Morgunblaðið - 26.08.1998, Qupperneq 38
38 MIÐVIKUDAGUR 26. ÁGÚST 1998
MORGUNBLAÐIÐ
BRIDS
Lille, Frakklandi
HEIMSMEISTARAMÓTIÐ
Heimsmeistaramót í brids fer fram í
Lille í' Frakklandi dagana 21. ágúst
til 4. september.
ÞRÍR íslenskir spilarar tóku þátt í
heimsmeistarakeppninni í blönd-
uðum tvímenningi, sem var fyrsta
keppnin á heimsmeistaramótinu í
brids sem nú fer fram í Frakk-
landi.
Hjördís Eyþórsdóttir, Bragi
Hauksson og Sigríður Sóley Krist-
jánsdóttir komust öll í úrslit
keppninnar en 598 pör hófu
keppni. Hjördís og Curtis Cheek
enduðu síðan í 135. sæti í úrslitun-
um af 260 og Bragi og Sigríður í
149. sæti.
Heimsmeistarar í blönduðum
tvímenningi urðu Antonio Vivaldi
og Enza Rossano frá Italíu. Vivaldi
er gamalreyndur spilari og vann
m.a. Bermúdaskálina með ítalska
landsliðinu á áttunda áratugnum.
Frakkarnir Claude Bloquit og
Marc Bompis urðu í 2. sæti og
Jens og Sabina Auken frá Dan-
mörku hlutu bronsið.
Þrautakóngur
Það er keppt í mörgum tvímenn-
ingsflokkum og síðan um Rosenbl-
um-bikarinn í sveitakeppni í Lille.
En þessi bridshátíð hófst á því að
18 bridsmeistarar settust yflr 12
bridsþrautir sem Svisslendingur-
inn Pietro Bernasconi hafði búið
til. Raunar var einn keppandi í við-
bót, bridstölvan Goren in a Box
Italir unnu fyrsta
heimsmeistara-
titilinn í Lille
sem Bandaríkja-
maðurinn Matt
Ginsberg hefur þró-
að. Jóni okkar Bald-
urssyni var boðið til
keppninnar en hann
átti ekki heiman-
gengt.
Það var til mikils
að vinna því til við-
bótar við heiðurinn
að vera slyngastur í
heimi við að leysa
bridsþrautir voru
há peningaverðlaun
í boði. Á endanum
stóð Michael Rosen- Vivaldi
berg uppi sem sig-
urvegari og fékk í sinn hlut 35 þús-
und dali eða 2,5 milljónir króna.
Bart Bramley varð í 2. sæti og
Eric Rodwell í því þriðja, en allir
þessir spilarar hafa tekið þátt í
Bridshátíð hér á landi. Cesary
Balicki varð í 4. sæti, Tony
Forrester í 5. sæti og Bob Hamm-
an í 6. sæti, og síðan komu Geir
Til að gefa lesendum nasasjón af
bridsþrautunum sem meistaramir
glímdu við um helgina birti ég þá
fyrstu og sennilega léttustu!
Suður gefur/AV á hættu
Norður
* ÁG652
¥ G109876
* 96
* -
Rossano
Helgemo, Andy Robson og Jeff
Meckstroth.
Bridstölvan endaði í 12. sæti
eftir að hafa haft forustu í byrjun.
Það kom í ljós að hennar veikleiki
fólst í því að draga ályktanir af
sögnum andstæðinganna og búa
þannig til mynd af höndum
þeirra.
Vestur
*
V
♦
*
Austur
*
¥
♦
*
Suður
* K7
VÁKD
* DG
* G87543
Vestur Norður Austur Suður
1 grand
2 spaðar dobl pass pass
2 grönd 4 tíglar pass 4 hjörtu/
2 grönd vesturs var úttekt í
láglitina og 4 tíglar norðurs yfir-
færsla í hjarta. Vestur spilar út
tígulás og tigulkóngi og spilar síð-
an laufi og suður tekur við.
Það má ætla að vestur eigi
skiptinguna 5-0-4-4 fyrir sögnum
sínum á hættunni. Hefði vestur
spilað spaða í þriðja slag væri auð-
velt að vinna spilið: suður drepur
með kóngi og svínar síðan spaða-
gosa og trompi austur og spili
trompi getur sagnhafi trompað tvo
spaða heima en á samt nóg af
trompum í borði til að enda þar,
taka trompin af austri og spaðaás.
Laufaútspilið tekur hins vegar
innkomu af blindum. Þá er eina
leiðin að fría lauflitinn heima.
Sagnhafi trompar í borði, fer heim
á spaðakóng, trompar lauf og spil-
ar litlum spaða úr borði.
Austur verður að trompa og
spila trompi því annars nær sagn-
hafi að víxltrompa upp í 10 slagi.
Sagnhafi drepur heima og trompar
þriðja laufið í borði og þá er staðan
þessi:
Vestur
AD109
¥ —
♦ x
4>Á
Norður
♦ ÁG6
¥ G10
♦ —
* —
Austur
♦ —
¥ 54
♦ XXX
* —
Suður
* —
¥ ÁK
♦ —
* G87
Sagnhafi þarf alla slagina. Hann
spilar spaðaás úr borði og þegar
austur trompar yfirtrompar sagn-
hafi og trompar lauf í borði. Hann
fer síðan heim á trompás og laufið
stendur.
Guðm. Sv. Hermannsson
R A Ð A U G L V S 1 ISI G A
Viðtalstímar sendiherra
Benedikt Jónsson, sendiherra íslands í Genf
og fastafulltrúi gagnvart EFTA og öðrum
alþjóðastofnunum sem ísland er aðili að í
Genf, verður með viðtalstíma í utanríkis-
ráðuneytinu fimmtudaginn 27. ágúst nk.
kl. 9.00-12.00.
Viðtalstímar óskast bókaðir í síma 560 9925.
TILBOÐ/ÚTBOÐ
Flugstöð Leifs Eiríkssonar
Stækkun
Arkitektasamkeppni
— kynningarauglýsing
Framkvæmdasýsla ríkisins, fyrir hönd utan-
ríkisráðuneytisins, vinnur nú að undirbúningi
að samkeppni meðal arkitekta um útfærslu
á stækkun Fiugstöðvar Leifs Eiríkssonar
(nýbygging).
Vegna umfangs verksins verður samkeppnin
auglýst á hinu Evrópska efnahagssvæði (EES),
sbr. lög og reglur þar að lútandi.
Gert er ráð fyrir að samkeppnislög verði tilbúin
til afhendingar um miðjan september 1998.
Skiladagur samkeppnistillagna arkitekta er
- áætlaður 15. desember 1998.
Samkeppnistilkynning verður auglýst síðar.
Samkeppnin er einnig kynnt í Stjórnartíðindum
Evrópusambandsins.
FRAMKVÆMDASÝSLA
RÍKISINS
UTANRÍKISRÁÐUNEYTIÐ
UPPBOB
Uppboð
Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins á Gránugötu
6, Siglufirði, mánudaginn 31. ágúst 1998 ki. 13.45 á eftirfar-
andi eignum:
Aðalgata 15, efri hæð, Siglufirði, þingl. eig. Valur Bjarnason, gerðar-
beiðandi Vátryggingafélag Islands hf.
Hafnartún 18, Siglufirði, þingl. eig. Guðmundur Jón Skarphéðinsson,
gerðarbeiðandi sýslumaðurinn á Siglufirði.
Hvanneyrarbraut 60, 0101, kjallari, Siglufirði, þingl. eig. Jóhann
Sveinsson, gerðarbeiðandi húsbréfadeild Húsnæðisstofnunar.
Hvanneyrarbraut 64,1. hæð sunnan, Siglufirði, þingl. eig. Guðmundur
Magnússon, gerðarbeiðandi Byggingarsjóður ríkisins.
Lindargata 22, Siglufirði, þingl. eig. Álfheiður H. Gunnsteinsdóttir
og Ásgeir Hólm Agnarsson, gerðarbeiðendur húsbréfadeiid Húsnæð-
isstofnunar og sýslumaðurinn á Siglufirði.
Lækjargata 14, hluti 2, Siglufirði, þingl. eig. Guðmundur Jón Skarp-
héðinsson, gerðarbeiðendur Rafmagnsveitur ríkisins, Reykjavík og
Sparisjóður Hafnarfjarðar.
Túngata 33, Siglufirði, þingl. eig. Sigurrós Sveinsdóttir og Sverrir
Eyland Gíslason, gerðarbeiðandi húsbréfadeild Húsnæðisstofnunar.
Sýslumaðurinn á Siglufirði,
24. ágúst 1998.
Fiæðslumiðstöð
Re^igavíkur
Frá Öskjuhlíðarskóla
Skólasetning Öskjuhlíðarskóla verður þriðju-
daginn 1. september. Nemendur7., 8., 9. og
10. bekkjar mæti við skólasetningu kl. 9.30.
Nemendur 1., 2., 3., 4., 5. og 6. bekkjar mæti
við skólasetningu kl. 11.30.
Kennsla hefst samkvæmt stundaskrá miðviku-
daginn 2. september.
• Fríkirkjuvegi 1 • ÍS-101 Reykjavík, • Sími: (+354) 535 5000
• Fax: (+354) 535 5050 • Netfang: fmr@rvk.is
Laugavegur
Óskum eftir að taka á leigu 80—150 fm verslun-
arhúsnæði á góðum stað við Laugaveg.
Upplýsingar í síma 892 5990 á skrifstofutíma.
TIL SÖLU
Notaðar Ijósritunarvélar
Notaðaryfirfarnar Ijósritunarvélar, m.a. nokkrar
litavélar, á góðu verði.
NÝHERJI
SMÁAUGLÝSINGAR
FÉLAGSLÍF
Hörgshlíð 12.
Boðun fagnaðarerindisins.
Bænastund í kvöld kl. 20.00.
Dagsferðir sunnudaginn
30. ágúst
Frá BSf kl. 8.30 Skessuhorn.
Ekið í Skorradal og gengið á
hornið.
Frá BS( kl. 8.30 Árganga með
Grímsá. Gengið frá Fossum og
upp með Skorradalsvatni.
Frá BSI kl. 8.30 Útreiðatúr.
Farið upp með Grimsá frá Odd-
stöðum upp að Gullberastaða-
seli neðan við Reyðarvatn. Panta
þarf í útreiðatúrinn á skrifstofu
Útivistar fyrir kl. 17.00 á fimmtu-
dag.
Helgarferð
yfir Fimmvörðuháls
29.—30. ágúst Fimmvörðuháls.
Gengið frá Skógarfossi á hádegi
á laugardag upp með Skógá og í
Fimmvörðuskála. Á sunnudag er
gengiö i Bása.
Jeppadeild
Fundur hjá jeppadeild verður 1.
sept. kl. 20.30 á Hallveigarstíg 1,
Reykjavík. Gengið inn hjá Útivist.
Kynntar verða eftirtaldar ferð-
ir: 5. sept. dagsferð: Hreppa-
mannaafréttur — Stöng, 10.-
20. sept. Helgarferð í Setrið,
ný og spennandi leið farin,
26. sept. dags-
ferð: Meyjarsæti — Skriða —
Hlöðuvellir — Geysir.
ÉSAMBAND ÍSLENZKRA
KRISTNIBOÐSFÉLAGA
Háaleitisbraut 58.
Almenn samkoma í kvöld
kl. 20.30. Sr. Felix Ólafsson og
Helgi Hróbjartsson tala.
Allir hjartanlega velkomnir.
ÝMISLEGT
Námskeið í svæðameðferð
Fullt nám sem allir geta lært.
Sigurður Guðleifsson,
sími 587 1164.
Snerting til heilsu
Einkatímar. Sími 587 1164.
Sigurður Guðleifsson.