Morgunblaðið - 20.08.1998, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 20.08.1998, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. ÁGÚST 1998 39 MINNINGAR minningar bernskunnar. Á hverju sumri lá leiðin þangað. Til afa og ömmu. Hún svo gjafmild, hlý og góð. Töfraði fram dýrindisrétti sem hún hafði lært að matbúa hjá frú Gyðu. Spáði fyrir okkur í spil, „hamingj- unnar von, heldri maður vill þér vel“. Kenndi okkur að sauma út, prjóna og orkera. Þegar afi var á skrifstof- unni fór hún með okkur í Lystigarð- inn ef vel viðraði, eða að skoða svín- in. Ef leiðin lá í bæinn fórum við í betri fótin og amma setti upp hatt. Á sunnudögum var ævinlega farið í kirkju. Reglulega var þveginn stór- þvottur. Hvíti þvottui-inn soðinn í stórum potti, tekinn upp úr með töngum og skolaður í blikkbölum. Svo var allt hengt til þerris út á snúrur. Amma var glöð í góðum þurrki. - Afi frjáls og engum háður. I matartímanum sagði hann okkur sögur af Steini Bollasyni og fleiri köppum. Lagði fyrir okkur „gáfna- próf‘. „Hvað heita sýslumar og hvar eru sýslumörkin?“ Mörgu var að sinna sem með honum var skemmti- legt. Hreinsa arfa í kartöflugarðin- um, laga staura í girðingunni, sækja möl í Möl og sand, bóna bflinn. „Vera í slarkinu", eins og hann orðaði það sjálfur. Svo voru það skemmtiferð- irnar. Sólbað upp á Glerárdal eða Garðsárdal. Busla í læknum við Bjarkai'lund í Skóginum. Ganga á Höfðann og læra að þekkja lyfjagras og Ijónslöpp. Ef rigndi mátti alltaf sitja úti í bfl og hlusta á regn- dropana, eða „sitja kyrr í sama stað, en samt að vera að ferðast“. Vaka bjarta sumarnótt í Olafsfjarðarmúla og sjá með eigin augum, að sólin sest þar aldrei og þögnin ómar. Eftir að afi hætti að vinna og amma dó sat hann löngum stundum í Oddagötu og las. Hann hélt áfram að ferðast meðan fæturnir gátu borið hann. Hin síðari ár kom hann alltaf fyrir jólin og var með okkur fram á Góu. Þá fór hann að langa aftur norður til að setjast í hægindastólinn við skrifborðið og lesa Tímann í góðu tómi. Á sumrin lagði hann ævinlega land undir fót, eða öllu heldur hjól. Hann undi sér hvergi betur en í bfl á ferð með fólkinu sínu. Dæturnar voru þrjár, tengdasynirnir þrír, dótt- urdæturnar þrjár og dóttursynimir þrír, langafastrákamir tvisvar sinn- um þrír og ekki vantar nema eina stúlku til að sama eigi við um langa- fastelpurnar. Hann var sannarlega stoltur af öllum hópnum, af marg- faldri þrenningunni. Síðustu ferðina norður fór hann á þorranum. Hann var orðinn veikur og lá banaleguna á Fjórðungssjúkrahúsinu. Síðasta morguninn sem hann lifði hljómaði Hótel jörð í Útvarpinu. „Tilvera okk- ar er undarlegt ferðalag." Það var svarta logn á Pollinum. Kaldbakur, Blámannshattur og Vaðlaheiðin drif- hvít. Á Andapollinum syntu tveir svanir. Kveðjustundin rann upp, klukkan þrjú, þriðjudaginn þriðja þriðja. Við ferðalok afa kveð ég með loka- erindinu úr Ijóði Jónasar sem hann hafði oft yfir: Háa skilur hnetti himingeimur, blað skilur bakka og egg. En anda, sem unnast, fær aldregi eilífð að skilið. _ Nú eru afi og amma aftur saman. Ég kveð þau bæði með þökk fyrir allt og allt. Sigríður Árnadóttir. + Útför HARÐAR VALDIMARSSONAR, Hrafnistu í Hafnarfirði, áður Skólavegi 16 í Keflavík, fer fram frá Þjóðkirkjunni í Hafnarfirði föstu- daginn 21. ágúst kl. 15.00. Sigurrós Sigurðardóttir, Sigríður Harðardóttir, Páll V. Bjarnason, Valdimar Harðarson, Guðný L. Magnúsdóttir, Auður Harðardóttir, Bergur Hauksson, Birgir Ólafsson, Stella Olsen. t Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegrar eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, PÁLÍNU SIGURÐARDÓTTUR, Gnoðarvogi 78, Reykjavík. Oddgeir Einarsson, Sigurður Oddgeirsson, Kristín Einarsdóttir, Valdís Kristjana Oddgeirsdóttir, Jónas Hreinsson, Einar Vignir Oddgeirsson, Gunnar Rúnar Oddgeirsson, Inga Barbara Arthur, barnabörn og barnabarnabörn. + Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við and- lát og útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa, INDRIÐA INDRIÐASONAR vélamanns, Langholtsvegi 14, Reykjavík. Steinunn Hákonardóttir, Ingunn Karítas Indriðadóttir, Jóhann Sæberg Helgascn, Guðný Vigdís Indriðadóttir, Kristgeir Friðgeirsson, Indriði Indriðason, Anna Árdís Helgadóttir og barnabörn. Rudolf Ásgeirsson, Sólborg Marinósdóttir, Ásgeir Ásgeirsson, Hjördís Bergþórsdóttir, Gunhild Bjarnason, barnabörn og barnabarnabörn. + Móðir okkar, JÓRUNN BACHMANN, Dvalarheimili aldraðra, Borgarnesi, áður Egilsgötu 15, Borgamesi, lést á Sjúkrahúsi Akraness að morgni þriðjudagsins 18. ágúst 1998. Sigríður Bachmann, Haukur Bachmann, Guðmundur Bachmann. + Ástkær móðir mín, tengdamóðir og amma, MAGNEA KRISTJÁNSDÓTTIR, Þverbrekku 2, Kópavogi, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju í dag, fimmtudaginn 20. ágúst, kl. 13.30. Þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á Krabbameinsfélag íslands. Anna Árnadóttir, Þorvaldur Finnbjörnsson, Theódóra, Kristín, Finnbjörn og Halldóra Júlía. + Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÞURÍÐUR HALLDÓRSDÓTTIR frá Eyrarbakka, verður jarðsungin frá Keflavíkurkirkju á morgun, föstudaginn 21. ágúst, kl. 14.00. Alda Jensdóttir, Halldór Á. Jensson, Maria Valdimarsdóttir, Kristinn Þ. Jensson, . Sævar Þorkell Jensson, Julie Príce, barnabörn og barnabarnabörn. + Ástkær móðir okkar, amma og langamma, STELLA GUNNUR SIGURÐARDÓTTIR, Logafold 56, Reykjavík, áður til heimilis í Sólheimum 23, veröur jarðsungin frá Langholtskirkju í dag, föstudaginn 21. ágúst, kl 13.30. Jóhannes Norðfjörð, Sólrún L. Ragnarsdóttir, Hermann Norðfjörð, Ingibjörg S. Norðfjörð, Sigurður Ingólfsson, barnaböm og barnabarnabörn. + Ástkær eiginkona mín, móðir og dóttir, OLGA HARÐARDÓTTIR, Kleppsvegi 134, Reykjavik, verður jarðsungin frá Áskirkju í dag, föstu- daginn 21. ágúst, kl. 15.00. Persónuleg, alhliða útfararþjónusta. Sverrir Olsen, Sverrir Einarsson, útfararstjóri útfararstjóri Útfararstofa íslands Suðurhlíð 35 ♦ Sími 581 3300 LEGSTEINAI R í rúmgóðum sýningarsölum okkar eigum við ávallt íyrirliggjandi margar gerðir legsteina og minnisvarða úr íslenskum og erlendum steintegundum. Verið velkomin til okkar eða hafið samband og fáið myndalista. K S.HELGASON HF t 11 STEINSMIÐJA l SKEMMUVEGI 48, 200 KÓP.,SÍMI:557-6677/FAX:557-8410 Alexander Sema Marchán, Róbert Alexander Alexandersson, Sigrún L. Sigurðardóttir. + THEODÓRA SVEINSDÓTTIR, Hulduhlíð, Eskifirði, áður Austurbrún 6, Reykjavík, lést þriðjudaginn 11. ágúst síðastliðinn. Útförin hefur farið fram I kyrrþey að ósk hinnar látnu. Börn, tengdabörn barnabörn og barnabarnabörn. Allan sólarhrinyinn. www.utfararstofa.ehf.is/
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.