Morgunblaðið - 26.08.1998, Page 32

Morgunblaðið - 26.08.1998, Page 32
. 32 MIÐVIKUDAGUR 26. ÁGÚST 1998 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR OLAFUR ODDGEIRSSON + Ólafur Harald- ur Oddgeirsson fæddist í Vest- mannaeyjum 30. mars 1929. Hann lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur hinn 12. ágúst síðastlið- inn. Foreldrar hans voru hjónin Odd- geir Hjartarson, f. 15.6. 1902 í Eystri- Kirkjubæ í Rangár- vallahreppi í Rang- árvallasýslu, _ d. 11.8. 1959, og Ásta Sigríður Ólafsdótt- ir, f. 8.9. 1904 á Sauðárkróki, d. 13.12. 1985. Systur Ólafs eru Guðbjörg, f. 8.12. 1927, Lilja Goðmunda, f. 3.6. 1931, d. 25.10. 1997, og Hjördís, f. 5.7. 1932, d. 22.3. 1994. Hinn 31. október 1953 kvæntist Ólafur eftirlifandi eiginkonu sinni, Rögnu Lísu Eyvindsdótt- ur frá Siglufírði, f. 6.3. 1934. Hún er dóttir hjónanna Eyvind- ar Nikodemusar Júliussonar, f. 3.8. 1898 á Gaul í Staðarsveit á Snæfellsnesi, d. 27.12. 1986, og konu hans Katrínar Sigríðar Jósepsdóttur, f. 27.3. 1891 á Stóru-Reykjum í Fljótum í Skagafírði, d. 21.5. 1957. Börn Ólafs og Rögnu eru: 1) Eyvind- ur, f.^ 25.12. 1952, börn hans eru: Ólafur Ragnar og Guðrún Lísa, unnusta Olafs Ragnars er Arna Ketilsdóttir og eiga þau eina dóttur, maki Eyvindar er Elsku pabbi minn. Margs er að minnast er maður sest niður með penna í hönd. Oft var sprellað heima hjá ykkur mömmu í Vest- mannaeyjum. Þú varst snillingur í öllum örnefnum frá Eyjum, og oft hlóstu dátt þegar ég glopraði út úr mér einhverju vitlausu örnefni. Þegar þú sagðir mér sögur frá Eyjum um margt sem var brallað þar á þínum unglingsárum, þá hló ég dátt. Þú varst algjör fróðleiks- brunnur um Vestmannaeyjar. Aft- ur komstu mér til að minnast þín, þegar ég fór ungur að heiman út í hinn stóra heim. Alltaf varst þú til staðar eins og Eyjaklettur. Seinni árin varst þú eins og eðalvínin, betri og betri með hverju ári. > Elsku pabbi, hafðu hjartans þökk fyrir alla þína ást og um- hyggjuna sem þú barst fyrir mér og systkinum mínum. Við gleymum þér aldrei. Hittumst hressir þótt síðar verði. Þinn sonur, Eyvindur. Kærleikurinn er langlyndur, hann er góðviljaður. Kærleikurinn öfundar ekki. Kærleikurinn er ekki raupsamur, hreykir sér ekki upp, hann hegðar sér ekki ósæmilega, Sigríður Ragnheið- ur Jónsdóttir, börn hennar eru: Hildur, Árni, Sigrún Inga og Gunnar Ingi. 2) Hjörtur, f. 18.8. 1955, kvæntur Gunni Ingu Einars- dóttur, börn þeirra eru Einar Már, Oddgeir og Fríða Sóley. 3) Hlynur, f. 12.8. 1956, kvæntur Þórdísi Magnús- dóttur, börn þeirra eru Hans Róbert og Aníta Björk. 4) Asta Katrín, f. 25.12. 1958, gift Jóhannesi Guðmundssyni, börn þeirra eru Rósa Konný og Dan- íel Örn. 5) Lilja Björk, f. 19.8. 1962, gift Óskari Óskarssyni, börn þeirra eru Telma Yr, Karen Lena og Aron Birkir. 6) Elva Ósk; f. 24.8. 1964, maki Andri Örn Clausen, börn þeirra eru Agnes Björt og Benedikt. Ólafur var rafvirkjameistari og starfaði sem slíkur í áratugi í Vestmannaeyjum og síðar í Reykjavík. Hann sat oft í próf- nefndum og sem formaður prófnefnda. Einnig var hann meistari nokkurra nema í raf- virkjun. Síðustu árin starfaði hann hjá Prentsmiðjunni Odda hf. Útför Ólafs fer fram frá Foss- vogskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 13.30. leitar ekki síns eigin, hann reiðist ekki, er ekki langrækinn. Hann gleðst ekki yfír óréttvísinni, en samgleðst sannleikanum. Hann breiðir yfír allt, trúir öllu, vonar allt, umber allt. Kærleikurinn fell- ur aldrei úr gildi. (1. Kor. 13,4-8.) Elsku Óli minn. Kærleikur var það fyrsta sem ég kynntist í fari þínu gagnvart mér og mínum börn- um. Þar bar aldrei skugga á. Hafðu hjartans þökk fyrir það. Sofðu rótt, elsku vinur. Guð geymi þig í hendi sinni. Þín Sigríður Ragnheiður. Hann elsku afí okkar er dáinn. Við, barnabömin hans Óla afa, vilj- um kveðja hann með örfáum orð- um. Alltaf munum við minnast þess þegar Óli afi var eitthvað að brasa úti í bílskúr, laga bilaða þvottavél, gera við mótora eða eitthvað álíka, hvort heldur sem var á Heiðarveg- inum í Vestmannaeyjum eða í Fellsmúlanum í Reykjavík. Við átt- um það til að koma stormandi inn til hans með tilheyrandi látum og ærslum og trufla hann við vinnuna. En það var sama hvað afí var að gera, alltaf brosti hann og gaf sér tíma til að spjalla við okkur. Oft 0 ÚTFARARÞJÓNUSTAN EHF. Stofnað 1990 Persónuleg þjónusta Sími: 567 9110 & 893 8638 www.utfarir.is utfarir@itn.is Rúnar Geirmundsson Sigurður Rúnarsson útfararstjóri , ,útfararstjóri Upplýsingar í símum s 562 7575 & 5050 925 1 HöTEL IOFTLEIÐÍR » e * i 'á m o> * » * ••>(!> Glæsileg kaffihlaðborð FALLEGIR SALIR OG MJÖG GÓÐ ÞJÓNUSTA i þurftum við að leita ráða hjá full- orðnum í sambandi við eitthvað sem okkur lá á hjarta. Var þá ekki svo sjaldan sagt við okkur: „Talið við hann Óla afa, hann getur kannski hjálpað ykkur.“ Og aldrei komum við að tómum kofunum hjá afa, hann var fljótur að leysa vandamál okkar. Öll minnumst við þess hversu gott það var að koma til afa og fá hjá honum huggun þegar við höfðum meitt okkur. Að fá koss á sárið, klapp á kollinn og skríða svo í fangið til hans gat læknað öll okkar verstu svöðusár. Ekkert var skemmtilegra en að fara í bíltúr með Óla afa og Góu ömmu. Við vissum að afí átti einn veikleika, honum fannst ís ótrúlega góður. Og í þessum ferðum okkar nutum við góðs af þessum veikleika hans. Ekki leið á löngu þar til afi stakk upp á að keyptur yrði ís á línuna. Við mikinn fögnuð okkar bamanna var brunað í næstu sjoppu og ísinn keyptur. Þegar við eldri barnabörnin komum í heim- sókn til Vestmannaeyja var Óli afí alltaf tilbúinn að sýna okkur Eyj- una sína sem hann unni svo heitt. Hann var hafsjór af fróðleik um ör- nefni og staðhætti og kunni svo margar sögur sem hann sagði okk- ur frá liðnum tímum í Eyjum. Enda var uppáhaldsbókin hans „Örnefni í Vestmannaeyjum". Elsku Góa arama, á þessari stundu hugsum við öll til þín og biðjum Guð að hugga þig í sorginni. Við trúum að Óla afa líði vel núna. Er sárasta sorg okkur mætir, og söknuður huga vom grætir. Þá líður sem leiftur af skýjum, ljósgeisli af minningum hlýjum. (H.J.H.) Barnabörnin. Elsku Óli! Mig langar í fáeinum orðum að kveðja þig. Ég gleymi aldrei hlýj- um móttökum ykkar Góu þegar ég kom fyrst inn í fjölskylduna fyrir 25 árum, kvíðin og feimin. Ef erfíð- ar ákvarðanir þurfti að taka var gott að heyra þitt sjónarmið, því þín svör voru ávallt hreinskilin 0g skynsamleg. Og ef um gleðitíðindi var að ræða var yndislegt að koma til ykkar Góu því þið samglöddust okkur af heilum hug og hvöttuð okkur ávallt. Laghentari mann hef ég sjaldan hitt, hvað sem þú tókst þér fyrir hendur var listavel unnið og alltaf varstu tilbúinn að aðstoða okkur öll hvernig sem á stóð. Þér leið vel ef þú gast gert einhverjum greiða. Já, þér var margt til lista lagt. Það sýna myndirnar þínar best sem þú málaðir og líkönin sem þú gerðir af Landakirkju í Vestmannaeyjum og lagðir nótt við dag fyrir ein jólin og gafst okkur sex fjölskyldum í jóla- gjöf. Elsku Góa mín, guð styrki þig í sorginni, þú átt okkur öll að. Elsku Óli, þú varst góður maður. í Hveragerði leið þér svo vel þar sem þú varst kominn í nálægð við r (Blóirvatjúðin Öapðshom k v/ Fossvogskii'kjMgcu'ð j N*. Símii 554 0500 Sérfræðingar í blómaskrevtingum við <)ll tækifæri 1 'M® blómaverkstæði ■ I HlNNA I Skólavörðustíg 12, á horni Bergstaöastrætis, sími 551 9090 Vestmannaeyjar og kominn aftur í lítið samfélag. Takk fyi-ir allt! Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsins degi, hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér. Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleymist eigi, og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast þér. (Ingibj. Sig.) Þín tengdadóttir Inga. I dag verður til moldar borinn móðurbróðir minn Ólafur Haraldur Oddgeirsson frá Vestmannaeyjum eða Öli Oddgeirs eins og hann var alltaf kallaður í Eyjum. Óli var næst elsta barn foreldra sinna þeirra Oddgeirs Hjartarsonar raf- virkja og frú Ástu Ólafsdóttur. Elst er Guðbjörg en yngri voru Lilja og Hjördís er báðar eru látn- ar. Ég er elsta bam Guðbjargar og var alinn upp hjá afa og ömmu, svo að við Óli höfðum mikinn samgang og leit hann á mig sem sinn litla bróður og reyndist mér alveg frá- bærlega vel og leit ég alltaf upp til hans. Ef ég þurfti að biðja hann um eitthvað sem oft var var það auð- sóttasta mál í heimi, hann virtist alltaf hafa nógan tíma fyrir mig þó hann væri störfum hlaðinn. Þegar Óli kynntist sinni yndislegu konu, Rögnu Lísu Eyvindsdóttur (Góu) byggði hann hæð ofan á húsið heima í Breiðvík og bjuggu þau þar í mörg ár eða þangað til að hann byggði sér glæsilegt hús við Heið- arveg sem hann teiknaði sjálfur og vann flest handtök við, og man ég vel eftir því er hann byrjaði að grafa grunninn með haka og skóflu. Óli var lærður rafvirki og sem slíkur eftirsóttur vegna vandvirkni og greiðasemi og þá var nú ekki alltaf hugsað um krónur og aura, annars held ég að Óli hefði getað orðið hvað sem var því það virtist allt leika í höndum hans. Hann var mjög listfengur. Um það vitna mörg falleg málverk og teikningar sem eiga eftir að gleðja um ókomin ár, og voru náttúra og mannlíf Eyj- anna honum sérlega hugstæð. Óli og Góa eignuðust sex börn, svo að nærri má geta að það var nóg að gera á stóru heimili, enda voru þau hjón gestrisin með af- brigðum. Allir vildu heimsækja Óla og Góu, en þau voru mjög sam- rýnd. Fyrir nokkrum árum fluttu þau til Reykjavíkur og síðan til Hvera- gerðis þar sem þau bjuggu sér fal- legt heimili. En enginn veit hvenær kallið kemur, Óli greindist með krabbamein og lést úr því. Fallin er frá ein af hetjum þessa lands sem skilaði sínu hlutverki óaðfínnanlega og hugsaði vel um sína. Góður Guð blessi hann og hans minningu og styrki þá er lifa. Óli Geir. Kær vinur, Ólafur Oddgeirsson, hefur fengið hvíldina eftir baráttu við krabbamein í langan tíma. Við lítum til baka er við vorum að alast upp í Vestmannaeyjum, þá voru leikir aðrir en í dag. Við fórum í fjallgöngur, sprönguðum undir Éiskhellum, fórum í sund undir Löngu. Einu sinni ætluðum við nokkrir fræknir peyjar 11-12 ára að fara á skak og fengum lánaðan árabát einn fallegan sunnudags- morgun. Við rerum út úr höfninni í yndislegu veðri. Þegar við vorum komnir út á móts við Ystaklett fór að hvessa og sjór að ýfast. Fór áhöfninni ekki að lítast á ástandið og var ákveðið að snúa við. Vindur- inn jókst og vildu sumir róa beint í land en þar voru klappir og sker. Fengu þeir ekki að ráða og til hafn- ar komust við og var ekki reynt að fara í fleiri fiskiróðra eftir þessa ævintýraferð. Sumarið 1946 vorum við ásamt mörgum öðrum peyjum úr eyjum að mála nýju Ölfusárbrúna. Áttum við þar yndislegt sumar saman. Eftir það skildu leiðir um hríð. Þráður var upp tekinn að nýju eftir að við höfðum báðir gifst og eign- ast böm. Óli var mjög listfengur, málaði og teiknaði. Einnig hafði hann mikla ánægju af lundaveiði og naut þess að skreppa suður á Stórhöfða með háfinn. Fengum við oft send- ingu frá honum af veiðinni. Óli var einn af hinum stóra hópi sem fædd- ist árið 1929 í Vestmannaeyjum, sem oft er kaUaður sterki stofninn meðal skólasystkina og vina og hef- ur mikil samstaða verið með hópn- um sem hefur hist á tveggja til þriggja ára fresti og rifjað upp gömul og góð kynni. Verður Óla sárt saknað er hópurinn hittist næst, væntanlega á næsta ári, þ.e. er við verðum 70 ára. Okkur hjónunum er sérstaklega minnisstæð ferð til Vestmannaeyja í lok eldgossins. Óli hafði útvegað okkur „vegabréf‘ til Eyja, en þau hjónin voru þá nýflutt aftur heim og voru með þeim allra fyrstu sem sneru aftur. Við og börnin munum aldrei gleyma þeim höfðingsskap og hlýju sem Góa og Óli sýndu okkur, það var ógleymanlegt að sitja inni í stofu hjá þeim þegar tilkynnt var í útvarpinu að gosinu í Eyjum væri endanlega lokið. Gaman var að sjá Óla brosandi stinga plastblómum í gegnum ösk- una við húsið til að lífga upp á um- hverfíð. Börnin voru öll flutt frá Eyjum og fluttust þau þá til Reykjavíkur til að vera nær börn- um og barnabörnum. Óli var mjög barngóður og hafði alltaf yndi af börnum. Við hjónin og fjölskyldur send- um Góu, öllum börnunum og þeirra fjölskyldum innilegar samúðar- kveðjur. Ágústa og Sigurður. Hinn 12. ágúst síðastliðinn and- aðist okkar ástkæri Óli eftir hetju- lega baráttu við krabbamein. Hann bar veikindi sín af hugrekki og virðuleik síðustu vikurnar sem hann lifði. Með spjalli sínu við þá sem stóðu honum næst útbreiddi hann skilning, bros og frið. Við munum öll sakna visku hans, skynsemi og kærleika. Standið ekki við gröf mína og tárfellið, ég er ekki þar, ég sef ekki. Eg er þúsund vindar sem blása, ég er glitrandi demantur á snjó, ég er sólskinið á þroskuðu komi, ég er mUt haustregnið. Þegar þú vaknar í morgunkyrrðinni er ég hinn frái þytur hljóðlátra fugla á ferli sem lauk þar sem hann hófst, ég er dauft stjömuskin næturinnar. Standið ekki við gröf mína og grátið, ég er ekki þar, ég dó ekki, ég lifi áfram einhversstaðar, ég lifi í hjörtum ykkar allra. Við biðjum um styrk handa ykk- ur öllum og sérstaklega Góu mömmu á þessum erfíðu dögum. Theo Horsthuis, Joke Wouters og Elva Lilja, Hoilandi. Formáli minningargreina ÆSKILEGT er að minningargreinum fylgi á sérblaði upplýsingar um hvar og hvenær sá, sem fjallað er um, er fæddur, hvar og hvenær dá- inn, um foreldra hans, systkini, maka og börn, skólagöngu og störf og loks hvaðan útför hans fer fram. Ætlast er til að þessar upplýsingar komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletraður, en ekki í grein- unum sjálfum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.