Morgunblaðið - 20.08.1998, Qupperneq 41

Morgunblaðið - 20.08.1998, Qupperneq 41
MORGUNBLADIÐ FIMMTUDAGUR 20. ÁGÚST 1998 41 viljann og þegar heilsu hennar fór að hraka gerði ég mér far um að stytta henni stundir þegar tími gafst til. Synir Sylvíu, Sigfús og Sigurþór, sáu um móður sína í seinni tið og reyndust henni mikil stoð og stytta í veikindum hennar. Hún var heppin að hafa svo nær- gætna syni sér við hönd í erfiðleik- um sínum. Sylvía lifði öll systkini sín og verða efalaust fagnaðarfund- ir þegar þau hittast aftur. Hún og móðir mín Stella voru mjög sam- rýndar og saknaði Sylvía hennar mjög eftir að hún dó fyrir nokkrum árum. „Segðu ekki: „Ég hef fundið sannleikann", segðu heldur: „Ég hef fundið sannleiká'. Segðu ekki: „Ég hef fundið veg sálarinnar", segðu heldur: „Ég hef mætt sál minni á veg- inum“. Pví að sáhn gengur allar leiðir. Hún dansar ekki á línu og vex ekki eins og reyr, heldur opnast hún eins og þúsund blaða lótusblóm." (Kahhl Gibran, Spámaðurinn.) Eg vil þakka Sylvíu allar þær góðu stundir sem við áttum saman í gegnum tíðina, hún mun alitaf eiga pláss í sál minni og hjarta. Eg bið góðan Guð að styrkja börn, barna- börn og aðra aðstandendui- og vini Sylvíu í sorginni. Anna F. Gunnarsdóttir. Mér brá þegar mamma mín hringdi í mig miðvikudaginn 12. ágúst og sagði mér að uppáhalds amma mín hún Sulla amma væri dá- in. Það var eins og ég hefði verið stungin í bakið, ég kom ekki upp orði í smástund, þegar mamma sagði mér þetta. En sem betur fer líður henni vel núna og er komin í faðm Sigga afa, og það er fyrir öllu að henni líði vel. Hún amma mín var rosalega góð kona og vildi öllum vel, það vita allir sem þekktu hana. Eg sakna þín sárt, elsku amma mín, og ég mun aldrei gleyma þér, þú verður alltaf í hjarta mínu. Eg gat þó gefið þér tvö langömmubörn. Eg kom með yngri stelpuna mína aðeins 10 daga gamla upp á spítala til að sýna þér hana, ég man hvað þú varst glöð að sjá hana, elsku amma mín. Það er erfít að lýsa því með orð- um hve sárt við munum sakna þín, elsku amma. Mikið skarð hefur myndast í Mfí okkar, en við reynum að fylla upp í það með góðum minn- ingum um þig og það sem við gerð- um saman, amma mín. Elsku Guð, viltu passa ömmu mína vel. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnatiar viðkvæm stund. Vinimir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) María Antonía, Aníta Sonja, Brynja Karen. Fyrir hönd okkar systkinanna vil ég þakka Silvíu fyrir allt sem hún gaf okkur. Við kveðjum þig með söknuði í huga og ég bið góðan Guð að styrkja okkur öll í sorginni. Far þú í friði til hins eilífa ljóss og friður Guðs varð- veiti þig að eilífu. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þeni tregatárin stríð. (V. Briem.) Linda Björk Jónasdóttir. MINNINGAR KIRKJUSTARF HANNES ÞORÐUR HAFSTEIN + Hannes Þórður Hafstein fæddist á Húsavík 29. nóv- ember 1925. Hann lést á Sjúkra- húsi Reykjavíkur 12. júlí síðast- Iiðinn og fór útför hans fram frá Langholtskirkju 21. júlí. Þjóðin hefur misst stórmenni í slysavarna- og bjögunarmálum. Sporin sem hann lagði í þeim málum eru til þess fallin að fylgja þeim, því þau eru í anda Slysavarnafélags Is- lands; að berjast gegn slysum og vera skjót til hjálpar eða björgunar náunganum. Til að geta lagt slík spor eins og Hannes hefur gert þurfa menn mikla hæfíleika, dugnað, eldmóð, þekkingu á málefnum, reynslu af málefninu og heiðarleika gagnvart náunganum. Hannes var lítið fyrir hrós og lof fyrir störf sín, vildi alltaf helst gera betur, þótt allt væri full- reynt í sjálfu sér. Var hann ákveðinn og fylgdi málunum eftir af miklum eldmóð, þótt það hentaði mönnum ekki alltaf. Þegar upp var staðið vissi Hannes hvað skipti máli, það voru markmið Slysavarnafélagsins, sem eru öllu fólki til heilla og far- sældar. Það er eins og einn af góð- um og traustum vinum hans hafði á orði: Stundum þarf maður að vera leiðinlegur til að koma hlutunum á eða til leiðar, það er bara ekkert skemmtilegt að vera leiðinlegur en það er í lagi þegar það er öðrum til heilla eða öryggis. - Nú hafa þessir vinir og félagar báðir lagt himnaföð- urnum lið, hefur drottinn þar fengið góðan skipstjóra og stýrimann. Hannes var heimsborgari, eins og komið hefur fram í mörgum af minningargreinunum um hann, og hlaut hann alls konar heiðursmerki og orður sem voiu honum vissulega mikils virði á lífsferlinum og hvatn- ing til að halda alltaf sínu striki til að gera björgunarfólk, slysavarna- fólk og utan þess hæfara til sinna starfa. En vænst þótti honum um þau augnablik þegar vel tókst til við björgun eða í slysavamastarfi hjá samferðafólki hans. Hef ég verið einn af þeim heppnu sem hafa kynnst verkum hans á er- lendri grundu, þá á ég við á nám- skeiðum og ferðum erlendis. í eitt skipti 1991 á Suður-Engandi, á Isle Frágangur afmælis- og minn- ingar- greina MIKIL áhersla er lögð á, að handrit séu vel frá gengin, vél- rituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disk- lingur fylgi útprentuninni. Það eykur öryggi í textameðferð og kemur í veg fyrir tvíverknað. Þá er enn fremur unnt að senda greinarnar í símbréfi (569 1115) og í tölvupósti (minning@mbl.- is) — vinsamlegast sendið grein- ina inni í bréfínu, ekki sem við- hengi. Auðveldust er móttaka svokall- aðra ASCII skráa sem í daglegu tali eru nefndar DOS-texta- skrár. Þá eru ritvinnslukerfin Word og WordPerfect einnig nokkuð auðveld úrvinnslu. Um hvern látinn einstakling birtist ein uppistöðugrein af hæfílegri lengd, en aðrar grein- ar um sama einstakling tak- markast við eina örk, A-4, miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd, - eða 2.200 slög (um 25 dálksentimetra í blaðinu). Til- vitnanir í sálma eða ljóð tak- markast við eitt til þrjú erindi. Greinarhöfundar eru beðnh’ að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. of Wight og í Warsash. Fórum við tólf sjóflokksstrákar til Isle of Wight og vorum í fímm daga á Atlantic 21- bátanámskeiði sem Hannes hafði, eins og svo oft áður, skipulagt og fengið fyrir litla sem enga peninga hjá systurfélagi okkar í Bretlandi, RNLI. Allt gekk upp í ferðinni og all- ir voru ánægðir, og hafa þessi nám- skeið verið sótt af sjóflokksmönnum síðan. í þessari sömu ferð var Hann- es búinn að koma mér á námskeið í slysavarnaskóla í Warsash. Hannes og félagar mínir skildu mig þar eftir, en áður en þeir fóru tók Hannes mig afsíðis og gaf mér góð ráð, eins og honum einum var lagið, og sagði svo: „Stattu þig strákur og sjáumst eftir viku í London.“ Þar hittumst við svo á heimleiðinni. Töluðum við mikið um stöðu mála eftir þessi námskeið, hvað var gert og .hvað hefði mátt betur fara. Mér er minnisstæðast úr þessari ferð að alls staðar sem við komum, ef maður þurfti einhverjar leiðbein- ingar eða upplýsingar og nefndi Slysavarnafélagið eða Hannes, þá stóðu allar dyr opnar. Oftar en ekki var spurt frétta: Where is captain Hannes, how is he? Hannes stóð alltaf sína vakt þótt hann léti af störfum hjá SVFÍ sem fram- kvæmdastjóri þess. Síðastliðið haust hafði Hannesi borist til eyrna að ég væri að fara á vegum SVFI til bandarísku strandgæslunnar, U.S. Coast Guard, í náms- og kynnisferð, meðal annars til Coast Guard Academy í New London í Connect- icut-fylki, þar sem Hannes hafði dvalið á sínum yngri árum, meðal annars um borð í skólaskipinu Eagle. Þegar ég og félagi minn vor- um að leggja af stað út á flugvöll hringdi síminn, á hinum endanum var captain Hafstein og biður hann mig að koma við í Skeiðarvoginum. Eftir smámögl í mér fer ég til hans, þar var hann búinn að tína franyúr pússi sínu ýmis gögn um SVFI á ensku, myndir og fleira, og gefur mér holl og góð ráð eins og alltaf. Hann kveður mig svo með því að rétta mér umslag merkt mér, á því stóð jafnframt „opnist aðeins í 30.000 fetum“. Þegar ég var svo kominn í 30.000 fet opnaði ég um- slagið og í því voru dollarar til að nota í ferðinni. Útför Hannesar Þórðar Hafstein var gerð frá Langholtskirkju 21. júlí sl. að viðstöddu miklu fjölmenni. ,;Fólkið hans“ úr Slysavai’nafélagi Islands, úr slysavarna- og björgun- arsveitum alls staðar að af landinu, stóð heiðursvörð inni og úti við kirkjuna og í garðinum, fógur en lát- laus athöfn í djúpri virðingu og þökk til góðs vinar og foringja. Að kvöldi útfarardagsins komu allir bátar SVFI saman og minntust Hannesar á táknrænan og minnis- stæðan hátt með flugeldum, blysum og reyk, með björgunarbátinn Hannes Þ. Hafstein í broddi fylking- ar. Síðan sneru allir bátar til sinna heimahafna, og er trúlegt að þessi dagur 1 heild sinni h'ði aldrei úr minni áhafnar Hannesai’ Þ. Hafstein í Sandgerði, því að á heimleiðinni var lítill bátur aðstoðaður vélarvana utan við skerjagarðinn í Sandgerðis- höfn. Er því ljóst að Hannes Þórður Hafstein er enn á vaktinni á æðri stöðum. Sigrúnu, börnum og öðrum ástvinum sendi ég og fjölskylda mín dýpstu samúðarkveðjur, Guð styrki ykkm- í sorg ykkar. Einar Örn Jónsson SIGURVININGVI GUÐJÓNSSON + Sigurvin Ingvi Guðjónsson fæddist á Núpi í Haukadal 18. apríl 1927. Hann lést í Sjúkrahúsi Akraness 1. ágúst síðastliðinn og fór útför hans fram frá Akraneskirkju 11. ágúst. Hinn 24. nóvember 1993 fluttust Sigurvin Ingvi Guðjónsson og Stefanía Anna Guðmundsdóttir í fjölbýlishús á Akranesi, á Höfða- braut 16, 2. hæð til hægri. Svo vildi til að undirritaður og kona hans, Þorgerður Bergsdóttir, sem hér eftir verður nefnd Stella, bjuggu á sama stigapalli. Ég hef í gegnum árin komið mér upp þeirri stað- hæfingu að fátt sér þýðingarmeira í þessu lífi en gott nágrenni. Þessi staðhæfíng hefur enn sannað gildi sitt. Lítil kynni höfðu verið milli okkar áður. Þó höfðu Anna og Stella verið samtíða nokkra daga á sjúkrahúsi og ég hafði af þeim nokkur kynni gegnum sameigin- lega vini. Þau Ingvi og Anna höfðu þann hátt á að dveljast vestur í Dölum á sumrin, á Mjóabóli í Haukadal, en þar höfðu þau búið um árabil. Ingvi varð fyrir þeirri lífsreynslu aðeins átta ára gamall að lenda í ægilegum eldsvoða í Keflavík á jólum 1935 og bar þess menjar alla tíð, en þrátt fyrir það var hann dugnaðarmaður á sínum bestu árum. Þau Ingvi og Anna voru mjög vin- sæl af sínum sveitungum, sem ræktu vináttu við þau, þó að þau væru komin til Akraness, og kunnu þau vel að meta það. Afkomendur Ónnu og Ingva eru 17, allt ágætis- og myndarfólk. Nú, þegar Ingvi vinur minn er all- ur, er skarð fyrir skildi sem verður vandfyllt í huga okkar sem þekktum hann og áttum við hann samskipti. Blessuð sé minning hans. Hannes Á. Hjartarson. SVANHVIT JÓNSDÓTTIR + Svanhvít Jónsdóttir fæddist í Neskaupstað 6. janúar 1968. Hún lést á Landspítalan- um 6. ágúst síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Hafnar- fjarðarkirkju 10. ágúst. Með örfáum orðum viljum við þakka fyrir kynni okkar af Svan- hvíti Jónsdóttur, Svanný eins og hún var kölluð. Strax og Svanný kom til okkar sáum við að hér var einstök per- sóna á ferð. Krafturinn og þraut- seigjan voru ótrúleg. Hún lét aldrei deigan síga þrátt fyrir fötlun sína og var staðráðin í að ná sér að fullu. Sóttin er hamla á líkamanum, en ekki viljan- um, nema hann kjósi sjálfur, að svo sé. Heltin hamlar fætinum að vísu en viljanum ekki. Segðu sjálfum þér þetta í hvert sinn er á bjátar og þú munt komast að raun um, að atburðimir hamla einhverju öðru en þér. (Epiktet.) Svanný var með eindæmum já- kvæð og bjartsýn en ofar öllu öðru var hún full af baráttuvilja og ákveðin í að lifa lífinu af krafti. Hún hefur kennt okkur hinum að þakka fyrir það sem við höfum, en tökum allt of oft sem sjálfsögðum hlut. Góð heilsa er eitthvað sem við eigum að fara vel með og njóta. Elsku Svanný, með ótrúlegum viljastyrk og dugnaði sýndir þú okkur hversu mikils virði það er að gefast aldrei upp þó á móti blási. Megi hetjuleg barátta þín verða öðrum hvatning og fordæmi. Með söknuði sendum við aðstandendum þínum okkar innilegustu samúðar- kveðjur. Vinir og samstarfsfélagar í World Class. Safnaðarstarf Áskirkja. Opið hús fyrir alla aldurs- hópa kl. 14-17. Hallgrímskirkja. Orgeltónlist kl. 12-12.30. Jakob Hallgrímsson leikur. Háteigskirkja. Kvöldsöngur með taizé tónlist kl. 21. Kyrrð, íhugun, endurnæring. Allir velkomnir. Digraneskirkja. Bæna- og kyrrðar- stund kl. 18. Bænaefnum má koma til sóknarprests eða kirkjuvarðar, einnig má setja bænaefni í bæna- kassa í anddyri kirkjunnar. Vídalínskirkja. Bæna- og kyrrðar- stund kl. 22, kaffi og létt meðlæti á eftir. BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson Gylfi vikumeistari í sumarbrids ÞRETTÁNDU spilavikunni lauk sunnudagskvöldið 16. ágúst. 20 pör spiluðu Mitchell og urðu þessi pör efst (meðalskor var 216): NS Gylfi Baldurss. - Bjöm Theódórss. 264 Hjördís Sigurjónsd. - Kristján Blöndal 249 Friðjón Þórhallss. - Jón Þorvarðars. 244 Hrafnh. Skúlad. - Jörundur Þórðars. 232 AV Óskar Sigurðss. - Sigurður Steingr.ss. 247 Eggert Bergss. - Jón V. Jónmundss. 238 Una Amad. - Jóhanna Sigurjónsd. 234 Hermann Friðriksson - Helgi Bogason 221 Gylfi Baldursson vann vikukeppn- »- ina að þessu sinni. Lokabaráttan var æsispennandi og réðust úrslit viku- keppninnar í síðustu spilum sunnu- dagskvöldsins. Annars varð vikustaða efstu manna svona í bronsstigum: Gylfi Baldursson 58 Jón Þorvarðarson 55 Amgunnur Jónsdóttir 40 Hjördís Sigurjónsdóttir 39 Anton Haraldsson 39 Sigurbjöm Haraldsson 39 Hermann Friðriksson 38 Eggert Bergsson 35 Ragnheiður Nielsen 34 < Þórður Sigurðsson 33 Gylfi hlýtur í vikuverðlaun gjafa- bréf frá veitingastaðnum Þrír Frakk- ar hjá Ulfari. Gylfi Baldursson er langefstur í heildina og er staða efstu spilara svona: Gylfi Baldursson 528 Jón Steinar Ingólfsson 369 Eggert Bergsson 326 Vilhjálmur Sigurðsson jr. 316 Steinberg Ríkarðsson 303 Hermann Friðriksson 294 Jón Viðar Jónmundsson 285 Erlendur Jónsson 275 Þorsteinn Joensen 267 Isak Öm Sigurðsson 263 í sumarbridgs er spilað öll kvöld nema laugardagskvöld og hefst spila- .■ mennskan alltaf kl. 19:00. Spilastaður er að venju Þönglabakki 1 í Mjódd, húsnæði Bridssambands Islands. Ut- sláttarsveitakeppni er spiluð að lokn- um tvímenningi á föstudagskvöldum og hefst hún um kl. 23:00. Hægt er að mæta í hana eingöngu, en þá er betra að vera búinn að skrá sig símleiðis (s. 587-9360). Ókeypis bridskynning Unglingar á aldrinum 12-16 ára fá tækifæri til að læra undirstöðuatriðin í brids síðustu vikuna í ágúst, en þá verður þriggja daga ókeypis brid- skynning á vegum Bridsskólans og Bridsfélags Reykjavíkur. Námskeiðið stendur yfir dagana 25.-27. ágúst, frá kl. 16-19 og verður ' í húsakynnum Bridssambands ís- lands, Þönglabakka í Mjódd. Allir velkomnir, en þátttöku þarf að tilkynna í síma 564-4247 mánu- daginn 24. ágúst. Þriðju umferð í bikar- keppninni Iokið Nú er 3. umferð í bikarkeppninni 1998 lokið. Dregið var í 4. umferð í gær, 17. ágúst, og drógust saman: Baldur Bjartmarsson - Ármannsfell hf/Sævar Þorbjömsson Háspenna/Jón Hjaltason - Garðsl.þj. Norðurlands. Stefán Stefánsson Nýherji/ísak Sigurðsson - Eimskip/Stefán Kalmansson Manin/Öm Amþórson - Landsbréf/Bjöm Eysteinsson 4. umferð þarf að vera lokið fyrir 13. sept. nk. Undanúrslit og úrslit verða spiluð 19. og 20. sept. nk. í húsi Bridgesambands Islands, Þöngla- bakka 1.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.