Morgunblaðið - 15.08.1998, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 15.08.1998, Blaðsíða 18
18 LAUGARDAGUR 15. ÁGÚST 1998 ERLENT MORGUNB LAÐIÐ Hagnaður Olíufélagsins hf. nam 161 milljón króna Aþekk afkoma milli ára HAGNAÐUR Olíufélagsins hf. nam 161 milljón króna á fyrstu sex mánuðum ársins, samanborið við 166 milljónir á sama tímabili í fyrra, og nemur samdrátturinn 3% á milli ára. Rekstrartekjur námu 4.797 milljónum króna á tímabilinu, samanborið við 5.059 milljónir, og drógust því saman um 5,2%. Þá minnkuðu rekstrargjöld um 5,5%, námu 4.526 milljónum nú en 4.790 á sama tímabili í fyrra. Geir Magnússon, forstjóri Olíufé- lagsins, segist vera sáttur með af- komuna miðað við aðstæður á olíu- markaði. „Hagnaðurinn er nálægt því sem við áætluðum. Meginá- stæðan fyrir lækkun rekstrartekna og gjalda er iækkun á heimsmark- aðsverði oh'uvai-a á þessu ári en hún hefur leitt til lækkunar á innkaups- verði og jafnframt útsöluverði olíu- vara hérlendis. I raun lækkuðum við verðið hérlendis áður en gömlu birgðimar voru uppumar og það hafði áhrif á afkomuna fyrstu mán- uðina. Þá var loðnuvertíðin óvenju stutt og vom einungis veidd 600 þúsund tonn á móti 900 þúsund tonnum árið áður. Þetta hafði sín áhrif á viðskipti sjávarútvegsfyrir- tækja en þau hafa tekið góðan kipp nú á seinni hluta ársins." Svipuð framlegð Olíufélagið hf.( PCCO^ Milliuppgjör VJJvJ jan.-júní 1998 Rekstrarreikningur Miiijónir króna 1998 1997 Brevt. Rekstrartekjur 4.797 5.059 -5% Rekstrargjold 4.526 4.790 -6% Rekstrarhagnaður f. fjármagnsliði og skatta 271 269 +1% Fjármunatekjur og (fjármunagjöld) (27) (16) +69% Afkoma af reglulegri starfsemi fyrir skat a 244 253 ■4% Tekju- og eignaskattur (83) (87) ■5% Hagnaður 161 166 -3% Efnahagsreikningur 30/6'98 31/12'97 | Eignir: | Milljónir króna Veltufjármunir 3.701 3.902 -5% Fastafjármunir 7.005 6.756 +4% Eignir samtals 10.706 10.658 +0,5% 1 Skuldir on eigid fé: \ Skammtímaskuldir 3.386 3.699 -8% Langtímaskuldir 2.452 2.256 +9% Eigið fé 4.868 4.703 +4% Skuldir og eigið fé samtals 10.706 10.658 +0,5% Kennitölur 30/6'98 30/6'97 Veltufé frá rekstri Milljónir króna 287 329 -13% Eiginfjárhlutfall 45,5% 44% Arðsemi eigin fjár 6,7% 7,5% Veltufjárhlutfall 1,09 1,08 Geir á von á að afkoma Olíufé- lagsins á árinu verði betri en í fyrra þrátt fyrir harðnandi sam- keppni á olíumarkaði. „Framlegðin er svipuð og áður og þrátt fyrir samdrátt í tekjum er magnið ívið meira sem við emm að selja. Sam- keppnin á bensínmarkaði er mjög hörð og þar skiptir miklu máli að veita sem besta þjónustu. Sú ný- breytni að bjóða ferskar Subway- samlokur á nokkmm bensín- stöðvum okkar hefur t.d. mælst mjög vel fyrir á meðal viðskipta- vina. Þá opnuðum við nýja bensín- stöð með fjölbreyttri þjónustu í Ár- túnsbrekku um miðjan júní og að- sóknin að henni hefur verið langt umfram væntingar.“ Arðsemi eiginfjár Olíufélagsins var 6,7% á fyrri árshelmingi. Bók- fært verð heildareigna félagsins nam 10,7 milljörðum og hafði hækkað frá áramótum um 0,5%. Eigið fé nam 4,9 milljörðum króna í lok tímabilsins og eiginfjárhlutfall var 45,5. Andri Sveinsson, verðbréfamiðl- ari hjá Búnaðarbankanum, segir afkomu Olíufélagsins hafa verið umfram væntingar. „Þetta er ánægjuleg niðurstaða, sérstaklega í ljósi þess að menn bjuggust við að verkfall og lækkandi ohuverð á fyrri hluta ársins hefðu neikvæð áhrif á hagnaðinn. Eg á þó ekki von á miklum breytingum á gengi hlutabréfa í Ohufélaginu þrátt fyrir að afkoman hafí verið umfram væntingar." Tilboð Islandsbanka Jákvæð viðbrögð á fjármálamarkaði Sveiflur áVÞÍ MIKIL viðskipti voru á hluta- bréfamarkaði í gær og námu þau alls 172 milljónum króna. Mestu viðskiptin voru með bréf íslandsbanka, eða alls tæpar 64 m.kr. og hækkaði verð þeirra um 4,7% frá því á fimmtudag. Verð bréfa Opinna kerfa hækk- aði um 13,7% í um 11 milljóna króna viðskiptum í gær og verð bréfa SH lækkaði um 11,3% í 3 m.kr. viðskiptum. Þá lækkaði verð bréfa Þormóðs ramma - Sæbergs hf. um 5,6% og Úr- valsvísitala Aðallista lækkaði um 0,33%. Að sögn Alberts Jónssonar, forstöðumanns verðbréfamiðl- unar Fjárvangs, urðu talsverð vonbrigði með milliuppgjör samstæðu Sölumiðstöðvarinnar á markaðinum og segir hann marga undra sig á því hvers vegna ekki hafí verið gefín út einhvers konar afkomuviðvörun því félagið hafí gefíð út yfirlýs- ingar um talsvert meiri hagnað í áætlunum sínum: „Ég tel eigi að síður að SH sé mjög góður fjárfestingarkostur til lengri tíma litið og að verðmæti fé- lagsins sé mun meira en mark- aðurinn verðleggur það á í dag“. Albert segir uppsveiflu Op- inna kerfa eðlilega framvindu eftir þann góða hagnað sem fyrirtækið skilaði á dögunum. Hins vegar hafí Þormóður rammi ekki staðið undir vænt- ingum í sínu milliuppgjöri en vonir séu bundnar við að síðari hluti ársins geti bætt upp fyrir það sem tapaðist í rækjuveiðum á þeim fyrri. TILBOÐ íslandsbanka í Búnaðar- banka íslands hefur vakið mikla at- hygh á fjármálamarkaði og þar velta menn vöngum yfir því hver viðbrögð ríkisstjómarinnar verða. Eins er mikið rætt um hvort tilboðið sé sann- gjarnt eða hvort verðmæti Búnaðar- bankans sé ofmetið eða vanmetið samkvæmt því. í fréttabréfi Fjárfestingarbanka atvinnulífsins hf. segir að tilboð ís- landsbanka líti í fljótu bragði út fyrir að vera nokkuð gott þar sem talað hafi verið um að Landsbankinn hafí nýlega verið metinn á 1,7 sinnum bókfært eigið fé og þar að auki hafí verið ákveðið að selja starfsmönnum hluti á innra virði. Þetta hlutfall sé nokkru hærra hjá Islandsbanka í dag eða 2,36. „Áthyglisvert er að skoða að þetta hlutfall hjá íslands- banka er mikið hærra en í löndum í kringum okkur sem eru flest á bilinu um 1,3-1,7. En horfa verður til að samlegð, ef úr rætist, í útibúarekstri verður mjög mikil." TÖLVUFYRIRTÆKIÐ ACO hf. hefur ráðið Sigurð Hlöðversson markaðsstjóra fyrirtækisins frá og með 1. september. Sigurður Hlöðversson hefur starfað við fjöl- miðla, markaðsmál og auglýsinga- hönnun frá árinu 1987, fyrst á Stjörnunni en síðan hjá Islenska út- varpsfélaginu, Bylgjunni og Stöð 2. Nú síðast starfaði Sigurður Hlöðversson sem dagskrárgerðar- maður á Matthildi auk þess að vera kynningarstjóri Islenska fjölmiðla- félagsins ehf., sem rekur Matthildi FM 88,5. Nokkuð raunhæft tilboð Jafet Ólafsson, framkvæmdastjóri Verðbréfastofunnar, segir að tilboðið sé gott og matið á bankanum nokkuð raunhæft. „Tilboðið er a.m.k. ekki of hátt og ber það ef til vill með sér að íslandsbankamenn spila ekki öllu út í einu. Einn og sér er Búnaðarbank- inn e.t.v. átta milljarða virði en að auki liggja töluverð verðmæti í þeim möguleikum sem eru á hagræðingu eða því sem samlegðaráhrif myndu skila. Að mípu mati er það vel til fundið hjá Islandsbanka að koma með þetta tilboð nú. Það ber vitni um ákveðinn kjark að nefna eina tölu og vonandi verður það til þess að koma málinu á hreyfmgu. Ríkisstjórnin verður að svara tilboðinu faglega, þ.e.a.s. með því að koma með gagntilboð. Menn verða að gæta sín á því að blanda ekki pólitík í þessi mál heldur taka faglega á þessu og líta á hvað sé bankakerfmu og við- skiptalífinu fyrir bestu,“ sagði Jafet. S i g u r ð u r stundaði nám í Menntaskólanum í Reykjavík árin 1984 til 1987. Eiginkona Sig- urðar er Þor- björg Sigurðar- dóttir, sölufull- trúi hjá Flugleið- um, og eiga þau tvö börn, Hlöðver níu ára og Matt- hildi fjögurra ára. Sigurður Hlöðversson er þrítugur, fæddur 8. mars 1968. Fólk ÚR VERINU Tíu íslensk skip eru nú á kolmunnamiðunum í Rósagarði Enn þokkaleg kolmunnaveiði Morgunblaðið/Birgir Þorbjarnarson KOLMUNNI og makríll sem fékkst í kolmunnaleiðangri rannsóknaskipsins Árna Friðrikssonar fyrr í sumar. ÁGÆT kolmunnaveiði er enn úti fyrir Austur- landi og þeir skip- stjórnarmenn sem Morgunblaðið ræddi við í gær voru nokkuð brattir. Árangur skip- anna er þó æði misjafn, því öflugustu skipin hafa fengið mun betri afla en þau minni. Nú eru um tíu ís- lensk skip á kolmunna- veiðum í svokölluðum Rósagarði, um 70 mílur austur af Stokksnesi. Ágæt veiði var á mið- unum í gær eftir treg- veiði þar á fimmtudag. Gardar EA er eitt öflugasta nóta- og togveiðiskip íslenska flotans og sagði Arngrímur Brynjólfsson skip- stjóri að mikil vélarorka hefði mikið að segja, því þá væri möguleiki á að toga með stærra flottroll. Aflminni skipin hafa verið að fá í kringum 100 tonn í hali en Arngrímur sagð- ist fá allt upp í 300 tonn í hali og togað væri í 4 til 10 tíma, allt eftir aflabrögðum. Kolmunninn er nokk- uð dreifður og sagði Arngrímur því oft erfitt að finna lóð. Heilfrystir kolmunnann um borð í dýrafóður „Það lóðar víða en sumt er kolmunni en annað ekki. Kolmunn- inn er ekki í þéttum torfum eins og loðnan, heldur er hann í röndum hér og þar. Við höfum þó séð hann í torfum, en það var nokkru norðar," sagði Arngrímur. Þegar Morgunblaðið ræddi við Arngrím í gær var hann að landa um 900 tonnum af kolmunna í Nes- kaupstað eftir þrjá daga að veiðum. Kolmunnanum er landað í bræðslu en Arngrímur sagðist auk þess vera að landa um 300 tonnum af heilfrystum kolmunna sem seldur yrði til Rússlands í dýrafóður, en Gardar EA er eina skipið sem frystir kolmunnann um borð. Arn- grímur giskaði á að á milli 20 og 30 krónur fengjust íýrir frystan kolmunna. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins fást nú rámar 8.000 krónur fyrir tonnið af kolmunnanum í bræðslu en um 6.500 krónur fengust íyrii' kolmunnatonnið á síðasta ári. Morgunblaðið/Snorri Snorrason Vísir hf. fær nýtt skip VÍSIR hf. í Grindávík fékk ný- verið afhent nýtt skip, Sævík GK, áðui- Aðalvík KE sem keypt var af Útgerðarfélagi Akureyringa hf. Skipinu fylgdi um 700 þorskígildistonna kvóti og er það gert út á línu. Sævík GK er 211 brúttórúmlestir, smíðuð í Boizen- burg í Þýskalandi árið 1965. Öðru skip Vísis, Frey GK, hefur verið lagt tímabundið á meðan það er í klössun og fór áhöfnin yfir á Sækvíkina, alls 14 menn. Skipsljóri er Gísli Jónsson. Laxeldi í Noregi í stöðugum vexti Framleiðslan hefur tvöfaldast á FRAMLEIÐSLA Norðmanna á eldislaxi hefur tvöfaldast á undan- förnum fímm árum þrátt fyrir kvóta á fóðrun síðustu tvö árin. Engar nýjar leyfisveitingar til nýrra lax- eldisstöðva hafa verið veittar frá miðjum 8. áratugnum, en fram- leiðslan er samt í stöðugum vexti og eins hefur framleiðslukostnaður lækkað á tímabilinu. Norðmenn hafa nú 65% laxeldis- markaðarins í Evrópu. Útflutnings- samningur Evrópubandalagsins og fímm árum Noregs á síðasta ári var byggður á 220 þúsund tonna útflutningi Nor- egs árið 1996 og er í samningnum kveðið á um að 10% bætist við út- flutningstöluna árlega fram að ár- inu 2002. Framleiðsla Norðmanna á laxi var á síðasta ári 345 þúsund tonn en á árunum 1992-3 var meðal- tal ársframleiðslu þeirra 150 þús- und tonn. Útflutningsverðmæti lax- eldis Norðmanna er nú 8,3 milljarð- ar norskra króna samanborið við 7,4 milljarða norskra króna árið 1997.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.