Morgunblaðið - 15.08.1998, Blaðsíða 60
Windows 98
www.eis.is
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1
LAUGARDAGUR 15. ÁGÚST 1998
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
JONATHAN Motzfeldt, formaður grænlensku landsljórnarinnar, Davfð Oddsson forsætisráðherra, frú
Ástríður Thorarensen og Kaj Kleist yfirráðuneytissljóri slappa af og njóta veðurblíðunnar við Innsta bæ í
svokölluðu Vatnahverfi skammt frá Einarsfirði á Suður-Grænlandi í gær.
Opinber heimsókn forsætisráðherra til Grænlands
Ferðin tókst í alla staði vel
Hummer-umboðið
Raðsmíða
'yfirbyg-g-
ingar
HUMMER-umboðið á íslandi hefur
fyrst umboðsaðila í heiminum fengið
leyfl AM General, bandarísks fram-
leiðanda Hummer-bílsins, til að rað-
smíða yfirbyggingar á grind bílsins.
Smíði á frumgerð 19 manna rútu á
undirvagni Hummer er á lokastigi og
ráðgert er að kynna bílinn um miðjan
september undir heitinu Berserkur.
Framleiðslan er einkum ætluð til
útflutnings. AM General ætlar að
^nnast dreifíngu á bílunum að feng-
mni reynslu af frumgerðinni. Ráð-
gert er að þegar framleiðsla á vegum
Hummer-umboðsins verður komin í
fullan gang verði smíðaðir um 50 bfl-
ar á ári og segir Stefán Hjartarson,
framkvæmdastjóri fyrirtækisins, að
veltuaukning vegna verkefnisins geti
orðið á bilinu 400-500 milljónir kr. á
ári.
Hummer-umboðið hefur þegar
ráðið til sín bílasmiði og áætlar að
allt að 40 manns vinni við framleiðsl-
una á síðari stigum. Stefán bendir á
" Jfcð margfóldunaráhrif af slíkri fram-
leiðslu geti einnig orðið mikil.
40 til 150 bílar á ári
Til þessa hefur AM General ávallt
hafnað öllum slíkum fyrirspurnum
umboðsaðila hvar í heiminum sem
er. Stefán segir að það hafi breytt
viðhorfi yfirmanna AM General til
málsins að umboðið hér á landi
breytti Hummer fyrir 44 tommu
hjólbarða fyrst umboða í heiminum.
Stefán segir að AM General áætli
að markaðurinn fyrir þessa bfla sé
að lágmarki 40 og að hámarki 150
bflar á ári, mest í Bandaríkjunum og
Mið-Austurlöndum. Verð á bflunum
< verður á bilinu 8 til 13 milljónir kr.
*Sftir útfærslum.
FJÖGURRA daga heimsókn Da-
víðs Oddssonar forsætisráð-
herra til Grænlands lauk síð-
degis í gær en þá hélt hann
heim á Ieið ásamt Ástríði
Thorarensen eiginkonu sinni og
fylgdarliði. Jonathan Motzfeldt
formaður grænlensku land-
sljórnarinnar og frú Kristjana
Motzfeldt tóku vel á móti ís-
lensku gestunum og segir for-
sætisráðherra í samtali við
Morgunblaðið að ferðin hafl
tekist í alla staði vel. „Gestrisni
Grænlendinga við okkur hefur
verið mikil og góð," segir hann.
Forsætisráðherra og land-
stjórnarformaðurinn undirrit-
uðu á þriðjudag yfírlýsingu um
frekari samskipti Islands og
Grænlands, en á miðvikudag
hófst skipulögð dagskrá, þar
sem m.a. var ferðast með bát-
um og þyrlum til nokkurra
sögufrægra staða á Suður-
Grænlandi. Um hádegisbil í gær
var til dæmis komið við í
Brattahlíð við Eiríksfjörð þar
sem ætlunin er að endurbyggja
Þjóðhildarkirkju og bæ Eiríks
rauða. Ferðin endaði svo í
Narssarssuaq í botni Eiríks-
Qarðar, þaðan sem haldið var
heim á leið.
■ Grænlendingar sýna/4
Banaslys
á Land-
vegi
UNGUR MAÐUR lést þegar
bifreið sem hann ók fór út af
Landvegi og valt nokkrar veltur
rétt fyrir ofan Galtalæk skömmu
eftir kvöldmat í gærkvöldi. Við
útafaksturinn kastaðist ökumað-
urinn, sem var 17 ára, út úr bfln-
um, en farþega sem var með
honum sakaði ekki og fékk að
fara heim að lokinni læknisskoð-
un. Að sögn lögreglunnar á
Hvolsvelli átti slysið sér stað á
beinum malarkafla þar sem lægð
kemur í veginn og er talið að
ökumaður hafi misst stjóm á bif-
reið sinni. Hann var ekki í belti.
HB selur
frysti-
togara
HARALDUR Böðvarsson hf. hefur
selt frystitogarann Ólaf Jónsson GK.
Gengið var frá kaupunum í gær, að
sögn Sturlaugs Sturlaugssonar að-
stoðarframkvæmdastjóra Haraldar
Böðvarssonar.
Kaupandinn er sameignarfyrir-
tæki Fiskafurða og sænska fyrirtæk-
isins Scandsea. Jón Sigurðarson í
Fiskafurðum vildi ekki gefa upp
kaupverð, en Fjárfestingarbanki at-
vinnulífsins fjármagnaði kaupin.
Til veiða í Barentshafi
Hann segir togarann verða leigð-
an rússneskum samstarfsaðila
Fiskafurða. Togarinn mun veiða af
rússneskum kvóta í Barentshafi.
Um síðustu áramót var bókfært
verð Ólafs Jónssonar í ársreikning-
um HB liðlega 299 milljónir króna og
vátryggingaverð tæpar 474 milljónir.
■ Smíða álrútu/6
Formaður bankaráðs Búnaðarbanka um tilboð Islandsbanka
Sameining er ekki
efst á óskalistanum
-^ýLMI Jónsson, formaður banka-
ráðs Búnaðarbankans og Stefán
Pálsson, aðalbankastjóri bankans,
telja að átta milljarða króna tilboð Is-
landsbanka í hlutafé Búnaðarbank-
ans sé of lágt. Þeir áttu fund með
Finni Ingólfssyni viðskiptaráðherra í
gærmorgun. Stefán segir að tilboð
Islandsbanka sé lægra en eigið mat
Búnaðarbankans á verðmæti bank-
ans_ Hann vill ekki greina frá hvert
það sé. „Við greindum ráðherra frá
því að við teldum þetta ekki vera við-
unandi tilboð," sagði hann.
Pálmi sagði að sameining Búnað-
T*rbanka og íslandsbanka væri ekki
efst á óskalista Búnaðarbankans.
Búnaðarbankinn hefur óskað eftir
viðræðum um kaup á eignarhlut
ríkisins í Fjárfestingarbanka at-
vinnulífsins. Pálmi bendir á að við
kaup Búnaðarbankans á FBA yrði
til mjög sterkur banki sem myndi
væntanlega auka verðmæti þessara
^iígna ríkisins. „Við lítum svo á að í
því felist miklir kostir fyrir ríkið
Mikill titringur
meðal starfsfólks
Búnaðarbankans
sem eiganda þessara tveggja banka.
Meðal þess sem skiptir máli er að
verðmæti þessara eigna sé sem
mest þegar til sölu kemur,“ sagði
hann.
Kom starfsfólki á óvart
„Við heyrum að það er mikill titr-
ingur meðal starfsfólks bankans og
það liggur alveg Ijóst fyrir að ef það
á að ná fram 15% hagræðingu á
skömmum tíma þá hlýtur að koma
til þess að æði margir missi störf
sín,“ sagði Stefán aðspurður um
hugsanlega sameiningu Islands-
banka og Búnaðarbanka.
Tilboð íslandsbanka í öll hluta-
bréf ríkissjóðs í Búnaðarbánkanum
kom starfsmönnum Búnaðarbank-
ans talsvert á óvart, að sögn Önnu
Rósu Jóhannsdóttur, formanns
starfsmannafélags Búnaðarbank-
ans. Anna sagði að óvissa væri með-
al starfsfólksins um hvert framhald-
ið yrði.
Gert til að dreifa atliyglinni?
„Þegar maður horfir á Búnaðar-
bankann gera tilboð í Fjárfestingar-
banka atvinnulífsins gæti maður
látið sér detta í hug að það væri
frekar gert til að dreifa athyglinni
en að það væri alvara í því máli, þótt
ég vilji ekki gera Búnaðarbankan-
um neitt óeðlilegt upp,“ segir Þór
Gunnarsson, formaður Sambands
íslenskra sparisjóða, en sparisjóð-
imir em að hefja viðræður við rfldð
um hugsanleg kaup á Fjárfestingar-
bankanum.
Forsvarsmenn Fjárfestingar-
banka atvinnulífsins vilja ekki tjá
sig um þessi mál að svo stöddu.
■ Telja kauptilboð/10
■ Jákvæð viðbrögð/18
Morgunblaðið/Arnaldur
Alþjóðasamningur um
flugþjónustu 50 ára
FLUGMÁLASTJÓRN efndi til
móttöku við flugturninn í
Reykjavík í gær í tilefni af 50
ára afmæli alþjóðasamnings um
fiugþjónustu á Islandi. Halldór
Blöndal afhjúpaði minnismerki
og sýnd var Stinson-flugvél
eins og Loftleiðir hf. ráku á
fimmta áratugnum. Gjaldeyris-
tekjur af samningnum nema 15
milljónum dollara (um 105
milljónum króna) í ár og vegna
hans stjórna Islendingar 30% af
allri flugumferð yfir Atlants-
hafíð, sem er fjölfarnasta al-
þjóðaflugleið í heimi.
■ Tímamót íslenskrar/30