Morgunblaðið - 20.08.1998, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 20. ÁGÚST 1998 9
Seldi
ljósakrónu
á milljón
GÍSLI Holgersson hjá GH heild-
verslun í Garðabæ hefur selt
eitt eintak af 40 kílóa
Ijósakrónu sem kostar tæpa
milljón króna.
Greint var frá því í Morgun-
blaðinu hinn 7. ágúst sl. að Gísli
hefði fest upp í verslun sinni
gullhúðaða 40 kílóa ljósakrónu
frá Italíu sem kostaði 987.000
krónur.
Ljósakrónan, sem er húðuð
með 24 karata gulli hefur nú
verið seld, en hún vakti mikla
athygli viðskiptavina sem bók-
staflega lögðu leið sína í búðina
til að beija hana augum, að sögn
Gísla. Hann sagðist jafnframt
hafa selt tvær aðrar sem væru í
sama stíl en mun minni.
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Arnaldur
LJÓSAKRÓNAN er nú komiu í hendur nýs eiganda
Nokkrar vikur þar til tjónamat vegna Nýja bíós liggur fyrir
Kaupréttarsamn-
ingur er fyrir hendi
TALIÐ er að það líði nokkrar vik-
ur áður en endanlegt mat liggur
fyrir á tjóninu sem varð i eldsvoða í
Nýja bíó í Austurstræti 22b 30. júlí
sl. Eigendur hússins, Leó Löve
lögfræðingur og Jón Guðmundsson
fasteignasali, höfðu gert kauprétt-
arsamning við tvo einstaklinga en
Jón segir að hann öðlist ekki gildi
fyrr en kaupverð hafi verið innt af
hendi.
Tímafrekt að meta Ijónið
Tryggingafélagið, Sjóvá-AImenn-
ar, þarf að koma upp vinnupöllum
og lýsingu í húsinu til þess að tjóna-
matsmenn geti þar athafnað sig.
Jón segir að einnig sé það tíma-
frekt að meta þetta stóra hús.
I kaupréttarsamningi felst það
að aðilar að samningnum hafa rétt
til þess að kaupa húsið ef þeir reiða
fram það fé sem um var samið. Jón
sagði að það gæti vel hugsast að
Bætur ekki
greiddar nema
byggt verði
aðilar að samningnum vilji notfæra
sér þau réttindi og skyldur sem í
honum eru fólgin en til þess að
hann öðlist gildi þurfi að greiða
kaupverðið að fullu. Nýti þeir sér
kaupréttinn verða þeir aðilar að
uppbyggingu hússins ef tekin verð-
ur ákvörðun um að byggja það upp
að nýju.
Bundinn trúnaði
Bætur fyrir húsið verða ekki
greiddar út í eitt skipti fyrir öll
heldur eru þær inntar af hendi eft-
ir því sem uppbyggingu hússins
miðar fram.
Jón vildi ekki gefa upp hverjir
eiga aðild að kaupréttarsamningn-
um því hann sé bundinn trúnaði.
Kaupverðið er einnig trúnaðarmál.
Aðspurður hvort núverandi eig-
endur hússins hefðu áhuga á því að
endurbyggja húsið sagði Jón að
fremur ætti að tala um skyldu í
þessu samhengi en áhuga.
Skylda að skilja ekki eftir
flakandi sár
„Það er okkar skylda að byggja
upp fyrir bæturnar því öðruvísi
fást þær ekki greiddar. Það er okk-
ar skylda að skilja ekki eftir þama
flakandi sár heldur að reyna að
kappkosta um að græða það og
koma öllu í samt horf aftur. Eg réð
mér strax ráðgjafa varðandi tjónið
og skoðun á málinu í heild. Við höf-
um verið að meta stöðuna en ekki
komist að niðurstöðu ennþá. Málið
markast allt af því hversu mikið
tjónið er metið af tryggingafélag-
inu,“ sagði Jón.
NYSENDING
'r, blússur
Ný sending
af stretch
gallabuxum
tískuverslun
Rauðarárstíg 1, sími 561 5077
Glæsilegt úrval af þýskum
og ítölskum drögtum með
pilsum og buxum
frá Hucke og Viasassi
h}áX$ErafiihiUi
Engjateigi 5, sími 581 2141.
Opið virka daga frá kl. 10.00—18.30, laugardaga frá kl. 10.00—15.00.
ÚTSALA
20-70% afsláttur
Utvegun og lagning 11
km strengs við Nesja-
vallavirkjun
Tilboði
lægstbjóð-
anda tekið
BORGARRÁÐ hefur samþykkt að
taka tilboði lægstbjóðanda, Ás-
mundar Sigurðssonar á Selfossi, í
efni og lagningu rafstrengs á Nesja-
völlum, þ.e. milli stöðvarhúss og
dælustöðvar. Tilboð Ásmundar er
rúmar 28,8 milljónir króna, sem er
87,82% af kostnaðaráætlun.
Sjö tilboð bárust í verkið en kostn-
aðaráætlun ráðgjafa er 32,8 milljónir
króna. Um er að ræða útvegun efnis
og vinnu við lögn háspennu- og ljós-
leiðarastrengs frá stöðvarhúsi
Nesjavallavirkjunar að dælustöð við
Grámel, 11 km vegalengd.
ÁN-verktakar ehf. buðu 40,9 millj-
ónir króna, Halldór Sigurðsson véla-
leiga 39,8 milljónir, Borgarverk ehf.
39,5 m.kr., Grafan ehf. og Vélaleiga
Magnúsar Baldurssonar buðu 33,2
milljónir, Fitjar ehf. 29,9 milljónir og
Arnar Kristjánsson ehf. 36,1 milljón.
Hitaveita Reykjavíkur mælti með
því við stjórn Innkaupastofnunar
Reykjavíkur að tekið yrði tilboði
lægstbjóðanda.
Grandagarði 2, Rvík, sími 552-8855. Opið virka daga 8-18 og laugaid. 22/8 kl. 10-16.
Vorum að bæta þessum skóm
á útsöluna - takmarkað magn.
Útsölunni lýkur á laugardaginn kl. 16.
SENDUM UM ALLT LAND
B O G N E R
Sérverslun v/Óðinstorg, sími 552 5177
VHtu snara miHión?
Bíllinn er af dýrustu gerð, dökkblásans, sjálfsk., leðurklæddur
m/gráu leðri, topplúga, rafm. í öllu, loftkældur, hleðslujafnari, króm-
felgur, líknarbelgir, hljómtæki. Ekinn aðeins 7.000 km.
Bíllinn kostar nýr kr. 4.250.000.
Á bílnum er litið tjón en helstu varahlutir fylgja. Akstursfær.
Verð aðeins kr. 2.900.000.
Upplýsingar í sima 577 3344 eða 8964411.