Morgunblaðið - 20.08.1998, Qupperneq 54
54 FIMMTUDAGUR 20. ÁGÚST 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
Tvítug
Hrekkjavaka
Tveir áratugir eru frá því John Carpenter
sendi frá sér unglingahrollvekjuna
Hrekkjavöku eða „Halloween“. Myndin
varð gríðarlega vinsæl og enn í dag er verið
að gera framhaldsmyndir hennar. Arnald-
ur Indriðason kynnti sér fyrirbærið nánar.
UNGLINGAHROLLVEKJAN
virðist hafa eins mörg líf og Freddy
Kruger eða Jason eða Michael
Meyer eða hvað þeir nú heita allir
þessir geðsjúku morðingjar hroll-
vekjanna sem lifna við jafnóðum og
þeir eru drepnir. Unglingahroll-
vekjan hefur í það minnsta kviknað
til lífsins ó ný eftir nokkurra ára
dásvefn. Ný kynslóð kvikmynda-
gerðarmanna, sem ólst upp með
t&;Uger og kompaníi, sækir sérstak-
lega í að gera hrollvekjur fyrir ung-
linga og unglingamir virðast mjög
móttækilegir enn á ný fyrir skelf-
ingunni. Nýju unglingahrollvekj-
umar hafa þegar getið af sér fram-
haldsmyndir. Pannig hafa orðið til
myndimar „Scream" 1 og 2, Ég veit
hvað þú gerðir síðasta sumar og
fleiri.
Enn er komið að Hrekkjavöku
Sú nýjasta til að bætast í þennan
^bóp er „Halloween: H20“ með Ja-
mie Lee Curtis en segja má að
fyrsta myndin í þeim myndaflokki
hafí hrundið af stað skriðu ung-
lingahrollvekja, sem greinilega sér
ekki fyrir endann á, hvorki í bráð né
lengd. Tuttugu ár eru liðin frá því
John Carpenter gerði fyrstu Hall-
oweenmyndina eða Hrekkjavöku-
myndina og mótaði þessa nýju teg-
und kvikmynda en formúlan hefur í
raun lítið breyst frá því á áttunda
áratugnum. Myndin hans sagði af
morðóðum geðsjúklingi klæddum
hvítri andlitsgrímu, Michael
Meyers að nafni, sem slapp af geð-
sjúkrahúsi og tók stefnuna á sinn
gamla heimabæ þar sem hann
murkaði lífið úr unga og fallega
T'Ækinu og reyndi hvað harðast að
drepa Jamie Lee Curtis.
Þá var hún ung heimasæta en í
nýju myndinni hefur hún flutt úr
bænum og er orðin skólastýra við
lítinn einkaskóla og á son sem er 17
ára. Hún hefur brutt pillur og
drukkið brennivín í miklum mæli
frá því hún átti í útistöðum við
Meyers en hefur nú þurrkað sig
upp og er tilbúin að takast á við lífið
á ný þegar fréttir berast af því að
ódámurinn hefur enn gert vart við
sig með hnífinn langa og sína for-
ljótu grímu.
Curtis, sem er dóttir leikarans
Tony Curtis, var aðeins 19 ára þeg-
ar John Carpenter bað hana að
leika fyrir sig í Hrekkjavöku og það
var stærsta hlutverkið sem henni
hafði verið boðið. „Ég hefði grát-
beðið um hvaða hlutverk sem var á
þessum aldri.“ Myndin kostaði að-
eins 300.000 dollara en markaður-
inn var greinilega hungraður eftir
hrollvekjum í líkingu við hana því
hún tók inn 55 milljónir dollara. Fá-
ar bíómyndir geta sýnt fram á ann-
an eins hagnað. Síðan þá hefur
áhuginn á henni frekar vaxið en
hitt. „Það sá það enginn fyrir að
Hrekkjavaka yrði smellur og hver
sá sem heldur þvi fram að hann
hefði spáð því, er lygari," segir
Curtis.
Carpenter vildi ekki leikstýra
í kjölfar fyrstu myndarinnar
fylgdu fimm framhaldsmyndir sem
varla er hægt að telja með neinum
meistaraverkum kvikmyndasög-
unnar. Curtis hætti að leika fórnar-
lambið eftir tvær myndir en þvert á
það sem hún vonaði gerðu Hrekkja-
vökumyndirnar lítið fyrir hennar
feril sem leikkona. „Sannleikurinn
er sá,“ sagði hún í viðtali við banda-
ríska skemmtanatímaritið Enterta-
inment Weekly, „að ég fékk ekkert
að gera eftir hana.“
Það mun hafa komið leikstjóran-
um Carpenter mjög á óvart og hann
setti Curtis einnig í næstu hroll-
ÞÁ BYRJAR ballið; Curtis mæt-
ir óvini sínum £ nýjustu
Hrekkjavökumyndinni, sem
gerð er tveimur áratugum eftir
að sú fyrsta sló í gegn.
CURTIS mundar hnífinn í
fyrstu myndinni.
vekju sína, Þokuna eða „The Fog“
og í framhaldi af því varð Curtis á
tímabili að eins konar hryllings-
myndadrottningu og lék í myndum
eins og „Prom Night“, „Terror Tra-
in“ og Hrekkjavöku 2. „Mér er
sama þótt ég sé fræg fyrir að leika í
hryllingsmyndum. Þær eru mitt lifi-
brauð hvort sem mér líkar það bet-
ur eða verr, hvort sem mér líkar við
þessar myndir eða ekki. Ég er ekki
viss um að ég eigi margt sameigin-
legt með fólkinu sem horfir á þessar
myndir en ég er þakklát því.“
Hún átti sjálf hugmyndina að því
að gera nýja Hrekkjavökumynd í
tilefni tuttugu ára afmælis fyrstu
myndarinnar. „Hrekkjavaka er sú
mynd sem ég er einatt spurð um
hvar sem ég fer, hvort sem það er á
Ítalíu eða í Bretlandi. Fólk stoppar
mig í verslunarklösum og spyr mig
út í Hrekkjavöku. Ég hef ekki feng-
MICHAEL Meyer hefur fleiri líf
en kötturinn, eins mörg reynd-
ar og kvikmyndagerðarmenn-
irnir óska.
HEFUR náð sór £ stærra vopn £
nýju myndinni og ræðst gegn
óvini s£num.
ið betra hlutverk um ævina nema
þegar ég lék í Sönnum lygum.“
Miramax, eða deild innan þess
fyrirtækis, Dimension Films, á rétt-
inn til þess að kvikmynda Hrekkja-
vöku og gerði einmitt mynd númer
sex árið 1994. Fyrirtækið var reiðu-
búið að gera sjöundu myndina sér-
staklega vegna þess að „Scream"
hafði gengið svo vel en það var snú-
ið mál að fá John Carpenter til þess
að leikstýra á ný. Hann átti fund
með Bob Weinstein, stjórnarfor-
manni Miramax, þótt, eins og hann
segir sjálfur, „mér hafi fundist varla
hægt að tutla meira útúr sögunni".
Þegar í ljós kom að Carpenter átti
ekki að fá greidd full laun sem leik-
stjóri, fannst honum ekki taka því
að eyða tíma í nýja Hrekkjavöku-
mynd. „Verði þeim að góðu og guð
blessi þá, hugsaði ég með mér.“
Steve Miner heitir leikstjórinn
sem fenginn var til verksins en
hann er ekki ókunnugur unglinga-
hrollvekjunum því hann framleiddi
og leikstýrði myndum í Föstudegin-
um 13da seríunni. Hann segir sjálf-
ur að best hefði verið ef Carpenter
hefði gert nýju Hrekkjavökumynd-
ina. „Hans útgáfa hefði sjálfsagt
orðið betri, í alvöru,“ hefur skemmt-
anatímaritið eftir honum. „Fyrsta
myndin var frábær og þegar við
gerðum íyrstu Föstudagsmyndina
stálum við einfaldlega Hrekkja-
vöku.“
Hrollvekjumæðgurnar
Curtis og Leigh
Miramax leitaði til Kevin Willi-
amson, er ber ábyrgð á endurvökt-
um áhuga á unglingahrollvekjunni
sem einn af höfundum „Scream“, og
bað hann að gera handritið að
Hrekkjavöku. Hann hafnaði því en
samdi söguna, sem aðrir tveir hand-
ritshöfundar gerðu kvikmynda-
handritið uppúr. Reyndar segir
Curtis að Williamson eigi ekki síður
í handritinu en þeir tveir, sem
fengnir voru til þess að skrifa það.
Janet Leigh, móðir Jamie Lee
Curtis, fer með hlutverk einkaritara
dóttur sinnar í myndinni en Leigh á
sjálf sinn þátt í einhverju frægasta
hrollvekjuatriði sögunnar. Það var
hún sem lét lífið undir stjórn Alfred
Hitchcocks í sturtu Batesmótelsins í
myndinni Geggjun eða „Psycho",
sem vill svo til að er verið að endur-
gera undir stjórn Gus Van Sant.
Þær mæðgur hafa leikið saman áð-
ur í hryllingsmynd því Leigh fór
með hlutverk í Þokunni.
Curtis mun hafa krafist þess að fá
sín „Sigourney Weaver atriði“ í
nýju myndina, eins og Williamson
kallar það. Hún hefur ófá tækifæri
til að sleppa undan Michael Meyer
en það nægir henni ekki eftir tutt-
ugu ára blóðuga baráttu. „Það varð
að koma það andartak í myndinni
þar sem ég get sloppið en svo renn-
ur upp fyrir mér að eina leiðin fyrir
mig að losna við Michael Meyer úr
lífi mínu er að ráðast að honum og
beijast við hann upp á líf og dauða,“
er haft eftir Curtis. Eins og unn-
endur unglingahrollvekjunnar vita
er dauðinn bara tæknibrella svo það
skiptir ekki máli hvort henni tekst
að drepa ódáminn eða ekki, kvik-
myndagerðarmennirnir munu lífga
hann við ef þeir þurfa á honum að
halda í framtíðinni.
„Ég býst við að þema myndarinn-
ar sé það að draugar fortíðarinnar
munu alltaf fylgja þér nema þú tak-
ist á við þá og sendir til andskot-
ans,“ er haft eftir leikstjóranum
Miner. „Ef þessi mynd er um eitt-
hvað þá er það þetta. En auðvitað
er hún ekki um annað en að hræða
líftóruna úr áhorfendum."
JOHN Travolta £ Carrie.
SHARON Stone f Banvænni blessun.
Bldði drifín spor
íhrollvekjum
-. >.
í TILEFNI af því að Jamie Lee Curtis leikur
i nýrri hryllingsmynd „Halloween: H20“ 20
árum eftir að hún lék í fyrstu Halloween-
myndinni kannaði bandaríska vikublaðið
People hvaða frægu leikarar í Hollywood
stigu sín fyrstu blóði drifnu spor í landi Kru-
egers og Carrie.
Jennifer Aniston lék í hrollvekjunni
/^íprechaun eða Búálfinum. Þar fór hún með
hlutverk Tori, snobbaðrar unglingsstúlku í
Beverly Hills. Eitt af óhugnanlegum atriðum
myndarinnar er þegar búálfurinn hryllilegi
stingur ólánsaman vesaling til dauða með
„pogo“-stöng. Aniston lifir af með því að reita
fjögurra laufa smára sem verður til þess að
ólánsami búálfurinn bráðnar.
Johnny Depp var strákslegur í fyrstu
„Martröðinni á Élm-stræti“ sem gerð var árið
1984. Þar lék hann unnusta aðalsöguhetjunn-
ar og þegar hann var varaður við því að
Freddy Krueger væri á hælum hans sagði
hann: „Af hverju ætti nokkur að vilja drepa
MEG Ryan £ Amityville 3-D.
mig?“ Honum auðnaðist ekki að fá svar við
spurningunni áður en hann var étinn af rúm-
inu sínu.
John Travolta lék unnusta stúlkunnar sem
lagði Carrie í einelti í samnefndri mynd árið
1976. Hann fékk nú ekki prik í kladdann þeg-
ar hann slátraði svíni og hellti síðar svíns-
blóðinu yfir Carrie á lokaballi skólans. En
hann fékk makleg málagjöld þegar Carrie
beitti hugarorku sinni til þess að valda
bílslysi þar sem hann brann inni ásamt unn-
ustu sinni.
Sharon Stone lék Lönu sem er ofsótt í
svefni af illum anda sem „segir nafnið mitt
eins og elskhugi“. Það er voðalega óhugnan-
legt þegar hún ætlar að hella mjólk í mynd-
inni en blóð vætlar úr fernunni. Hún lifir af en
vinur hennar sogast inn í gólfið af illum anda.
Meg Ryan er vandræðagepill í myndinni
Amityville 3-D frá árinu 1983. Hún heldur
miðilsfund í húsi í Amityville og spyr: „Er ein-
hver í þessu herbergi í hættu?“ Rödd svarar:
„Já“. Hún lifir af en Susan, vinkona hennar,
drukknar.