Morgunblaðið - 20.08.1998, Page 46

Morgunblaðið - 20.08.1998, Page 46
.v- 46 FIMMTUDAGUR 20. ÁGÚST 1998 MORGUNBLAÐIÐ Dýraglens HÉRA ER d'al\tiE> SeM AAAfxJP HUGSAR S7/JLDAN UM... GBfZlRÐO |>éRL3ÓST/lЫNUAl SJÖUHCXl LIFS ÞÍNS eREVrr --------- l' mAnupaga? Tommi og Jenni IF YOU GIVE MEACALL, l'M U5UALLV FREE IN THE I CAN ALWAY5 COME 0VER 0 AFTERN00N DURIN6 THE ANP GUARP V0URH0U5E.. § c MIPDLE 0F THE WEEK.. & •n 1 ® f &_ ® iM/ ass ^ s Ég deili teppinu mínu með þér ... hvað gerir þú fyrir mig? Ef þú hringir til mfn, get ég alltaf komið og gætt hússins fyrir þig. Ég er venjulega laus eftir hádegið í iniðri viku ... BREF TIL BLAÐSINS Kringlan 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Simbréf 569 1329 SIGURLIÐIÐ frá Vesturgötu 7 í pútti á vormóti. Frá vinstri: Sigurgeir Snæbjömsson, Þorbjörg Georgsdóttir og Kristín Halldórsdóttir. Iþróttir aldraðra Porsteini Einarssyni: HVAÐ er framundan af störfum fyrir íþróttir aldraðra hjá Félagi áhugafólks um íþróttir aldraðra (FÁIA) og hvað aðhafðist félagið í sumar? Námskeið fyrir leiðbeinend- ur íþróttaiðkana aldraðra heldur stjóm Félags áhugafólks um íþrótt- ir aldraðra, 21.-23. ágúst, í húsa- kynnum Árbæjarskóla í Reykjavík. Aðalkennarar eru Lis Puggaard, lektor við háskólann í Odense, og Vibeke Pilmark, íþróttakennari og sjúkraþjálfari. Forstöðu námskeiðs- ins annast Guðrún Nielsen, formað- ur FÁÍA. Stjóm FÁÍA starfrækti sæluviku að Laugarvatni sem þau Ólöf Þórar- insdóttir og Ernst Bachmann veittu forstöðu 3.-15. júlí. Dvalið var í húsakynnum Iþróttakennaraskóla Islands, sem Iþróttamiðstöð ISI og UMFI starfrækja að sumarlagi. Forstöðumaður er Hafþór Guð- mundsson. Aðstoðarfólk hans var frábært og veitti hinum öldruðu al- úðlega aðstoð í heimavistum, borð- stofu, sundlaug og íþróttasal. Hver dagur hófst á göngu. Eftir morgun- verð var starfað í íþróttasal og sundlaug. Frá kl. 12-14 var hádeg- isverður og hvíld. Síðdegis var dag- skrá breytileg, t.d. iðkað pútt, boccia, spiluð félagsvist, farin um- hverfisskoðun eða lagt í lengri ferðalög, svo sem ekið að Geysi, inn á skógræktarsvæði í Haukdal og kirkjan skoðuð. Á hverju kvöldi vom skemmti- dagskrár, sungið, sagðar sögur og dansað. Verðurfar var þeim öldmðu hliðhollt. Þátttakendur vora 23 á aldrinum 69 til 86 ára. Heilsufar var ágætt. Þriðjudaginn 19. maí 1998 efndi stjórn FÁIA til vorkeppni í pútti. Er um að ræða keppni milli þrí- menningsliða um farandbikar og einstaklingsverðlaun kvenna og karla. Keppnin var háð í Laugardalnum og hófst kl. 14 í léttskýjuðu veðri en napri golu. Keppnislið urðu ellefu. Lið úr félagsmiðstöðinni að Vest- urgötu 7, sem var skipað þeim Þor- björgu Jónsdóttur, Kristínu Hall- dórsdóttur og Sigurgeir Snæbjörns- syni, fór 18 holur völlinn á fæstum höggum, 111. Hvert á 37 höggum. Kristín og Sigurgeir fóru hvort 2 holur í höggi en Þorbjörg einu sinni. Önnur verðlaun hlaut lið utan miðstöðva í 112 höggum. Liðið skip- uðu Bogi Þ. Guðjónsson (40 högg), einu sinni holu í höggi, Guðrún S. Kristjánsdóttir (38 högg) og Hall- dór Ibsen (35 högg), þrívegis hola í höggi. Þriðju verðlaun vann lið frá Hrafnistu í Reykjavík (DAS) með 115 stigum. Liðið skipuðu Borgþór Jónsson (40 högg), Karl Sölvason (48 högg), einu sinni hola í höggi og Ágúst Friðbjörnsson (37 högg), tvisvar holu í höggi. Aðrar sveitir, merktar þeim sem vora ritarar þeirra, unnu sér stig sem hér grein- ir: 4.-5. sæti: Áslaug Árnadóttir frá Hvassaleiti 56-58, 118 stig og með sama stigafjölda lið Guðjóns Valdi- marssonar frá DAS í Reykjavík. 6. sæti: Lið Ernst Fr. Bachmanns 119 högg. Önnur lið voru ekki fullskip- uð. Fyrstu einstaklingsverðlaun vann Halldór Ibesen með 35 högg- um; þrisvar holu í höggi. En um 2.-3. verðlaun urðu 4 einstaklingar jafnir og urðu að ráða í „bráða- bana“. Fór keppnin svo: 2. verðlaun Þorbjörg Jónsdóttir, 3. verðlaun Kristín Halldórsdóttir, 4. verðlaun Ágúst Friðbjörnsson og 5. verðlaun Sigurgeir Snæbjörnsson. Guðrún Nielsen, formaður FÁÍA, afhenti verðlaun. Kaffiveitinga nutu svo allir í glaðværð í vallarhúsi gervigrasvallarins þar sem Baldur Þráinsson er vallarvörður. Hin árlega keppni FÁÍ A að vori í boceia var háði í íþróttahúsi fatlaðra 27. apríl í ár. Liðin sem kepptu voru 14 og var hvert skipað 3 keppend- um. Var keppt um bikar, sem Iþróttafélag fatlaðra gaf. Mótsstjóri var Anna Henriksdóttir en yfirdóm- ari Inga Bjarnar Guðmundsson. Sigurvegari varð lið félagsmiðstöðv- ar á Vitatorgi. Annað varð lið frá Hvassaleiti og þriðja frá Afla- granda. ÞORSTEINN EINARSSON, varafomaður FÁÍ A Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.