Morgunblaðið - 15.08.1998, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 15.08.1998, Blaðsíða 22
22 LAUGARDAGUR 15. ÁGÚST 1998 MORGUNBLAÐIÐ Sjötti bekkur MA veturinn 1952-1953 í 6. bekk í Menntaskólanum á Akureyri og lauk stúdentsprófí vorið 1953. Með gömlu bekkjarmyndinni rif]ar hann upp minn- ingar frá menntaskólaárunum og segir Olafí Qrmssyni frá viðburðaríkum og skemmtilegum árum. Fremst frá vinstri: 1. Jóhannes Sölvason 2. Jóhann Lárus Jónasson 3. Porsteinn Glúmsson 4. Einar Guðmundsson 5. Magnús Sigurðsson 6. Kristján Aðalbjörnsson 7. Rafn Hjaltalín 8. Guðmundur Klemenzson Önnur röö: 1. Ásdís Jóhannsdóttir, látin 2. Reynir Jónasson 3. Rannveig Gísladóttir 4. Örn Bjamason 5. Jóhanna Valdimarsdóttir 6. Oddur Bjömsson 7. Margrét Sveinsdóttir 8. Bjöm Halldórsson 9. Ólöf Bjömsdóttir 10. Maja Sigurðardóttir 11. Þórey Guðmundsdóttir 12. Flosi Ólafsson Þriðja röð: 1. Indríði Einarsson, látinn 2. Þóra Stefánsdóttir 3. Auðbjörg Ingimundardóttir 4. Stefanfa Stefánsdóttir 5. Birna Þórarinsdóttir 6. Aðalheiður Óskarsdóttir 7. Örn Helgason 8. Ragnheiður Brynjólfsdóttir 9. Guðjón Styrkársson 10. Ingibjörg Þórarinsdóttir 11. Þráinn Guðmundsson 12. Haukur Melax 13. Jón Sigurðsson Fjórða röð: 1. Ævar ísberg 2. Stefán Jónsson 3. Axel Kvaran 4. Ólafur G. Elnarsson 5. Stefán Scheving Thorsteinsson 6. Jón Nfelsson, látinn 7. Haukur Árnason 8. Reynfr Valdimarsson 9. Aðalgeir Pálsson 10. Vilhjálmur Þorláksson Fimmta röð: 1. Ólafur Hallgrímsson 2. Sigurjón Jóhannsson 3. Haukur Magnússon 4. Finnbogi Pálmason, látinn 5. Reynir Þórðarson 6. Kjartan Ólafsson 7. Guðjón Baldvinsson, látinn 8. Guðlaugur Heigason 9. Kristján Ingólfsson 10. Óli Bjöm Hermannsson 11. Sigursveinn Jóhannesson 12. Jón Hallsson Sjötta röð: 1. Björn Arason 2. Einar Oddsson 3. Einar Sveinsson 4. Hreinn Bernharðsson 5. Vilhjálmur Þórhallsson 6. Ólafur Grímsson 7. Karl Stefánsson 8. Guðmundur Þorbjarnarson 9. Stefán Þorláksson 10. Kjartan Kristjánsson gilsstræti, það var kallað að fara út á beitarhús, þar voru tveir bekkir. Þá var heimavistin líka að hluta til í gamla skólahúsinu og svo var nýja heimavistin tekin í notkun einmitt um þetta leyti. Ég var þá aldrei í heimavist af eðlilegum ástæðum." Voru ekki margir minnisstæðir kennarar við skólann? „Jú, þeir eru margir minnis- stæðir. Ég nefni Brynleif Tobías- son, sem kenndi sögu og kenndi okkur latínu í fjórða bekk. Hann var reyndar settur skólameistari haustið 1952, en Þórarinn kom aft- ur til starfa og útskrifaði okkur. Aðrir sem mér eru minnisstæðir af eldri kennurum eru Brynjólfur Sveinsson íslenskukennari, Vern- harður Þorsteinsson, Sigurður Líndal Pálsson enskukennari, Hermann Stefánsson, sem kenndi leikfími, og Steindór Steindórsson sem kenndi okkur náttúrufræði og síðar varð hann skólameistari þeg- ar Þórarinn féll frá. Þá man ég vel eftir Sveini Þórðarsyni sem varð fyrsti skólameistari Menntaskól- ans á Laugarvatni þegar hann var stofnaður árið 1952. Sveinn kenndi okkur íyrstu árin í skólanum á Akureyri. Þá eru auðvitað minnis- stæðir af yngri kennurum Gísli Jónsson, sem kenndi okkur ís- lensku, Ottó Jónsson, sem er til- tölulega nýlega látinn, Friðrik Þorvaldsson, sem líka er látinn, Jón Árni Jónsson og Árni heitinn Kristjánsson íslenskukennari. Þetta voru allt hinir mætustu menn.“ Margir góðir námsmenn Ólafur horfir á bekkjarmyndina og lítur yfir hópinn. „Það voru margir góðir náms- menn í mínum bekk í MA. Ég man nú t.d. eftir Maju Sigurðar- dóttur, sem var dóttir Sigurðar Pálssonar kennara, hún var mjög duglegur námsmaður. Maja er hér í annarri röð, þriðja frá hægri og starfar nú sem sálfræðingur. Yfirleitt voru margir bekkjarfé- laga minna með góðar einkunnir. Ég á margt góðra vina frá þessum tíma í MA. Við héldum þarna mik- ið saman, Ævar ísberg, sem seinna varð vararíkisskattstjóri og er enn hjá Skattinum og er hér lengst til vinstri í fjórðu röð, Stef- án Scheving Thorsteinsson, sem fór í landbúnaðarvísindi og hefur stundað þau síðan og er hér Bara ræst furðu vel úr okkur ✓ Veturinn 1952-53 var Olafur G. Einarsson G HÓF nám Mennta- skólanum á Akureyri haustið 1948 og fór þá beint inn í annan bekk og varð stúdent úr 6. bekk, 17. júní 1953. Ég er fæddur á Siglufírði og átti heima á Siglufirði til vors 1948 og var tæplega sextán ára þegar ég flutti með for- eldrum mínum til Akureyr- ar. Ég var í barnaskóla á Siglufirði og var tvo vetur í Gagnfræðaskóla Siglufjarðar, en fór svo inn í Menntaskóla, sat þar þess vegna ekki í fyrsta bekk, tók svo gamla gagnfræðaskólaprófið, sem svo var kallað. Ég fór ekki í lands- próf. Minn bekkur í Mennta- skólanum á Akureyri var síðasti bekkurinn með þessu svokallaða gamla lagi. Það voru þrír vetur í gagnfræðaskóladeildinni og gagn- fræðaskólaprófið tekið upp úr þriðja bekk, sem þótti býsna þungt próf í þá daga. Síðan tók við menntadeildin, sem svo var köiluð, þrír vetur. Menntaskólinn var þá sex vetra skóli. Myndin er af sjötta bekk, stúdentsárganginum og var tekin að mig minnir 17. júní 1953. Þetta var síðasti árgangurinn í Menntaskólanum á Akureyri sem var með þessu gamla lagi og Österskerfið í einkúnnastiganum, hæst var gefið átta og hægt að komast næstlengst niður í mínus tuttugu og þrjá. Síðan var tekinn upp hinn einkunnastiginn frá núlli til tíu, en við sluppum við hann,“ segir Ólafur G. Einarsson, forseti sameinaðs Alþingis og fyrrverandi menntamálaráðherra, og brosir þegar hann virðir fyrir sér bekkj- armyndina af 6. bekk Menntaskóla Akureyrar veturinn 1952-53 og rifjar upp löngu liðna daga á skrif- stofu sinni í Alþingishúsinu við Austurvöll. Það eru 45 ár síðan Ólafur og skólasystkini hans luku stúdentsprófi frá Mennta- skólanum á Akureyri. Æskuár á Siglufirði Ólafur Garðar Einarsson er fæddur 7. júlí 1932 á Siglufírði, sonur Einars Kristjánssonar, fyrrverandi forstjóra, og Ólafar Isaksdóttur húsmóður. Áttu ekki margar góðar minn- ingar frá þeim árum þegar þú varst að alast upp á Siglufirði? „Jú. Ég á margar góðar minn- ingar frá Siglufirði. Ég man auð- vitað síldarárin vel og líka þegar síldin hvarf. Auðvitað komu flestir íbúar Siglufjarðar eitthvað ná- lægt síldinni þó að foreldrar mínir væru ekki beint í vinnu við síld- . OE sssrsssí skoðar myndir a ina. Faðir minn vann lengi í apó- tekinu á Siglufirði og tók síðan við Efnagerð Siglufjarðar, sem síðar varð Efnagerð Akureyrar, Sana, og varð svo framkvæmdastjóri hennar á Akureyri 1948 þegar við við fluttum frá Siglufirði. Það voru allir eitthvað tengdir síldinni. Móðir mín saltaði á síld- arplönunum eins og aðrar konur á Siglufirði. Ég vann eitt sumar sem strákur hjá atvinnudeild Há- skólans, sem var þar með síldarrann- sóknir á sumr- in. Það var mitt hlut- verk að sækja hundrað síldar hverjum morgni fyrsta bátinn sem kom að þá INSPECTOR Platearum bryggju og síðan tíu síldar úr hverjum einasta bát sem inn kom og skrifa niður hvar þeir hefðu fengið síldina, í hvað mörgum köstum og þessa samantekt fór ég síðan með upp á rannsóknarstofu atvinnudeildar Háskólans. Árni Friðriksson fiskifræðingur stjórn- aði þessum rannsóknum og ég man að Sigurleifur Vagnsson var þama rannsóknarmaður og konan hans, Viktoría, vann þarna með honum.“ Nýr skólameistari - minnisstæðir kennarar Og á þessum árum um miðja öldina var nám- inu og námsefn- inu í Mennta- skólanum á Akureyri skipt í máladeild og stærðfræði- deild? „Já, og ég var í máladeild. Þá var Þórarinn Bjömsson skóla- meistari og hann tók við af Sigurði Guðmundssyni 1948, árið sem ég kom í skólann. Ég kynntist aldrei Sigurði Guðmundssyni, því miður, nýja skólameistaran- um þeim mun betur. Þórarinn var mikill öðlingur og sóma- maður og hafði mikil áhrif á okkur. Skólinn var þar sem hann hefur lengst af verið og er enn, en vora ekki komnar neinar nýbyggingar. Það var kennt í einu litlu húsi við Hrafna-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.