Morgunblaðið - 26.08.1998, Síða 21

Morgunblaðið - 26.08.1998, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. ÁGÚST 1998 21 LISTIR sá og sigraði Sá á kvölina sem á völina KVIKMYIVDIR S a m b f ó i n HE GOT GAME ★ ★ Leikstjóri og handritshöfundur: Spike Lee. Aðalhlutverk: Denzel Washington, Ray Allen og Milla Jovovich. Touchstone Pictures. 1998. SPIKE Lee hefur alltaf látið í sér heyra og fjallað á gáfulegan hátt og af innsæi um málefni svartra. Það gerir hann einnig í myndinni He Got Game. Körfu- boltinn er ein alvinsælasta íþrótt í heimi, og fylgjast Adidas, Nike og háskólar Bandaríkjanna með ungum og efnilegum körfubolta- mönnum allt frá tíu ára aldri til þess að fá þá til liðs við sig þegar þeir verða stjörnur. Eins og allir vita eru þeir allflestir svertingj- ar. Lee segir okkur söguna af Jesus Shuttlesworth sem er að klára menntaskólann. Nú bítast háskólarnir um hann og Jesus á erfitt með að gera upp hug sinn um hvað skal velja. Þá birtist fað- ir hans sem undanfarin fimm ár hefur dúsað í fangelsi fyrir að drepa móður Jesus. Þannig vill til að fangelsisstjórinn er sérlegur stuðningsmaður háskóla eins og vill fá Jesus þangað. Ef föðurnum tekst að telja soninn á það, fær hann lausn undan dómnum. Spike Lee hefur gert mjög áhrifamiklar myndir sem hafa valdið ýmsum uppþotum. Hann hefur verið mjög beinskeyttur í ádeilu sinni, dramað hefur verið sterkt, húmorinn aldrei langt undan og stíllinn hluti af húmorn- um. Þótt leikstjórinn sé að taka á mjög merku samtíma vandamáli, þá finnst mér hann ekki nota þessa hæfileika sína til hins ýtrasta. Gerð var heimildarmynd í fullri lengd að nafni „Hoop Dr- eams“ sem fjallar um sama efni og er hún mun átakanlegri. Það er eins og hann hafi kastað til hendinni við þessa mynd miðað við það sam hann getur. Denzel Washington sem lék aðalhlutverkin í Mo’ Better Blues og Malcolm X, er aftur mættur til leiks sem faðirinn og skilar sínu frábærlega. Það er gaman að sjá hann í Spike Lee mynd og það er eins og að þar njóti hann sín best. Ray Allen, verðandi körfuboltastjarna, leikur Jesus. Hann stendur sig vel miðað við áhugamann, en maður skynjar ekki kvöl hans um völina og til- vistina nógu vel til að ná fram þeim áhrifum sem þyrfti til að gera myndina sterka og áhrifa- ríka. Milla Jovovich leikur gleði- konu og sýnir að hún er góð leik- kona, þótt hlutverk hennar sé kvikmyndinni ekki nauðsynlegt. Þetta er ágætis mynd og fróð- leg fyrir þá s_em vita lítið um þetta málefni. Eg er þó sannfærð um að vinsældir hennar austan- hafs byggist meira á körfuboltaá- huga og vinsældum Ray Allens en gæðum. Miðað við fyrri mynd- ir sama leikstjóra, þá er myndin ekki meira en tveggja stjarna virði. Hildur Loftsdóttir Háskólafyrirlestur Kom, TOIVLIST JVorræna luísló SVEND ASMUSSEN- KVARTETTINN Svend Asmussen fiðla, Jakob Fischer gítar, Jesper Lundgaard bassi og Aa- ge Tanggaard trommur. Norræna húsinu, laugardaginn 22. ágúst. í ÞRIÐJA sinni heimsækir fiðlu- meistari djassins okkur með besta kvartetti sem hann hefur stjórnað. Hann lék á RúRek 1993, hjá Jazzvakningu og á Jazzhátíð Egils- staða í fyrra og nú er hann afmælis- gjöf danskra stjórnvalda á þrjátíu ára aftnæli Norræna hússins. Auk þess heldur hann tónleika á Akur- eyri og _í Bolungarvík. „Við viljum upplifa Island sem best við getum,“ segja þeir félagar, en þegar Svend var hér um hvítasunnu 1993 kom hann í Skaftafell ásamt konu sinni og þeir töfrar hafa lifað með þeim síðan. Það var að sjalfsögðu troðfullt í Norræna húsinu á laugardagskvöld- ið. Svend hefur, ásamt Niels-Henn- ing, verið einhver vinsælasti djass- leikari hérlendis og margir hafa heyrt hann á árum áður, en meistar- inn er 82 ára gamall og hefur leikið á fiðluna í sjötíu ár. Kannski er einn galdurinn við að halda sér ungum að hafa unga menn sér við hlið. Það gerði Art Blakey með góðum árangri. Aage Tangaard trommari hefur leikið lengst þeirra félaga með Svend. Hann kom íyrst til Islands með rafsveit píanistans Thomasar Clausens og var trommari hans á frægii tríóskífu þar sem Niels-Henning sló bassann; Shadow of Bill Evans. Hann er ein- stakur trommari, næmur á öll stll- brigði tónlistarinnar. Vandamál trommara, eins og píanista, er að hljóðfærið ferðast þeir ekki með, yf- ix-vigtin kostar sitt. Það hýrnaði yfir Aage er hann sá settið sem hann fékk í Nori-æna húsinu, Sónorinn hans Sigurðar Þóraiánssonar frá Vestmannaeyjum, enda var spila- mennska hans með slíkum sóma að einstakt má telja. Jesper Lundgaard er bassaleikari á heimsmælikvarða. Að Niels-Henn- ing frátöldum nær enginn danskur bassaleikai'i snilli hans. Hvort sem hann leikur með öðrum éða stjórnar eigin hljómsveitum er allt hans verk unnið af slíkum sóma að unun er á að hlýða. Unglingurinn í sveitinni, sá þrítugi Jakob Fischer, er kominn í hóp helstu gítax-leikara evrópsks djass. Hann, einn manna, hefur fengið þrennu í dönsku djassverð- launaveitingunum; Ben Webster- verðlaunin, JASA-verðlaunin og Pællebars-verðlaunin. Það kemur engum á óvart sem fylgst hefur með leik hans undanfarin ár. Hann hefur hljóðritað með Birni Thoroddsen á Jazz guitars og í þessari Islandsferð hljóðritaði hann með Tómasi R. Ein- arssyni, en sú skífa mun líta dagsins ljós er daginn styttir. Og tónleikarnix- - gleði íyrir eyra jafnt sem auga. Svend er makalaus. Efnisskráin er byggð upp á klassísk- um djassverkum. Upphafið var Gershwinlagið sem flestir hafa not- að hljómana úr til að semja eigið lag; I Got Rhythm, og svo kom rútubíla- söngui’inn Bye, Bye Blackbird í listi- lega listrænni túlkun, þó svo alþýð- legur að engum gat blandast hugur um sameiningu hins hæsta í tónlist við alþýðlega hugsun a la Sigurður Breiðfjörð. Ellington átti sín snilld- arverk á efnisski'ánni: Prelude to a Kiss og The Mooche og Hoagy Carmichel líka; Star Dust og Lazy River. Jakob lék Tea For Two í nýrri útgáfu og hef ég aldrei heyrt þá túlkun áður þótt ég hafi verið á tugum tónleika þar sem hann hefur spilað - svo vai’ samban hans, Latino, á efnisskránni, lífleg að vanda. Jesper fékk að spreyta sig á sænska þjóðlaginu Den första gáng jag ság dig og var all-hennískur í túlkun sinni. Lag Lumbyes; Col- umbine Polka Marsurka, var eins og nafnið gefur til kynna ekki það sveifluvænasta í heimi en þegar meistaravei'k Iivings Bei'lins, Blue Skies, var leikið lá við að þakið lyft- ist af meistaraverki Alvars Aaltos. Það er með ólíkindum að jafn ungir menn og skipa hiynsveit Svends Asmussens - og evi’ópskir þar að auki - skuli ná slíku valdi á göldrum sveiflunnar - það hefði Basie líkað enda lék hann ætíð með einum Dana þá tækifæi-i gafst - Niels-Henning. Það var við hæfi að Svend minnt- ist félaga síns um áratugaskeið á tónleikunum. Stephane Grappelli lést í fyrra og honum tileinkaði Svend undurfagra túlkun sína á verki Eubins Blakes: Memories of You. Magnaðir tónleikar mikilla lista- manna í troðfullu Nori'æna húsinu gefa vonandi fyrirheit um að al- menningur gefi gaum að hinni miklu menningarstarfsemi er þarna fer fram. Það þarf vonandi ekki snill- inga á borð við Niels-Henning, er fyllti húsið í þiigang 1977, og Svend Ásmussen til að menn streymi á vit bræðramenningarinnar. Vernharður Linnet ÍTALSKI heimspekingurinn Gianni Vattimo flytur opinberan fyrirlestur á vegum heimspekideildar og Sumarskóla Háskóla Islands í stofu 101 í Lögbergi fimmtudaginn 27. ágúst kl. 17.15. Fyrirlesturinn nefn- ist Verufræði líðandi stundar (Ontologia dell attualitÁ) og verður hann fluttur á ensku. Gianni Vattimo er prófessor í heimspeki við háskólann í Tórínó, sérfróður um þýska 19. og 20. aldar heimspeki, einkum Nietzsche, Heidegger og Gadamer, og hefur skrifað um þá bækur og túlkað verk þeirra út frá okkar samtíma. Vattimo kemur hingað til lands til að taka þátt í alþjóðlegu námskeiði um myndlist, sem haldið er á vegum Sumarháskólans og Seminar on Art. r FRÁBÆRT ÚRVAL F ATASKÁPUR KOr^MOOA 4*2 [kr. 38.200,-1 |kr. 18.200,0,

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.