Morgunblaðið - 20.08.1998, Qupperneq 35

Morgunblaðið - 20.08.1998, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. ÁGÚST 1998 35 AÐSENDAR GREINAR sem hafa verið brotnir niður og haldið uppbyggingarstarfí áfram. I mínum huga eru vinstrimenn og félagshyggjufólk ekki endilega sömu persónurnar. Eftir að ný öfl á vinstrivængnum fóru að taka á sig mynd hefur hins vegar komið upp nokkurs konar samkeppni um vinstrimennsku. Það er vissulega ánægjulegt svo fremi hugur fylgi máli. Hins vegar sýnist mér stjórn- málamenn ekki vanda sig sérstak- lega í orðanotkun þegar samfylk- inguna - eða sameiningu eftir at- vikum - ber á góma. Því læðist sú hugsun að mér að sameining sé orðin markmið í sjálfu sér og þá skipti málefnagrundvöllurinn ekki svo ýkja miklu máli. Ekki verða grunsemdimar, um að hér sé fyrst og fremst á ferðinni fólk sem lang- ar til að skrifa blaðsíðu í íslands- sögunni, minni þegar sést að for- mannsslagurinn er hafinn þótt samruninn sé ekki orðinn að veru- leika. Málefni víkja - gagnrýni bannfærð En hvernig skyldi á því standa að upp er risin samkeppni um vinstrimennsku? Ástæðan er aug- ljós. Komin er fram á vinstri- vængnum ógn við hið nýja krata- framboð sem er í burðarliðnum. Þegar er farið að tala um nýtt framboð eindreginna jafnréttis- sinna og vinstrimanna. I mínum huga leikur ekki vafí á að þetta gæti orðið til góðs. Ég er sannfærð um að ef slegið er á alla spennu í stjórnmálum, ef ekkert er eftir annað en valdatakmarkið, þá verð- ur niðurstaðan eins konar moð- suða sem aldrei mun megna að setja gróðaöflunum stólinn fyrir dyrnar eða efla félagslega þjóð- málastefnu. Ummæli í garð þeirra sem talað hafa máli róttækrar stefnu að und- anfórnu eru lýsandi dæmi um þá hættu sem valdapólitík getur leitt til. Málsvarar róttækni eru vændir um eyðileggingarstarf og blindan er svo algjör hjá sumum samruna- sinnum að þeir reyna að gera málið kvennapólitískt. Slíkt skýtur nokk- uð skökku við þegar það berst úr penna kvenna sem leið alltaf svo vel með strákunum í gömlu flokk- unum þar sem ríkti svo mikið jafn- rétti að ekki var ástæða til að leita nýrra leiða t.d. í sérstökum kvennaframboðum. Kvennalistakonur í Stefnu Sá vettvangur sem ég nú starfa á ásamt fleiri gömlum kvennalista- konum er Stefna - félag vinstri- manna. Því félagi og markmiðum þess hefur verið lýst sem pólitísku átaksverkefni til að endurreisa vinstri stjórnmál og efla ábyrgar og réttlátar áherslur í stjómmál- um. Ef dæma skal af þeirri um- ræðu sem sprottið hefur upp í kjöl- far stofnunar Stefnu er vel af stað farið. Stefna - félag vinstrimanna hef- ur lagt ríka áherzlu á að stuðla að samfylkingu vinstrimanna í stjórn og stjórnarandstöðu án þess þó að allir gangi í eina sæng og útvatni baráttumál sín og markmið. Við viljum að fólk berjist fyrir hug- sjónum sínum og hafí til þess frelsi og svigi-úm. En þegar nauðsynlegt er að miðla málum skal það líka gert. Þær málamiðlanir skulu hins vegar vera sýnilegar og öllum ljós- ar. Þess vegna segjum við í Stefnu, á sama hátt og við gerðum í Kvennalistanum þegar bezt lét - allar málamiðlanir upp á eldhús- borðið. Höfundur er réttarfélagsfræðingur og meillinmr í Stefnu - félagi vinstrimanna. í SÉRHVERRI rit- deilu í dagblaði kemur fljótt að því, að hún verði sífelld endurtekn- ing íyrri sjónarmiða. Svo er að fara um ágreining okkar lög- mannanna, Jóns Stein- ars Gunnlaugssonar og mín, sem birzt hefur í Morgunblaðinu með viðtali við Jón laugai-- daginn 1. ágúst og við mig laugardaginn 14. ágúst. I Morgunblaðinu þriðjudaginn 18. ágúst svarar Jón Steinar ýms- um sjónarmiðum sem sett voru fram í viðtal- inu síðasta laugardag. Jón gerir sér að sjálfsögðu fulla grein fyrir því, að þess er ekki að vænta, að aðrir lesendur Morgunblaðsins en við tveir lesi jafnnákvæmlega sjónannið okkar og hvor okkar um sig sjónar- mið hins. Verulegur hluti greinar hans var því endurtekning á þeim skoðunum, sem hann setti fram í við- talinu 1. ágúst. Af hans hálfu sýnist því, að svo stöddu, ekki miklu við að bæta. Samaer um mig. Glöggir og minnugir lesendur blaðsins þekkja þau sjónarmið sem við höfum tjáð. Ágreiningurinn varð- ar mikilsverð málefni dómsýslunnai’ í landinu, vinnubrögð lögfræðinga, hæfi og vanhæfi og nauðsyn opin- berrar umræðu um þau mál öll. Ég viðm-kenni fúslega, að mér er ekki ljúft að sitja undir þvi ámæli, að sjón- armið mín um mun á áróðri og fræði- mennsku og mun á gagnrýni mál- flutningsmanns í fjölmiðlum á niður- stöðu dómstóla í máli sem hann hefur flutt og fræðilegri umræðu séu ættuð af fyrri öldum. Umræðan hér í blaðinu sýnist þó hafa runnið sitt skeið og því tel ég heppi- legt að henni, og annarri sem tengist þeim mikil- vægu málefnum, sem hreyft hefur verið í við- tölum Morgunblaðsins við Jón Steinar Gunn- laugsson og nítjánduald- armanninn sjálfan mig, linni nú að sinni á síðum Morgunblaðsins. Hitt vil ég árétta, og þar munum við Jón Steinar algjörlega sam- mála, að mikil nauðsyn er dómgæzlu og réttaröryggi að fram fari sífelld op- inber umræða um dómsmál og gagn- rýni á niðurstöður dómstóla. Sjálfsagt er og, að sú umræða einskorðist ekki við lögfræðinga. Meiri fræðilegrar umi-æðu um dómsmál er þörf í lög- fræðitímaritum, en hún kemur ekki í Meiri fræðilegrar um- ræðu um dómsmál er þörf í lögfræðitímarit- um, segir Jakob R. Möller, en hún kemur ekki í stað umræðu í fjölmiðlum og á mann- þingum sem öllum eru aðgengileg. stað umræðu í fjölmiðlum og á mann- þingum sem öllum eru aðgengileg. Til þess að efla þá utni'æðu þurfa félög lögfræðinga að stofna til málþinga um veigamikil sjónarmið með áhugaverð- um frum- og hringborðsmælendum. Hygg ég, að Jón Steinar muni þá ekki láta skutinn eftir liggja, ef allvel verð- ur róið í fyrirrúminu. Höfundur er lögmaður í Reykjavík. freemmz Skólafatnaður í miklu úrvali. Frábært verð. Listinn fæst í öllum helstu bókaverslunum fÝe&YimZ Sími 565 3900 ------- Fax 565 2015 Endurtekning fyrri sjónarmiða Jakob R. Möller Hvílíkur sælureitur! Daihatsu Applause Gamall Islandsvinur Bílarfrá Daihatsu, elsta bílaframleiöanda í Japan, hafa reynst sérlega vel við íslenskar aðstæður. Þúsundir íslendinga þekkja hagkvæman rekstur, góða endingu og auðvelda endursölu þeirra. Allir bílar frá Daihatsu eru með þriggja ára almenna ábyrgð og sex ára ryðvarnarábyrgð á yfirbyggingu. Búnaður í himnalagi Staðalbúnaður Applause stenst samaburð við mun dýrari bíla. Nefna má vökvastýri, rafdrifnar rúður og spegla, samlæsingu, hæðarstillingu aðalljósa, snúningshraðamæli, útvarp og segul- band, ABS hemlabúnað, höfuðpúða í aftursæti, álfelgur, tvo loftpúða og styrktarbita í hurðum. Anægja á ferðinni Applause er vandaður bíll sem gerir allan akstur auðveldan og ánægjulegan. Vélin er 100 hestöfl, með beinni innspýtingu og 16 ventlum. Sjálfstæð MacPherson fjöðrun á öllum hjólum gefur mjög góða aksturseiginleika. Applause er auk þess fimm dyra og farangursrýmið má stækka í 764 lítra. Beinskiptur frá kr. 1.348.000.- Sjálfskiptur frá kr. 1.468.000.- BRIMBORG Faxafeni 8 • Sími 515 7010 Brimborg-Þórshamar I Bllasala Keflavíkur I Blley I Betri bllasalan I Tvisturinn Tryggvabraut 5 • Akureyri Hafnargötu 90 • Reykjanesbæ Búðareyri 33 • Reyðarfirði Hrísmýri 2a • Selfossi Faxastiq 36 • Vestmannaeyium Simi 462 2700 I Sími 421 4444 | Sími 474 1453 | Sími 482 3100 | Sfmi 481 3141 DAIHATSU fínn ( rekstri

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.