Morgunblaðið - 15.08.1998, Blaðsíða 2
2 LAUGARDAGUR 15. ÁGÚST 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Landsvirkjun
Urkoma
breytir ekki
skerðingar-
áformum
ÞORSTEINN Hilmarsson
upplýsingafulltnii hjá Lands-
virkjun segir að úrkoma und-
anfarið hafí ekki breytt
áformum Landsvirkjunar um
að hækka verð á ótryggðri
orku í haust og skerða sölu á
ótryggðri orku til stóriðju.
Ótryggð orka er orka til al-
menningsveitna og stóriðju
og hún er seld með þeim skil-
málum að vatnsbúskapur sé í
lagi. I júlí var sagt frá því í
Morgunblaðinu að vatnsbú-
skapur í sumar hefði verið lé-
legur vegna lítillar úrkomu.
Ágætt rennsli komið í ár
Þorsteinn segir að þrátt
fyrir ágætis rennsli í ám núna
þurfí meira til að breyta þeim
spám, sem gerðar hefðu ver-
ið. Segir hann að það stefni í
80% fyllingu lóna og því sé
ekki tímabært að endurskoða
skerðingar áform.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Pysju sleppt í Reykjavík
ARON Snær Arnarson sleppti í gær lundapysju á
norðanverðu Geldinganesi, til móts við Lundey.
Aron Snær fann pysjuna í Kópavogi ásamt
nokkrum félögum sínum og björguðu þeir henni frá
mávum, sem sveimuðu yflr henni. Hann tók lunda-
pysjuna í fóstur, en svo var ákveðið að sleppa henni
í námunda við Lundey, þar sem er vitað af lunda-
byggð. Sást pysjan taka stefnuna á eyna þegar
henni var sleppt. Óvenjulegt er að lundapysjur
finnist á höfuðborgarsvæðinu.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson.
ÁREKSTURINN var mjög harður og eru báðir bílarnir taldir ónýtir.
Alvarlegt umferðarslys á Hellisheiði
Einn maður á
gj örgæsludeild
ALVARLEGT umferðarslys átti
sér stað á Hellisheiði um sexleytið í
gærkvöldi þegar sendiferðabíll og
fólksbíll rákust saman. Við árekst-
urinn kastaðist ökumaður fólks-
bílsins út og liggur hann þungt
haldinn á gjörgæsludeild Sjúkra-
húss Reykjavíkur. Ökumaður
sendiferðabílsins er minna slasaður
og mun útskrifast fljótlega að sögn
vakthafandi læknis.
Ekki er vitað um tildrög slyssins
en báðir bílamir voru á töluverðri
ferð við áreksturinn og eru þeir
taldir gjörónýtir. Ökumenn voru
einir í bílunum og er talið að öku-
maður fólksbflsins hafí ekki verið í
belti, að sögn lögreglunnar á Sel-
fossi. Nokkrar tafír urðu á umferð
vegna slyssins, en tækjabfll
slökkviliðsins var kallaður á vett-
vang.
Ríkislögreglustjóri sendir bréf til
allra lögreglustjóra á landinu
Afbrotum
verði fækkað
um 20%
HARALDUR Johannessen rikis-
Iögreglustjóri hefur í bréfí til allra
lögreglustjóra á landinu beint þeim
tilmælum til þeirra að við skipu-
lagningu og stjórnun löggæslu verði
tekið mið af því markmiði að koma í
veg fyrir og fækka afbrotum í land-
inu. Hvetur hann til þess að stefnt
skuli að fækkun innbrota, þjófnaða,
líkamsárása, rána og eignarspjalla
um 20%.
I bréfinu er bent á að þessum
brotum megi fækka með auknu og
skilvirkara eftirliti. Eru þar til-
greind þau úrræði sem í boði eru,
svo sem fjölgun lögreglumanna sem
klæðast einkennisfötum við dagleg
störf sem og fjölgun þeirra við al-
mennt eftirlit, og betri nýting tækja
eins og vélhjóla og bifreiða. Þar er
bent á að í auknum mæli megi
manna bílana með einum lögreglu-
manni þar sem það á við.
Fagna bréfinu
Bjöm Jósef Arnviðarson,
sýslumaður á Akureyri, fagnar
bréfinu og segir markmið þess
raunhæf. „Þetta byggist á því að
menn taki upp breytt og að sumu
leyti nútímalegi-i vinnubrögð sem
víða eru þekkt erlendis. Það er mín
hugmynd að fá menn með í þessa
vinnu og ég mun óska eftir hug-
myndum frá starfsmönnum með
hvaða hætti markmiðunum verði
náð og hvemig þær leiðir verða út-
færðar sem koma fram í bréfinu.
Þetta þarf að gerast í samstarfi við
alla og ég efast ekki um að lögreglu-
menn séu tilbúnir að skoða þessi
mál,“ sagði Bjöm.
Gott að hafa markmið
Ólafur K. Ólafsson, sýslumaður í
Stykkishólmi, tekur undir orð
Bjöms og segir hann tillögur ríkis-
lögreglustjóra falla vel að þeirn
vinnu sem nú þegar á sér stað innan
embættisins. „Við erum að reyna að
endurskipuleggja iöggæsluna hér og
ég tel markmiðið sem kemur fram í
bréfínu raunhæft og gott að hafa
slflct til að byggja á. Seinna getum
við skoðað árangur okkar í ljósi þess
og lagfært það sem betur má fara.
Einnig er sérstakt ánægjuefni að
þarna er íTkislögreglustjóri búinn að
taka forystu í því að marka löggæsl-
unni stefnu sem ekki hefur verið
nægilega skýr til þessa,“ sagði Ólaf-
ur í samtali við Morgunblaðið í gær.
Kári Stefánsson ^
Ummæli
byggð á
misskiln- »
• • $
mgi »
KÁRI Stefánsson, forstjóri Is-
lenskrar erfðagreiningar, segir að
heilsufarsupplýsingar sé ekki að
finna á þeirri rannsóknarstofu sem
Helga Ógmundsdóttir, yfirlæknir
rannsóknarstofu í sameinda- og
frumulíffræði hjá Krabbameinsfé-
lagi Islands, veitir forstöðu og því i
komi ekki til þess að upplýsingar
sem hún hafi yfir að ráða fari í fyrir-
hugaða gagnagrunna á heilbrigðis-
sviði.
í Morgunblaðinu á fimmtudag
var haft eftir Helgu að þær heilsu-
farsupplýsingar sem hún hefði yfir
að ráða kæmu aldrei til með að fara
í miðlæga gagnagrunna á heilbrigð-
issviði sem fjallað er um í frumvarpi
sem lagt verður fyrir Alþingi í
haust.
Kári segir ummæli Helgu byggð
á misskilningi og ekki vel ígrunduð,
rannsóknarstofan sem hún veiti for-
stöðu geymi engar heilsufarsupp-
lýsingar. „Ef hún hefur þær er hún
að brjóta lög, því samkvæmt lögum
um meðferð persónuupplýsinga má
hún ekki hafa slíkar upplýsingai-
inni á sinni rannsóknarstofu."
Kári segir ennfremur að ef hann
fengi leyfi til að reka gagnagrunn
myndi hann komast að þeirri niður- )
stöðu að rannsóknarstofan hefði |
ekki yfir neinum upplýsingum að i
ráða sem kæmu inn í gagnagrunn- ’
inn.
-----»-M------
66% horfðu á
urslit HM
TÆPLEGA 66% fólks á aldrinum
16-75 ára horfðu á úrslitaleik heims-
meistarakeppninnar í knattspymu í
beinni útsendingu í Sjónvarpinu.
Þrír af hverjum fjórum körlum
horfðu á leikinn og er ekki mark-
tækur munur á áhorfi eftir aldri,
segir í fréttatilkynningu frá RÚV.
„Helmingur fólks fylgdist að
miklu eða nokkru leyti með útsend-
ingum Sjónvarpsins frá HM í
Frakklandi, en tæplega fjórðungur
fylgdist ekkert með þeim. Fólk af .
tekjuhærri heimilum horfði meira á
HM en fólk af tekjulægri heimil- )
um,“ segir í tilkynningunni. j
--------------
Bfll valt í Mý-
vatnssveit
BÍLL valt í Mývatnssveit síðdegis í
gær. Að sögn lögreglunnar á Húsa-
vík voru auk ökumanns nokkrir far- )
þegar í bflnum og sluppu allir |
ómeiddir. Lögreglan segir fólkið í j
bílnum hafa verið útlenda ferða-
menn. Þeir hafi farið of innarlega í
beygju að afleggjara að Kálfaströnd
og þrátt fyrir að hafa verið á lítilli
ferð hafi bfllinn oltið út af veginum
og skemmst töluvert.
s§ siteijit
ÁLAUGARDÖGUM
Sekúnduslagur um íslands-
meistartitilinn í ralli/B1
••••••••••••••••••••••••••••«
Mikil barátta toppnum í
i.deild karla/B2
L