Morgunblaðið - 15.08.1998, Qupperneq 26
26 LAUGARDAGUR 15. ÁGÚST 1998
MORGUNB LAÐIÐ
NEYTENDUR
Morgunblaðið/Jim Smart
BAKARÍIÐ, sem var fyrir framan afgreiðslukassana, hefur nú verið
flutt um set og er komið inn í sjálfa verslunina.
Á NÝJU mjólkurtorgi er að finna ostakæli og safakæli.
Breytingar hjá Fjarðarkaupum
Heitt bakkelsi alla daga
BREYTINGAR standa yfir í Fjarð-
arkaupum þessa dagana. Sérstakt
mjólkurtorg var tekið í notkun fyrir
skömmu þar sem m.a. er komið nýtt
ostakæliborð og sérstakur safakælir.
Að sögn Gísla Sigurbergssonar hjá
Fjarðarkaupum hefur 25% aukning
orðið í sölu á ostum þann mánuð síð-
an mjólkurtorgið var tekið í gagnið.
Þá var bakaríið, sem fram að þessu
var fyrir framan afgreiðslukassa
verslunarinnar, flutt inn í búðina.
Samhliða því var nýr ofn tekinn í
notkun sem þýðir að viðskiptavinir
geta keypt heitt bakkelsi allan dag-
inn. Þá segir Gísli að eflaust verði
boðið upp á ýmsai- nýjungar í bak-
arísbrauði innan skamms.
Nýjar íslenskar kartöflur
Verðstríð í verslunum
FRAMBOÐ á nýjum íslenskum
kartöflum er nú mikið og verslanir
buðu þær í gær á lágu verði eða allt
niður í 15 krónur kílóið í Bónus. Þá
var t.d. hægt að fá 2 kfló af rauðum
kartöflum á 119 krónur og tvö kfló af
premier á 49 krónur.
Verðstríðið hófst í vikunni og stað-
festu kaupmenn, sem Morgunblaðið
hafði samband við í gær, að mikil
hreyfing væri á verði.
Sem dæmi hafði kflóverðið á
gullauga í lausu lækkað um 200
krónur í vikunni hjá einni verslun-
inni. Kílóið sem kostaði 249 krónur í
byrjun vikunnar er nú hægt að fá á
49 krónur. Verslunarmenn sögðust
fylgjast vel með verði keppinautanna
og vera viðbúnir að lækka verð enn
frekar ef ástæða þætti.
Verð á pökkuðum kartöflum hefur
líka verið að lækka og sem dæmi
hafði verðið í einni versluninni lækk-
að um 60% á pökkuðum gullauga-
kartöflum í vikunni. Kaupmenn
sögðu titring á markaðnum og að
krónutala breyttist milli daga og
jafnvel nokkrum sinnum á dag.
Morgunblaðið/Amaldur
Götumarkaður í Kringlunni
ÞAÐ voru margir sem lögðu leið sína
á götumarkað Kimglunnar í gær og
fyrradag en honum lýkur í dag, laug-
ardag. Götumarkaðurinn er orðinn
árviss viðburðui- bæði í byrjun árs og
ágúst og yfirleitt lækka kaupmenn
útsöluvarning enn frekar og leyfa við-
skiptavinum sínum jafnvel að prútta.
Nokkrir viðskiptavinir sem teknir
voru tali í gær sögðu verðið hafa
lækkað mikið og nefndu sem dæmi að
Hagkaup gæfi nú 50% afslátt af vör-
um sem þegar hefði verið búið að
lækka um helming eða meira. Þá var
hægt að kaupa skólatöskur í Pennan-
um á 500-1.000 krónur og mynda-
ramma hjá Hans Petersen á nokkur
hundi’uð krónur. Hitabrúsar sem áður
kostuðu 4.500 í Byggt og búið kostuðu
nú á götumarkaði 1.000 krónur og svo
mætti áfram telja.
Sólstandlampi
TEKINN hefui- verið í notkun sér-
stakur sólstandbekkur á stofunni
Nudd fyrir heilsuna á Skúlagötu 40.
Viðskiptavinir eni í sex mínútur í
senn í ljósum en sá tími jafnast á
við 20-30 mínútur í hefðbundnum
ljósabekk. Gerður Benediktsdóttir,
sem hefur um árabil búið til ís-
lensku GM-jurtakremin, segir að
viðskiptavinir beri á sig íslenskt
vallhumalkrem eftir ljósin og einnig
á viðkvæma bletti áður en farið er
inn.
Að sögn hennar hefm- bekkurinn
reynst psoriasis-sjúklingum vel.
Gerður Benediktsdóttir býður upp
á ókeypis prufutíma en tíu tímar í
standlampanum kosta 4.900 krónur.
Menntaskólans við
Hamrahllð
Er ekki kominn tími til að hefja nýtt nám,
rifja upp eða bæta við fyrra nám?
Það getur þú gert hjá reyndum kennurum Menntaskólans við Hamrahlíð
Þú getur stundað nám í mörgum eða
fáum greinum eftir því sem þér hentar
í MH er hægt að auka við þekkingu sina á mörg-
um sviðum án þess endilega að stefna að
stúdentsprófi. Við skólann eru 6 brautir: félags-
fræði- (félags- og sálfræðilína), nýmála-, náttúru-
fræði-, eðlisfræði-, tónlistar- (í samvinnu við tón-
listarskóla) og listdansbraut (í samvinnu við list-
dansskóla).
Margir áfangar í boði í mörgum
greinum m.a.
íslenskt mál, bókmenntir og bókmenntasaga að
fomu og nýju, danska, enska, franska, rtalska, rússn-
eska, spænska, þýska, eðlisfræði, efnafræði,
jarðfræði, líffræði, stærðfræði, tölvufræði, félags-
fræði, hagfræði, sálfræði, stjómmálafræði, uppeldis-
fræði, íslandssaga, mannkynssaga, fornaldarsaga,
heimspeki, leiklist, myndlist og hússtjóm (matreiðsla).
Er þetta eitthvað fyrir þig?
INNRITUN FYRIR HAUSTÖNN 1998 FER FRAM 19.-21. ÁGÚST FRÁ KL. 15-19.
Nemendur velja þá námsgreinar og fá afhenta stundatöflu haustannar gegn greiðslu kennslugjalds sem hér segir:
Grunngjald 10.000 kr. auk þess fyrir
hverja námseiningu 800 kr. t.d. fyrir
einn tveggja eininga áfanga
10.000 + 2x800 = 11.600 kr.
tvo þriggja eininga áfanga
10.000 + 6x800 = 14.800 kr. o.s.frv.
Að auki er þjónustugjald NFÖMH 200 kr.
Námsráðgjafar verða nemendum til aðstoðar alla
dagana og deildarstjórar síðasta daginn frá kl.
17-19. Kennsla hefst samkvæmt stundaskrá
mánudaginn 24. ágúst.
Stundatafla á heimasíðu
Drög að stundatöflu og bókalista má finna á
heimasfðu skólans en slóðin er:
http://ismennt.is/~ham/
Nýtt
Þjónustuver fyrir
notendur Netsins
Síminn-internet heitir fyrirtæki á
vegum Landssímans sem verður
formlega opnað í dag, laugardag,
klukkan 14. Um er að ræða þjón-
ustuver fyrir notendur Netsins.
„Við munum aðstoða notendur
okkar, verðum með tækniþjónustu,
upplýsingar, ráðgjöf, mótöld, síma,
ISDN-kort, GSM-farsíma, hugbún-
að, leiki og tímarit um Netið svo
eitthvað sé nefnt,“ segir Brynjólfur
Bragason verslunarstjóri.
Hann segir að átta sýningarvél-
ar verði á staðnum sem viðskipta-
vinir geti prófað og þá séð hvernig
hægt er að tengjast Netinu á sem
bestan hátt og fengið tilsögn. Þá
geta viðskiptavinir komið með tölv-
ur og látið setja upp Netið.
I tilefni opnunarinnar verður
ýmislegt um að vera, grillað fyrir
viðskiptavini, lifandi tónlist og
fleira. Þá eru í boði sérstök opnun:
artilboð eins og t.d. ISDN-pakki. I
pakkanum er ISDN-kort, sími,
tenging, uppsetning og áskrift að
Netinu í þrjá mánuði fyrir 26.160
krónur.
Ekta hrað-
réttir
KJÖTUMBOÐIÐ hf. hefur hafið
framleiðslu á EKTA hraðréttum
undir slagorðinu „Nýir tímar -
nýtt bragð“. I fréttatilkynningu
frá Kjötumboðinu hf. segir að fyrst
í stað verði boðið upp á sex mis-
munandi rétti, kjötbollur í súpu og sjávarréttasúpu. Réttirnir
beikonsósu, chili con came, kjöt í fást í flestum verslunum á höfuð-
karrí, spaghettí bolognese, aspas- borgarsvæðinu.