Morgunblaðið - 17.07.1998, Page 52
52 FÖSTUDAGUR 17. JÚLÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
Teiknimynd
Lindu
McCartney
frumsýnd
^STUTTMYND sem gerð var af
Lindu McCartney skömmu áður
en hún lést verður heimsfrum-
sýnd á Kvikmyndahátíðinni í Ed-
inburg í næsta mánuði. „Wide
Prairie“ er teiknimynd sem
hyggð er á lagi sem hún samdi
og skrifaði.
Argentínski listamaðurinn
Oscar GriIIo var með í ráðum og
leikstýrði myndinni með McCart-
ney. „Hún var svo áhrifarík ...
Hún fór á hesti að næturlagi og
—stjörnurnar og heiðskír himinn-
inn voru svo nálægt að það var
eins og hún riði á himnum,“
sagði Grillo.
McCartney, eiginkona bítilsins
fyrrverandi Paul McCartney, lést
úr bijóstakrabbameini í apríl síð-
astliðnum. Hún var 56 ára.
KVIKMYNDIR/Regnboginn sýnir vísindatryllinn Mimic með þeim Miru Sorvino, Jeremy Nort-
ham og Charles S, Dutton í aðalhlutverkum. Þau leika vísindamenn sem gera merka erfða-
fræðilega uppgötvun sem síðan snýst upp í andhverfu sína og ógnar íbúum New York-borgar.
Atlaga Júdas-
ar-afbrigðisins
Frumsýning
HINN bráðsnjalli vísindamaður
dr. Susan Tyler (Mira Sorvino) og
eiginmaður hennar, dr. Peter
Mann (Jeremy Northam), sem
veitir smitvarnastofnun í New
York forstöðu, taka höndum sam-
an um að uppræta farsótt sem
ógnar lífi fjölda bama, og svo virð-
ist sem þeim hafi heppnast ætlun-
arverk sitt. Dr. Tyler tekst að raða
saman erfðaefni úr ýmsum dýra-
tegundum til að mynda mótefni
fyrir þá sem haldnir eru sjúk-
dómnum. Kallar hún þessa upp-
finningu sína Júdasarafbrigðið og
með aðstoð eiginmannsins kemur
hún því fyrir í lífkeðjunni í New
York. Þremur árum síðar kemur
hins vegar í ljós að það sem í
fyrstu leit út fyrir að vera snilld-
arverk í erfðafræðiiðnaði hefur
snúist upp í andhverfu sína og lagt
til atlögu við skapara sína. Lækn-
ingin hefur þannig öðlast eigið líf
og þessi röskun á jafnvægi náttúr-
unnar hefur hafið gagnsókn.
Sköpunarverkið úr rannsóknar-
stofunni hefur hreiðrað um sig
neðanjarðar í stórborginni og tek-
ið á sig mynd helsta rándýrs jarð-
arinnar, mannskepnunnar sjálfr-
ar. Dæmið hefur því snúist við
með skelfilegum afleiðingum og
þeir einu sem snúið geta þessari
þróun við eru vísindamennirnir
sem sköpuðu óvættina.
Mira Sorvino sló eftirminnilega í
gegn þegar hún lék í myndinni
Mighty Aphrodite sem Woody Al-
len leikstýrði, en í henni lék hún
heimska ljóshærða vændiskonu
sem auk þess var aukaleikari í
klámmyndum. Sópaði hún að sér
verðlaunum fyrir þetta hlutverk
sitt, en hún hlaut meðal annars
Óskarsverðlaun árið 1995 fyrir
frammistöðu sína og Golden Glo-
be-verðlaunin.
Mira er dóttir leikarans Pauls
Soi-vino, sem m.a. lék í Goodfellas.
Hún fæddist í New York en ólst
upp í New Jersey þar sem foreldr-
ar hennar vildu ekki ala hana upp í
stórborginni. Sorvino stundaði
nám við Harvard-háskólann í fjög-
ur ár og útskrifaðist þaðan með
gráðu í asískum tungumálum og
menningarsögu. Bjó hún um átta
mánaða skeið í Peking og skrifaði
þar verðlaunaritgerð um kynþátta-
árekstra í Kína. Eftir það vann
hún um skeið í skóla fyrir sein-
þroska börn, en ákvað síðan að
helga sig leiklistinni þegar hún
sótti námskeið í ljósmyndun.
Ekki leið á löngu þar til henni
áskotnaðist fyrsta kvikmyndahlut-
verkið, en það var í myndinni
Amongst Friends, sem vann til
verðlauna á Sundance-kvikmynda-
hátíðinni 1993. Síðast sást Miru á
hvíta tjaldinu í gamanmyndinni
Romy and Michelle’s High School
Reunion þar sem hún lék á móti
Lisu Kudrow, en meðal annarra
nýlegra mynda hennar eru Sweet
Nothing, Beautifui Girls og Blue in
HJÓNIN dr. Susan Tyler (Mira Sorvino) og dr. Peter Mann (Jeremy
Northam) eru þau einu sem tekist geta á við sköpunarverk sitt.
LEIKARINN F. Murray Abraham fer með lilutverk prófessors sem dr.
Tyler leitar ráða hjá.
the Face, sem Harvey Keitel fór Quiz Show, sem Robert Redford
með aðalhlutverkið í. Þá lék hún í leikstýrði, og í Barcelona.
DIGITAL
nwirk wahlberg
christina appiegate
bakeem waadbine
antania sábata, jr.
DIGITAL
með íléttu
Skotmarkið
Magnaður grínhasar sem fór beint á toppinn i
Bahdaríkjunum f v€r, með Mark Wahlberg úf
JEÍoogie Nights. Frábært grfn, frábær hasar.
framkvæmd
með
stæl
frábær áhættuatriði og frábær tónlist