Morgunblaðið - 20.08.1998, Side 6

Morgunblaðið - 20.08.1998, Side 6
6 FIMMTUDAGUR 20. ÁGÚST 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Ríkislögreglustjórar á Norðurlöndum á samráðsfundi í Reykjavík Náið samstarf norrænna ingsárangur áætlunarinnar næðist þá væri miklu náð. Efast ekki um árangur af her- ferð á sviði umferðarlagabrota ríkislög’reg'lustj óra Ríkislögreglustj ór ar Norðurlanda funda um þessar mundir í Reykjavík. Sigríður B. Tómasdóttir sat blaða- mannafund þar sem m.a. var rætt um mark- mið og aðferðir lög- regluyfírvalda til að fækka afbrotum. TILGANGUR funda ríkislögreglu- stjóranna er að taka ákvarðanir um og leggja línur fyrir stefnumótandi verkefni og era slíkir fundir haldn- ir einu sinni á ári. Þátttakendur fundanna eru úr æðstu stjóm lög- reglu í sínu heimalandi. Þessi fund- ir eru nú í fyrsta skipti haldnir á Islandi. í máli Haralds Johannes- sen, ríkislögreglustjóra, kom fram að embætti ríkislögreglustjóra á Norðurlöndum hafa mjög náið samstarf og skiptast á skoðunum og upplýsingum um stöðu mála. Eitt meginefni fundarins er stefnumörkun lögreglu og kom fram á fundinum að unnið er skipu- lega að fækkun aíbrota í Dan- mörku, Noregi og á Islandi. I Dan- mörku hefur afbrotum fækkað um 4% miðað við sama tíma í fyrra, innbrotum hefur fækkað verulega en grófari glæpum hefur reyndar fjölgað. Ivar Boye, ríkislögreglustjóri Danmerkur, segir það hluta af breyttum starfs- aðferðum lögreglu í Dan- mörku að verða sýnilegri í samfélaginu, komast í tæri við hinn almenna borgara og í því skyni hafí litlar hverfísstöðvar lögreglu verið settar á laggimar í Kaupmanna- höfn og nágrenni. Fækka afbrotum sem margir verða fyrir Boye sagði í samtali við Morgun- blaðið að hann teldi langmikilvæg- Morgunblaðið/Arnaldur FULLTRÚAR Danmerkur, Erik Justesen, Ivar Boye, Jens Henrik Hojbjerg og fulltrúar íslands, Jón H. Snorrason, Haraldur Johannessen og Þórir Oddsson, á blaðamannafundinum í gær. Ræða að- gerðir gegn giæpasam- tökum asta verkefni lögreglunnar að beita sér fyrir fækkun afbrota sem snerta mikinn hluta almennings, til dæmis innbrota, bílþjófnaða, reið- hjólastulda og þess háttar afbrota. Boye sagði vitaskuld alvarlegt að grófari glæpum fjölgar, enginn vafí væri á að samfélagið væri orðið of- beldisfyllra en áður. Boye sagði lögreglu í Danmörku ekki hafai far- ið út í sérstakar aðgerðir gegn afbrotum á borð við umferðalagabrot, en kvað þá hugmyndafræði, að af- brotum í samfélagi fækki ef ráðist er gegn vægari glæpum vel þekkta og virta, dæmið frá New York væri t.d. stórfenglegt. Hins vegar væri ljóst að sömu aðferðir dygðu ekki endilega jafn vel í Bandaríkjunum og á Norðurlöndum, samfélögin væru það ólík. Á blaðamannafundinum kom fram að ekkert hinna Norðurland- anna hefur sett sér svipað mark- mið og lögregluyfirvöld á íslandi sem nýverið kynntu áætlanir sín- ar um að fækka afbrotum um 20% á næstu árum. Var samhljóma álit fulltrúa Norðurlandanna að erfitt væri að setja fram tölur sem þess- ar og raunar að fækka afbrotum. Ríkislögreglustjóri Danmerkur sagði að ef tækist að stemma stigu við fjölgun og að fækka af- brotum örlítið væri miklum ár- angri náð. Mikilvægt að skoða hvaða aðferðum er beitt Hans S. Sjövold frá embætti Ríkislögreglustjóra í Noregi benti á á fundinum og í samtali við Morgunblaðið að gífurlega erfítt væri að fækka afbrotum og að ávallt þyrfti að skoða þær aðferðir sem beitt er, það gæti t.d. verið að afbrotum „fjölgaði" í kjölfar sér- staki-a aðgerða lögi'eglunnar vegna þess að þannig væru fleiri afbrot skrásett. Sjövold sagði gildi for- vama gegn glæpum vera mjög mikið. Afbrotum í Noregi hefur fjölgað mikið undanfarið --------- og sagði Sjövold að þjóð- félagið í Noregi hefði breyst mikið á undanförn- um árum og lögreglan reyndi nú að bregðast við því. Þórir Oddsson vararíkislög- reglustjóri benti í framhaldi um- ræðna um fækkun afbrota á að það að setja fram áætlun um fækkun afbrota væri að hluta til aðferða- fræðilegt, það væri gott fyrir lög- reglustjóra út um allt land að hafa áætlun að styðjast við, og ef helm- Gildi forvarna gegn glæpum er mjög mikið Aðspurður sagði Haraldur Jo- hannesen að stefnt væri að því að taka saman á næsta ári árangur af herferð lögreglu á sviði umferðar- lagabrota. Haraldur sagðist ekki efast um að það skilaði árangri í samfélaginu að herða eftirlit með umferðarlagabrotum, ekki væri eðlilegt að velja hvaða lögum er fylgt eftir. Annað meginefni funda ríkislög- reglustjóra eru aðgerðir lögreglu gegn skipulögðum glæpasamtök- um og þá einkum mótorhjólaklúbb- um. Klúbbarnir hafa starfað á öll- um Norðurlöndum utan Islands en á blaðamannafundinum kom fram að lögregla á íslandi íylgist sér- staklega með þegar einstaklingar sem taldir eru tengjast þessum samtökum hafa komið til Islands. Ríkislögreglustjóri Danmerkur sagði engar vísbendingar vera um að mótorhjólaklúbbar hefðu hafið starfsemi hér, eða flyttu inn fíkni- efni til íslands. En fulltrúar Is- lendinga á fundinum sögðu fulla ástæðu til að fylgjast vel með skipulagðri glæpastarfsemi utan íslands og þeim sem henni tengd- ust og kæmu til Islands. Schengen-sáttmálinn hefur engin áhrif á samstarf Norðurlanda Ríkislögreglustjóramir hafa einnig farið yfir árangur samstarfs á sviði lögreglu- og tollyfírvalda í fíkniefnamálum. Þetta samstarf hefur gefíð mjög góða raun og kom fram á fundinum að Schengen-sátt- málinn mundi engin áhrif hafa á þetta samstarf. Bent var á að þetta samstarf ætti sér aðdraganda aftur að byrjun níunda áratugarins og Norðurlönd kæmu fram sem eitt á sviði þessara mála. Hlutverk lögreglu í alþjóðlegri friðargæslu og uppbyggingarstarfi Sameinuðu þjóðanna hef- ur einnig verið rætt á fundi ríkislögreglustjór- anna og kom fram að reynsla af því starfi hefur verið góð, m.a. í Jú- góslavíu fyrrverandi. Lars Nylén, ríkislögreglustjóri Svíþjóðar, sagði ánægju hafa verið með þetta starf og allt benti til að það héldi áfram. Nylén sagði starf- ið gjarnan á þá leið að lögreglu- menn kæmu í kjölfar friðargæslu- sveita, þegar þær hafa lokið hlut- verki sínu. Opinberri heimsókn Halldórs Ásgrimssonar utanrflrisráðherra til Mósambík lokið Rætt um fjárfest- ingar og aðstoð við landhelgisgæzlu Maputo, Mósambík. Morgunblaðið OPINBERRI heimsókn Halldórs Ásgrímssonar utanríkisráðherra til Mósambík lauk í gær. Halldór átti fund með Leonardo Simao, ut- anríkisráðherra Mósambík, og ræddu þeir m.a. möguleika á fjár- festingum íslenzkra einkafyrir- tækja í mósambískum sjávarút- vegi og hugsanlega astoð Islend- inga við að byggja upp landhelgis- gæzlu. Meginefni funda utanríkisráð- herra með mósambískum stjóm- völdum var þróunaraðstoð íslands við Mósambík, en Þróunarsam- vinnustofnun Islands hefur nú starfað þar í þrjú ár. Halldór sagði í samtali við Morgunblaðið að ætl- unin væri að auka framlag íslands til tvíhliða þróunarsamvinnu. Það fé myndi að öllum líkindum renna til nýrra verkefna í þeim Afríku- rikjum, þar sem þróunarsam- vinnustofnun starfar nú þegar, fremur en að byrja á verkefnum í fleiri ríkjum. „Við viljum tryggja að árangur náist og að verkefnin verði mjög vel undirbúin," segir Halldór. Um óskir Mósambík um aðstoð við uppbyggingu landhelgisgæzlu segir Halldór að það sé gífurlega viðamikið verkefni, enda sé öll landhelgisgæzla meðfram hinni löngu strandlengju Mósambík í lamasessi. „Mér finnst sjálfsagt að líta á þetta, en ég tel ekki líklegt að við getum tekið slíkt verkefni að okkur nema í samvinnu við aðra,“ segir hann. Leonardo Simao sagði í samtali við Morgunblaðið að mikilvægt væri að íylgja aðstoð Islands við rannsóknir og gæðaeftirlit á mó- sambískum sjávarútvegi eftir, með því að hvetja einkafyrirtæki ríkjunum til samstarfs. „Þar gæti verið um samstarfsverkefni sjáv- arútvegsfyrirtækja að ræða eða að íslendingar fjárfesti beint í mó- sambískum sjávarútvegi," segir Simao. Halldór segist telja mikilvægt að íslenzk sjávarútvegsfyrirtæki byrji að huga að möguleikum á fjárfestingum í sjávarútvegi í Mó- sambík. „Það er á margan hátt fýsilegt, en líka mörg ljón í vegin- um. Þetta eru atriði, sem við mun- um fara í gegnum með fyrirtækj- um, sem áhuga kunna að hafa, þegar við komum heim,“ segir ráðherra. Aðstoð við fórnarlömb jarð- sprengna hugsanleg Ráðherrarnir ræddu mögu- leika á aðstoð íslands við fórnar- lömb jarðsprengna í Mósambík, en talið er að um milljón sprengj- ur, sem lagðar voru í borgara- stríðinu 1975-1992, séu enn í jörðu. Aðeins tekst að fínna um 12.000 sprengjur á ári og gera óvirkar. Margir hafa misst fót við að stíga á jarðsprengju. Simao óskaði m.a. eftir því að Island tæki þátt í fundi aðildarríkja sátt- mála Sameinuðu ríkjanna um bann við notkun jarðsprengna, sem haldinn verður í Mósambík á næsta ári. Halldór segist hafa gert starfs- bræðrum sínum grein fyrir reynslunni af astoð Islands við fórnarlömb jarðsprengna í Bosn- íu, en þar hafa hundruð ung- menna fengið gervifætur frá Öss- uri hf. „Þetta er verkefni, sem sjálfsagt er að við skoðum. Aðstoð af þessu tagi er mjög dýr, en áhrifín eru gífurleg," segir Hall- dór. Mósambík er annað ríkið, sem utanríkisráðherra heimsækir næstu daga í Afírkuferð sinni. Hann hélt í gær til Suður-Afríku, þar sem hann mun í dag eiga fundi með stjómvöldum og m.a. skoða fangelsið Robbin Island, þar sem Nelson Mandela, forseti landsins, sat í varðhaldi er stjórn hvíta minnihlutans var við völd.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.