Morgunblaðið - 20.08.1998, Page 40

Morgunblaðið - 20.08.1998, Page 40
40 FIMMTUDAGUR 20. ÁGÚST 1998 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ OTTAR VIÐAR + Ottar Viðar fæddist í Reykjavík 29. nóvember 1930. Hann lést á Sjúkrahúsi Húsavíkur 31. júlí síðastliðinn og fór útför hans fram frá Þór- oddsstaðarkirkju í Ljósavatns- hreppi 8. ágúst. Elsku afí er dáinn. Afi sem allt vildi gera fyrir barnabömin sin. Á svona stundum renna í gegnum hug- ann margar ógleymanlegar stundir með honum og ömmu Heiðu. Dag- arnir í sveitinni hjá þeim eru ^l^gleymanlegir. Því miður fengum við ekki öll að kynnast því að vera í sveitinni hjá ömmu og afa vegna þess að þau fluttust til Húsavíkur 1982, áður en sum okkar fæddust. En sveitinni fengum við að kynn- ast í gegnum afa því enginn var dug- legri við að fara í sveitina til að heim- sækja ættingja og vini heldur en hann og hann var óspar á að bjóða bamabörnunum með. Fljótlega eftir að amma og afi fluttust til Húsavíkur byggði hann sér fjárhús og þar vor- um við með kindur með honum. Elsku afi, það er svo margt sem er fyrir að þakka, allar ferðimar í fjár- húsið með þér, skreppitúrar í sveit- ina um helgar og ekki má gleyma öll- -^um sumarbústaða- og útileguferðun- um með þér og ömmu þar sem þú varst hrókur alls fagnaðar. Þetta era allt ógleymanlegar stundir. Elsku afi, við söknum þín mjög sárt en getum huggað okkur við að þú ert nálægur og fylgist með okk- ur öllum. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margseraðsakna. i-, Guð þerri tregatárin stríð. (V. Briem.) Elsku afi, takk fyrir allar stund- irnar í gegnum árin. Og Guð gefi ömmu styrk 1 þessari miklu sorg. Þín barnaböm, Sigurður, Ellen og Þuríður. Óvænt og skyndilega er vinur minn Óttar Viðar fallinn frá aðeins 68 ára að aldri. Óttar var um margt óvenjulegur maður. Hann var bankastjórasonur úr Reykjavík, greindur að upplagi og átti auðvelt með nám. Hann hefði því getað gengið til fjölmargra starfa. En hann kaus að svara kalli hjart- ans, fór úr allsnægtum til að yrkja jörðina og gerðist bóndi norður í landi. Ungur að aldri bast hann sterkum böndum við Mývatnssveit- ina, en móðir hans var frá Gautlönd- um í Mývatnssveit. Þar dvaldi Óttar við leik og störf í fjölmörg sumur. Eftir þá reynslu varð það nánast köllun hans að gerast bóndi og því fór hann til náms í Bændaskólann á Hvanneyri. Hann festi ekki yndi við störf hvorld erlendis né í Reykjavík, þráði sveitalífið. Árið 1957 giftist hann Aðalheiði (Heiðu) Runólfsdótt- m- og á sama ári keyptu þau hjónin Geirbjarnarstaði í Köldukinn. Jörðin var bærilegasta bújörð en allur húsakostur mjög lélegur, nema fjós- ið, sem var nýlegt. Það þurfti því að taka til hendinni og búskapurinn var enginn dans á rósum, þrotlaus vinna, en sú vinna var um leið líf hans og yndi. Ekki svo að hún ein nægði hon- um til andlegrar næringar, hann var bókhneigður og sérstaklega hafði hann gaman af leiklist, enda var Ind- riði Einarsson afi hans. Sótti yfirleitt allar leiksýningar sem hann hafði tök á að sækja og var virkur þátttak- andi í leikstarfi í Kinninni og steig á svið nokkram sinnum. Óttar og Heiða eignuðust fjögur börn, Björn, Guðrúnu, Grétar Þór og Ástu Helgu. Árið 1980 varð fjöl- skyldan fyrir þeirri átakanlegu reynslu að Grétar Þór fórst af slys- föram 17 ára að aldri. Öll hin börnin era gift og bamabörnin orðin átta. Óttar og Heiða bjuggu að Geir- bjarnarstöðum í 25 ár. Þegar ljóst var að börnin hneigðust ekki til bú- skapar, og eins í kjölfar hins hörmu- lega fráfalls Grétars Þórs, ákváðu þau að bregða búi og fluttu til Húsavíkur og bjuggu þar síðan. Óttar var þar starfsmaður Húsavík- urkaupstaðar allt til dauðadags. En hann gat ekki hugsað sér að hætta samneytinu við dýrin, enda einstak- ur dýravinur. Hann kom sér upp fjárhúsum og svolitlum fjárstofni á Húsavík og gat því stundað sitt hjartansmál áfram, þó í litlum mæli væri. Kynni okkar Óttars hófust fyrir um það bil 30 árum. Konur okkar þekktust frá fyrri tíð og kunnings- skapurinn var endurnýjaður þegar báðar voru fluttar í sama hérað á Norðurlandi, Suður-Þingeyjarsýslu. Tæpt ár var á milli Þórs sonar okk- ar og Grétars Þórs og varð þeim strax vel til vina. Þór fékk að fara í sveitina og dvelja hjá vini sínum og tók strax miklu ástfóstri við Óttar og Heiðu eins og allur barnaskai'- inn, sem var í sveitinni hjá þeim á sumrin til lengri eða skemmri tíma. Kynni okkar urðu því stöðugt nán- ari og enn sterkari urðu tengslin þegar Grétar Þór dvaldi hjá okkur á Húsavík þegar hann var þar við nám veturinn 1979-80, en hann lést af slysföram sumarið eftir eins og áður sagði. Sennilega var það fyrst við þennan sorglega atburð sem mér varð ljóst hvílíkur mannkosta- maður Óttar Viðai’ var. Að vísu hafði mér verið það ljóst allt frá fyrstu kynnum að þar fór óvenju vandaður maður, en mannkostir hans og hugprýði komu aldrei betur í ljós en við þetta átakanlega slys. En Óttar var líka glettinn að eðlis- fari, hafði góða kímnigáfu og alltaf var stutt í spaugsyrðin hjá honum. Óttar var tryggðatröll, frændræk- inn og vinafastur. Til dæmis heim- sótti hann okkur alltaf reglulega, settist í eldhúsið, rabbaði um daginn og veginn, færði okkur fréttir af fjöl- skyldunni. Honum nægði ekki að hringja, hann varð að sjá okkur og heyra, deila með okkur smástund. Og þannig heimsótti hann fjölmarga aðra, ættingja og vini. Sennilega leið aldrei meira en mánuður án þess að hann heimsækti sveitina sína, Köldukinn, léti andrúm hennar leika um sig, heilsaði upp á gamla sveit- unga og vini. Það var því táknrænt hvemig sveitin hans tók á móti hon- um þegar Óttar fór þangað í hinsta sinn, þegar hann var jarðsunginn á Þóroddsstað laugardaginn áttunda ágúst. Veðrið var með eindæmum bjart og hlýtt, lýsandi fyrir hjarta- lags sonarins sem nú var lagður í skaut móður jarðar. Fyrir mína hönd, Katrínar konu minnar og bama okkar vottum við Heiðu, börnum þeirra og barna- bömum ásamt öðrum nákomnum okkar dýpstu samúð. Guð blessi minningu Óttars Viðar. Gisli G. egsteinar í Lundi v/Nýbýlaveg SOLSTEINAR 564 4566 JON B. JONSSON Smabt'víin iai^ðskom v/ Possvogskii'kjwgarð Sími: 554 0500 H Erfidiykkjur S H H H P E R L A N m M u Sími 562 0200 riIXXXXXIXXJU + Jón B. Jónsson fæddist í Neskaupstað 14. desember 1934. Hann lést í Kristinehamn í Svíþjóð 29. júlí síðastliðinn og fór útför hans fram frá Visnum- kirke í Kristinehamn 14. ágúst. H H H H H H H H Þessar fáu línur era til að kveðja bróðurson minn og kæran vin, sem á unglingsáram sínum í Neskaup- stað var daglegur gestur hjá afa sínum og ömmu í Holti og áttum við þá saman margar ánægjustundir. Jón var ákaflega léttur í lund, en dulur og ekki vanur að flíka tilfinn- ingum sínum. Þó var skopskynið í góðu lagi og hann fljótur að koma auga á spaugilegar hliðar á málun- um. Snemma kom fram hjá Jóni áhugi hans á mynd- og tónlist og lék hann í nokkum tíma með hljómsveit Har- aldar Guðmundssonar í Neskaup- stað. Það var þó eins með Jón og aðra unglinga í sjávarplássum að vinnan hjá þeim snerist að mestu um fisk bæði til lands og sjávar, svo tími og tækifæri gáfust ekki til að LEGSTEINAR t Mármari Islensk framleiðsla Granít Vönduð vinna, gott verð Bláarýti Sendum myndalista Gabbró MOSAIK Líparít Hamarshöfði 4, 112 Reykjavík sími 5871960, fax 5871986 helga sig því starfi sem hann hefði helst kosið. Þá var ekki spurt að því hvert hugurinn stefndi með ævi- starf, heldur aðeins hvaða starf væri líklegast til að gefa viðkomandi sitt daglega brauð. Þess vegna fór Jón í Samvinnuskólann og var þar við nám í tvö ár, þótt vinna við við- skipti og verslun væri honum ekki að skapi. í Svíþjóð settist svo Jón að í Varmland, ekki vegna þess að andi Selmu Lagerlöf og Nils Ferlin svifi þar yfir vötnum, heldur kynntist hann þar eftirlifandi sambýliskonu sinni Sonju, og búsettu þau sig í Beckhammar við Vanern. Eg hafði það alltaf á tilfinningunni þegar við töluðumst við, að það væri einmitt þarna sem hann kynni best við sig, í faðmi skóga, vatna og gamalla sögu- slóða, því Jón var fróðleiksfús mað- ur sem unni bókmenntum, tónlist og fagurri náttúra. Lengst af dvöl sinni í Svíþjóð vann Jón í pappírsverksmiðju í Backhammar. Síðustu ár ævinnar er hann vann við pöntun og umsjón á kemískum efnum, entist honum ekki þrek til að vinna meira en hálfan vinnudag venga ofnæmissjúkdóma. Þar sem langt er á milli heimila okkar Jóns urðu heimsóknir ekki tíðar, en þeim mun oftar var talast við í síma og rifjaðar upp gamlar minningar, rabbað um bækur og skáldskap, eða ýmsar bollaleggingar um lífið og tilverana. Væri sá gállinn á Jóni gat hann farið jöfnum hönd- um með kvæði eftir Tómas Guð- mundsson og Nils Ferlin, svo mikið á ég eftir að sakna þessara símtala. Hvíl þú í friði, kæri vinur. Valur Sigurðsson. SYLVÍA SIGFÚSDÓTTIR tSylvía Sigfús- dóttir var fædd í Sólheimum í Vest- mannaeyjum 13. júní 1919. Hún lést 12. ágúst síðastlið- inn. Foreldrar hennar voru Sigfús Guðlaugsson, skó- smiður og sjómað- ur, og Kristín Krist- jánsdóttir frá Aura- seli í Landeyjum. Sylvía átti eina al- systur, Aðalbjörgu Jakobínu, auk þess átti hún tvö hálf- systkin sammæðra, Marvin Jónas og Ilildigunni, sem Krist- ín átti með seinni manni sínum, Gunnari Erlendssyni, sem gekk Sylvíu í föðurstað tveggja ára gamalli. Þau eru nú öll látin. Fluttu þau að Helluvaði á Rang- árvöllum þar sem Sylvía bjó þar til hún hóf búskap í Reykjavík með manni sínum, Sigurði Jó- hannssyni frá Miðkrika í Hvol- hreppi, f. 26.1. 1903. d. 4.10. Hún sagði mér sögur um vofur og vætti, verur sem birtust á meðan ég svaf. Þannig var amma, hún sagði mér margt. Margt af því veit ég að á eftir að droppa upp í hugann og minna mig á hana um ókomin ár. Margt af því á líka eftir að minna mig á að að lífið er ekki bara leikur. Lífið hennar ömmu var ekki alltaf auðvelt, en hún kunni öðrum betur að brosa sínu glettna sérstaka brosi þó henni liði illa. Þó stundum væri þungt í henni og hún væri ansi kjarnyrt um lífið og tilveruna þá var þetta hennar stíll og málfar. Hún kunni enga hræsni, og hún kunni heldur ekki rógburð. Hún var heið- arleg og hrein og bein í því sem hún sagði og gerði. Hún var ævilangt trygg vinum sínum og brást þeim aldrei. Hún gat verið hrekkjótt og brellin þegar sá gállinn var á henni. Þá fífluðumst við oft og hlógum mikið. Hún trúði á líf eftir dauðann og fannst 1 góðu lagi að reyna að ná sambandi við þá sem væru hinum megin við þilið. Hún taldi að vinir sínir sem þar væru, væra bara ekki of góðir til að hafa dálítið samband við sig. Hún amma mín var eins og allar aðrar ömmur falleg og góð. Hún var dálítið pjöttuð og glys- gjörn. Hún vildi sko ekki láta sjá sig ómálaða og illa til hafða. Dæmi um það er þegar skipt var um augastein í henni og hún átti að hafa lepp fyrir auganu heima hjá sér. Því neitaði hún alveg. Hugsanlega kæmi ein- hver í heimsókn, og hún gleymdi að taka leppinn frá. Hún amma var ekki hávaxin kona en stór samt. Hún hafði gífurlegt þrek til að takast á við þau miklu veikindi sem hrjáðu hana um 20 ára skeið. Oft virtist sem öllu væri lokið. Oft var hún afskrifuð. Margar orustur vann hún. Alltaf kom gamli hrekkja- glampinn og sérstakt brosið á þjáð andlitið aftur og aftur. Hins vegar nokkrum mínútum áður en þú lést, þá kom annað augntillit sem sagði mér að fara. Þú vissir hvað var að gerast. Stríðinu var lokið. Með þakklæti fyrir allt kveð ég þig, elsku amma mín. Þú ert þrátt fyrir allt sigurvegari. Þú skilur eftir svo margt handa okkur hinum. Sylvía K. Sigurþórsdóttir. Það er ekki laust við að viss léttir væri yfir því að frétta af andláti föð- ursystur minnar, Sylvíu Sigfúsdótt- ur (eða Sullu frænku eins og við frændurnir í Akurgerði kölluðum hana alltaf okkar í milli), slík voru þau veikindi sem hún hefur átt við að glíma síðustu undangengin ár, en hún barðist hetjulega við lungna- sjúkdóm sem að lokum náði yfir- hendinni. I minningunni um Sullu koma strax upp í hugann afmælin á Loka- stígnum að ógleymdum jólaboðun- um, sem voru hin glæsilegustu, og alltaf man maður eftir jólaljósunum 1978, sem lengi var starfsmaður Aburð- arverksmiðju ríkis- ins. Eignuðust þau sex börn sem öll eru á lífí, þau eru: 1) Sigurþór f. 20.10. 1944, sölumaður, maki Aðalheiður Harðardóttir. 2) Ómar f. 27.9. 1948, framkvæmdastj óri, maki Sigurbjörg Ei- riksdóttir. 3) Krist- fn f. 6.9. 1951, fót- snyrtir, maki And- ers Ripp, Svíþjóð. 4) Pálmi Valur f. 27.3. 1953, verkamaður, ókvæntur. 5) Sonja María f. 28.7. 1954, hús- móðir, maki Jónas Antonsson. 6) Sigfús Sævar f. 30.7. 1958, verkamaður, ókvæntur. Barna- börn eru tólf og barnabarna- börn sjö. títför Sylvíu Sigfúsdóttur fer fram frá Fossvogskapellu í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. sérstöku sem hreyfðust í sífellu og vora á þessum tíma þau alfínustu sem til voru svo mynd þeima situr vel í minninu enn þann dag í dag. Á meðan við bræður voram litlir strákar var sérlega mikill samgang- ur milli okkar fjölskyldu og fjöl- skyldunnar á Lokastígnum, því afi Gunnar og Kristín amma mín bjuggu á hæðinni fyrir ofan Sullu og Sigga Jóhanns, eiginmann hennar (d. 1978), sem þar bjuggu með sín- um stóra barnahópi. Það var ansi gaman að fylgjast með Sullu og Sigga stríða Þórhalli bróður mínum og Stínu dóttur þeirra á því að lík- lega yrðu þau hjón seinna meir þar sem þau vora fædd sama ár, en skyldleikahjónabönd voru ekki óþekkt í þessari fjölskyldu frekar en öðram á þessum tíma. Eg sjálfur er fæddur ‘53 eins og Pálmi, sonur Sigga og Sullu, og vor- um við t.d. skírðir saman ásamt Gunnari Gunnarssyni, syni Hildig- unnar, systur pabba, og Gunnars Sigurjónssonar málarameistara. Eftir því sem borgin stækkaði og aldur færði okkur félagana í sundur minnkaði samgangur við krakkana á Lokastígnum, sem fluttu upp í Hraunbæ. Alltaf var þó reglulegur samgangur milli heimilanna og eftir að Sulla frænka missti manninn sinn var hún sem betur fer ekki síð- ur dugleg að heimsækja okkur í Ak- urgerðið og jafnvel fram að því síð- asta fékk hún Sigurþór son sinn til þess að keyra sig til að líta á okkur bræðurna og athuga hvernig okkur gengi kaupmennskan, en henni var mjög annt um okkur og okkur um hana. Að lokum vil ég færa Sullu sér- stakar kveðjur frá móður minni, en milli þeirra þróaðist mikil og góð vinátta sem entist alla tíð. Eg vil einnig færa börnum Sylvíu, mökum þeirra, barnabörnum og barna- barnabörnum mínar innilegustu samúðarkveðjur sem og frá fjöl- skyldu minni og bræðrum mínum, en við minnumst Sullu frænku með miklu þakklæti fyrir góðvild hennar og gamansemi. Megi minningin um elskulega og skemmtilega konu lifa. Gunnar Jónasson. í dag kveð ég með söknuði móð- ursystur mín, Bóel Sylvíu Sig- fúsóttur. Ég hef þekkt Sylvíu alla ævi og þegar ég var lítil stelpa þurftum við fjölskyldan að búa um nokkurt skeið heima hjá henni og manni hennar, Sigurði. Þrátt fyrir að þau ættu sjálf sex börn stóð heimili þeirra opið fyrir okkur, sex manna fjölskyldu, og komið var fram við okkur eins og annað heim- ilisfólk. Það var oft kátt á hjalla þegar svo mörg börn voru saman komin. Sylvía reyndist mér alltaf vel og eftir að ég varð fullorðin var hún minn trúnaðarvinur. Ég reyndi eftir bestu getu að launa henni vel-

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.