Morgunblaðið - 15.08.1998, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 15.08.1998, Blaðsíða 40
40 LAUGARDAGUR 15. ÁGÚST 1998 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MARÍA KRISTÍN '■ INGIBERGSDÓTTIR + María Kristín Ingibergsdóttir fæddist í Merki á Reyðarfirði 20. apr- fl 1947. Hún lést 8. ágúst síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Ingibergur Stefánsson og Guð- björg Þorsteinsdótt- ir, en þau eru bæði látin. Systkini henn- ~j»iar eru: Guðríður og Elmar. Hinn 15.8. 1967 giftist María Árna Valdóri Elís- syni, f. 13.2. 1945. Börn þeirra eru: 1) Elís, f. 22.9. 1965, kona hans er Sigríður Pálsdóttir. 2) Guðbjörg, f. 9.8. 1968, eigin- maður hennar er Samer Kudur. 3) Erla Bjarney, f. 15.3. 1975. Barna- börn Maríu eru: Árni Valdór, Viktor Páll, Leó Freyr, dá- inn 1996, Mæja Dís, Alex Freyr og Adam. María stund- aði nám í barna- og unglingaskóla Reyðarfjarðar, einnig stundaði hún nám í Húsmæðra- skólanum á Hall- ormsstað einn vetur. . Utför Maríu fer fram frá Reyðarfjarðarkirkju í dag og hefst athöfnin kl. 17. Fólk er alltaf á faraldsfæti. Það er ýmist á ferðalögum, eða það flyt- ur af einum stað á annan. Við flutt- um austur á Reyðarfjörð í júlí 1973, og erum því búin að þekkja Maju og Áma Dóra í 25 ár, nánast upp á dag. Þegar ungt fólk fiytur á nýjan stað, langt frá heimaslóðum, er oft ^e^fitt að byrja á öllu frá grunni, að kynnast nýju fólki, nýrri vinnu, nýj- um aðstæðum o.s.frv. Við vorum heppin, því Maja var ekkert að tvínóna við hlutina. Hún og Árni Dóri voru fyrsta fólkið sem við kynntumst íyrir austan og einnig fyrsta fólkið sem heimsótti okkur. Maja ieit oft inn fyrstu árin okkar og þá var ýmislegt rætt, ekki síst um börnin, sem voru á svipuðum aldri. Oft var hlegið að ferðinni í Egilsstaði, þegar Nonni var gripinn með, sem ljósmóðir, þegar von var á rirlu Bjamey. Nokkrar ferðir vora farnar inn í Grænafell með börnin lítil. Ekki var síður fjör í bamaaf- mælunum, að ekki sé nú minnst á okkar eigin veisiur. En aftur var flutt og nú suður og þá var fylgst með símleiðis. Fréttir voru misgóð- ar, en þegar við hittum Maju og Árna Dóra í sumar, og áttum góða kvöldstund saman, vorum við öll svo bjartsýn á framtíðina. Maja var bú- in að standa sig eins og hetja og var ákveðin í að berjast áfram, sem hún og gerði. En nú var komið að þér að flytja, Maja mín. Flytja til nýrra heim- kynna, þar sem aðrir verða að kynna þér nýjar aðstæður. Þar ffiunt þú fá kraftinn aftur og hitta ástvini þína, sem á undan eru famir. Elsku Maja mín, þakka þér góð kynni í 25 ár og guð gefi þér góða ferð. Elsku Gurra, Elmar og fjölskyld- ur. Innilegar samúðarkveðjur og guð blessi ykkur. Elsku Árni Dóri, Elli, Guðbjörg, Erla Bjamey og fjölskyldur. Guð veri með ykkur öll- Sérfræðingar í blómaskreytingum við «11 tækifæri Skólavörðustíg 12. á horni Bergstaðastrætis, sími 551 9090 um og gefi ykkur styrk og kraft. Samúðarkveðjur, Helga og Jón. Hugþekk mynd frá löngu horfmni tíð líður hjá eins og ljósbrot. Ljúf minning en ljós leitar á hug á klökkri kveðjustund, kaldri og mis- kunnarlausri um leið. Hún yljar gömlu hjarta myndin af lítilli bros- hýrri stúlku sem situr niðursokkin í verkefni sín í bekknum hjá mér, kappsfull og metnaðargjörn að mega alltaf gera sitt besta, en fyrst og síðast er það brosið bjarta á þessu sviphreina og fallega andliti sem lýsir upp þessa leifturmynd frá liðinni tíð. Hún Maja litla í Merki bar með sér birtu í bekkinn sinn, samviskusöm og fljót að tileinka sér ailt námsefni en umfi'am ailt þýð og þekk, ein þeirra sem gerði það svo undurskemmtilegt að leiða unga hugi á lærdómsins vit, laða fram eig- inleika sem allra besta og af þeim átti hún Maja gæðagnótt. Alla ævi- ieið átti hún eftir að njóta þessara eiginda sinna, en ekki síður fengu aðrir að njóta þeirra, viðmótsins gjöfula og góða, blíðra brosa, ein- lægninnar og alúðarinnar sem hún alltaf lagði að hverju einu. Eins og hún sinnti náminu áður af dug og dáð, eins fór um allt hennar ævi- starf, ljúfmennskan og lipurðin í öndvegi, allt lék henni í höndum, allt gert af sömu samviskuseminni. Hún Maja varpaði geislum á veg okkar alla tíð, hvenær sem maður hitti hana var hlýja og birta í hreinum svipnum, leiftrandi lífsgleði átti ör- uggt skjól í hjarta hennar. Og fleiri leifturmyndir líða um hug. Maja létt eins og fiðrildi á dansgólfinu heima svífandi um með sitt gleðibros, hún kunni sannarlega að gleðjast með glöðum, átti enda ljúfling sannan að dansfélaga og lífsíorunaut, lífsdans- inn þeirra beggja ijómandi taktviss og töfrum kærleikans slunginn. En samhliða ljúfum leifturmyndum, mynd hinnar sönnu hetju í harðri baráttu við óvæginn vágest, þar sem hún sýndi slíkt þrek, slíka baráttu- lund, slíka vongieði í þjáning sinni að einlæga aðdáun vakti. Aldrei að láta undan, aldrei að gefa upp von- ina, alltaf að stefna upp í strauminn Blómabúðin (^Áarðskom v/ FossvopsUirkjwgarð ' Sfml: 554 0500 stríða og freista þess að fá sigur. En lífsþráin sterka varð þó að lúta í lægra haldi, ljúfar myndir bregða lit sínum og ljóma við hin hörðu örlög. Við Hanna sendum Árna, böm- unum þeirra og ástvinum öðram innilegar samúðarkveðjur. Megi birtuidk minning um heillaríka göngu hugprúðrar hetju ylja og lýsa þeim í sárri sorg. Vongleði hennar og hugdirfð mætti öðmm verða fag- urt fordæmi. Döpram hug færi ég einlæga þökk iyrir kynni kær allt frá blíðri bernskutíð Maju til leiðar- loka. Á vit hins ókunna leitar hugur þar sem ég veit að leiðin hennar Maju verður björtu blómskrúði stráð svo sem hún bar okkur bióm á ævileið. Blessuð sé mæt minning. Helgi Seljan. Við systkinin viljum hér minnast Mæju frænku okkar í örfáum orð- um. Það er skrýtið til þess að hugsa að sjá ekki Mæju aftur og finna þennan kraft sem hún bjó yfir. Mæja var einstaklega dugleg kona og taldi hún ekki eftir sér að gera hin ýmsu stórverk. Viljum við þakka Mæju fyrir allt sem hún gerði fyrir okkur og biðjum góðan Guð að umvefja hana. Sendum við og fjölskyldur okkar Árna, Ella, Siggu, Guðbjörgu, Sam, Erlu og barnabörnum Mæju okkar innilegustu samúðarkveðjur. Einnig biðjum við Guð að styrkja systkini hennar, Gurra og Elmar, sem horfa nú á eftir ástkærri systur. Nú legg ég augun aftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vöm í nótt. Æ, virzt mig að þér taka, mér yfír láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (Sveinbjöm Egilsson.) Skúli, Guðbjörg og Þórdís. Enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur. Þessi orð komu í huga minn þegar Mæja systir mín veiktist í desember síðastliðnum, en þá tók meinið sig upp sem við öll héldum að hún hefði sigrast á. Ég fann glöggt þá hversu nánar við voram og hversu mikinn félagsskap við systur höfðum hvor af annarri. Aldrei leið sá dagur að við hefðum ekki sam- band hvor við aðra, þá annaðhvort með símtali eða heimsóknum. Það var erfitt að meðtaka þá staðreynd að meinið hefði tekið sig upp aftur og nú yrði baráttan erfið- ari en áður. Mæja hélt þó ró sinni og var staðráðin í að sigra. Sáum við glöggt hversu sterk Mæja var þeg- ar hún tók ákvörðun um að berjast og var þetta tímabil erfitt, bæði fyr- ir hana og fjölskyldu hennar. Nú er erfiðri baráttu lokið og hefur hún fengið hvíld. Elsku systir og mágkona, fráfall þitt er okkur mikill harmur og vor- um við ekki tilbúin til að kveðjast. Það var svo margt sem við vorum búin að ákveða að gera saman, t.d. ætluðum við í fjallaferð í sumar og nú mun draumurinn um flug og bát ekki heldur rætast. Nú ert þú horf- in yfir móðuna miklu og vitum við að vel er tekið á móti þér. Megi góð- ur Guð blessa þig og veita fjöl- skyldu þinni stuðning í þessari miklu sorg. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. (V. Briem.) Guðríður (Gurra) og Björn. Þetta líf er stundum svo skrítið. Hvers vegna þurfum við að horfa á eftir jafn yndislegri manneskju eins og þér, elsku Mæja mín. Þú barðist af svo miklum krafti og lífsvilja að orð fá ekki lýst. Ég verð ævinlega þakklát fyrir að hafa fengið að kynnast þér. Elsku Árni, Erla, Guðbjörg, Elli, Sigga og fjölskyldur. Guð gefi ykkur styrk í sorginni. Elsku Mæja, þakka þér allt, þú varst sönn hetja. Blessuð sé minn- ing þín. ÞÓR ÞÓRORMSSON + Þór Þórorms- son fæddist í Árbæ í Búðakaup- stað 18. september 1935. Hann lést í Fjórðungssjúkra- húsinu Neskaup- stað 8. ágúst síðast- liðinn. Foreldrar hans voru Stefanía Indriðadóttir, f. 4.5. 1890, d. 7.11. 1959, og Þórormur Stef- ánsson, f. 23.4. 1894, d. 12.5. 1981. Þór var næstyngst- ur 14 systkina. Á lífí em Björg, Oddný, Þóra Karólína og Aðalheiður. Látin eru Oskar, Steinþór, Margeir, Páll, Ingibjörg, Flosi, Indriði, Indíana og Steinþór. Þór kvæntist ekki. Hann var í Lát huggast, þú ástvinur hryggur, nú hætti þinn grátur að streyma. Því dauðinn er leið sú er liggur, til lífsins og ódáins heima. Elsku Tóti. Mig langar að minnast þín í örfá- um orðum. Þú áttir heima lengi hjá okkur í Félagsgarði eða þar til við fluttum á pósthúsið en þá var ekki pláss svo þú fluttir til Steinþórs bróð- ur þíns og fjölskyldu. Alltaf varstu ljúfur og góður við stóra systkina- hópinn í Félagsgarði þó mikið gengi stundum á og alltaf var stutt í hlátur- inn. Ekki man ég til þess að þú hafir nokkurn tímann verið reiður, hvorki við okkur né aðra. Þú hefur alltaf látið lítið fýrir þér fara og ekki hefur þú kvartað þó heilsan hafi ekki verið góð síðustu árin. Það var mikið áfail þegar okk- ur var sagt að þú hefðir greinst með krabbamein, en þú tókst því eins og öðra, með mikilli ró. Alltaf allt gott að frétta og aldrei vorum við látin finna að einhver vanlíðan væri. Þeg- heimili hjá Mar- geiri bróður sínum og konu hans Þóru Jónsdóttur í Félags- garði, Fáskrúðs- firði, til ársins 1974, en þá flutti hann til Steinþórs bróður síns og Guð- leifar fyrri konu hans. Síðar flutti Þór að Bæ til Bjargar systur sinnar og eigin- manns hennar Magnúsar Guð- mundssonar. Hjá Björgu bjó Þór þar til hann keypti sína eigin íbúð og bjó þar til dauðadags. Útför Þórs fer fram frá Fá- skrúðsíjarðarkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. ar við Pálína sátum hjá þér síðustu sólarhringana áður en þú lést var svarið alltaf nei þegar þú varst spurður hvort þér liði illa. Það er skrítið til þess að hugsa að á aðeins tveimur mánuðum hafa þú, mamma og Jón afi kvatt þennan heim. Ykkar er sárt saknað og mun verða tóm- legt í næsta jólaboði, þegar þið verð- ið ekki. En við eigum yndislegar minningar um ykkur sem ylja. Elsku Tóti minn, við systkinin, fósturbróðir okkar og fjölskyldur þökkum þér fyrir samfyldina og vit- um að nú hefur þú hitt alla ástvinina sem gengnir voru á undan þér. Guð blessi minningu þína. Ég votta systrum þínum og öðram ást- vinum innilega samúð mína og bið guð að styrkja þau í sorginni. Ljúfi drottinn lækna sárin, líkn veit þeim er harmur sker. Þú einn getur grætt og huggað, gefið frið, sem þörfnumst vér. Jóna Björg Margeirsdóttir. SIGURDÍS JÓHANNESDÓTTIR + Sigurdfs Jóhannesdóttir fæddist í Enniskoti, Víðidal, V-Húnavatnssýslu 4. október 1907 og lést hún á sjúkrahúsinu á Hvammstanga 7. ágúst sl. Hún var dóttir Sigurlaugar Sveinsdóttur og Jóhannesar Bjarnasonar, sem bjuggu í Enniskoti. Sigurdís, eða Dís eins og hún var kölluð, átti sex systkini sem komust til fullorð- insára. Þau voru Sigríður, Lilja, Sigvaldi, Guðrún, Jakob og Hólmfríður, en þau eru öll látin. Auk þeirra átti hún þrjú systk- ini sem dóu í barnæsku. Var Dís þriðja yngst af sínum upp- komnu systkinum. Maki hennar var Gísli G. Sig- uijónsson, f. 2.9. 1902, d. 23.1. 1980. Þau áttu saman dótturina Elsu Margréti, f. 2.10. 1945, hennar maður var Guðjón Elsku amma mín. Mig langar til að skrifa þér nokkrar línur svona í hinsta sinn. Ég var að vísu ung þeg- ar þú fórst á sjúkrahúsið á Hvammstanga en þó á ég bernskuminningar um okkur. Þú varst alltaf svo góð við mig og ég man þegar við sátum saman þegar ég var krakki og þú sýndir mér hvemig ætti að spila á gi’eiðu. Einnig leyfðirðu mér alltaf að skoða bækurnar þínar sem vora ófáar og margar spennandi, sérstaklega fyrir krakka að skoða. Ég man þegar pabbi fór á vörubflnum til að fara með eða sækja vöru til Hvamms- tanga, að þá fór ég oft með honum til að heimsækja þig. Við fórum þá stundum út að ganga og spjölluðum saman. Elsku amma, mig langar að þakka þér fyrir allt saman. Allar þær stundir sem við áttum saman Ólafsson, f. 18.7. 1940, d. 21.2. 1998 og eiga þau þijár dætur: Sigurdísi Ernu, f. 29.4. 1965, Ólöfu Kristínu, f. 4.1. 1967 og Þórdísi Eddu, f. 10.10. 1977. Skólaganga Dísar byggðist á farkennslu, eins og var á þeim tímum. Síðan var hún í vist á nokkrum bæjum í Húnavatns- sýslunum. Seinna lærði hún fatasaum í Reykjavík og vann við það um tíma. 1940 fluttist hún að Svalhöfða í Dalasýslu þar sem hún bjó þar til hún fluttist til dóttur sinnar og tengdasonar að Valdasteins- stöðum, Strandasýslu, um 1975. Síðustu æviárin dvaldi hún á sjúkrahúsinu á Hvammstanga. Útför hennar fer fram frá Hjarðarholtskirkju, Dalasýslu, í dag og hefst athöfnin klukkan 11 árdegis. og allt sem þú kenndir mér og sýnd- ir. Mér þótti og þykir enn mjög vænt um þig og ég mun oft hugsa til þín, en ég veit að þér líður betur þar sem þú ert núna. Þar sem þú hafðir svo gaman af vísum, sérstaklega hestavísum, og ortir margar sjálf finnst mér tilvalið að skrifa eina í lokin. Hálsi lyfti listavel löppum klippti vanginn; taumum svifti, tuggði mjel, tölt’ og skifti’ um ganginn. Margir njóta inni-yls, unaðsbót þar finna. Nístur róti norðanbyls naut jeg fóta þinna. (Páll Guðmundsson.) Þakka þér enn og aftur fyrir allt. Þín Vala. Edda.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.