Morgunblaðið - 26.08.1998, Síða 14
14 MIÐVIKUDAGUR 26. ÁGÚST 1998
MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
Morgunblaðið/Gunnlaugur Ámason
TVEIR ungir og áhugasamir drengir við störf hjá Skógræktar-
félagi Stykkishólms. Það eru þeir Orri Arason og Elís Trausta-
son sem eru að tína lúpínufræ sem verður síðan sáð í ófijósama
jörð í skógræktarlöndunum.
TRAUSTI Tryggvason forystumaður í ■
skógræktarmálum Hólmara fyrir fram-
an skúr skógræktarmanna. Á skiltun-
um á skúrnum kemur fram að félagið
var stofnað 1947.
Öflugt starf hjá Skógrækt-
arfélag’i Stykkishólms
Stykkishólmi.
MIKIL starfsemi hefur verið í
sumar hjá Skógræktarfélagi
Stykkishólms.
Trausti Tryggvason er formaður
félagsins og hefur haft umsjón með
starfseminni. Hann tók við því starfi
í fyrra af Sigurði Ágústssyni frá Vík.
Skógræktarfélagið hefur umsjón
með 4 skógarsvæðum í nágrenni
Stykkishólms. í Helgafellssveit eru
Sauraskógur, Vatnsdalur og Tíðás
og svo Grensás í landi Styktóshólms
og samtals eru þetta 156 ha. I sumar
hefur mest verið unnið við skógar-
svæðið í Grensás. I vor afhenti
Stykkishólmsbær skógræktarfélag-
inu 30 ha. lands í framhaldi af því
svæði sem félagið hefur í Grensás.
Þar er ætlunin að planta trjám og út-
búa skemmtilegt útvistarsvæði.
Trausti segir að gott samstarf sé
við Stytódshólmsbæ og það styrtó
mjög starfsemi félagsins. Samstarfíð
er báðum aðilum til góðs. Hluti
vinnuskólans hefur starfað hjá skóg-
ræktarfélaginu og hafa á milli 8 og 20
krakkar starfað þar í sumar. Mesta
vinnan hefur verið að gera skógrækt-
arsvæðið í Grensás sem aðgengileg-
ast fyrir almenning. Búið er að rífa
niður girðingar, útbúa göngustíga og
skógarlundi. Þar er nú aðstaða til að
setjast niðui’, borða nestið sitt og
njóta þess sem skógurinn hefur upp
á að bjóða. Mjög gott aðgengi hefiir
verið gert fyrir fatlaða. Auk Styktós-
hólmsbæjar hefrn’ Vegagerð rítósins
og pokasjóður verslunarinnar styrkt
starf skógræktarfélagins.
Svæðið við Grensás hefur breyst
mitóð og hefur aðstaðan orðið til
þess að ferðamenn sem og Hólmar-
ar leggja leið sína þangað m.a. til að
drekka sitt kaffi. Er skógræktarfé-
lagið á réttri leið í framkvæmdum
sínum. Það er rétt stefna að auð-
velda almenningi aðgang að skóg-
lendi og gera skógræktarsvæðin að
útivistarsvæðum.
Að sögn Trausta hefur verið
mikill trjávöxtur í sumar, en aftur
á móti hefur gengið hægt að gróð-
ursetja vegna þurrka í júní og júlí.
Hæstu trén á skógarsvæðinu í
Grensás eru um 10 metrar, en í
Sauraskógi eru þau orðin mun
hærri eða um 14 metrar.
Vegagerð ríkisins á Húsavík
Nýr rekstrar-
stjóri ráðinn
Húsavík - Nýlega hafa orðið starfs-
mannaskipti hjá Vegagerð ríkisins á
Húsavík. Svavar Jónsson, rekstrar-
stjóri, lætur af störfum eftir 23 ára
starf á Húsvík og tæplega 60 ára
starf hjá Vegagerðinni. Við starfinu
tekur Pálmi Þorsteinsson sem verið
hefur deildartæknifræðingur hjá
Húsavíkurbæ.
Svavar man miklar breytingar og
þróun í vegagerð frá því að hann hóf
starf þar sem hestasveinn 8 ára
gamall og teymdi kerruhesta sem
þá voru algengir í vegagerð. Hann
segir það ólík vinnubrögð að moka
með handskóflu upp í hestakerru og
svo að moka með vélskóflu upp í bíl.
Hann segir að gaman hafi verið að
fylgjast með þeirri þróun sem hafi
orðið frá því að hann hóf störf árið
1939 og allri þeirri byltingu og
framfór sem átt hafi sér stað á hans
langa starfsferli. Einnig að nú geti
hann á skrifstofu sinni, með tilkomu
tölvunnar, fylgst með veðri, vindum
og umferð á fjarlægum heiðum.
Svavar hefur verið vinsæll í starfi
og oft var erilsamt á skrifstofu hans
á vetrum þegar hríðar og ófærð
vildu hefta för.
Björk og Eirikur rauði á leið yfír hafíð
Vísir að kúabú-
skap í Grænlandi
KÚNNI Björk og nautkálfinum
Eiríki rauða var um hádegi á
mánudag skipað um borð í flutn-
ingaskipið Arina Arctic í Sunda-
höfn, en leið þeirra Iiggur til
Qaqortoq á suðurströnd Græn-
lands. Það eru grænlenskir
bændur sem kaupa nautgripina
frá bænum Helluvaði á Rangár-
völlum, en enginn kúabúskapur
hefur verið á Grænlandi síðast-
liðin 30 ár.
Að sögn Ara Ámasonar,
bónda á Helluvaði, hafa í sumar
staðið yfir ítarlegar heilbrigðis-
skoðanir og rannsóknir á öllum
kúnum á bænum til að athuga
hvort gamaveiki fyndist, en að
auki þurfti að taka margs konar
sýni úr Björk og Eiríki til að
kanna hvort aðrir sjúkdómar
greindust, sem ekki hafa fundist
hingað til á íslandi. Gripimir
reyndust í mjög góðu ástandi og
heppilegasti timinn til að flytja
kúna núna, þar sem hún á að
bera í septemberlok.
Vonir eru bundnar við að hún
beri kvígu, þannig að Eiríkur
rauði komi að sem mestu gagni,
en grænlensku b'ændurnir verða
að sjálfsögðu að flytja inn fleiri
gripi ef þeir ætla að fjölga frek-
ar hjá sér í stofninum. Siglingin
til Grænlands tekur þijá daga,
en skipið kemur til Qaqortoq,
sem er um 50 kflómetra frá
Narssarssuaq, á suðurströnd
Grænlands, á fimmtudag. Þaðan
tekur við sigling á minni bát í
um tvo tíma að svokölluðu
Vatnahverfi, en framtíðarheim-
ili gripanna er þar á bæ sem
heitir Timerliit.
Þrjár fjölskyldur búa á bæn-
um Timerliit, tveir bræður með
fjölskyldur sínar og foreldrar
þeirra. Annar bræðranna, Siiku
Motzfeldt, kom til íslands í síð-
ustu viku ásamt konu sinni Else
og tveim dætrum til að kynna
sér kúabúskapinn og læra að
meðhöndla gripina.
Stærstu fjárbændur
á Grænlandi
Búið í Timerliit er stærsta fjárbú
á Grænlandi en bræðurnir eru
með 540 ær og 11 íslensk hross.
Þeim hefur gengið vel með féð
og hafa fengið tæplega tvö lömb
að meðaltali eftir hverja á og
dilkar þeirra vegið um 13-14
kfló. Heyskapur hefur gengið vel
en þeir bræður eru með 26 hekt-
ara tún og hafa þegar tvíslegið
helming þeirra í sumar.
Að sögn Siiku og Else er ætl-
unin að nautgripirnir sjái fjöl-
skyldum þeirra fyrir mjólk og
fleiri afurðum, en nýmjólk hefur
ekki verið á þeirra borðum
hingað til, aðeins G-mjólk frá
Danmörku.
Lærðu að mjólka kúna
Fjöiskyldan kom til íslands sl.
miðvikudag, en Else hefur komið
tvisvar til Islands áður. Siiku var
vinnumaður í sveit á íslandi á
sínum yngri árum og talar
svolitla íslensku. Þau hafa m.a.
dvalið í Gunnarsholti og verið
við mjaltir á Helluvaði, þar sem
þau hafa fengið fræðslu um fóðr-
un, sjúkdóma, burð og beiðsli. Þá
fengu þau leiðsögn á bænum
Næfurholti á Rangárvöllum við
að búa til ijóma, smjör og skyr,
en þau ætla að gemýta þær af-
Morgunblaðið/Aðalheiður Högnadóttir
GRÆNLENSKA fjölskyldan frá Timerliit, Siiku, Else og dæturnar
Asiarpa og Tupaarnaq, í fjósinu á Helluvaði með nautgripunum Björk
og Eiríki rauða, en þau hjónin eru ákaflega þakklát ölluni hér á landi,
sem hafa gert þeim þessa flutninga mögulega.
Morgunblaðið/Golli
HALLDÓR Runólfsson yfirdýralæknir var á hafnarbakkanum þegar
kúnni Björk var skipað um borð í flutningaskip í Sundahöfn.
urðir sem þau geta fengið úr
kúnni. Dætumar, Asiarpa 8 ára
og Tupaarnaq 4 ára, em mjög
ánægðar með að fá nýmjólkina
og sú eldri drakk hana strax
spenvolga í íjósinu á Helluvaði.
Heimilisfólkið í Timerliit bíð-
ur spennt eftir gripunum en for-
eldrar Siiku ólust bæði upp á bæ
þar sem kýr vora og þekkja því
aðeins til handtakanna. Siiku,
Else og dætur þeirra fljúga í
dag, miðvikudag, til Grænlands,
þar sem þau munu taka á móti
Björk og Eiríki rauða og fylgja
þeim alla Ieið heim.
Hyrndar
kýr sjald-
séðar
Neskaupstað. Morgunblaðið.
KYR með horn eru að verða sjald-
séðar, að minnsta kosti hér um
slóðir. Nú á dögunum þegar frétta-
ritari átti leið um Norðfjarðarsveit
rakst hann á tvær slíkar í kúahópi
þeirra feðga Júlíusar Þórðarsonar
og Þórðar Júlíussonar á Skorra-
stað. Plastkúlur hafa verið settar
fremst á horn þeirra svo þær valdi
ektó skaða með hinum fallegu
hornum sínum.
Kýrin Hyrna tók lífinu með
heimspekilegri ró meðan fréttarit-
ari tók af henni myndir og taldi sig
auðsýnilega meðal fegurstu kúa í
Norðfirði og það kannski með
réttu.
Ágúst
KÝRIN Hyrna taldi sig auðsýni-
lega meðal fegustu kúa í Norð-
firði og það kannski með réttu.