Morgunblaðið - 26.08.1998, Blaðsíða 18
18 MIÐVIKUDAGUR 26. ÁGÚST 1998
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Fellibylurinn Bonnie mun skella á Norður-Karólínuríki í dag
Reuters
PÁLMARNIR á sólarströnd Santo Domingo í austanverðu Karíbahafi svignuðu í gær undan vindhviðum
lægðar sem tengist fellibylnum Bonnie.
Hundruð manna neyðast til að flýja heimili sín
Sókn Serba heldur
áfram í Kosovo
Belgrad. Reuters.
Yfir 250.000
manns þurfa
að forða sér
Carolina Beach i N-Karólínu. Reuters.
YFIR 250.000 íbúar eyjanna undan
strönd Norður-Karólínuríkis í
Bandaríkjunum hafa verið beðnir
að yfirgefa heimili sín vegna þeirr-
ar hættu sem talin er steðja að
svæðinu með fellibylnum Bonnie,
en hann nálgaðist ströndina hratt í
gær utan af Atlantshafí.
Bonnie er óvenju stór fellibylur
og álitinn mjög hættulegur. Vind-
hraði í bylnum var í gær um 185
km á klst. Almannavarnir á svæð-
inu hvöttu íbúana til að flýja áður
en vegir yrðu ófærir. Fjöldi fólks
í Outer Banks-eyjaklasanum við
strönd Norður-Karólínu vex í um
250.000 á hásumarleyfístímanum,
og starfsmenn almannavarna
töldu að það tæki um 30 tíma að
koma fólkinu á brott. Fastir íbúar
eyjanna eru um 100.000.
Ef fellibylurinn heldur þeim
hraða sem hann hefur haldið und-
anfama sólarhringa má gera ráð
fyrir að allnokkur fjöldi fólks lendi
í fellibylsvindhviðuin áður en því
hefur gefizt færi á að forða sér.
Talsmenn ferðamálayfirvalda í
N-Karólínu hafa sagt að ef þörf
yrði talin á að forða fólki frá allri
meginlandsströnd ríkisins, gæti
það snert eina til tvær milljónir
manna.
Búizt var við því að fellibyl-
smiðjan yrði komin að Outer
Banks-eyjum snemma í dag. Al-
mannavamastarfsmenn höfðu í
gær mestar áhyggjur af vindhvið-
unum sem á undan gengju, því
þær myndu moka heilu fljóðbylgj-
unum af sjó og regnvatni yfír
byggðina.
I Texas höfðu almannavama-
starfsmenn í gær í nógu að snúast,
eftir að flóð og aurskriður féllu
víða syðst í ríkinu með þeim afleið-
ingum að þijátíu manna er sakn-
að.
Annar fellibylur að myndast
Sérfræðingar Fellibyljarann-
sóknastofu Bandaríkjanna
greindu frá því í gær að nýr felli-
bylur, sem hlotið hefur nafnið
Danielle, væri að myndast úti á
sunnanverðu Atlantshafí, um
1.000 sjómflur austan Karíbahafs-
ins, og mætti búast við því að
hann muni fylgja svipaðri braut
og Bonnie.
SERBNESKAR öryggissveitir
héldu áfram sókn sinni í vesturhluta
Kosovo-héraðs í gær. Hundruð
manna hafa neyðst til að flýja heim-
ili sín undanfarna daga og óttast er
um afdrif þeirra.
Upplýsingamiðstöð Kosovo, sem
tengist stærsta stjórnmálaflokki
Kosovo-Albana, hafði í gær eftir al-
bönskum heimildum að 25 manns
hefðu látið lífið í árásum síðustu
tveggja daga og að margir hefðu
særst. Meðal þeirra látnu voru þrír
albanskir hjálparstarfsmenn.
Fréttaljósmyndarar urðu í gær
vitni að átökum á svæði milli þorp-
anna Komoran og Suva Reka, suð-
vestur af héraðshöfuðborginni
Pristina, og Serbar sögðust hafa
náð nokkrum þorpum í grenndinni á
sitt vald. Fréttamenn sögðu að
þorpin Magura og Leietic, sem féllu
í hendur Serba á mánudag, hefðu
staðið í ljósum logum, og þykkan
reyk lagði einnig frá fleiri stöðum.
Samkvæmt heimildum uppiýsinga-
miðstöðvarinnar hafa þorpsbúar
hundruðum saman reynt að flýja yf--
ir landamærin til Svartfjallalands
síðustu daga.
Vandinn
eykst stöðugt
Talið er að um tíundi hver íbúi
Kosovo-héraðs hafí neyðst til að yf-
irgefa heimili sitt á því hálfa ári sem
átök hafa staðið yfír milli aðskilnað-
arsinnaðra Kosovo-Aibana og
serbneskra öryggissveita.
Eduard Árboieda, háttsettur
embættismaður hjá flóttamanna-
stofnun Sameinuðu þjóðanna, sagði
fréttamönnum að hjálparstarfs-
menn byggju sig undir það versta.
„Við höfum mestar áhyggjur af
þeim sem eru matarlausir og hafa
ekkert húsaskjól, þeim sem hafast
við í fjöllunum“, sagði Arboleda.
„Við reynum að takast á við vand-
ann, en hann eykst stöðugt og okk-
ar framlag hefur ekki mikið að
segja.“
Oryggisráð Sameinuðu þjóðanna
samþykkti á mánudag ályktun, þar
sem skorað er á stríðandi fylkingar
í Kosovo að hætta þegar átökum og
hvatt er til þess að leiðtogar
Kosovo-Albana og stjórnvöld í
Belgrad taki upp beinar samninga-
viðræður um iausn á deilunni.
Lockerbie-tilræðið
Líbýumenn
útiloka ekki
framsal
London. Kaíró. Reuters.
STJÓRNVÖLD í Líbýu hafa alls
ekki útilokað að samþykkja áætlun
Bandaríkjamanna og Breta um að
Líbýumennirnir tveir, sem sakaðir
eru um að hafa staðið á bak við
sprengjutilræðið sem grandaði
bandarískri Boeing-747 farþegaþotu
yfír skoska bænum Lockerbie fyrir
tæpum áratug með þeim afleiðingum
að 270 manns fórust, verði saksóttir í
Haag í Hollandi, að sögn lögfræðings
í Skotlandi sem gætir hagsmuna Lí-
býumannanna. Ættingjar þeirra sem
fórust með flugvélinni segjast hins
vegar litla trú hafa á því að Moamm-
ar Gaddafi, leiðtogi Líbýu, muni
nokkurn tíma framselja mennina og
fréttaskýrendur voru margir hverjir
á sama máli í gær.
-------------
Frakkland
Sakadóms-
rannsókn haf-
in gegn Juppé
París. Reuters.
SAKADÓMSRANNSÓKN hefur nú
verið hafín gegn Alain Juppé, íyrr-
verandi forsætisráðherra Frakk-
lands og náins
samherja Jacques
Chiracs forseta, í
tengslum við spill-
ingarmál úr tíð
Chiracs sem borg-
arstjóra Parísar,
þegar Juppé hafði
umsjón með fjár-
málum borgarinn-
ar og Gaullista-
flokksins RPR
samtímis.
Juppé, sem var forsætisráðherra
1995-1997, er nafntogaðasti stjóm-
málamaðurinn sem dregst inn í
rannsóknina á ásökunum þess efnis,
að valdir menn úr Gaullistaflokkn-
um hefðu þegið rausnarleg laun frá
borginni fyrir störf sem þeir inntu
ekki af hendi, á borgarstjóraárum
Chiracs 1977-1995. Juppé er grun-
aður um að bera ábyrgð á misnotk-
un opinberra fjármuna á þeim tíma
sem hann var fjármálastjóri París-
arborgar 1983-1995. Hann var jafn-
framt framkvæmdastjóri RPR
megnið af þessu tímabili.
Oeirðalögregla
í viðbragðs-
stöðu í Rangoon
Rangoon. Reuters.
ÓEIRÐALÖGREGLA var í gær í
viðbragðsstöðu í Rangoon, höfuð-
borg Burma, eftir að hafa á
mánudag stöðvað mótmæli stúd-
enta, sem kröfðust þess að þing
yrði kallað saman í landinu. Er-
lendir sendimenn í Rangoon
segja að spenna fari vaxandi í
borginni.
Stúdentar í höfuðborginni stóðu
á mánudag fyrir fyrstu opinberu
mótmælunum í Rangoon síðan í
desember 1996, en þá brugðust
stjórnvöld við með því að loka há-
skólunum. Erlendir sendimenn
segja að til ryskinga hafi komið
eftir að óeirðalögregla hafði stöðv-
að friðsamleg mótmæli og tekið
tugi stúdenta höndum. Mótmæl-
endurnir báru að sögn rauða klúta,
eins og í uppreisninni sem stúdent-
ar leiddu árið 1988 og var bæld
niður með hervaldi. Að sögn vitna
gæta nú vopnaðar öryggissveitir
lögreglunnar háskólasvæðisins í
Rangoon.
Sendimenn segja að spenna fari
vaxandi í borginni, en að óljóst sé
hvort mótmælin muni þróast í nýja
uppreisn, því enn sem komið er
hafi einungis stúdentar tekið þátt í
þeim. Talið er að framhaldið muni
ráðast af heilsu Aung San Suu Kyi,
leiðtoga stjómarandstöðunnar í
landinu og friðarverðlaunahafa
Nóbels.
Haft var eftir heimildamanni
innan flokks Suu Kyi að hún væri
nú undir læknishendi og að heilsa
hennar færi batnandi, en hún var
flutt í sjúkrabíl til Rangoon á
mánudag eftir nær tveggja vikna
mótmæladvöl í bíl sínum skammt
utan við borgina.
Kviðdóm-
andi dæmd-
ur í fangelsi
Los Angeles. The Daily Telegraph.
KONA sem sat í kviðdómi í
Vaneouver í Kanada og átti í
kynferðislegu sambandi við
mann sem ákærður var fyrir
morð var á mánudag dæmd í 18
mánaða fangelsi fyrir að hindi-a
réttvísina.
Gillian Guess var ein af 12
kviðdómendum sem taka áttu
afstöðu í máli Peters Gills, sem
grunaður var um aðild að
tveimur morðum. Meðdómend-
ur hennar báru fyrir rétti að
skömmu eftir að réttarhaldið
hófst hefðu tilraunir hennar til
að daðra við hinn ákærða úr
kviðdómendastúkunni orðið öll-
um ljósar. Peter var sýknaður
og þau Gillian héldu áfram sam-
bandi sínu, að sögn saksóknara.
Gillian játaði fúslega að hafa
átt í kynferðislegu sambandi
við hinn ákærða. Hún sagðist
aðeins hafa „fylgt hjartanu" og
vísaði því á bug að hún hefði
gert nokkuð rangt. Dómarinn
var þó ekki á sama máli og lét
þau orð falla að Gillian væri
bæði „sjálfselsk“ og „hræðilega
óábyrg“.
Fjármálaráðherra Danmerkur
Fastheldni við
EMU-skilyrðin
Kaupmannahöfn. Reuters.
MOGENS Lykketoft, fjármálaráð-
herra Danmerkur, sagði í gær að
dönskum ríkisfjármálum myndi
áfram verða haldið í því horfi, að
þau uppfylltu skilyrðin fyrir aðild
landsins að Efnahags- og mynt-
bandalagi Evrópu, EMU, þótt
Danmörk verði ekki meðal stofnað-
ildarríkja þess um næstu áramót.
Aðhaldssöm stjórn ríkisfjármála
myndi tryggja þokkalegan hag-
vöxt, bæta atvinnuástandið og
halda verðbólgu niðri. Ailt þetta
leggist á eitt um að styðja markmið
dönsku stjórnarinnar um að gengi
dönsku krónunnar verði fasttengt
gengi evrósins, hins sameiginlega
Evrópugjaldmiðils.
„Við viljum halda okkur við að-
ildarskilyrði [EMU], þar viljum við
vera í fremstu röð,“ sagði
Lykketoft í samtali við fréttamenn
Reuters-fjármálasjónvarpsins.
EVROPA^
„Við erum núna það ESB-land
sem státar af mestum afgangi á
fjárlögum,“ sagði hann.
Danska stjómin hyggst í viðræð-
um við Evrópska seðlabankann í
haust semja um gengisvikmörk
krónunnar gagnvart evróinu sem á
að verða eins lítil og nálægt fast-
gengi sem mögulegt er. Lykketoft
vildi ekki gefa upp hve breið þessi
vikmörk megi vera, en sagði að
traustur efnahagur og stöðugt
gengi geti orðið til þess að eyða
vaxtamuninum milli Danmerkur og
hinna ellefu stofnríkja EMU.
►
l
!
►
I
&
I
i
I
í
f
I