Morgunblaðið - 15.08.1998, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 15. ÁGÚST 1998 45
FRÉTTIR
:
I
!
I
I
Helgardagskráin
í Viðey
ÞRÍR stórir steinar mynda minnisvarðann sem verður í Lundi Jónasar B. þar sem fyrsta útilega skáta var
haldin 1941. Á fyrsta steininum er stór skátalilja sandblásin á steininn og rönd af höndum í skátakveðju úr
bronsi. Á miðsteininum er stór smári, sandblásinn, og skátaheiti og lögin skráð með bronsstöfum. Á þriðja
steininum er lilja sandblásin, nafn Jónasar B. Jónssonar og nöfn þeirra skáta sem þarna námu land.
Skátar vígja minnisvarða
um landnám á Úlfljótsvatni
JÓNAS B. Jónsson, fyrrum skátahöfðingi, í hópi skáta.
HAFIN er þriðja umferð í raðgöng-
um sumarsins í Viðey og í dag, laug-
ardag, kl. 14.15 verður fyrsta gangan
í nýrri syrpu farin, um norðanverða
Heimaeyna og austur á Sundbakka.
Gangan hefst á stéttinni milli
kirkjunnar og Stofunnar með ör-
stuttri upprifjun á því helsta úr sögu
staðarins. Viðfangsefnið að þessu
sinni verður tuttugasta öldin og fyr-
irtækin P.J. Thorsteinsson & co. og
Kárafélagið, sem störfuðu á Sund-
bakka, gegnt Gufunesi, á fyrri hluta
þessarar aldar.
Gengið verður af hlaði Viðeyjar-
stofu, austur fyrir gamla túngarðinn,
en síðan meðfram honum yfir á norð-
urströndina. Túngarðurinn, sem er
nú hruninn að mestu, er þó sýnilegt
tákn um þá framfarasókn sem ein-
kennt hefur athafnasemi í Viðey allt
frá tímum Skúla Magnússonar og
fram á þessa öld. Næst verður geng-
ið austur á Sundbakka, hann skoðað-
ur og meðal annars litið inn í Tank-
inn, 150 tonna vatnstank frá tímum
Milljónafélagsins, sem Viðeyingafé-
lagið hefur innréttað mjög skemmti-
lega og gert að félagsheimili sínu.
Þaðan verður farið í skólahúsið og
þar skoðuð skemmtileg ljósmynda-
sýning sem gefur góða hugmynd um
lífið í þorpinu sem þarna var fyrr á
öldinni. Frá skólanum verður svo
gengið eftir veginum heim að Stofu
SVIFFLUGFÉLAG íslands og
Svifflugfélag Akureyrar verða með
opið hús á flugvöllum sínum á Sand-
skeiði við Bláfjallaveg og Melgerðis-
melum í Eyjafirði á sunnudaginn frá
kl. 13. Tilgangurinn með þessum
degi er að kynna almenningi
svifflugsportið.
Þar verður fólki gefinn kostur á að
fljúga í svifflugu við vægu verði og
kynna sér starfsemi félaganna. Allir
eru velkomnir.
Þetta er í fyrsta skipti sem sam-
norrænn svifflugdagur er haldinn
hér á landi. Þetta er m.a. afrakstur
Mono í
loftið í dag
NÝ útvarpsstöð, Mono fm 877, hefur
útsendingar í dag, laugardaginn 15.
ágúst, kl. 18. Stöðin er í eigu fs-
lenska útvarpsfélagsins og mun
strax í upphafi ná til um 97% ís-
lensku þjóðarinnar. Mono á fyrst og
fremst að þjóna ungu fólki á aldrin-
um 15-25 ára.
Meðal dagskrárgerðarmanna sem
gengið hafa tO liðs við mono má
nefna Pál Óskar Hjálmtýsson, Ragn-
ar Blöndal (áður á X-inu), Björn
Markús (áður á FM), Einar Ágúst
(úr Skítamóral), Svavai' Örn (ísland í
dag), Jóhann Guðlaugsson (úr Rad-
ar), Hauk Guðmundsson (Saturday
night fever), Ásgeir Kolbeinsson (áð-
ur á FM og Bylgjunni), Andrés
Jónsson (áður á Rás 2) og Bryndísi
Ásmundsdóttur (áðui' á Aðalstöð-
inni).
----------------
Hj ólabrettamót
haldið í dag
HJÓLABRETTAMÓT verður hald-
ið í aðstöðu Brettafélags Reykjavík-
ur á Draghálsi 6 í dag, laugardaginn
15. ágúst.
Keppt verður í tveimur flokkum,
15 ára og yngri og 16 ára og eldri.
Aðstandendur keppninnar eru Týndi
hlekkurinn og Egils Orka. Aðgangs-
eyrir er 300 kr. og rennur til Bretta-
félags Reykjavíkur. Allir eru vel-
komnir.
Til að finna húsnæði Brettafélags-
ins er best að keyra í götuna fyrir
neðan Osta- og smjörsöluna og
renna síðan á hljóðið.
aftur. Þetta verður um tveggja tíma
ganga og fólk er beðið að búa sig eft-
ir veðri.
Á sunnudag mun staðarhaldari
bjóða upp á hefðbundna kynningu á
staðnum og sögu hans og hefst hún
við kirkjuna strax að lokinni messu.
Þarna verður m.a. gefin allgóð skýr-
ing á „Skúlastólnum" sem í kirkjunni
er og vekur forvitni þeirra sem koma
í kirkjuna í fyrsta sinn. Þá er
skyggnst um á hlaðinu og í næsta
nágrenni Stofunnar, þar sem „niður
aldanna“ er við hvert fótmál.
Ljósmyndasýningin í Viðeyjar-
skóla, sem rekur sögu Milljónafé-
lagsins og lífsins á Sundbakka, er op-
in alla virka daga, nema mánudaga,
kl. 13.30-16.10 en til 17.10 um helg-
ar. Aðgangur er ókeypis og gæslu-
kona þai- útskýrir sýninguna. Gestir
geta hraðað för sinni og komist yfir
að skoða meira af eynni með þvi að
leigja hjólhesta, en hjólaleiga er að
störfum, staðsett í skemmunni að
baki Viðeyjarstofu, þar er einnig
hestaleigan hið næsta. Grillskálinn
er öllum opinn frá kl. 13.30-16.10 og
þar standa leiktæki til boða. Viðeyj-
arstofa býður að venju upp á fjöl-
breyttar veitingar.
Bátsferðir hefjast kl. eitt eftir há-
degi og verða á klst. fresti til klukk-
an fimm, en til lands er siglt á hálfa
tímanum allt til kl. 17.30.
norræns samstarfs svifflugmanna.
Þessa helgi bjóða svifflugklúbbar
alh-a Norðurlandanna upp á opið
hús.
Svifflug er viðast stundað í klúbb-
um. Klúbbarnir sjá um alla kennslu
og eiga allan búnað, flugvelli og
svifflugur til láns fyrir félagsmenn.
Svifflugfélag íslands var stofnað
1936 og Svifflugfélag Akureyrar
1937. Þessi félög eru því rúmlega 60
ára gömul og með elstu svifflugfélög-
um í heiminum.
Svifflugfélag íslands á 8 svifflug-
ur, eina flugvél og eina mótor-
svifflugu. Félagsmenn eru um 80
talsins. Netfang félagsins er
http://www.mmedia.is/rafki'is/svif,-
htm
Svifflugfélag Akureyrar á 6 sviffl-
ugur. Félagsmenn eru um 40 talsins.
Netfang félagsins er http://www,-
nett.is/Ijmagg/sfa/
ÞAÐ hljóp á snærið hjá Þorleifi
Árna Björnssyni er hann fékk nú
fyrir skömmu glænýja VW Bjöllu í
vinning í Bjölluleik Bónuss og
Bylgjunnar. Þorleifur er 16 ára að
aldri.
„Bíll var ekki fjarlægur draumur
því Þorleifur fékk gamlan Suzuki
bíl að launum fyrir að standast
samræmdu prófin í vor og fara í
skóla í haust. Nú getur hann hins
vegar þegar þar að kemm’ ekið á
nýrri Bjöllu í skólann," segir í
SKÁTAR vígja minnisvarða um
iandnám skáta í tílfljótsvatni
sunnudaginn 16. ágúst kl. 18.
Það er listamaðurinn Vignir Jó-
hannesson sem hefur gert minn-
isvarðann sem er byggður upp í
þremur hlutum. Vignir er skáti
af Akranesi og var oft við leið-
beinendastörf og á foringjanám-
skeiðum á tílfljótsvatni. Minnis-
varðanum verður komið fyrir í
Lundi Jónasar B.
Minnisvarðinn er reistur í til-
efni af 90 ára afmæli Jónasar B.
Jónssonar, fyinim skátahöfð-
ingja og fræðslustjóra, en hann
hefur unnið að uppbyggingu
staðarins og starfsemi þar um
áratugaskeið og er honum stað-
urinn einstaklega hugleikinn og
kemur hann þar oft.
Afmælissjóður Jónasar B.
Jónssonar stofnaður
Á 85 ára afmæli Jónasar
stofnuðu skátar sérstakan sjóð
er hlaut nafnið: Afmælissjóður
Jónasar B. Jónssonar vegna
tílfljótsvatns. Margir urðu til
þess að senda Jónasi B. afmælis-
kveðju með framlagi í sjóðinn
sem siðan hefur verið notaður
til að gera lundinn sem við hann
fréttatilkynningu.
Bjölluleikur Bylgjunnar og Bón-
uss fór fram í júní og júlí í sumar.
Hlustendur Bylgjunnar hringdu
inn og svöruðu spurningum um
verð á vörum í Bónus. Einu sinni í
viku var dregið úr 5 réttum svörum
og fékk viðkomandi matarkörfu í
vinning. Allir þeir sem svöruðu rétt
fóru jafnframt í einn pott, Bjöllu-
pottinn, og úr honum var dregið
31. júlí sl. um það hver hreppti
Bjölluna.
er kenndur. Því starfi verður
haldið áfram með það fyrir aug-
um að gera svæðið eins eftir-
sóknarvert til útilífs og kostur
er.
„Skátahreyfingin heitir á alia
sem vilja styrkja þetta málefni
og jafnframt heiðra Jónas B. í
LEIÐRETT
Fleiri stjörnur
í KVIKMYNDAGAGNRÝNI Sæ-
björns Valdimarssonar í blaðinu í
gær föstudag stendur að myndin
hafi fengið eina og hálfa stjörnu,
það er ekki rétt. Myndin fékk 2 og
hálfa stjörnu.
Veiðar í Elliðaám
Miðvikudaginn 12. ágúst birtist
hér í blaðinu á bls. 26 grein eftir
Þórólf Ái’nason, sem vinnur við
rannsóknir á fiskistofnum, undir
fyrirsögninni „Veiðar í Elliðaám."
Eftirfarandi tafla, sem átti að fylgja
greininni, féll því miður niður í text-
anum.
Ár - Göngus.fj. Endurh.:
1975 - 14.000 - 20,8%
1985 - 29.000 - 9,4%
1988 - 23.000 - 12.7%
1989 - 21.700 - 8,1%
1990 - 24.000 - 5,4%
1991 - 22.000 - 8,8%
1992 - 27.500 - 9,6%
1993 - 17.900 - 9,8%
1994 - 14.500 - 9,0%
1995 - 18.000 - 9,4%
1996 - 23.200 - 4.1%
Aðeins eitt nafn
í GREININNI „Landið var fagurt
og frítt“ sem birtist í Bréfi til blaðs-
ins fimmtudaginn 13. ágúst voru
birt nokkur höfundarnöfn sem ekki
tilefni af 90 ára afmæli hans að
gera svo með smávægilegu
framlagi í sjóðinn. Nöfn þeirra
sem leggja sjóðnum lið í þessu
sambandi verða rituð á sérstakt
skinn sem fundinn verður stað-
ur á tílfljótsvatni," segir í frétt
skátahreyfingunni.
áttu að vera. Höfundur greinarinn-
ar er Jón Özur Snorrason og átti
aðeins hans nafn að standa undir
greininni. Beðist er velvirðingar á
þessu.
Rangt netfang
í FRÉTT í blaðinu föstudaginn 7.
ágúst um sýningu Kristínar Guð-
jónsdóttur myndlistarmanns í Gerð-
arsafni í Kópavogi birtist rangt net-
fang, en hægt er að skoða sýningu
Kristínar á vefnum. Rétt netfang
er: www.art.net/Istina.
ítalskur fíðlusmiður
RANGHERMT var í viðtali við Evu
Mjöll Ingólfsdóttur á bls. 6 í gær að
fiðlan hennar væri smíðuð af rúss-
neskum fiðlusmið, Goffriller. Hið
rétta er að hann er ítalskur og er
fiðlan smíðuð í Feneyjum. Beðist er
velvirðingar á þessum mistökum.
Norrænn svifflug-
dagur á sunnudaginn
JÓHANNES Jónsson í Bónus afhendir Þorleifi Árna Björnssyni lyklana
að VW Bjöllunni sem hann vann í Bjölluleik Bónuss og Bylgjunnar. Við
hlið Þorleifs stendur systir hans Erna Margrét.
Fékk nýja Bjöllu í staðinn
fyrir gamlan Suzuki