Morgunblaðið - 15.08.1998, Qupperneq 16
16 LAUGARDAGUR 15. ÁGÚST 1998
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
127 m.kr. hagnaður Pormóðs ramma
Nokkuð undir
væntingum
Þormóður rammi hf.
^Jtaw^JÚfaiUIÍuppgjöri 1998 M
Rekstrarreikningur Miiijónir króna 1998 1997 Breyting
Rekstrartekjur 1.768 1.850 -4%
Rekstrargjöld 1.444 1.453 -1%
Rekstrarhagn. f. afskr. og fjármagnsliði 324 397 -18%
Afskriftir (169) (154) (57) +10%
Fjármagnsgjöld (nettó) 7
Hagn. af reglulegri starfsemi f.skatta Aðrar tekjur og gjöld 162 16 186 34 -13% -53%
Hagnaður tímabilsins 127 186 -31%
Efnahagsreikningur Miiijónir króna 30/6 *98 30/6 '97 Breyting
1 Eignir: \ 1.246 4.350 1.323 4.075 -6% +7%
Veltufjármunir Fastafjármunir Eignir samtals
5.596 5.398 +4%
1 Skuldir oa eiaið fé: 1 2.401 2.371 +1%
Eigið fé
Skuldbindingar 163 147 +11%
Langtímaskuldir 1.894 2.024 -6%
Skammtímaskuidir 1.138 856 +33%
Skuldir og eigið fé samtals 5.596 5.398 +4%
Kennitölur 1998 1997
Eiginfjárhlutfall 43% 44%
Veltufjárhlutfall 1,1 1,5
Veltufé frá rekstri Milljónir króna 274 314 -13%
HAGNAÐUR Pormóðs ramma -
Sæbergs hf. nam 127 milljónum
króna eftir reiknaða tekjuskatts-
skuldbindingu á fyrstu sex mánuð-
um þessa árs, en var 186 milljónir
króna fyrir sama tímabil 1997.
Rekstrartekjur á fyrri helmingi árs-
ins voru 1.768 milljónir króna sam-
anborið við 1.850 milljónir á sama
tíma í fyrra. Eigið fé hlutafélagsins
30. júní sl. var 2.401 milljón króna
en var 2.371 milljón króna á sama
tíma á síðasta ári. Eiginfjárhlutfall
var 43% samanborið við 44%, veltu-
fé frá rekstri nam 274 m.kr. en var
315 milljónir og veltufjárhlutfall var
1,1 á móti 1,5 á sama tíma í fyrra.
Nettó skuldir félagsins voru 1.940
milljónir króna en voru 1.704 millj-
ónir króna 30. júní 1997 og 2.160
milljónir króna í árslok 1997.
Á tímabilinu voru tveir togarar
félagsins seldir, Hvannaberg OF 72
og Jöfur ÍS 172. Þá hefur reykhús
félagsins á Siglufirði einnig verið
selt.
Samdráttur í rækjuveiði
Ólafur Marteinsson, fram-
kvæmdastjóri félagsins, segir
minnkandi hagnað aðallega skýrast
af áhrifum sjómannaverkfallsins,
auk þess sem rækjuveiði hefur
dregist töluvert mikið saman: „Við
teljum milliuppgjörið þó ekki gefa
ástæðu til endurskoðunar á rekstr-
aráætlunum félagsins og reiknum
með að ná að vinna rækjutapið upp í
öðrum tegundum á seinni hluta árs-
ins. Óhagkvæmar rekstrareiningar
hafa verið seldar og ekkert sem gef-
ur tilefni til að ætla annað en að
áætlaður hagnaður fyrir reiknaðan
tekjuskatt uppá 362 m.kr. í lok árs-
ins muni standa."
Talsverð vonbrigði
Heiðar Guðjónsson, verðbréfa-
miðlari hjá Islandsbanka, segir
milliuppgjörið valda talsverðum
vonbrigðum, því menn hafi almennt
gert ráð fyrir meiri hagnaði í upp-
gjörinu: „Við töldum að sú aðgerð
þeirra á síðasta ári, að færa alla bol-
fiskvinnslu útá sjó, myndi koma
fram í talsvert hærri framlegð nú,
auk þess sem talið var að sala eigna
myndi koma fram í hagkvæmari út-
gerð. Niðurstöðurnar sýna hins
vegar að hagræðingin tekur lengri
tíma en búist var við. Eins erum við
undrandi yfir því að sjómannaverk-
fallið skuli hafa sett mark sitt á
milliuppgjörið í ljósi þess að fyrir-
tækið er með alla sína bolfisk-
vinnslu á sjó þar sem kostnaður er
mun breytilegri en í landvinnslu."
Heiðar segist engu að síður telja fé-
lagið vera góða fjárfestingu til
lengri tíma litið: „Þó að rækjan líti
ekki vel út núna, þá er bolfiskurinn
orðinn það stór þáttur í rekstrinum
að hann ætti að vega upp á móti
þeim samdrætti sem varð í rækju-
veiðunum á fyrri hluta ársins og
gera félaginu kleift að halda þeirri
rekstraráætlun sem lagt var upp
með í ársbyrjun,“ segir Heiðar.
Landsbankinn
Sér um út-
boð Sam-
herja
LANDSBANKI íslands hf.
og Samherji hf. hafa undirrit-
að samning um að Lands-
bankinn hafi umsjón með
skuldabréfaútboði Samherja
að fjárhæð 500 milljónir
króna. Samherji mun m.a.
veija fénu til að ganga frá
fjármögnun kaupa Samherja
GmhH, dótturfélags Sam-
herja í Þýskalandi, á 49,5%
eignarhlut í Deutsche Fisch-
fang Union GmbH.
Skuldabréfin eru í 5 millj-
óna króna einingum og til átta
ára. Þau bera 5,00% flata
vexti og eru verðtryggð mið-
að við vísitölu neysluvöru-
verðs.
Skuldabréfin verða seld
með 50 punkta álagi á mark-
flokk húsbréfa 98/1, sem þýð-
ir miðað við síðustu viðskipti
með þessi bréf að skuldabréf-
in verða seld á ávöxtunarkröf-
unni 5,49% til að byrja með.
Landsbankinn tryggir sölu
skuldabréfanna og verður
sótt um skráningu á Verð-
bréfaþingi Islands. Það er
viðskiptastofa Landsbanka
Islands á Akureyri sem sér
um skuldabréfaútboðið.
Afkoma Hlutabréfasjóðsins hf.
204 milljóna
króna hagnaður
Afkoma Tanga hf. batnaði um 72% á milli ára
Hagnaðurínn nam
85 milljónum króna
Tangi Hf úr milliuppgjöri 1998 k Á- ^^^^1
JAN.-JÚN1 JAN.-JÚNÍ,.
Rekstrarreikningur Miiyónir króna 1998 1996 Breyting
Rekstrartekjur 936,4 865,8 +8,2%
Rekstrargjöld 758.8 710.6 +6.8%
Hagnaður fyrir afskriftir og fjárm.liði 177,6 155,2 +14,4%
Afskriftir -81,8 -64,8 +26,2%
Fjármagnsliðir nettó -9,3 -35,9 -74,1%
Hagnaður af reglulegri starfsemi 86,5 54,5 +58,7%
Aðrir liðir -1,2 -5,0 -76.0%
Hagnaður (tap) árssins 85,3 49,5 72,3%
Efnahagsreikningur 30.6.98 31.12.97 Breyling
\ Eianir: \ Milliónir króna
Veltufjármunir 722,6 446,8 +61,7%
Fastafjármunir 2.077,0 1.561,6 +33,0%
Eignir samtals 2.799,6 2.008,4 +39,4%
1 Skuldir oi1 eigið fé: 1 Milliónir króna Skammtímaskuldir 1.141,3 535,4 +113,2%
Langtímaskuldir 958,5 873,5 +9,7%
Eigið fé 699,9 599,5 +16,7%
Skuldir og eigið fé alls 2.799,6 2.008,4 +39,4%
Sjóðstreymi og kennitölur 1997 1996 Breyling
Veltufé frá rekstri Milljónir króna 130,5 116,9 +11,6%
Veltufjárhlutfall 0,63 0,83
Eiginfjárhlutfall 25,0% 29,9%
HEILDARAFKOMA Hlutabréfa-
sjóðsins hf. á fyrstu sex mánuðum
ársins nam 228 milljónum króna.
Þar af nam hagnaður samkvæmt
rekstrarreikningi 204 milljónum og
óinnleystur gengishagnaður jókst
um 24 milljónir króna. Heildar-
eignir sjóðsins 30. júní 1998 námu
5.144 m.kr. Innlend hlutabréfaeign
sjóðsins nam 3.048 milljónum
króna eða 59% af eignum, erlend
verðbréf 438 m.kr. eða 9% og eign
sjóðsins í innlendum skuldabréfum
var 1.514 milljónir króna eða 29%,
að því er fram kemur í fréttatil-
kynningu.
Sjóðurinn átti hlutabréf í 47
innlendum fyrirtækjum. Þar af
átti hann eignarhluta í 9 fyrir-
tækjum, hvern að verðmæti yfir
100 m.kr. Þeirra stærstir voru
eignarhlutar sjóðsins í Eimskipi
að verðmæti 509 milljónir, Is-
landsbanka 445 m.kr., Þormóði
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi athugasemd frá ACO
hf.
„Vegna þeirrar umræðu sem
hefur verið vegna gjaldþrots Rad-
íóbúðarinnar, Bónusradíós og
Apple-umboðsins vill ACO hf. gera
eftirfarandi athugasemdir.
1) ACO hf. hafði staðið í viðræð-
um við Apple Europe og Apple-
umboðið á Islandi um nokkurt
skeið, í upphafi var það ætlunin að
sameina ACO hf. og Apple á ís-
landi. Það kom fljótlega í ljós að
Apple-umboðið skuldaði Apple
Europe verulegar fjárhæðir og
hafði ekki fengið vörur afhentar
um all langan tíma og vildi Apple
Europe fá nýjan umboðsmann á Is-
landi til að sinna hagsmunum
Apple og þeirra fjölmörgu við-
skiptavina á Islandi.
2) Þrátt fyrir þessa erfiðu stöðu
ramma 325 m.kr. og Granda 192
milljónir.
Stjórn hlutabréfasjóðsins hefur
ákveðið, í samræmi við heimildir
aðalfundar, að auka hámarkshlut-
fall erlendra verðbréfa í fjárfest-
ingarstefnu sjóðsins úr 10% í
25%.
Á síðari hluta ársins er áfram
gert ráð fyrir góðri afkomu af
rekstrinum. Innlend hlutabréf hafa
hækkað í verði síðustu vikur og er
ýmislegt sem bendir til þess að
verð hlutabréfa geti hækkað eitt-
hvað áfram m.a. vegna góðrar af-
komu margra fyrirtækja á fyrri
hluta ársins. Staðan á erlendum
mörkuðum um þessar mundir er
nokkuð óviss en til lengri tíma litið
má búast við áframhaldandi hækk-
un hlutabréfa, þó svo að gera megi
ráð fyrir minni hækkunum en verið
hafa síðustu misseri, segir enn-
fremur í fréttinni.
leitaði ACO hf. ýmissa leiða til þess
að fá á hreint raunverulega stöðu
Apple á íslandi þannig að samein-
ing gæti átt sér stað, m.a. til þess
að auðvelda yfirfærslu umboðs
með tilliti til starfsfólks, húsnæðis,
varahluta, hugbúnaðarlausna, ann-
arra skyldra umboða og m.f. Ekki
náðist að fá botn í fjárhagsstöðu
Apple umboðsins, meðal annars
vegna tenginga við önnur fyrirtæki
fjölskyldu Gríms Laxdals. Gjald-
felldir yfirdrættir skiptu engu í
þessu sambandi.
3) Niðurstaðan er nú ljós, Radio-
búðin og dóttuifyrirtæki hafa ósk-
að eftir því að verða tekin til gjald-
þrotaskipta og er það mál óskylt
ACO hf. Apple Europe vildi fá
ACO hf. sem umboðsmann og von-
ast stjórnendur ACO hf. til þess að
geta byggt upp góða þjónustu í
kringum vörur frá Apple.“
HAGNAÐUR Tanga hf. á Vopna-
firði nam 85 milljónum króna á
fyrstu sex mánuðum ársins, sam-
anborið við tæpar 50 milljónir á
sama tímabili í fyrra, og nemur
aukningin því 72% á milli ára.
Hagnaður af reglulegri starfsemi
nam 86,5 milljónum króna á tíma-
bilinu og samsvarar það 9,2% af
veltu tímabilsins. Rekja má bætta
afkomu til velgengni í veiðum og
vinnslu á síld og loðnu. Rekstrar-
tekjur jukust um 8,2% á milli ára,
og rekstrargjöld jukust um tæp
7%.
Heildareignir félagsins sam-
kvæmt efnahagsreikningi námu
tæplega 2,8 milljörðum í lok tíma-
bilsins og höfðu aukist um tæpar
800 milljónir frá áramótum.
Skýrist það m.a. af fjárfestingum á
tímabilinu og einnig af miklum
birgðum í lok júní, einkum í mjöli
og lýsi, að því er fram kemur í frétt
frá félaginu. Lágt veltufjárhlutfall
félagsins skýrist m.a. af því að fjár-
fest var í nótaskipinu Víkurbergi
GK-1. Einnig var fjárfest í afla-
heimildum í lok uppgjörstímabils
en langtímafjármögnun þeirrar
fjárfestingar var aðeins að litlu
leyti komin til framkvæmda 30.
júní. I lok júlí seldi Tangi hf. ísfisk-
togarann Eyvind Vopna ásamt
aflaheimildum í karfa, ufsa og
rækju sem svarar til 384
þorskígildistonna. Er sú sala liður í
því að fjármagna kaupin á Víkur-
bergi og mun hún koma fram á síð-
ari hluta ársins.
Minna magn -
meiri framlegð
Frá áramótum hefur Tangi tekið
á móti 53.400 tonnum af loðnu og
síld. Þar af voru fryst 4.400 tonn af
loðnu á Japans- og Rússlands-
markað. I lok júní hafði Tangi tekið
á móti 38 þúsund tonnum af loðnu
og síld, samanborið við 45 þúsund
tonn á sama tíma í fyrra. „Bætt af-
koma Tanga hf. stafar m.a. af vel-
gengni í veiðum og vinnslu upp-
sjávarfiska en eins og fram hefur
komið hefur félagið fjárfest veru-
lega í þeirri grein á undanförnum
tveimur árum. Verð á mjöli og lýsi
er hátt og m.a. þess vegna eykst
veltan þrátt fyrir að minni afli hafi
borist á land en á sama tíma í
fyrra.“
Friðrik M. Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri Tanga, kveðst vera
ánægður með niðurstöðuna enda
hafi aðeins verið gert ráð fyrir um
20 milljóna króna hagnaði sam-
kvæmt áætlunum. Fyi-ri árshelm-
ingur hafi verið félaginu afar hag-
stæður þrátt fyrir stutta loðnuver-
tíð og sjómannaverkföll í upphafí
ársins. Ljóst sé að þær endurbæt-
ur, sem gerðar hafi verið á fiski-
mjölsverksmiðjunni, séu að skila
sér í bættri afkomu þar, auk þess
sem verð á mjöli og lýsi sé nú mjög
hátt. Þá hafi fjármagnskostnaður
félagins lækkað þar sem það hafi
notið hagstæðari lánasamninga en
áður auk þess sem gengisþróun
hafi verið hagstæð.
Athugasemd frá ACO