Morgunblaðið - 26.08.1998, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 26.08.1998, Blaðsíða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 26. ÁGÚST 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Betri horfur í rekstri Seaflower White Fish Corporation í Namibíu IS og fleiri íslenzkir fjárfestar auka hlut sinn UMSKIPTI hafa orðið á undan- förnum mánuðum í rekstri sjávar- útvegsfyrirtækisins Seaflower White Fish Corporation í Lúderitz í Namibíu. Nú stefnir í að hagnað- ur fyrirtækisins verði um 150 millj- ónir íslenzkra króna (14 milljónir Namibíudollara) á yfirstandandi fjárhagsári eftir taprekstur undan- farinna ára, að sögn Sylvesters Black, forstjóra fyrirtækisins. Islenzkar sjávarafurðir, sem eiga tæplega 22% í fyrirtækinu, hyggjast ásamt fleiri íslenzkum fjárfestum taka þátt í hlutafjár- aukningu Seaflower þannig að ís- lenzki hluturinn verði á bilinu 40- 45%. Þá er stefnt að því að Sea- flower og eignarhaldsfélag namibíska ríkisins, Fishcor, sem á meirihlutann í félaginu, fari á al- mennan hlutabréfamarkað í Nam- ibíu á næstunni. Illa hefur göngið í rekstri Sea- flower undanfarin ár, meðal ann- ars vegna slæmrar stöðu fisk- stofna í namibísku lögsögunni. Þá segir Sylvester Black að rekstur- inn hafí ekki verið nægilega vel skipulagður. Endurskipulagning, aukinn kvóti og gengislækkun Á síðasta ári var svo komið að hinir namibísku eigendur vildu hætta rekstri fyrirtækisins. Fyrir níu mánuðum fengu hins vegar Is- lenzkar sjávarafurðir Stefán Þór- arinsson, sem tók þátt í stofnun Seaflower White Fish árið 1993 og situr í stjórn fyrirtækisins fyrir hönd ÍS, aftur að daglegum rekstri þess. Stefán segir að reksturinn hafi nú verið tekinn rækilega í gegn. „Við erum komin í verulega jákvæðan rekstur, er- um búin að laga fyrirtækið allt til á öllum sviðum og höfum á að skipa frábæru starfsfólki, sem skilar frábærum árangri. Útlitið er nú mjög bjart,“ segir Stefán. Auk endurskipulagningar rekstrarins hefur komið Sea- flower til góða að fiskistofnar við Namibíu eru nú að ná sér á nýjan leik og voru veiðiheimildir fyrir árið í ár hækkaðar eftir mikinn niðurskurð á síðustu árum. Jafn- framt hefur gengi Namibíudoll- ars, sem fylgir gengi suður- afríska randsins, lækkað veru- lega. Hlutur íslenzkra íjárfesta verði 40-45% Stefán segir að þáttur í endur- skipulagningu fyrirtækisins sé að auka hlutafé úr 30 milljónum Namibíudollara í 50, eða úr um 345 milljónum króna í um 570. „Inn í þetta kemur aukið hlutafé frá íslehzkum aðilum, fyrst og fremst frá dótturfyrirtæki Is- lenzkra sjávarafurða, Isöldu, en einnig frá Vinnslustöðinni í Vest- mannaeyjum og fleiri aðilum, sem koma inn í ísöldu,“ segir Stefán. Þá segir hann að vonazt sé eftir hlutafjárframlagi Nýsköpunar- sjóðs. „Það er miðað við að ís- lenzki eignarhlutinn verði 40-45%, eftir því hvernig framvindan verð- ur,“ segir Stefán. Stefán segir að Islenzkar sjáv- arafurðir hafi aldrei misst trúna á rekstri Seaflower, en keppinautar í útgerð í sunnanverðri Áfríku hafi setið um að ná fyrirtækinu, færi svo að rekstri þess í núverandi formi yrði hætt. Nefnir hann þar suður-afrísk, ítölsk, bandarísk og spænsk fyrirtæki. Islandsflug metur kosti Húsavíkurflugs Stefnt að ákvörðun í vikulok FORSVARSMENN íslandsflugs vinna að því þessa dagana að meta kosti og gallá þess að taka upp áætlunarflug til Húsavíkur og að sögn Ómars Benediktssonar, fram- kvæmdastjóra íslandsflugs, er stefnt að því að taka ákvörðun á fimmtudag eða föstudag. Flugfélag Islands hefur hingað til verið með áætlunarferðir til Húsavíkur en forystumenn flugfélagsins hafa ákveðið að hætta flugi þangað 1. september nk. „Við erum að skoða málin og at- huga hvaða flugtíma við eigum lausa, því við vorum búin að ákveða vetraráætlun,“ sagði Ómar m.a. í samtali við Morgunblaðið í gær og benti jafnframt á að fyrirvarinn væri stuttur. Verið væri að setja dæmið upp og meta það hvort Húsavíkurflug væri raunhæfur kostur fyrir félagið. Morgunblaðið/Einar Falur SCAfUIA Frá Gæsa- vötnum til Kópaskers ÞAÐ er vandasamt verk að flytja fjallaskála í heilu lagi milli lands- hluta. Sérstaklega þegar fara þarf um grýtta vegi hálendisins og mjóar brýr. Verið var að flytja gamla Gæsavatnaskálann til Kópaskers um helgina þar sem hann mun „hafa vetursetu" að sögn flutningsmanna. Næsta sumar verður honum svo fundinn nýr staður og þá þarf væntan- lega að flytja hann aftur. Á myndinni er verið að flytja skál- ann yfir ána Kreppu skammt frá Herðubreið. Bílvelta í Kjálka- fírði TVEIR útlendingar sluppu nær ómeiddir eftir að bíll þeirra valt á þjóðveginum við Kjálkafjörð í Barðastrandar- sýslu um hádegisbilið í gær. Var þar einkum lausamöl um að kenna og sagði lögregl- an á Patreksfirði að þakka hefði mátt bílbeltanotkun að ekki hefðu orðið slys á mönn- unum. Bíllinn, sem var bíla- leigubíll, er hins vegar talinn ónýtur. fslenska söngkonan Alda í 7. sæti breska listans Skaut Spice Girls ref fyrir rass ÍSLENSKA söngkonan Alda Björk Ólafsdóttir stökk beint í 7. sæti breska vinsældalistans með lagið „Real Good Time“ og skaust þar með upp fyrir hinar góðkunnu Spice Girls, sem eru í 8. sætinu með lagið „Viva For- ever“. Smáskífan „Real Good Time“ kom út á mánudaginn í síðustu viku og er lagið eftir Öldu sjálfa. Hún kvaðst hafa stefnt að þessu í mörg ár en þegar takmarkinu væri loksins náð væri ekki laust við að henni væri svolítið brugðið. „Sérstak- lega að fara svona hátt á listann því það er ekkert smá erfitt að vera nýr listamaður að gefa út lag í fyrsta sinn í þessu stóra landi,“ segir Alda Björk Ólafs- dóttir í samtali við Morgunblað- ið. „Eg er eina manneskjan sem er á topp 40, held ég, sem er að gefa út sitt fyrsta lag. Hinir eru allir þekktir listamenn svo ég er hæstánægð með að fara beint í 7. sætið,“ segir Alda. Kemur fram í „Top of the Pops“ Alda er um þessar mundir á tónleikaferð um sunnanvert Bretland að kynna lagið. Tón- leikaferðin er á vegum útvarps- stöðvarinnar Radio One og taka fjölmargir aðrir tónlistarmenn þátt í henni. Allir tónleikarnir eru haldnir úti, aðgangur er ókeypis og mæta milli 15 og 20 þúsund manns á hveija þeirra. Á föstudag kemur Alda fram í sjónvarpsþættinum „Top of the Pops“ sem er einn vinsælasti tónlistarþáttur í Bretlandi og margir helstu tónlistarmenn hafa komið fram í. Þátturinn getur gefið Öldu færi á að hækka sig um sæti á listanum. „Þetta verður mjög erfið vika því stórstjörnur eins og Ma- donna og Robbie Williams eru að gefa út plötur og veita mikla samkeppni. Við bara vonum það besta og þótt lagið fari nið- ur á við er ég hamingjusöm með að fyrsta lagið mitt hafi náð svo hátt.“ Önnur smáskifa Öldu kemur út í byijun nóvember og breið- skífa hennar tveimur til þremur vikum síðar. Alda og eiginmað- ur hennar, Malcolm Mehyer, semja öll lögin á breiðskífunni nema eitt, en það er endur- hljóðblöndun af gömlu Maxi Priest-lagi. Alda hefur búið í Bretlandi í rnu ár, en söng áður með Stjórninni og Sverri Stormsker hér á Islandi. í níu ár hefur hún unnið hörðum höndum að þvi að verða fræg. „Þetta hefur verið rosaleg vinna og stundum mjög erfitt, en ég hef aldrei gefið upp vonina og nú held ég ALDA Björk Ólafsdóttir bara að draumurinn sé að ræt- ast. Eg er til dæmis núna ein- hvers staðar uppi í sveit í Bretlandi og ég get ekki labb- að úti á götu án þess að fólk þekki mig og komi og fái eig- inhandaráritun. Það er líka mjög skrítið að hafa 20 þúsund manns öskrandi Alda, Alda og syngjandi hvert einasta orð með í laginu! Ég er búin að reyna að verða heimsfræg í mörg ár og maður hefur heyrt hvernig það er, að maður geti ekki gengið um því allir þekki mann og svoleiðis. Samt er ekkert sem getur búið mann undir þetta, því þegar þetta kemur fyrir mann sjálfan er það undarleg tilfínning,“ segir Alda að lokum, og lítur fram- tíðina björtum augum. I ðtoUR 4 SÍHtJft 4SÉ ► Verið fjallar meðal annars í dag um lélega grásleppuvertíð og minnkandi veiði á úthafsrækju. Þá er í Verinu kvóti allra aflamarksskipa og báta á komandi fiskveiðiári. VIÐ BJÓÐUM TIL LITALEIKS Arnar í liðinu gegn Frökkum Gunnleifur heldur hreinu Hermann kom Palace áfram I I i I 1 I í í I I f i [ [ í ! i i i .

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.