þekkingar, sem nú er fyrir hendi á skaðsemi reykinga er ekki lengur við hæfi, að íslenzka ríkið byggi að ein- hverju leyti á slíkri tekjuöflun. Hver króna, sem kemur inn fyrir sölu á tóbaki á að ganga til stór- aukins forvarnarstarfs og til þess að herða áróður- inn gegn reykingum. Þessum peningum á að verja til stóraukins fræðslustarfs á þessu sviði. Engum dytti í hug, að ríkið ætti að hafa tekjur af sölu eit- urlyfja. Tóbak er fíkniefni, sem fólk ánetjast og getur leitt það til dauða og gerir í stórum stíl. Þess vegna eiga þeir peningar, sem koma inn vegna sölu á tóbaki að ganga til þess að draga úr sölu á tóbaki. Það er stutt í, að það verði talið til marks um hversu þróaðar og þroskaðar þjóðir heims eru, hvernig þær umgangast tóbak. Við íslendingar höf- um alla burði til að skipa okkur í forystu meðal þeirra þjóða heims, sem mestum árangri ná í bar- áttunni gegn tóbaksreykingum. Fámennið í landi okkar er slíkt, að við eigum auðvelt með að ná til hvers einasta reykingamanns með upplýsingar um áhrif og afleiðingar reykinga. Tímabært er, að enn lengra verði gengið í að út- hýsa reykingum af samkomustöðum almennings og .að skorin verði upp herör á hverjum einasta vinnu- stað á íslandi gegn reykingum. Peningana, sem koma í ríkiskassann vegna sölu tóbaks, á að nota til þess að hjálpa fólki að hætta að reykja. Það eru til ýmis hjálpargögn, sem reynast mörgum drjúg í við- leitni þeirra til að hætta að reykja en þau eru alltof dýr. í raun og veru ættu þau að kosta lítið sem ekki neitt, a.m.k. sem þáttur í skipulegri viðleitni reyk- ingafólks til þess að losna undan þeim þrældómi, sem það hefur komizt 1. Hver vill vera þræll tó- baksframleiðenda í heiminum, sem reynslan sýnir að svífast einskis til þess að útbreiða tóbak og stofna þar með lífi milljóna manna í hættu? Lögreglustjórinn í Reykjavík segir nýja reglugerð setja harðari leikreglur Metum hvert mál meðan við höfum ekki efnisdóm Með nýlegri reglugerð um viðurlög við umferð- arlagabrotum segir lög- reglan hægt að taka bet- ur en áður á agabrotum í umferðinni. Jdhannes Tómasson ræddi við lög- reglustjórann í Reykja- vík sem segir reglugerð- ina ekki gera ráð fyrir umburðarlyndi. VIÐAMIKIL endurskoðun á lagasetningu umferðarmála hefur farið fram undanfarin misseri á vegum dómsmála- ráðuneytisins. Nefnd ráðuneytisins, skipuð ýmsum fullti-úum umferðar- og löggæslumála, hefur m.a. endur- skoðað reglur um sektir og innheimtu og ný nefnd í framhaldi af henni hef- ur nýlokið við endurskoðun á punkta- kerfinu. Reglugerðin nr. 280 frá 14. maí síð- astliðnum, þar sem meðal annars eru hert ákvæði varðandi sviptingu öku- leyfis vegna hraðaksturs, hefur orðið tilefni mismunandi úrskurða hjá hér- aðsdómum. Ökumenn, sem sviptir hafa verið ökurétti til bráðabirgða, hafa skotið þangað þeim ákvörðunum Iögreglunnar og þær ýmist verið staðfestar eða felldar úr gildi. Af þessu tilefni er rætt við Georg Kr. Lárusson, settan lögreglustjóra í Reykjavík, og hann m.a. spurður hvort lögreglan þui-fi að draga í land með aðhald sitt vegna ökuhraðans. „Nýja reglugerðin markar okkur ákveðnar leikreglur sem eru heldur harðari en þær sem áður hafa gilt og ásetningur okkar er sá að taka af fullri hörku á þessum umferðarlaga- brotum," segir lögreglustjóri og segir að svo gildi einnig um önnur brot sem varði aga og heill almennings. „Við erum með öðrum orðum að tala um allt sviðið, allt frá almennum sóða- skap í umferðinni til glæfraaksturs, svo sem vegna ölvunar. Með sóða- skap á ég til dæmis við stöðubrot sem eru mjög algeng því menn virðast leggja bílum sínum nánast þar sem þeim sýnist án tillits til hvort það veldur truflun eða hættu fyrir aðra vegfarendur." Forvarnar- og uppeldisgildi „Við þurfum því að viðurkenna for- varnargildi þess að taka umferðar- lagabrot fóstum tökum og það hefur einnig uppeldislegt gildi. Grunnurinn að þessu starfi eru umferðarlögin sem við vinnum eftir og reglugerðir sem settar eru á grundvelli þeirra." Georg segir reglugerðina frá 14. maí ekki setta sem einhvers konar átak til að bæta aga í um- ferðinni, umbætur sem hún eigi að geta leitt af sér verði viðvarandi og með henni megi taka betur en áður á agabrotum í umferð- inni og hún geri ekki ráð fyrir umburðarlyndi. Mismunandi úrskurðir í héraðs- dómi síðustu daga snúast einkum um það hvort 101. grein umferðarlag- anna geti verið grundvöllur þess að svipta megi ökumenn ökurétti hafi þeir ekið meira en 30 km hraðar en hámarkshraði leyfir. Snýst spurning- in um orðalagið „mjög vítaverðan akstur", hvort það nái til þessara brota eða hvort menn verði að hafa komist á um 50 km yfir hraðamörk til þess að teljast hafa framið mjög víta- vert brot. Með úrskurði 10. júlí ógilti héraðs- dómari í Reykjavík bráðabirgðasvipt- ingu lögreglu meðal annars með þeim DREGIÐ hefur nokkuð úr hraðakstri í Reykjavik síðustu tvo mánuði. Hrað- og ölv- unarakstur stærstu vandamálin Morgunblaðið/Ásdís GEORG Kr. Lárusson er lög- reglustjóri í Reykjavík. rökum að hann telur vafa leika á því að akstur á 64 km hraða, ef hann sannast, þar sem hámarkshraði var 30 km, geti talist vítaverður. í úr- skurði annars héraðsdómara 14. júlí er 66 km hraði þar sem aka má á 30 hins vegar talinn vítaverður þar sem hann sé meira en tvöfaldur hámarks- hraði og aftur er það sama uppi á ten- ingnum í úrskurði daginn eftir. Er þar vísað til reglugerðarinnar, sagt að hún þyngi refsingar og ökuréttar- sviptingar vegna umferðarlagabrota og með því að hún eigi sér lagastoð sé hún gild refsiheimild sem beri að byggja á. Efnislegan dóm vantar „Meðan þessi óvissa er uppi um meðferð sviptinga vegna ökuhraða verður hvert mál, þar sem ökumaður er tekinn á minna en 50 km yfir há- markshraða, skoðað sérstaklega. Verður metið hvort telja eigi brotið vítavert. Það sem breytist er að við munum ekki svipta menn ökuréttind- um til bráðabirgða á staðnum nema í undantekningartilvikum heldur gefa út ákæru samdægurs sem tekin yrði fyrir hjá dómara. Þetta þýðir hins vegar ekki að menn komist upp með brotin en segja má að sú refsing sem vænta má að veitt yrði eftir slíkan málarekstur sé kannski ekki eins beitt og sú sem veitt er þegar menn __________ eru sviptir ökurétti á staðnum." Lögreglustjóri segir að eftir að þessi mál komu upp hafi talsvert verið um fyrirspurnir frá þeim sem 11 1... lent hafí í svipuðum mál- um. Hann segir nauðsynlegt að fá ótvíræðan efnisúrskurð með dómi um hvort reglugerðin haldi og gerir ráð fyrir að það geti orðið á næstu vikum. Georg dregur í efa að hægt sé að tala um að dómvenja hafi skapast með viðmiðun við 50 km umfram há- markshraða. Hafi sú venja skapast sé spuming hvort ekki sé nauðsynlegt að breyta henni þar sem aðstæður í umferðinni hafi breyst mikið á síð- ustu 10 til 20 árum. Fjöldi bíla sé nú mun meiri, slysatíðnin meiri og spuming hvort vegir og götur beri alls staðar þessa miklu aukningu. „Umferðin er hættuspil eins og við sjáum af þeirri staðreynd að við miss- 119 sviptir á tveimur mánuðum UNDANFARNA tvo mán- uði, frá því reglugerðin tók gildi, hafa 119 ökumenn í Reykjavík verið sviptir ökurétti til bráðabirgða. Meirihluti brotanna, eða 71, er vegna hraðaksturs en 48 eru vegna ölvunar við akstur. um 15 til 20 manns árlega í umferðar- slysum. Fyrir utan banaslysin verða fjölmargir fyrir óbætanlegu líkams- tjóni og það má Iíka minna á að sam- kvæmt rannsóknum í Háskóla ís- lands kosta umferðarslysin þjóðina 11 til 15 milljarða króna - fyrir utan það tjón sem ekki verður mælt í pen- ingum. Umferðarslysin eru eitt af mestu heilbrigðisvandamálum þjóð- arinnar.11 Hjá embætti lögreglustjórans í Reykjavík er nú í undirbúningi stefnumótun fyrir alla starfsemi emb- ættisins og má segja að hugmyndin sé í senn að skerpa fyrir lögreglulið- inu sjálfu markmið sitt og hlutverk og skapa lögreglunni nýja ímynd í augum borgaranna. „Bæði starfsfólk og þeir sem þurfa að leita til okkar eiga að líta á embættið sem þjónustu- stofnun. Lögreglan er til þess að að- stoða borgarana og halda uppi þeim lögum og reglum í landinu sem við höfum öll ákveðið að skuli gilda því þau hljóta að endurspegla vilja þegn- anna. Við eigum að sjá til þess að mál fái réttan og eðlilegan framgang, með meðalhófsregluna að leiðarljósi og jafnræði." Brýnt að endurskoða hraðamörk víða í borginni Lögreglustjóri telur að íbúar Reykjavíkur vilji koma meiri skikkan á umferðina en verið hefur, foreldrar vilji geta treyst því að bömin komist óhult leiðar sinnar og séu ekki í lífshættu þegar þau ferðast milli borgarhverfa. „Þetta gerum við ekki nema í fullu samráði við íbúana og telj- um okkur njóta fulltingis þessum efnum.“ En telur lögreglustjóri að há- markshraði í borginni sé alls staðar eðlilegur? Má ekki sums staðar leyfa meiri hraða? „Ég hef þegar sent erindi til borg- aryfirvalda, Umferðarráðs og Vega- gerðarinnar um það hvort ekki væri rétt að hafa einn og sama hámarks- hraðann á Miklubraut allt frá gatna- mótum Skeiðarvogar og Réttarholts- vegar og um Vesturlandsveg allt uppí Mosfellsbæ og legg til að á öllum þessum kafla verði leyfður 80 km hraði. Núna er hann 70 og Vegagerð- Gæslan felst ekki í sektum og fjölda skýrslna þeirra in telur veginn bera meiri hraða og ég held að það væri skynsamlegt að breyta þessu. Ef hins vegar einhver aðili leggst gegn þessari breytingu og rökstyður að hún sé hættuleg myndi ég fallast á það. Sama er upp á ten- ingnum varðandi Suðurlandsveg, allt upp fyrir Rauðavatn þar sem nú er leyfður 70 km hraði, á þessum kafla væri líka óhætt að leyfa 80 km. Ég tel brýna þörf á að endurskoða hraða- mörk víðar í borginni bæði til hækk- unar og lækkunar." Georg Kr. Lárusson segir að hraðakstur og ölvunarakstur séu stærstu vandamálin í umferðinni í dag. „Ég tel líka almennan sóðaskap í umferðinni mikið vandamál og þar á ég við stöðubrotin og almennan glannaskap og fíflaskap í umferðinni sem ekki verður beint mældur á hraðamælum. Við höfum verið meira við mælingar á ölvun á síðustu vikum meðal annars með nýju tæki sem Ríkislögreglustjóri hefur látið okkur í té og lögreglumenn hafa gefíð þessu atriði meiri gaum en áður. Umferðarlöggæslan felst hins veg- ar ekki í þvi að liggja fyrir mönnum og sekta, það er að mínu viti ekki rétt að einskorða sig við það, heldur að lögreglan sé á ferðinni til aðstoðar og leiðbeiningar, sé sýnileg og íylgist með. Það hefur forvamargildi.“ Hjá lögreglunni í Reykjavík eru nú 308 stöður og segir Georg að þrátt fyrir meiri verkefni og aukið eftirlit hafi lögreglan aldrei síðustu árin verið jafn fáliðuð og í dag. Segir hann umferðardeildina sérlega fá- menna, m.a. vegna sumarleyfa og þess að ekki hafi tekist að manna all- ar stöður sem eru 31. I dag eru starfsmenn hennar 20. Almenna deildin, þar sem starfa 173 menn, sinnir einnig umferðareftirliti með öðrum verkefnum sínum og er ætl- unin að auka samvinnu deildanna. Aðrar deildir eru forvarna- og fræðsludeild og rannsóknadeildir. Nýlega var vaktakerfinu breytt og segir Georg það hafa í för með sér betri nýtingu á mannskapnum og þægilegri vaktir fyrir lögreglumenn. Hann segir umferðareftirliti í stórum dráttum háttað þannig að hver dagur sé skipulagður og ákveðin verkefni sett fyrir. „Verkefnin ráðast þó alltaf að talsverðu leyti af frumkvæði ein- stakra lögreglumanna og ég tel að við höfum á að skipa mjög góðum mannskap. Fjöldi af skýrslum er hins vegar enginn mælikvarði á frumkvæði eða atorkusemi manna, oft geta þeir verið bundnir lengi af tímafrekum málum. Markmið okkar er heldur ekki að safna skýrslum heldur að vera á vettvangi og úti á meðal borgaranna." Dregið liefur úr hraðakstri Lögreglustjóri telur að afskiptum vegna umferðarlagabrota hafi stór- lega fækkað og dregið úr hraðakstri. „A tveimur mánuðum teljum við okk- ur sjá að það séu 50 til 60% færri afskipti af ökumönn- um vegna hraðabrota. Þetta er hins vegar of stuttur tími til að draga megi af honum almennar ályktanir.“ Georg segir að lokum að þær breytingar sem hafi orðið á um- ferðarlögum og reglum síðustu miss- erin séu af hinu góða: „Ég tel að við búum nú við góða lagasetningu og það hefur farið fram mikil endur- skoðun á vegum ráðuneytisins á fjöl- mörgum atriðum er lúta að umferð- aröryggismálum, sektum og inn- heimtu. Mér finnst ekki óeðlilegt að umræða verði meðal almennings þeg- ar slíkar breytingar koma til fram- kvæmda og lögreglan fer að vinna eftir þeim. Við erum öll þátttakendur í umferðinni frá vöggu til grafar og eigum að láta umferðarmálin skipta okkur máli.“ FÖSTUDAGUR 17. JÚLÍ 1998 31 Morgunblaðið/Helgi Bjamason VALGEIR Þorvaldsson framkvæmdastjóri og Vigdís Esradóttir upplýsingafulltrúi „á leið til Vesturheims“, á sýningunni í Vesturfarasetrinu. Starfsemi Vesturfarasetursins á brauðfótum fjárhagslega Framtíðin nokkuð óviss Vesturfarasetrið á Hofsósi stendur á tíma- mótum eftir tveggja ára rekstur. Starfsemin er að eflast að því leyti að fjöldi gesta sækir -------------------t---------------------- það heim, Vestur-Islendingar eru að upp- ---------------------------------------7-- götva möguleika þess og í sumar verður Is- lendingadagurinn haldinn hátíðlegur. Hins vegar hefur ekki tekist að fjármagna upp- byggingu menningarstofnunarinnar og er því nokkur óvissa með framtíð hennar eins og fram kemur í samtali Helga Bjarnasonar við forsvarsmenn Vesturfarasetursins. GÓÐ aðsókn hefur verið að Vesturfarasetrinu á Hofs- ósi en nú eru tvö ár liðin frá því setrið var opnað við há- tíðlega athöfn. Um 10 þúsund gestir heimsóttu setrið á síðasta ári og skoðuðu Vesturfarasýningu Byggða- safns Skagfirðinga. Að sögn Val- geirs Þorvaldssonar, framkvæmda- stjóra Snorra Þorfinnssonar ehf. sem á og rekur setrið, voru flestir gestimir á siðasta ári innlendir ferðamenn. Hann segir að þetta sé að breytast og í sumar séu Kanada- menn og Bandaríkjamenn af íslensk- um ættum áberandi í gestahópnum, þrátt fyrir að setrið hafi lítið getað markaðssett sig Vestanhafs. Jafn- framt hafi ferðaskrifstofur verið að átta sig á möguleikum þessa við- komustaðar. „Það kemur í ljós að fólk hefur beðið í mörg ár eftir að fá svör frá Islandi við fyrirspurnum sínum og áhuga. Hér fær það þessa svörun, hér situr fólk við símann og tölvuna allt árið um kring. Það dugir ekki að hafa opið einhverja klukkutíma á dag hluta úr árinu. Við höfum gefið okkur að þessu verkefni og lagt okk- ur fram við að þjóna fólkinu,“ segir Valgeir. Að sögn Vigdísar Esradóttur, upplýsingafulltrúa V esturfaraset- ursins, dregur sýningin „Annað land - annað líf‘ fólkið að safninu, bæði íslendinga og landa okkar vestan hafs. Skoðun sýningarinnar leiðir fólk í upplýsingamiðstöðina, hið eig- inlega Vesturfarasetur, og hún segir að fólk verði undrandi að kynnast starfmu þar. Hún segir að Kanada- menn og Bandaríkjamenn af íslensk- um ættum sem komi í safnið eða leiti þangað símleiðis, bréfleiðis eða með tölvusamskiptum hafi mestan áhuga á ættfræði, vilji fá upplýsingar um uppruna sinn á íslandi. Tilraun einkafyrirtækis Reksturinn hefur gengið erfið- lega, eins og fram kemur hjá Val- geiri. Hann réðst í það verk að gera upp gömlu kaupfélagshúsin á Hofs- ósi og koma þar upp Vesturfarasetri. Hins vegar hefur enn ekki tekist að fjármagna uppbygginguna og er vaxtakostnaður að sliga reksturinn. Ríkið lagði ekki fé í uppbyggingu setursins en styrkir reksturinn með 1.200 þúsund kr. framlagi á ári. „Ég er mjög ánægður með að hafa ráðist í þetta verk, það þurfti ein- hver að gera. Starfið hefur gefið mér margar ánægjustundir, ekki síst kynnin af góðu fólki. En þetta hefur gengið nærri mér fjárhagslega og það gengur auðvitað ekki að reka svona starfsemi með barnabótunum. Það er orðin spurning um það hvenær maður hættir að sætta sig við það,“ segir Valgeir. Að uppbyggingu safnsins stóð einkafyiirtæki, Snorri Þorfinnsson ehf., fyrirtæki Valgeirs sem nokkur stórfyrirtæki lögðu til hlutafé. Val- geir segist ekki geta neitað því að uppbygging menningarstofnunar með þessum hætti sé tilraun sem ekki hafí tekist fullkomlega. Að vísu hafi tekist að byggja upp stofnunina nákvæmlega á þann hátt sem fólk vildi hafa hana, en það vantaði þátt- töku fleiri fyrirtækja til að ljúka fjármögnun. Telur hann raunar full- reynt með að það takist. „Ég tel að það sé nauðsynlegt að hið opinbera komi að þessu starfi. Það væri best gert með því að taka af mér fjárhagslegar byrðar upp- byggingarinnar. Þá gæti reksturinn frekar staðið undir sér. Vonandi tekst að fá fjármagn inn í sambandi við hátíðarhöldin árið 2000, þegar landafundanna verður minnst,“ seg- ir Valgeir. Hann segist hafa vonast til þess að þegar starfsemin kæmist vel af stað og sannaði sig myndi verða léttara að réttlæta stuðning við uppbyggingu og rekstur. Þjóðin hreinlega tæki yfir þetta einstak- lingsframtak. Það hefði hins vegar enn ekki gengið eftir. Skipt í tvennt? „I upphafi var það álitamál hvort setrið ætti ekki að vera sjálfseignar- stofnun. Ég sá hins vegar ekki fram á að hægt yrði að ljúka uppbygging- unni án þess að á bak við verkefnið stæði hlutafélag sem bæri ábyrgð á því. Til tals hefur komið að skipta þessu upp, þannig að Vesturfara- setrið yrði rekið sér með sértekjum og stuðningi hins opinbera og Snorri Þorfmnsson ehf. gæti einbeitt sér að því að sinna þörfum ferðafólks,“ seg- ir Valgeir. Vigdís Esradóttir segir að tilfinn- anlega vanti fjármagn til bóka- kaupa og til áframhaldandi upp- byggingar gagnabanka Vesturfara- setursins. Um leið og rannsókna- vinnan komist á hærra plan skapist betri aðstaða til að þjóna fræði- mönnum í setrinu. Hún segir að starfsfólk setursins sjái ýmsa möguleika til að selja þjónustu set- ursins, en fyrst verði að búa til vör- una, til dæmis að ljúka uppbygg- ingu gagnabanka með ættfræðiupp- lýsingum svo hægt verði að selja nógu ítarlegar upplýsingar. Islendingadagurinn haldinn hátíðlegur Þrátt fyrir fjárhagslega örðug- leika er ýmislegt verið að gera í Vesturfarasetrinu í sumar. Þar hafa verið settar upp tvær sýningar, ann- ars vegar á ljósmyndum úr Nýja Is- landi, bók Guðjóns Ai-ngrímssonar, og hins vegar póstsýning til að sýna mikilvægi póstsins í samskiptum fólks á vesturferðatímanum. Að sið Kanadamanna og Banda- ríkjamanna af íslenskum ættum verður „Islendingadagurinn" hald- inn hátíðlegur á Hofsósi fyrstu helg- ina í ágúst, það er að segja um versl- unarmannahelgina. Þar verður tekið á móti fjölda Vestur-íslendinga sem þá verða á landinu. Bændasamtökin skipulögðu ferð á Islendingadaginn í Gimli og sam- komulag náðist við Þjóðræknisfélag- ið vestanhafs um að nýta sætin í flugvélinni til baka. Vélin tekur 360 manns og þegar síðast fréttist var búið að selja yfir 200 sæti. Valgeir Þorvaldsson segir að þetta sé fólk sem að öðrum kosti hefði væntan- lega verið að skemmta sér á íslend- ingadeginum í Gimli og gerir hann sér vonir um að meginhluti hópsins muni í staðinn koma á íslendinga- daginn á Hofsósi. Einnig á hann vor/ á Vestur-íslendingum sem koma á eigin vegum og með íslenskum ætt- ingjum sínum og tekur fram að allir séu velkomnir. Gestimir skoða ýmis söfn og staði í Skagafirði og á laugardagskvöldið verður hátíðarkvöldverður, skemmtidagskrá og harmónikkuball á Hofsósi. Meðal atburða á íslend- ingadeginum er opnun myndlistar- sýningar Patriciu Peacock í Vestur- farasetrinu. Þá verður Bill Holm rit- höfundur heiðursgestur á skemmti- dagskránni. Bæði eru mikils metnir listamenn af íslenskum ættum. Vigdís Esradóttir segir fyrirhug- að að gera Islendingadaginn að ár- legum viðburði, þótt ekki sé víst að það henti að hafa hann á sama tíma og íslendingadaginn í Gimli eins og nú. Jafnframt sé frágengið að list- viðburðir verði fastir þættir í dag-_ skránni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.