Morgunblaðið - 15.08.1998, Síða 6
MORGUNBLAÐIÐ
6 LAUGARDAGUR 15. ÁGÚST 1998
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Baldur Sveinsson
DOUGLAS A-26 Invader-vélin á Keflavíkurflugvelli.
Banaslys í
verksmiðju
Atlantic Coast
Fyrirtækið tryggt fyrir slíkum áföllum
Douglas
A-26
Invader á
Keflavík-
urflugvelli
GÖMUL Douglas A-26 Invader
sprengjuflugvél lenti á Keflavík-
urflugvelli á fimmtudag. Orfáar
slikar flugvélar eru til flughæfar
í dag, líklega tvær til þrjár. Þessi
flugvélategund var hönnuð í síð-
ari heimsstyijöldinni sem árásar-
vél og var þá tegundareinkennið
A-26. Bandariski flugherinn not-
aði þessar vélar talsvert í Evrópu
sem léttar sprengjufiugvélar.
Eftir að stríðinu lauk var Mart-
in B-26 Marauder sprengjuflug-
vélin fljótt tekin úr notkun og
fljótlega var tegundareinkenni
Invader-vélanna breytt í B-26.
Þær voru síðan mikið notaðar í
Kóreustríðinu og síðar í Víetnam.
AHmörgum var breytt í
slökkvivélar til að beijast við
skógarelda, þar sem þær gátu
borið um 3 tonn af slökkviefni og
voru liprar í snúningum. Einnig
var nokkrum breytt í einkavélar
og stækkaður á þeim skrokkur-
inn til að auðveldara væri að sitja
í þeim. Ekki er auðvelt að átta sig
á því hve margar flugvélar af ein-
hverri ákveðinni gerð herflug-
véla úr síðari heimsstyijöldinni
eru flughæfar á hveijum tíma.
Oðru hverju farast þær og svo er
sífellt verið að gera upp fleiri og
fleiri siíkar vélar og eru þá oft
sameinaðir hlutar úr fleiri en
einni af sömu gerð.
Þessi vél er einmitt nýuppgerð.
Hún var gerð upp á Chino-flug-
velli í Los Angeles og keypti nú-
verandi eigandi hana, að sögn
flugmannsins, fyrir 180 þúsund
dali. Síðan var Iögð í hana
þriggja ára vinna til að gera hana
flughæfa. Á flugsýningunni í Os-
kosh í Wisonsin nú í ágúst fékk
hún verðlaun fyrir útlit í sínum
stærðarflokki.
Núverandi eigandi er hollensk-
ur og var vélin á leið þangað með
viðkomu í Edinborg, en í gær-
morgun hélt hún síðan áleiðis til
Hollands. Ráðgert er að sýna vél-
ina í flugsýningum víða í Evrópu.
STARFSMAÐUR Atlantic Coast
Fisheries Corp. í New Bedford í
Massachusetts, sem er að 80% í eigu
Úthafssjávarfangs ehf., lést í vinnu-
slysi í verksmiðjunni fyrr í þessari
viku.
Samkvæmt fréttabréfí Seafood
Credit Corporation, sem fylgist með
rekstri sjávarútvegsfyrirtækja í
fylkinu, getur slysið haft afdrifarík-
ar afleiðingar fyrir fyrirtækið verði
höfðað dómsmál og fyrirtækið dæmt
til greiðslu skaðabóta. Björgólfur
Jóhannsson, einn framkvæmda-
stjóra Samherja og stjórnarformað-
ur Atlantic Coast Fisheries, segir að
fyrirtækið sé tryggt fyrir slíkum
áföllum og komi slysið því ekki til
með að hafa áhrif á rekstur þess.
Að mestum hluta í eigu
íslenskra fyrirtækja
Úthafssjávarfang er í eigu Sam-
herja hf., Síldarvinnslunnar hf., SR-
mjöls hf. og Eignarhaldsfélagsins
Alþýðubankinn hf.
Starfsmaðurinn, Antonio Ajqui,
kramdist til bana í tanki þar sem
fiskúrgangur er soðinn og gerður úr
honum áburður. Ajqui var að
hreinsa tankinn þegar hann rakst í
búnað sem virðist hafa gangsett
tækið.
„Samkvæmt minni vitneskju á
þetta ekki að hafa nein áhrif á fyrir-
tækið,“ segir Björgólfur. Hann segir
fyrii-tækið mjög vel tryggt og það
séu einnig þeir aðilar sem útveguðu
starfsmenn til fyrirtækisins. „Þetta
á því ekki að vera stórmál fyrir fyr-
irtækið þótt það sé að sjálfsögðu
alltaf stórmál þegar menn farast í
slysum sem þessum," sagði Björ-
gólfur.
Seafood Credit Corporation vitn-
ar í fréttir í dagblöðum ytra þar sem
segir að fyrirtækið hafi áður verið
sektað, árin 1989 og 1992, fyrir brot
á öryggisreglum.
Björgólfur segir að sér hafi skilist
að slys hafi orðið í tíð fyrri eiganda
fyrirtækisins.
Smíða álrtítu í sam-
við AM
50 eintök
smíðuð á ári
árið 2001
starfi
HUMMER-umboðið á íslandi hefur
fyrst umboðsaðila i heiminum feng-
ið leyfi AM General, bandarísks
framleiðanda Hummer-bílsins, til að
raðsmíða yfirbyggingar á grind
bílsins. Smíði á frumgerð 19 manna
rútu á undirvagni Hummer er á
lokastigi og ráðgert er að kynna bíl-
inn um miðjan september undir
heitinu Berserkur. Einnig er ráð-
gert að smíða a.m.k. fjórar aðrar
gerðir bfla á Hummer-giind. Fram-
leiðslan er einkum ætluð til útflutn-
ings. Iðnaðarráðuneytið og Iðn-
tæknistofnun fylgjast með
framgangi málsins, sem á sér
18 mánaða aðdraganda, og er
vilji hjá ráðuneytinu til að
styðja verkefnið.
Yfirmenn AM Gener-
al verða viðstaddir
kynningu á bílnum
hérlendis, þar á með-
al Bruce Wisler, yfir-
maður alþjóðadeildar
AM General, og ætl-
ar fyrirtækið að ann
ast dreifingu á bílunum
að fenginni reynslu af
frumgerðinni. Ráðgert er að
þegar framleiðsla á vegum Humm-
er-umboðsins verði komin í fullan
gang verði smíðaðir um 50 bflar á
ári og segir Stefán Hjartarson,
stjórnarformaður fyrirtækisins, að
veltuaukning vegna verkefnisins
geti orðið á bilinu 400-500 milljónir
kr. á ári.
Stefán segir að strax og Humm-
er-umboðið tók til starfa hérlendis
árið 1995 hefðu forsvarsmenn þess
haft í hyggju að breyta bílnum
þannig að hann hentaði
betur iyrir íslenskar að-
stæður. I íyrstu var
smíðað á hann plasthús
sem hannað var á ís- _____
landi. Tvær íslenskar
björgunarsveitir, á Þórshöfn og
Stokkseyri, eiga bíla með plasthúsi.
Ráðgert var að koma plasthúsunum
í fjöldaframleiðslu þegar reynsla
væri komin á þau.
Með ýmsa eiginleika
AM General í Bandaríkjunum
framleiðir Hummer-bílinn einkum
fyrir herinn. Á árunum 1992-1993,
General
Veltuaukning Hummer-umboðsins á Islandi
vegna raðsmíði á yfírbyggingum fyrir Humm-
er-undirvagna er talin geta orðið hátt í hálfur
milljarður kr. á ári. Guðjón Guðmundsson
skrifar um verkefnið sem nýtur stuðnings
bandaríska framleiðandans, AM General.
«88 ■
HUMMER-grind, með 195 hestafla dísilvél og
„quadra-trac“ fjórhjóladrifsbúnaði. Hummer-um-
boðið á Islandi hyggst raðsmíða rútur og aðrar
gerðir bfla á grindina og flytja út á erlenda markaði.
Yfirbygging
rútunnar veg-
ur 400 kg
þegar framleiðsla hófst fyrir al-
mennan markað, var 80-90% af
framleiðslu fyrirtækisins seld til
bandaríska hersins en núna er hlut-
fallið um 70% til hersins og um 30%
á almennan markað. Hummer hefur
marga eiginleika umfram
hálendisjeppa; veghæðin
er a.m.k. tvisvar sinnum
meiri, sítengt drif er á
_____ öllum hjólum, lofti er
hægt að hleypa af dekkj-
um eða í þau á ferð, varadekk er í
hverju hjóli, svokallað „run-flat“
kerfi, og affelgunarvöm.
Hummer-umboðið sóttist eftir því
að verksmiðjan afhenti fyrirtækinu
sérstaklega styrktar grindur svo
hægt væri að setja á þær nýtt hús
með fleiri sætum og stjómstöð fyrir
björgunarsveitir og fleiri útfærslur.
Grindin þurfti því að hafa meiri
burðargetu, öflugi’i driföxla og
hemlabúnað. Fram að þessu hefur
AM General ávallt hafnað öllum
slíkum fyrirspurnum umboðsaðila
hvar í heiminum sem er. Stefán seg-
ir að það hafi breytt viðhorfi yfir-
manna AM General til málsins að
umboðið hér á landi breytti Hum-
mer fyrir 44 tomma hjólbarða fyrst
umboða í heiminum. I kjölfar þess
var yfu-mönnum AM General boðið
í akstur um hálendi íslands á
breyttum Hummer og eftir það
komust á góð samskipti milli um-
boðsins og framleiðenda. Einnig
hannaði Ævar sérstaka vélsleða-
grind á Hummer, sem gerir einum
manni kleift að aka þeim upp og
niður af bílnum, og hrifust yfirmenn
AM General af hugvitinu sem fram
kom í hönnuninni.
í alþjóðlegi dreifíkerfí
AM General
AM General samþykkti beiðni
Hummer-umboðsins um að smíða
sérstakar grindur fyrir íslenska
bílasmíði sem hefur 1.000 kg meiri
burðargetu en að jafnaði. Auk þess
er grindin með sterkari driföxlum
og öflugri hemlabúnaði sem fram til
þessa hefur einungis verið boðinn í
hemaðarútgáfu bílsins.
Það sem heyrir til tíðinda er að
við smíði yfirbygginganna verður
stuðst við reynslu og nýjungar í
notkun á áli. Yfirbygging mtunnar
vegur einungis 400-600 kg. Burðar-
virki er soðið úr álprófílum og
klæðning límd að utan. Öll vinna við
frumgerð bflsins hefur verið í sam-
ráði við AM General og hefur fram-
leiðandinn sýnt verkefn- --------
inu mikinn áhuga. Bfllinn
uppfyllir alla Evrópu-
staðla um búnað og
Skráningarstofa íslands ^___
hefur samþykkt teikn-
ingar að bílnum. Ráðgert er að
smíða þrjá bíla á næsta ári og hefja
þá kynningu á alþjóðlegum bflasýn-
ingum. Árið 2000 er ráðgert að
smíða 20 bíla og árið 2001 verði
framleiðslan komin upp í 50 eintök á
ári.
Hummer-umboðið hefur þegar
ráðið til sín bílasmiði og áætlar fyr-
irtækið að allt að 40 manns vinni við
ÆVAR Hjartarson hjá Hummer-um-
boðinu hannaði yfirbyggingu álrút-
unnar. Hér er hann við öllu
hefðbundnari Hummer.
framleiðsluna á síðari stig-
um. Stefán bendir á að margföldun-
aráhrif af slíkri framleiðslu geti
einnig orðið mikil því til greina
komi að bjóða út einstaka þætti í
smíði bílsins.
Að lokinni smíði bílanna hérlend-
is fara þeir inn í alþjóðlegt dreifi-
kerfi umboðsaðila Hummer um all-
an heim. Stefán segir að AM Gener-
al áætli að markaðurinn fyrir þessa
bíla sé að lágmarki 40 og að há-
marki 150 bílar á ári, mest í Banda-
ríkjunum og Mið-Austurlöndum.
Hugsanlegt er að einnig komi pant-
anir á hernaðarútgáfu bflsins frá
bandaríska hernum með íslenskri
yfirbyggingu.
Frumgerð bílsins er rúta sem
tekur 18 farþega í sæti og hefur fyr-
irtæki á sviði ferðaþjónustu hér á
landi þegar fest kaup á þeim bíl.
Einnig er ráðgert að smíða þrjár
aðrar útfærslur, þ.e. sjúkraflutn-
--------- ingabíl, björgunarsveita-
bíl, húsbíl og vörubíl.
Verð á bilunum verð-
ur á bilinu átta til 13
_____ milljónir kr. eftir út-
færslum.
Stefán segir að margt bendi til
þess að það skapist iðnaður í kring-
um verkefnið sem verði til þess að
hleypa nýju lífi í bílasmíði hérlendis.
Hann segir að breytingai' í rekstr-
arumhverfinu geti einnig leitt til
þess að greinin nái að dafna á ný og
bendir á að vörugjöld á farþegarút-
ur hafi verið felld niður sem skapi
grundvöll til smíði hérlendis.