Morgunblaðið - 26.08.1998, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVTKUDAGUR 26. ÁGÚST 1998 9
FRÉTTIR
Fimm fjallgöngugarpar ætla að klífa Ama Dablam
Ama Dablam
AMA Dablam er þekkt fyrir
snarbrattar hlíðar og mikilfeng-
lega ásýnd. Það þykir erfítt upp-
göngu og munu leiðangursmenn
fara eftir SV-hryggnum en sú
leið er talin einna öruggust.
Morgunblaðið/Kristján Maack
í LEIÐANGRINUM, sem hyggst halda á fjallið Ama Dablam í haust,
eru finun manns auk tveggja aðstoðarmanna. Hér sjást þeir á Gígjökli.
Þeir eru (f.v.) Júlíus Gunnarsson, Pálmi Másson, Örvar Atli Þorgeirs-
son, Valgarður Sæmundsson, Símon Halldórsson, Sveinn Þór Þorkels-
son og Árni Eðvaldsson.
Ægifagurt og erfítt uppgöngu
FIMM félagar úr Björgunarsveit
Fiskakletts í Hafnarfirði ráðgera
að halda til Nepal í lok september
til að klífa eitt stórfenglegasta fjall
í heimi, Ama Dablam, sem er 6.856
metra hátt. Það er í um 15 kíló-
metra fjarlægð frá Mount Everest,
hæsta flalli heims, og er þekkt fyr-
ir snarbrattar hlíðar og mikilfeng-
lega ásýnd. Leiðangursmennirnir
fimm eru þeir Árni Eðvaldsson, 34
ára, Júlíus Þór Gunnarsson, 23
ára, Simon Halldórsson, 23 ára,
Valgarður Sæmundsson, 27 ára,
og Örvar Atli Þorgeirsson, 23 ára,
en allir eru þeir reyndir björgun-
arsveita- og fjallgöngumenn auk
þess að vera félagar í Islenska
Alpaklúbbnum.
Lóðrétt klettahöft
Lagt verður af stað frá Islandi
til Kathmandu 24. september með
millilendingu i London en frá Kat-
hmandu er flogið til Lukla þaðan
sem gangan hefst. Ráðgert er að
komið verði í grunnbúðir sem eru í
5.000 metra hæð fimm dögum síð-
ar en áætlað er að sjálf gangan á
tindinn taki 16 daga og þarf hóp-
urinn að kljást við lóðrétt kletta-
höft, brattar ísbrekkur og egg-
hvassa hryggi. Áætluð heimkoma
er í byijun nóvember.
Auk fímmenninganna eru tveir
íslenskir aðstoðarmenn, þeir
Sveinn Þór Þorsteinsson og Pálmi
Másson, en þeir munu fylgja hópn-
um að grunnbúðum. Þá verður
með í för breskur leiðangursstjóri,
Nick Keukus, sem jafnframt hefur
aðstoðað við skipulagningu ferðar-
innar.
Ama Dablam var fyrst klifíð ár-
ið 1961 af leiðangri undir stjórn
Sir Edmunds Hillarys sem átta
árum áður hafði verið meðal
fyrstu manna til að klífa Mount
Everest. Það er í austurhluta
fjallgarðsins en farið verður eftir
SV-hryggnum sem þykir örugg
leið gagnvart snjóflóðum og
grjóthruni.
Ferðin er styrkt af Landssíman-
um og 66°N.
Silkipeysurnar
komnar
Margir litir
tískuverslun
Rauðarárstíg 1, sími 561 5077
ÚRVALIÐ AF HAUSTVÖRUM
kefur alárei verið meira.
Dragtir, stakir jakkar, kuxur,
peysur, Lolir, skyrtur.
St. 38-58
Eddufelli 2,
sími 557 1730
Alltaf sama
góöa veröiö
nyjum
uörum
M0XX
Laugavegi 28
BPRTT
Vorum að fá sendingu af þessum léttu og þægilegu skóm (TEAM)
í stærðum 36-46. Brúnt rúskinn og hæfilega grófur sóli,
verð aðeins 3.990- Tilvaldir í skólann, vinnuna eða til útivistar.
SENDUM UM ALLT LAND
Grandagarði 2, Rvík, simi 552-8855. Opið virka daga 8-18 og laugaidaga 10-14.
Góöíi* skór
Leitin að réttu eigninni
hefst hjá okkur
Vettvangur fólks ! fasteignaleit
vS' -
.mbl.is/fasteignir
Eyddu í sparnað!
Hehnmsbókhald 1998
.”■**" I n<ív';1.ms X
Það þarf aðerns eitt simtal
til að byrja að spara reglulega
með spariskírteinum
ríkissióðs.
LANASYSLA RIKISINS
Hverfisgata 6, 2. hæð, sími 562 6040
Veffang: www.lanasysla.is Netfang: lanasyslan@lanasyslan.is
562 6040 800 6699