Morgunblaðið - 15.08.1998, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 15.08.1998, Blaðsíða 20
20 LAUGARDAGUR 15. ÁGÚST 1998 ERLENT MORGUNBLAÐIÐ Ótti við genabreytt matvæli ástæðulaus London. Reuters. BRESKUR vísindamaður sagði í gær að ótti við að gena- breytt matvæli gætu verið skaðleg heilsu manna værí al- gerlega ástæðulaus og órök- réttur. Hönnun nýrra græn- metistegunda væri í engu frá- brugðin ræktunarvali sem bændur hefðu iðkað öldum saman. Richard Dawkins, prófessor við Oxford-háskóla, sagði í bréfi til blaðsins The Independent að margar fæðu- tegundir sem neytt væri nú á dögum myndu ekki vera til ef ekki hefðu komið til breytingar af mannavöldum. Hann nefndi sem dæmi að „venjuleg" mat- væli eins og maiskólfar, sem neytendur kaupa í stórum stíl í verslunum, væru ansi frá- brugðnir villtum kólfum sem vaxa úti í náttúrunni. Harðar deilur hafa risið í Bretlandi undanfarið vegna genabreytinga á matvælum. Nýverið hélt prófessor við rannsóknarstofnun því fram að athuganir sinar sýndu að slíkar breytingar gætu verið skaðleg- ar. Honum var nokkru síðar sagt upp störfum á þeim for- sendum að rannsóknaraðferðir hans hefðu ekki verið sem skyldi. „Það er eins og mönnum fínnist að þessi matvæli séu næstum því geislavirk“, skrifar Dawkins. „Viðbrögðin hafa ver- ið þannig að það er líkt og fólk haldi að genabreytt grænmeti sé eitrað, eða valdi krabba- meini eða sé slæmt fyrir ónæm- iskerfið.“ Með erfðaverkfræði má koma arfberum úr einni tegund plöntu eða dýra fyrir í erfða- kerfí annarrar tegundar, en „sú staðreynd að maður fær hana úr annarri tegund gerir þetta ekki í sjálfu sér gott eða slæmt“, sagði Dawkins. Albright neitar ásökunum um að hafa sagt vopnaeftirliti SÞ í frak fyrir verkum Segir Bandarfkin tilbúin í átök verði þeim ógnað Washington, New York. Reuters. MADELEINE Albright, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, sakaði í gær Saddam Hussein, for- seta Iraks, um að reyna að snúa deilu Iraks við Sameinuðu þjóðirnar upp í deilu við Bandaríkja- menn eina og sér. „Hann má hins vegar vita það að við munum beita valdi, ef þörf krefur og ef við teljum Bandaríkjunum ógnað, þegar og þar sem okkur hentar." Albright neitaði jafnframt fregnum þess efnis að bandarísk stjómvöld hefðu sagt Richard Butler,_ yfírmanni vopnaeftirlits Sameinuðu þjóð- anna í írak, fyrir verkum en The Washington Post hafði fyrr um daginn greint frá þvi að Bandaríkja- menn hefðu haft hönd í bagga þegar vopnaeftir- litsmenn ákváðu að fresta „óvæntum" eftirlitsferð- um í því augnamiði að komast hjá beinum árekstr- um við stjórnvöld í Bagdad. Viðurkenndi Albright hins vegar að Bandaríkjamenn hefðu „rætt“ tíma- setningu eftirlitsferða við Butler. Yfu’stjórn vopnaeftirlitsins sagði einnig að ásak- anir um það að Butler hefði hlotið „utanaðkomandi ábendingar", hvað varðaði framkvæmd vopnaeft- irlits í írak, væru úr lausu lofti gripnar. Kom í yf- irlýsingu vopnaeftirlitsins fram að allar stefnu- mótandi ákvarðanir þess væru teknar í samræmi við vilja öryggisráðs SÞ en að yfírmaður vopnaeft- irlitsins réði sjálfur framkvæmd eftirlits. írakar hafa lengi haldið því fram að vopnaeftir- ht SÞ væri undir áhrifum Bandaríkjastjórnar og segja það skýringuna á því hvers vegna vopnaeft- h'litsmenn hafi leitast við að koma Irökum í opna skjöldu á eftirlitsferðum sínum. Segja þeir jafn- framt að vopnaeftirlitið sé viljandi dregið á lang- inn af Bandaríkjamönnum til að tryggja að örygg- isráð SÞ geti ekki aflétt viðskiptaþvingunum af írak. Hungur í Suður-Súdan Reuters HRIKALEG neyð blasir nú við hungruðu fóiki í S-Súdan og er talið að rúmlega helmingur íbúa sé alvarlega vannærður. Hjálpar- stofnanir hafa aukið umsvif sín í landinu verulega í því augnamiði að sjá fólki fyrir næringu en mörg barnanna á myndinni höfðu gengið marga kílómetra í gær í þeirri von að hljóta matar- bita. Reyndu starfsmenn mið- stöðvar hjálparstofnunarinnar í Tonj í S-Súdan að skipuleggja matargjöfína þannig að allir fengju eitthvað. Utanríkisráðherra Bretlands leggur til nýtt ESB-þing Yill takmarka völd höfuöstöðva ESB BRESK stjórnvöld hafa lagt til að komið verði á fót nýju þingi á veg- um Evrópusambandsins, ESB, til að koma í veg fyrir afskipti sam- bandsins af smáatriðum sem engan varði nema viðkomandi aðildarþjóð. Hefur Robin Cook utanríkisráð- herra beðið um að ESB leggi fram tillögur þar sem fram komi hvemig takmarka megi völd æðstu stofnana ESB og koma í veg fyrir afskipti þeirra af innanríkismálum Breta. Verður málið lagt fyrir leiðtogafund ESB í Vín í haust. - í samtali við New Statesman seg- ir Cook að ESB verði að setja sér skýrar vinnureglur í stað þess að þvinga tilskipanir í gegn. Utanríkis- ráðherrann breski er þeirrar skoð- unar að breyta beri Evrópusam- bandinu á þann hátt að ákvarðana- takan færist frá höfuðstöðvunum í Brussel og til stjórnvalda í aðildar- löndum sambandsins. Þá óskar Cook eftir skýrari reglum um hvað heyri undir ákvarðanavald ESB og hvað heyri undir þjóðirnar sjálfar. Segir Cook að Evrópubúum finnist sambandið ekki bera ábyrgð gagn- vart þeim. Fólki finnist stofnanimar fjarlægar og að þær taki ekki nægi- legt tillit til skoðana þess. Mótvægi við skrifræðið í Brussel Alan Donnelly, leiðtogi jafnaðar- manna á Evrópuþinginu, fagnar yf- irlýsingu Cooks og vonast til þess að hún komi af stað umræðum um framtíð ESB. „Breytingar em nauðsynlegar til að skapa ESB sem stendur fólki nærri. Til að það megi takast verðum við að breyta for- gangsröðinni og stofnununum," seg- ir Donnelly. Cook hefur sett fram hugmyndir um þing, óháð Evrópuþinginu, sem fulltrúar þjóðþinga aðildarlanda ESB eigi sæti á. Saman muni nýja þingið og Evrópuþingið mynda mótvægi við skrifræðið í Brussel. „Evrópuþingið vinnur mikilvægt starf en það vantar tengsl á milli þjóðþinganna og þess starfs sem fram fer innan ESB. Ef við viljum að Evrópa dafni og að fólkið sé hlynnt [evrópsku samstarfi], verð- um við að koma á fót tengingu þjóðþinga landanna,“ segir Cook. Hann telur hins vegar að ESB beri að hafa úrslitavald í málefnum er ná út fyrir landamæri aðildarland- anna, svo sem umhverfismálum, viðskiptum og baráttuni gegn glæpum. Ýjað að EMU-þátttöku Breta í viðtalinu við New Statesman ýj- ar Cook ennfremur að því að full að- ild Breta að EMU kunni að verða tímabær. „Við eigum ekki að taka þátt í EMU nú vegna þess að það gæti skaðan efnahag landsins. En því lengur sem evróið er staðreynd, og með þeim fyrirvara að það nái fótfestu, mun þrýstingurinn aukast á okkur að taka þátt í stað þess að standa á hliðarlínunni." Bretar vilja afnám banns á sölu nautakjöts London. The Daily Telegraph. BRESKA sljórnin þrýstir nú á Evrópusambandið, ESB, um að hætta að „koma í veg fyrir“ að banni á sölu bresks nautakjöts í aðildarlöndum sambandsins verði aflétt, en margir Bretar eru orðnir óþreyjufullir vegna málsins. Jeff Rooker, ráðherra mat- vælaeftirlits, kvaðst í gær vona að banninu yrði aflétt sem fyrst. „Það er ekki lengur nein afsökun fyrir því að viðhalda [banninu]. Við rekumst í sífellu á hindranir og við neyðumst til að reyna að semja okkur fram- hjá þeim,“ segir ráðherrann. Bannið var samþykkt árið 1996 er upp komst að kúariða gæti borist í menn, en hennar hefur aðallega orðið vart í Bretlandi. Er þessi yfirlýsing ráðherr- ans talin til marks um vaxandi óþolinmæði bresku stjórnarinn- ar en margir innan hennar hafa af því áhyggjur að ESB reyni viljandi að draga bann við sölu bresks nautakjöts á Ianginn. Rut Ingólfsdóttir Flóðin í Kína Olíulind- ir í hættu Peking. Reuters. ÁIN Nen í Norðaustur-Kína hefur flætt yfir bakka sína, rutt burt stíflugörðum og stefnt Daqing-olíu- vinnslusvæðinu í hættu, að sögn fréttastofunnar Xinhua. Verkamenn leggja dag við nótt að hlaða varnargarða sem brustu í gær- morgun. Á Daqing-svæðinu eru 20.000 olíu- borholur ng dag- leg framleiðsla nemur einni milljón olíutunna, sem er þriðjungur lands- framleiðslunnar. Flaug yfír flóðasvæði Rut Ingólfsdóttir fiðluleikari er stödd í borginni Harbin í Heilong- hjiang-héraði í Norðaustur-Kína, en þangað flaug hún á fimmtudag frá Peking. „Það var allt á floti,“ sagði Rut þegar hún lýsti sjóninni sem blasti við úr flugvélinni í samtali við Morgunblaðið, „og mjög greinilegt að flætt hafði yfir akra í nágrenni borgarinnar." Áðspurð um ástandið í Harbin sagði Rut að þar hefði rignt geysilega fram eftir degi: „Áin sem rennur hér í gegn hefur þó ekki flætt yfir bakka sína og heimamenn fullvissa okkur um að engin hætta sé á ferðum. Þó er bannað að vera á ferð við árbakkann." Rut er á tón- leikaferðalagi um Kína með Gerrit Schuil píanóleikara. ------------------ Ritstjóraskipti á Berlingske Tidene ANNE E. Jensen, aðalritstjóri danska dagblaðsins Berlingske Tidene, lét fyrirvaralaust af störfum í gær. Sagði Jensen í samtali við Jyllandsposten að deilur hefðu kom- ið upp á milli hennar og eigenda blaðsins og að samkomulag hefði orðið um að hún léti af störfum. Mun Peter Wivel, sem undanfar- in sex ár hefur verið ritstjóri Week- endavisen, taka við starfi Jensen en hann hefur áður starfað hjá Berl- ingske Tidene. Við starfi Wivels mun hins vegar taka Anne Knud- sen, sem er grænlensk að uppruna og hefur doktorsgráðu í mannfræði, en hún hefur skrifað fyrir Week- endavisen með nokkrum hléum frá árinu 1992. Jensen undirstrikaði að hún væri sátt við starfslok sín hjá Berlingske Tidene og að hún hefði engan hug á frekari deilum við stjórnendur þess. „Eg kveð auðvitað með eftirsjá en þetta er besta lausnin,“ sagði hún.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.