Morgunblaðið - 15.08.1998, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
LAUGARDAGUR 15. ÁGÚST 1998 43
I
I
I
1
I
I
I
I
1
I
)
;
i
I
J
I
I
I
3*
I
f
BJÖRN
GUÐMUNDSSON
+ Björn Hjörtur
Guðmundsson
var fæddur á Ferju-
bakka í Borgar-
hreppi 14. janúar
1911. Hann andað-
ist á Dvalarheimili
aldraðra í Borgar-
nesi 14. júlí síðast-
liðinn. Foreldrar
hans voru hjónin,
þá búandi á Ferju-
bakka, Ragnhildur
Jónsdóttir, f. 2.
sept. 1877, d. 26.
júlí 1943, og Guð-
mundur Andrésson,
f. 31. okt. 1870, d. 3. jan. 1969.
Björn fluttist í Borgarnes árið
1934 ásamt foreldrum og systk-
inum þeim sem enn voru í for-
eldrahúsum.
Hinn 25. ágúst 1942 kvæntist
Björn Ingn Agústu Þorkelsdótt-
ur, f. 25. ágúst 1917,
d. 22. febrúar 1993.
Foreldrar hennar
voru Ingveldur Guð-
mundsdóttir, f. 21.
sept. 1876, og Þor-
kell Þorvaldsson, f.
23. sept. 1882, þá
búandi hjón í Ytri-
Hraundal. Þau eru
bæði látin. Börn
Ágústu og Björns
voru tvö: Birgir, f.
23. sept. 1941, bif-
reiðastjóri og af-
greiðslumaður í
Borgarnesi, hann á
tvö börn, og Alda, f. 30. ágúst
1942, d. 7. júlí 1991, hún átti
tlmm böm. Barnabörn Ágústu
og Björns eru orðin sjö.
títför Björns fór fram frá
Borgarneskirkju þriðjudaginn
28. júlí.
Björn eða Bjössi eins og við
kunningjarnir kölluðum hann, var
manna léttastur í lund og átti auð-
velt með að koma fólki til að brosa,
þá hafði hann gjarnan uppi lausa-
vísur, sem hann orti af ýmsu til-
efni, um atburði líðandi stundar, í
sveitarfélagi og eða þjóðfélagi.
Sem betur fer á ég nokkurt safn af
vísum hans sem hann færði mér
nýortar á vinnustað minn hjá
Kaupfélaginu.
Um ástand ríkisstjórnar landsins
yrkir Björn 8. ágúst 1994:
Davíð er dálítið staður
en dugar sem girðingarstaur-,
Jóhanna er jafnaðarmaður
en, Jón, þessi frjálshyggju gaur.
Bh-ni var á seinni árum illa við
hverskonar óreglu, svo sem tóbak,
vínföng hverskonar, að ekki sé
minnst á svokölluð eiturlyf.
Eftir að Björn fluttist í Borgar-
nes stundaði hann alla almenna
vinnu, var í Mjólkursamlagi nokkur
ár, lærði svo trésmíði og stundaði
hana í Bifreiða- og trésmiðju Borg-
arness í 18 ár. Lengst vann hann
sem umsjónarmaður húseigna
Kaupfélags Borgfirðinga. Það er
ekki ofsagt að þar var réttur maður
á réttum stað, hann bjargaði stórum
verðmætum fyi’ir „Félagið". Hann
hugsaði einnig mjög vel um um-
hverfi húseigna Kaupfélagsins, þeg-
ar hann gekk heim til sín í mat eða
kaffi mátti gjarna sjá hann kippa
upp arfabrúsk eða öðru illgresi.
Á hverju vori kom hann út í Brák-
arey og snyrti þar í kringum hús-
eignir Kaupfélagsins. Hugmynda-
flugi Bjössa voru lítil takmörk sett,
hann var einstakur maður. Þetta
kom einkum fram í uppbyggingu
leikvallar í „Skarðinu" sem svo hét í
gamla daga og er í næsta nágrenni
við íbúðarhús þeirra hjóna. Þessi
staður gengur almennt undir nafn-
inu „Bjössaróló“ í dag. Þegar við
hjón vorum að fara með eldri sonar-
syni okkar á staðinn kölluðu þeir
hann „Undraland". Og enn er hann
INGÓLFUR
KRISTJÁNSSON
+ Ingólfur Krist-
jánsson fæddist
á Skerðingsstöðum
í Reykhólasveit 12.
október 1902. Hann
andaðist í Reykja-
vík 15. maí síðast-
liðinn og fór útför
hans fram frá Selja-
kirkju 28. maí.
Hér verður ekki rak-
inn æviferill Ingólfs né
fjallað um starfsferil
hans, en ég átti þvi láni
að fagna að kynnast
honum þegar ég var
nemandi við alþýðuskólann á Eiðum
1928-1930 en hann þá íþróttakenn-
ari þar. Okkar ' fyrstu orðaskipti
munu hafa verið varðandi ferð mína
utan af Síðu til Eiða. Það ferðalag
mun, í augum nútíma manna þykja
næsta furðulegt enda tók það 13
daga með bið á Höfn. Öll þess tíma
farartæki komu til nota: hesturinn,
vélbátur, róðrarbátur og vörubíll
fyrir utan þá tvo jafn fljótu.
Ekki er laust við að ferð sú væri
dálítið ævintýraleg á köflum. Farið
var með póstinum sem leið lá,
klöngrast yfir sprunginn jökul á
undii-varpi ofan við útfall Jökulsár á
Breiðamerkursandi, en þá lá jökull-
inn fram á öldurnar rétt ofan við
brúna. Gangandi fór ég svo yfir fjall-
ið milli Fáskrúðsfjarð-
ar og Reyðarfjarðar
þar sem ég tapaði af
réttri leið og klifraði
þrep af þrepi niður að
strönd.
Aldraður maður setti
mig svo á bátkænii yfir
fjörðinn til Búðareyrar,
en þar tók frændi minn
á móti mér. Ekki gat
hann vitað um ferðir
mínar, því sími var ekki
kominn austur fyiir
Mýrdalssand á því ári.
Loks fór ég á vörubíls-
palli upp á Hérað og
frá vegamótum til Egilsstaða og
Eiðaþinghár gangandi út í Eiða.
Ég man að ég sagði Ingólfi þessa
ferðasögu. Hann gaf sér tíma til að
hlusta á þennan framandi ungling,
sagði fátt en skildi án efa betur en ég
þá hvað fjallganga mín hefði auðveld-
lega getað endað illa, en ég var bara
nokkuð hreykinn af. Inn í þessa frá-
sögn fléttaðist þýðing hestsins fyrir
samgöngur þess tima, en Ingólfur
var mikill hestamaður. Ég gat sagt
honum hvað áriðandi það var að hafa
trausta hesta, góða vatnahesta, í
ferðum yfir vatnaklasa sandanna
skaftfellsku og frá ýmsum átrúnaði
sem hestinn varða svo sem því að
aldrei mundi maður drukkna af hesti,
sem hefði tvöfaldan vatnasting, en
RUT
GRÍMSDÓTTIR
+ Rut Grímsdóttir
fæddist í
Reykjavík 9. apríl
1964. Hún lést laug-
ardaginn 1. ágúst
síðastliðinn. For-
eldrar hennar eru
Ingibjörg Gutt-
ormsdóttir og
Grímur Guttorms-
son. Systkini: Vil-
lijálmur, Elísabet,
Ingibjörg, Reginn
og Grímur. Utför
hennar fór fram frá
Lágafellskirkju í
Mosfellsbæ þriðju-
daginn 11. ágúst.
Okkur langar til að minnast Rut-
ar sem við kynntumst fyi'ir tveimur
árum er hún kom til okkar í „kjall-
arann“ á Skálatúni í
þroskaþjálfun. Hún var
oftast vinnusöm en átti
líka sína daga þar sem
hún vildi sitja með
kaffibolla í rólegheitum
og spjalla. Við munum
sakna hennar og þá
sérstaklega brossins
sem náði svo vel til
augnanna sem erfitt
var að standast.
Eg veit þú heim ert horfin nú
og hafin þrautir yfir,
sem mæt, svo góð, svo trygg
ogtrú
og tállaus, falslaus reyndist þú,
ég veit þú látin lifir.
(Steinn Sig.)
Guð blessi þig, elsku Rut.
Margrét Kristín og Ragnhildur.
vatnastingur er sveipur í hári hests
undir kverkinni og er hann ýmist
báðum megin, þ.e. í gegn, eða ein-
faldur, aðeins öðrum megin.
I heimabyggð minni var ég ekki
talinn gjaldgengur sem fjánnaður,
en vel sem smali, en talinn laginn við
hesta, gæti það jafnvel verið satt.
Milli manns og hests og hunds hang-
ir leyniþráður, var stundum sagt
heima á þessum árum og reyndist
oft rétt. Við Ingólfur mættumst á
þessu sviði því hann var hestamaður
og oft bauð hann mér í útreið, setti
mig á gráa gæðinginn sinn og svo
var sprett úr spori um ísi þakta
Eiðablá. Enn minnist ég þeirra
stunda með gleði og hreykinn varð
ég þegar Ingólfur gaf þá yfirlýsingu
að ég hefði alveg eins gott vald á
gæðingnum og sjálfur hann. Á þenn-
an hátt kom ég að kynnast Ingólfi.
Ég hreifst af látlausri, prúðmann-
legi-i framkomu hans og einlægni í
viðmóti. Hann vakti traust sem ung-
ur, óreyndur og viðkvæmur sveita-
piltur, sem aldrei áður hafði komið í
fjölmenni, þurfti svo mjög. Hann var
fyrirmynd verður að líkjast. Nú þeg-
ar ég lít yfir farinn veg læðist að
mér sá grunur að kynni mín af
Ingólfi hafi haft meiri þýðingu íyrir
lífsstefnu mína heldur en mér
nokkru sinni verði ljóst. Hann benti
mér ungum á nauðsyn þess að
rækta heilbrigt líferni í orði og
verki, forðast vafasaman félagsskap,
áfengi og tóbak.
Þegar skólavist lauk hélt ég til
Reykjavíkur, varð raunar Ingólfi
samskipa og hann greiddi götu mína
fyrstu dagana í höfuðstaðnum. Svo
fór ég til vinnu á Þingvöllum og þar
hittumst við aftur því Ingólfur tók
þátt í leikfimissýningunni á Alþing-
ishátíðinni 1930.
Svo tók Ingólfur til annarra starfa
en ég hvarf, að þrem árum liðnum,
til iangdvalar erlendis. Við héldum
þó bréfasambandi allt til þess að
stríðið skall á og enn varðveiti ég
bunka af bréfum frá Ingólfi og fara
þau á safn með öðru slíku. Eftir að
ég flutti til starfa heima tókum við
upp samband að nýju og einu sinni
hittumst við á Siglufirði, þar sem
Ingólfur þá bjó, en ég kom til jarð-
hitarannsókna.
Okkar samband rofnaði aldrei og
á það kom aldrei bláþráður eða
hnökri, þótt önn dagsins og störf
mín erlendis trufluðu tímabundið.
Nú er þetta allt minning, en skær
og djúp, þökkum vafin. Annan slíkan
mannkostamann sem Ingólf Krist-
jánsson held ég mig ekki hafa fyrir
hitt á langri ævi. Hann var sannkall-
að göfugmenni.
Að kynnast, á unga aldri, slíkum
manni er gjöf öllum gjöfum æðri og
á hana fellur aldrei skuggi.
Jón Jónsson.
vinsæll, yngri barnabörn okkar
sækja þangað mjög gjaman.
Einstæð móðir orti og skrifaði í
gestabók á Bjössaróló 26. júlí 1993:
Við ægisdyr í unaðsreiti grænum,
ég uni mér í hlýjum sunnanblænum.
I Bjössagarði bömin leika saman,
og Brákarsund er rétt hér fyrir framan.
Þegar Bjössi fór að huga að flutn-
ingi í stórhýsið að Borgarbraut 65a
og eftirlét dótturdóttur sinni og
hennar fjölskyldu íbúðarhús sitt við
Helgugötu orti hann 7. apríl 1994:
Sat eg þar sem sólin skein
sá til margra vina,
flyt nú inn í stóran stein
og stefni á eilífðina.
Björn heldur áfram yrkingum og
yrkir til langafabarnsins, sem nú er
búsett í fyrrum íbúðarhúsi hans í
næsta nágrenni við „Undralandið
Bjössaróló".
Genginn er nú gamall karl
garminn hirtu tröllin.
Alexanderektajarl,
áaðpassavöllinn.
Þegar Björn kom í nýja húsnæðið
á Borgarbraut 65a hófst hann þegar
handa við að búa til aðstöðu fyrir
yngra fólk og smíða bekki fyrir þá
eldri til að tylla sér á, svo sem hann
hafði áður gert í „Skarðinu", við
Kaupfélagið og víðar.
Þegar ég nú kveð Björn Guð-
mundsson með þakklæti fyrir góð
kynni og vináttu á umliðnum árum
vil ég votta syni og öðrum aðstand-
endum innilega samúð mína og fjöl-
skyldu minnar. Undir þessar kveðj-
ur taka starfsfélagar mínir á
Bifreiðastöð KB og félagar Félags
eldri borgara í Borgamesi og ná-
gi-enni. Þá vildi ég óska þess að for-
svarsmenn Kaupfélags Borgfirð-
inga og þó alveg sérstaklega fram-
mámenn Borgarbyggðar minntust
Björns H. Guðmundssonar með því
að halda við verkum hans svo sem
Bjössaróló nú og um alla framtíð.
Ragnar Sveinn Olgeirsson.
Handrit afmælis- og minningargreina skulu
vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett.
Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disk-
lingur fylgi útprentuninni. Auðveldust er
móttaka svokallaðra ASCII-skráa, öðru
nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslukerfin
Word og Wordperfect eru einnig auðveld í
úrvinnslu. Senda má greinar til blaðsins í
bréfasíma 569 1115, eða á netfang þess
(minning@mbl.is) — vinsamlegast sendið * -
greinina inni í bréfinu, ekki sem viðhengi.
Nánari upplýsingar má lesa á heimasíðum.
Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina
fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við meðal-
línubil og hæfilega línulengd - eða 2.200
slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnar-
nöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.
SMAAUGLYSiNGAR
ÝMISLEGT
Snerting til heilsu
Óhefðbundnar aðferðir hafa ver-
ið iðkaðar í mörg hundruð ár án
lyfja og skilað frábærum árangri,
sem 14 ára reynsla hefur sýnt
mér, og eingöngu verið jákvæð
Sigurður Guðleifsson,
sími 587 1164.
Snerting til heilsu
IVIæður athugiðl Pissar barnið
þitt undir? Forgangstímar þar
til skólinn byrjar. Þetta er ekki til-
raunastarfsemi heldur byggð á
árangri sem er frábær.
Sigurður Guðleifsson,
sími 587 1164.
FÉLAGSLÍF
Dagsferðir sunnud. 16 ágúst:
Frá BSÍ kl. 09.00: Hlöðufell.
Ekið að Hlöðufelli og gengið á
fjallið um lítið dalverpi. Farar-
stjóri verður Gunnar Hólm
Hjálmarsson. Verð 2.700/3.000.
Frá BSÍ kl. 09.00: Brúarár-
skörð. Gengið frá upptökum
Brúarár og farið um Brúarár-
skörð. Svæði sem býður upp á
ótrúlega náttúrufegurð.
Verð 2.700/3.000.
Spennandi sumarleyfisferðir
í ágúst:
15.-19. ágúst: Laugavegur -
trússferð. Ekið i Landmanna-
laugar. Gengið að Álftavatni í
Emstrur, suður Almenninga í
Þórsmörk. Farangur fluttur á
milli gististaða. Fararstjóri Sylvía
Kristjánsdóttir.
20. -23. ágúst: Sveinstindur -
Skælingar - Eldgjá, trússferð.
Spennandi ferð. Fararstjóri verð-
ur Hákon Gunnarsson. Gengið
frá Sveinstindi við Langasjó í
Skælinga. Gist í skála i Skæling-
um. Siðasta daginn er gengið í
Hólaskjól.
21. -23. ágúst: Fjallabaksleið-
ir, hjólreiðaferð. Hjóluð Kraka-
tindleið í Hvanngil. Farið um
Mæiifellssand, eftir gömlum
slóðum inn i Álftavatnskrók. Síð-
asta daginn er farið i Eldgjá og
ekið um Fjallabak heim.
ðGA^
Dagskrá helgarinnar
15.—16. ágúst 1998
Laugardagur 15. ágúst
Kl. 10.00 Lögbergsganga
Gengið um hinn forna þingstað í
fylgd sr. Heimis Steinssonar.
Lagt upp frá hringsjá á Haki,
gengið um Almannagjá á Lög-
berg og endað i Þingvallakirkju.
Tekur 1 % klst.
Kl. 14.00 Gjár og sprungur
Gengið verður frá þjónustumið-
stöð um Snókagjá (Snóku), að
Öxarárfossi og til baka um Fögru-
brekku. Á leiðinni verður rýnt i
fjölbreyttan gróður Snóku og
fjallað um sögu og náttúru Þing-
valla. Snókagjá er erfið yfirferðar
á köflum, því er nauðsynlegt að
vera vel skóaður. Gangan tekur
21/2—3 klst. og gjarnan má hafa
með sér nesti.
Sunnudagur 16. ágúst
Kl. 14.00 Guðsþjónusta
i Þingvallakirkju
Prestur sr. Heimir Steinsson,
organisti Ingunn H. Hauksdóttir.
Kl. 15.30 Litast um
af lýðveldisreit
Sr. Heimir Steinsson tekur á
móti gestum þjóðgarðsins á
grafreit að baki kirkju og fjallar
um náttúru og sögu Þingvalla.
Allar nánari upplýsingar
veita landverðir í þjónustu-
miðstöð þjóðgarðsins, sem
er opin frá kl. 8.30—20.00,
sími 482 2660.
FERÐAFÉLAG
# ÍSLANDS
MÖRKINNI 6 - SlMI 568-2533
Sunnudagur 16. ágúst kl. 13:
Ketilstígur — Seltún — gömul
þjóðleið. Skemmtileg ganga yfir
Sveifluháls. Verð 1.200 kr„ fritt f.
börn með fullorðnum 15 ára og
yngri. Brottför frá BSÍ, austan-
megin og Mörkinni 6.
Dagsferðir í Þórsmörk sunnu-
dag 16., mánudag 17. og mið-
vikudag 19. ágúst. Með brott-
för kl. 8.00 að morgni, einnig
hægt að dvelja á milli ferða.
Næstu helgarferðir í Þórs-
mörk og á Fimmvörðuháls eru
21.—22. ágúst. Heglarferð
Laugar — Eldgjá — Álftavatn,
21.—23. ágúst.
Laus sæti í síðustu „Lauga-
vegsferðirnar" og ferðina
„Við rætur Vatnajökuls"
27.—31. ágúst.