Morgunblaðið - 15.08.1998, Blaðsíða 48
HVlTA HÚSIO / SlA
; 48 LAUGARDAGUR 15. ÁGÚST 1998
MORGUNBLAÐIÐ
Salatostur • Létt-Brie
Kastali
Bónda-Brie • Gráðaostur
Feta með tómötum og ólífum
Gouda 11% • Dala-Brie
Óðalsostur • Gouda 17%
Maribo
Gouda 26%
Stóri Dímon • Feta í kryddolíu
Lúxusyrja • Dala-yrja
Camembert
SaJatosíur
Hvítlauksbrie
* salatið!
Kitlaðu bragðlaukana! Ferskt, nýsprottið
salat með grænmeti og osti er endurnærandi
sumarmáltíð sem þú setur saman á augabragði.
Taktu lífinu létt í sumar - og njóttu þess í botn!
Ostur í allt sumar
www.ostur.is
fe
mlnn
JUM. LAND ALLT gg
ISLENSKIR^Éfe
OSTÁR
I
í DAG
VELVAKAJMPI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Hver man
eftir „Sápu-
kúlunni“
MAN einhver eftir barna-
smásögu frá fyrri tíma?
Hún heitir „Sápukúlan" og
hefur líklega birst í barna-
blaði eða bók frá 1930-
1935. Sagan byrjar svona:
„Hún er rauð, hún er gul,
hún græn, hún er blá. Hún
er allavegana lit“ o.s.frv.
Þeir sem gætu gefið mér
upplýsingar um höfundinn,
eða hvar hægt væri að
nálgast þessa sögu, eru
vinsamlega beðnir um að
hafa samband í síma
5871714.
Um Keikó
ÁSKRIFANDI hafði sam-
band við Velvakanda og
vildi hann koma þessu
vísukorni á framfæri:
I læstri gildru lengst mun
dvelja,
lognast útaf síðar deyja,
þeir sem vifja Keikó kvelja,
keyra hann til Vestmanna-
eyja.
Tapað/fundið
Skermur af kerru
týndist í Mosfellsbæ
DÚKKUKERRA sem
týndist í Mosfellsbæ fyrir
nokkru kom í leitirnar en
án skerms og fótstigs.
Skermurinn er dökkblár
með marglitum stöfum og
myndum á. Þess er sárt
saknað af eiganda
kerrunnar. Þeir sem hafa
rekist á þessa hluti í Mos-
fellsbæ eru vinsamlega
beðnir að hafa samband í
síma 566 6382.
Kíkir í
óskilum
KIKIR fannst hjá bensín-
stöðinni Orkunni á Sel-
tjarnai-nesi. Upplýsingar í
síma 568 6190.
Myndaalbúm týndist
í Kringlunni í júlí
GAMALT myndaalbúm
týnidst í Kringlunni 28. júlí
sl. I albúminu eru myndir
frá 1940, svart/hvitar. Skil-
vís finnandi hafi samband í
síma 568 7717 eða
581 2688.
Dýrahald
Læða í óskilum
HÁLFSTÁLPUÐ, ómerkt
læða, svört með hvítar lopp-
ur, hvíta skellu á snoppu og
bringu, og rófuendinn er
hvitur, er í óskilum. Hefur
verið á Bollagötu 10. Eig-
andi hennar getur vitjað
hennar í Kattholt.
Guðmundur Birgir
er týndur
FRESS, merktur með
grænni glitrandi ól, svart-
ur með hvíta blesu, hvítur
á kvið og loppum, týndist
frá Skólavörðustíg 18, 11.
ágúst. Hann er nýfluttur
og gæti hafa villst. Þeir
sem hafa orðið hans varir
hafi samband í síma
551 8356 eða 699 8356.
SKAK
Hdgl - Hag8 23. Bxg6 -
fxg6 24. Df5 - Kh7 25. Df7+
- Hg7 26. Hxg6 og svartur
gafst upp.
Ilmsjón Margeir
Pétursson
STAÐAN kom upp á opna
hollenska meistaramótinu í
Dieren í júlí. Dsjúmajev
(2.435) frá Úsbekistan hafði
hvítt og átti leik
gegn Hollend-
ingnum Jan Van
Baarle (2.295).
Svartur lék síðast
20. - h7-h6? til að
stugga við hvítu
drottningunni.
21. Dxh5! - Hh8
(Jafngildir upp-
gjöf, en ef svartur
þiggur drottning-
arfómina er hann
óverjandi mát eft-
ir 21. - gxh5 22.
Hdgl+ - Kh8 23.
Hxh5 á h6) 22.
Atta stórmeistarar
kepptu á mótinu. Úrslitin
urðu: 1. Van den Doel,
Hollandi l'A v. af 9 mögu-
legum, 2.-3. Barsov, Ús-
bekistan, og Berelovitsj,
Úkraínu, 7 v. o.s.frv. Kepp-
endur voru 97 að tölu.
HVÍTUR Ieikur og vinnur
HOGNI HREKKVISI
„/HundUj ab hi/aðsemþtjqerir^. engia refsing"
Víkverji skrifar...
VÍKVERJI er einn þeirra fjöl-
mörgu íslendinga sem ákváðu
að ferðast innanlands í sumar. Leið-
in lá bæði vestur á Snæfellsnes og
austur á Kirkjubæjarklaustur með
dagsferð í Skaftafell og Jökulsárlón.
Veðrið lék við Víkverja og ferðafé-
laga hans mestallan tímann, en
reynslan af samskiptunum við ís-
lenska ferðaþjónustuaðila var ekki í
öllum tilfellum jafn gleðileg, þó á
heildina litið hafi tekist vel til. Eftir
góða dvöl á Hótel Búðum var t.d.
ákveðið að skoða undur Snæfells-
jökuls, en engir í hópnum höfðu
tyllt þar niður fæti. Tilhlökkunin
var því töluverð þegar ekið var sem
leið lá frá Búðum að Arnarstapa þar
sem okkur hafði verið sagt að mæta
þegar hringt var og pantað far með
snjótroðara upp á jökul. Þegar á
Arnarstapa var komið var hópnum
vísað aftur langleiðina til baka og
inn troðning upp að jökulrótum þar
sem farartækin biðu. Þangað kom-
inn stóð Víkverji ásamt ferðafélög-
um dálitla stund og beið eftir því að
þeir sem þar voru greinilega við
vinnu köstuðu kveðju á hina ný-
komnu sem nýttu biðina til þess að
tína á sig hlýjar spjarir.
xxx
ENGINN gaf ferðalöngum
nokkurn gaum, þótt koma
þriggja bíla þeirra hafi ekki leynt
sér. Eftir nokkra bið gengu tveir úr
hópnum upp að snjótroðara og
spurðu starfsmenn þar hvort þeir
væru ekki örugglega á réttum stað
og ef svo væri hvort hægt væri að fá
lánaða kuldagalla. Jú, hópurinn var
á réttum stað, og svo var bent í átt
að nálægum skúr og svarað að bráð-
um kæmu einhverjir.
Nokkru síðar birtust starfsmenn
við skúrinn. Hver gestanna reiddi
fram 2.500 krónur en enga kvittun
var að fá. „Við tökum bara við pen-
ingum, þú getur farið niður á Arn-
arstapa og fengið kvittun þar,“
sagði starfsmaðurinn hlæjandi og
kom það ferðalöngum vægast sagt
undarlega fyrir sjónir.
Hverjum og einum var réttur
kuldagalli af þegjandalegum starfs-
manni og annar þögull tók við hjá
snjótroðaranum. Við ókum alla leið
upp á topp og þar var numið staðar.
Okumaðurinn aðstoðaði okkur við
að komast niður af troðaranum, en
settist svo inn í stýrishúsið og eyddi
ekki fleiri orðum á hópinn. Veðrið
var slæmt svo varla sást á milli
manna þannig að einhvers konar
fróðleikur um jökulinn, upprifjun á
sögu Jules Verne um ferðina niður í
gíginn, myndir af útsýni á góðum
degi o.s.frv., hefði verið vel þeginn.
Hópurinn ók til baka niður af
jökli. Þögulir starfsmennirnir
sinntu snjótroðurum og vélsleðum
af kostgæfni, en yrtu ekki frekar á
ferðalanga.
xxx
VIKU síðar lá leið Víkverja
austur á land þar sem m.a.
hafði verið ákveðið að upplifa sigl-
ingu um Jökulsárlón. Þegar þang-
að var komið síðdegis á sunnudegi
var töluvert um manninn. Um leið
og Víkverji rölti í átt að bryggjunni
kom á móti honum starfsmaður,
greinilega merktur og spurði hvort
hann gæti aðstoðað. Jú, fjórir
ferðalangar höfðu hug á siglingu.
Fimmtán mínútum síðar var Vík-
verji kominn um borð í bát ásamt
félögum sínum og tveimur frönsku-
mælandi fjölskyldum auk ungs
starfsmanns. Við tók fjörutíu mín-
útna sigling um geysilega fallegt
lónið sem er stærra og tilkomu-
meira en nokkurn gestanna í bátn-
um hafði órað fyrir. Á miðri leið
var báturinn stoppaður og starfs-
maður í gúmmíbát, sem fylgdi okk-
ur eftir til öryggis, mætti með
ísklump sem hann hafði náð í. Hon-
um tók okkar maður í bátnum við
og hélt síðan stuttan en mjög upp-
lýsandi fyrirlestur um Jökulsárlón-
ið og jökla yfirhöfuð, fyrst á ís-
lensku og síðan á ensku. Að því
búnu lýsti hann sig reiðubúinn að
svara spurningum og tókst engum
að reka hann á gat, þrátt fyrir
spurningaflóð. Að siglingu lokinni,
þegar komið var að því að greiða
fyrir ferðina, 1.200 krónur á mann,
var ekki við það komandi að gestir
slyppu án þess að taka númeraða
kvittun með sér.
XXX
VÍKVERJA er það ljóst að upp-
lifun í eitt skipti eins og hann
hefur hér lýst á Snæfellsjökli er
ekki til þess fallin að leggja allsherj-
ar dóm á þá þjónustu sem þar er í
boði. Það viðmót, sem Víkverji og
félagar hans mættu þennan dag, er
hins vegar ekki til þess fallið að
hvetja þá til endurkomu. Það er
dýrt að láta óánægða viðskiptavini
frá sér fara - og í þessu tílviki að
minnsta kosti, hefði ekki kostað
neitt að hafa þá ánægða.