Morgunblaðið - 17.07.1998, Síða 56

Morgunblaðið - 17.07.1998, Síða 56
56 FÖSTUDAGUR 17. JÚLÍ 1998 MORGUNBLAÐIÐ Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. Sýnd kl. 5, 7 og 9. b. í. 12. TONLISTIN UR BLUES BROTHERS 2000 FÆST I JAPIS Sýnd kl. 5.30, 9 og 12 á miðnætti Sýndld. 5,9og11. «r. ííhp . sdRdrorsrníftfí !;'■ ÍKilUK ..... . - . ./.IL'liiú íií.V j OENNI! Samrýndar 0 g samhlj óma Real Flavaz eiga eitt af vinsælustu lögunum þessa dagana og kemur mörgum á óvart að sveitina skipi 18 ára tvíburasystur úr Breiðholtinu. Rakel Þorbergsdóttir hitti þær Brynju og Drífu Sigurðardætur. TVÍBURASYSTURNAR Brynja og Drífa voru að syngja á skemmt- un í Fellahelli þegar DJ Rampage koma auga á þær og tók þær með sér inn í hljóðver þar sem lagið „Get It on“ var meðal annars tekið upp. Stelpurnar höfðu samið nokk- m- lög áður en með aðstoð Mr. Bix og DJ Rampage fullunnu þær tvö lög sem er að fmná á safnplötunni „For Ya Mind“. Að sögn systranna er nafnið Real Flavaz komið frá DJ Rampa- ge sem stakk upp á því rétt fyrir tónleika í Kolaportinu sem þær komu fram á. Engin sérstök merk- ing liggur því að baki enda gefa þær sig ekki út fyrir að hafa neinn sérstakan boðskap fram að færa. Brynja og Drífa hlusta fyrst og fremst á R&B tónlist og nefna nöfn eins og Missy, Maxwell og D’Ang- elo en rappkonur eins og Lil’ Kim bar einnig á góma. Þær eru lítið að vinna í sumar enda stendur til að unnið verði að nýjum lögum í hljóðveri. „Við verð- um að senda eitthvað nýtt frá okk- ur til að fylgja „Get It On“ eftir. Það er frekar leiðinlegt þegar við erum beðnar um að syngja ein- hvers staðar að vera alltaf með sömu lögin í farteskinu." -Er einhver verkaskipting hjá ykkur? Brynja: „Nei, þetta er algjört samstarf. Ég syng til dæmis fyrsta og þriðja versið í laginu „Get It on“. - Eru raddirnar svona líkar? Drífa: „Nei, en þeir sem þekkja okkur ekki geta ekki greint á milli. Ef hlustað er betur þá heyrist munurinn. Ég er til dæmis með dimmari rödd en Brynja.“ -Ætlið þið að leggja tónlistina fyrirykkur? Brynja: „Við erum á samningi hjá Inn útgáfufyrirtækinu og ætl- um að vinna að stórri plötu á næstu mánuðum. Framhaldið verður svo að koma í ljós.“ - Er ekki gaman að eiga eitt af vinsælustu lögunum í útvarpinu? Drífa: „Við gerum það sem okk- ur fínnst flott og það er að sjálf- sögðu gaman ef öðrum fínnst það líka.“ - Kemur aldrei upp rígur á milli ykkar? Drífa: „Það kemur stundum upp rígur á milli okkar og þegar við er- um að semja þá segir önnur oft: Hvað, átt þú bara að ráða?“ Brynja: „Stundum ef Drífa kem- ur með flotta melódíu segist ég ekki vilja nota „hennar“ og að við verðum að gera þetta saman. Það er regla að ef við erum ekki sam- mála þá notum við ekki hugmynd- ina. Við verðum að læra að vinna saman og vera duglegri að hrósa hvor annarri fyrir að hafa fundið eitthvað flott. Við vinnum samt vel saman nú þegar.“ -Langar ykkur að verða ríkar og frægar í útlöndum ? DRÍFAogBrynjaíReai Drífa: „Ef eitthvað verður þá er það æðis- legt. Við erum viðbúnar öllu, miklu og litlu.“ - Hefur eitthvað breyst hjá ykk- ur? „Við erum bara sömu gömlu Brynja og Drífa.“ -Hafíð þið hætt að umgangast einhverja vini? (Hávær hneykslunaróp og hlátur fylgdu þessari kjánalegu spurn- ingu.) „Aldrei! Það er allt óbreytt." - Er ekki gaman aðþessu? „Jú, jú en vonandi verður þetta ennþá skemmtilegra þegar þetta er komið á gott ról.“ - Hvernig takiðþið tilsögn? Drífa: „Við viljum alltaf fá að ráða. Það hefur verið talað um að við ynnum lög í hljóðveri með upp- tökustjóra en þá skiptir miklu máli máli að við getum unnið vel saman með öðrum. Við gerum lögin heima, klárum þau og höfum tilbú- in til vinnslu." Drífa: „Við eigum auðveldara með að semja bara einar. Við vor- um að gera lag með Rögnu í Flavaz eio,,a ,,t c • fVI"S*Justu %unum á /sJandi {^bma/Anm Subterranean og okkur fannst hálferfitt að hafa einhvern annan hjá okkur.“ Brynja: „Við erum líka rosalega móðgunargjarnar og ég vorkenni þeim sem þurfa að vinna með okk- ur. Við eigum eiginlega erfitt með að taka jákvæðri og neikvæðri gagnrýni. En við erum sjálfsgagn- rýnar og stundum fáum við hrós fyrir hluti sem okkur finnst bara ágætir.“ - Hvað gerið þið fyrir utan skóla og tónlist? „Við höfum áhuga á íþróttum og erum í líkamsrækt.“ - Geriðþið allt saman? Brynja: „Við erum rosalega mik- ið saman.“ Drífa: „Fólk spyr oft hvort við séum „alltaf1 saman. Við erum bestu vinkonur og erum mjög mik- ið saman.“ Brynja: „Það er ekkert langt síð- an að það var mjög erfitt fyrir okk- ur að fara einar í strætó. Þá var bara hugsað um Drífu allan tímann! - Hver er lengsti tíminn sem þið hafíð verið aðskildar? Brynja: „Einn dagur í mesta lagi. Mér fyndist frábært að losna við hana Drífu, við verðum að fara að breyta þessu, þetta er ekki hægt!“ Drífa: „Það eru allir að segja okkur að við séum of mikið saman.“ - Klæðiðþið ykkur einhvern tím- ann eins? „Nei, aldrei. Við hættum því þeg- ar við vorum 11 ára þvi þá var þetta orðið hálf hallærislegt.“ Tíburasysturnai’ eru greinilega mjög samrýndar en ófeimnar við að leiðrétta og gagnrýna hvor aðra. Bi-ynju og Drífu langar í nám til New York að loknu stúdentsprófi en Drífa minnti þó á að skólagjöldin væru mjög há. Þær eru þó ákveðn- ar i að láta sig dreyma og vita hvað þær vilja. Brynja og Drífa virðast jarðbundnar, taka hlutunum með jafnaðargeði og eru ekkert að bíða eftii- að boð frá útlöndum komi. Koma tímar, koma ráð ...

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.