Morgunblaðið - 26.08.1998, Page 42
42 MIÐVIKUDAGUR 26. ÁGÚST 1998
I DAG
MORGUNBLAÐIÐ
Matur og matgerð
Krækiber
Kristín Gestsdóttir segist hafa haldið
að nóg yrði af krækiberjum í ár, en hún
sá svört ber á lynginu í júnílok.
Yfírleitt hefi ég ekki þurft
að fara langt til að tína
krækiber, en þau vaxa
flest ár innan girðingar hjá
mér auk þess sem nóg hefur
verið af þeim í Gálgahrauninu
sem er hér rétt fyrir neðan. En
nú em engin ber í Gálgahrauni
og lítið hér í kringum mig. En
einhvers staðar eru samt
krækiber, ég sá talvert af þeim
á Snæfellsnesi um daginn. Is-
lendingar geymdu krækiber og
bláber í súru skyri, þannig er
nafnið berjaskyr til komið. En
það var löngu fyrir mína tíð.
Þegar ég var lítil vora kræki-
ber eingöngu notuð í saft, sem
notuð var út á grauta, í súpur
og til drykkjar. Þessi saft var
höfð mjög sæt til þess að auka
geymsluþol, svo sæt að mér
fannst hún ódrekkandi. Nú á
tímum frystikista getum við
haft saftina minna sæta eða
ósæta og geymt í frysti. Gott
er að setja saftina í mjólkur-
fernur og skera ofan í þær til
að minnka þær og líma fyrir
með málningariímbandi, en á
það má skrifa innihald og dag-
setningu. Fernumar rúmast
vel í kistunni. C-vítamínið í
saftinni geymist ekki lengi
nema soðið sé upp á henni.
Með því að hleypa upp suðu á
saftinni geram við þá
efnakljúfa sem eyða vítamíninu
óvirka, en þeir starfa líka í
frysti. Krældberjasaft er mjög
góð í sultuhlaup en þá þarf að
setja pektínhleypiefni saman
við og til að það virki þarf saft-
in að vera nokkuð súr og er
best að setja sítrónusafa eða
rabarbarasaft út í hana. Til að
sultan geymist vel þurfa krakk-
ur og lok að vera vel hrein. Síð-
an þarf að sjóða bæði krukkur
og lok, hella sultunni heitri í
krakkurnar, hafa þær fleytifull-
ar og setja lokið strax á. Þannig
verður lofttæming í krukkunni
og hún geymist næstum enda-
laust. Oþarfi er að nota rot-
vamarefni. Hin síðari ár hefi ég
sett berin í blandara, þá verður
lítið sull við að merja þau, en
sumir eiga berjapressu sem er
enn betra. Lengi vel notaði ég
hakkavél. Þótt lítið sé af kræki-
berjum í kringum mig var það
þó nóg til að setja í berja-
skyrtertuna sem hér er upp-
skrift að, en uppskriftin að
hlaupinu er sú sama og birtist í
fyrra í þessum þætti.
Krækiberjahlaup
(sulta)
1 lítri krækiberjasafi
1 kg sykur
safi úr einni sítrónu eða 1 dl sterkur
rabarbarasafi
hleypiefni ætlað í 1 lítra af safa
1. Setjið krækiberjasafa og
sítrónu- eða rabarbarasafa í pott
og látið sjóða. Setjið hleypiefni út
í og sjóðið skv. leiðbeiningum á
pakkanum.
2. Setjið sykur út í og hleypið
suðunni upp. Athugið að sultan
hleypur betur ef sykurinn er
settur í á eftir hleypinum.
Krækiberja/
skyrterta.
______5 dl krækiber_____
______1 1A dl sykur_____
_________2 epli_________
1 pk. sítrónuhlaup
(hér var notað Torohlaup)
2 1/2 dl sjóðandi vatn
(minna en gefið er upp)
5 dl Rice Krispies
______I/2 dl hunang_____
1/2 dl brætt smjör
1 stór dós hreint skyr
_________2 egg__________
1 peli rjómi
1. Setjið krækiberin á fat og
stráið sykri yfir, merjið berin ör-
lítið saman við sykurinn, t.d.
með kartöflustappara. Afhýðið
eplin og rífið gróft, setjið saman
við krækiberin. Látið bíða í 1
klst.
2. Leysið hlaupduftið upp í 2 V2
dl af sjóðandi vatni, helmingi
minna en segir á umbúðum.
Kælið án þess að hlaupi saman.
3. Bræðið saman smjör og hun-
ang, t.d. í örbylgjuofni. Hrærið
Rice Krispies saman við. Setjið á
botninn á djúpu flatbotna fati eða
skál með stórum flötum botni.
4. Þeytið eggin saman við
skyrið. Blandið kældri hlaup-
blöndunni út í, síðan kræki-
berja/eplablöndunni og loks
þeyttum rjómanum. Hellið var-
lega ofan á fatið með Rice
Krispies. Setjið í kæliskáp og
látið vera þar í 4-6 klst. eða leng-
ur.
5. Berið fram með kaffi eða
sem ábætisrétt.
Með morgunkaffinu
ÉG veit því miður ekki
hvernig þetta er, ég er
nefnilega grænmetisæta.
ER þetta hjá fasteigna-
sölunni? Þegar við lásuin
auglýsinguna ákváðum
við að hætta við að selja.
ÞÝÐIR þetta að við erum
hætt saman?
SKAK
Um.vjón Marguir
Pétursson
STAÐAN kom upp á opnu
móti í Koríntu í Grikklandi
í sumar. Stigahæsti skák-
maður Grikkja Vasilios
Kotronias (2.570) var með
hvítt og átti leik gegn En-
rico Danieli
(2.070), ítal-
íu.
21. Rf5+! -
gxf5 22.
Hg3+ - Kh7
23. Hh3 og
svartur gafst
upp, því
hann er
óverjandi
mát.
HVÍTUR
leikur og
vinnur.
VELIAKAMPI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Sóðalegur
Skólavörðu-
stígur
ÉG vil koma því á fram-
færi við þá sem sjá um
þrifnað í borginni að
Skólavörðustígur er
aldrei þrifinn. Gatan
hefui' aldrei verið verri.
Þarna eru sígarettu-
. stubbar um allt, allar
ristar fullar af drasli og
ég hef ekki séð götuna
þrifna síðan í maí. Frá
hverfisstöðinni og gatna-
málastjóra hafa engin
viðbrögð komið í ljós
þótt kvartað hafi verið
yfir þessu. Þetta er sér-
staklega leiðinlegt vegna
þess að um þessa götu
fer mikið af erlendum
ferðamönnum.
Einar Guðmundsson,
Listvinahúsinu.
Virkið -
jákvætt starf
HILDUR hafði sam-
band við Velvakanda og
sagðist hún hafa lesið
grein Súsönnu Svavars-
dóttur í helgarblaði
Morgunblaðsins sem
kallaðist „Við höfnum
ekki einstaklingi, heldur
athæfi". Þar er viðtal við
Mumma og Marsibil í
Mótorsmiðjunni og rætt
um opnun meðferðar-
heimilis sem þau starf-
rækja. Vill Hildur koma
því á framfæri að Rauði
kross Islands hefui'
starfrækt móttöku fyrir
unglinga í tíu ár og þar
er engum neitað um að-
gang. Finnst henni að
þetta hefði mátt koma
fram. En Hildi finnst
það sem þau eru að gera
mjög jákvætt.
Hildur.
Tapað/fundið
Gleraugu
týndust
GLERAUGU týndust
aðfaranótt laugardags
22. ágúst. Þau eru með
Ijósbrúnni umgjörð og í
rauðbrúnu hulstri. Finn-
andi vinsamlega hafi
samband í síma
557 8613.
Kvenúr
týndist
KVENÚR týndist ný-
lega, úrið er stórt með
svartri skífu og svartri
leðuról. Skilvís finnandi
hafi samband í síma
565 8906.
Kvenmannsúr í
óskiium
KVENMANNSÚR
fannst fyrir utan Rúm-
fatalagerinn í Holta-
görðum þann 7. ágúst sl.
Eigandi getm' vitjað
úrsins í fjárreiðudeild
Samskipa á skrifstofu-
tíma.
Dýrahald
Hvít kanína
týndist
HVÍT kanína með rauð
augu og brúnsvört eyni
og trýni týndist frá
Skógarhlíð 12. Tveir
ungar týndust einnig fi'á
sama stað. Þeir sem
hafa orðið þein'a varir
hafi samband í síma
562 9232.
Hefurðu séð síam-
sköttinn Nóa?
NOI er frekar stór
síamsköttur með ljós-
brúna slikju á feldinum
(chocolate point). Hann
hvarf frá heimili sínu á
Laufásvegi að morgni
miðvikudagsins 12.
ágúst sl. Engin 61 er á
honum en hann er
eyrnamerktur með auð-
kenninu R7220. Nói á
það til að vera dálítið
mannfælinn og kann að
hafa lokast inni í bíl-
skúr. Ailar upplýsingar
um ferðir eða afdrif Nóa
frá því á miðvikudag
væru þegnar með þökk-
um. Síminn er 552 0052.
Fundarlaun.
Víkverji skrifar...
EKKI mátti betur sjá en end-
umar við tjörnina - þær fáu
sem eftir voru - væra vankaðar á
sunnudagsmorgun eftir flugelda-
sýninguna, sem haldin var á menn-
ingamótt í Reykjavík. Ekki bætti
úr skák þegar hópar fólks á stutt-
buxum birtust við tjömina í morg-
unsárið að búa sig undir að hlaupa
hinar ýmsu vegalengdir, sem boðið
var upp á í Reykjavíkurmaraþoni,
og ásamt starfsmönnum borgar-
innar er vora að hreinsa upp menn-
ingarleifar, sem ekki hafði tekist að
hesthúsa um nóttina.
Árið 1995 var aftakaveður í
hlaupinu og komu hlauparar hold-
votir og veðurbarðir í mark, en nú
hafa veðurguðimir hins vegar horft
með velþóknun til hlaupsins þrjú ár
í röð. Veðurblíðan á sunnudag var
slík að það var líkt og maður væri
að hlaupa inni í glansmynd; sjórinn
spegilsléttui' og fjöll skörtuðu sínu
fegursta. Við svona aðstæður tekur
maður hvorki eftir hlaupastingnum,
né verður var við mæðina. Svona
framan af, að minnsta kosti.
MIKIL örtröð var í upphafi
hlaupsins á sunnudag. Þeir,
sem hlupu hálft maraþonhlaup og
heilt, stóðu fremstir, en hins vegar
þótti gott ef þeir, sem hlupu 10
km, komust að rásmarkinu hálfri
mínútu eftir að hlaupið var ræst. I
upphafi hlaupsins var síðan farið
hænufetið og það var ekki fyrr en
kom að Skothúsveginum að hægt
var að fara að greikka sporið. Víða
erlendis er sá háttur hafður á að
hlaupurum er skipt í hópa eftir
getu þannig að þeir, sem eiga best-
an tíma í ákveðinni vegalengd, fari
fyrstir af stað og svo koll af kolli.
Haldi vinsældir maraþonhlaupsins
hér áfram að aukast mætti fara að
íhuga einhverjar slíkar ráðstafan-
ir.
Reyndar var nú gripið til þess
ráðs að ræsa skemmtiskokkið sér-
staklega tveimur og hálfri klukku-
stund eftir að maraþonið, hálf-
maraþonið og 10 km hlaupið hófst
og má ætla að það hafi verið gert
til að draga úr þrengslum í Lækj-
argötunni.
ABERANDI átak hefur staðið
yfir í sumar til að draga úr
hraða í umferðinni og situr lögregl-
an lon og don með mælitæki sín á
lofti til að hafa hendur í hári þeirra,
sem leggjast of þungt á bensíngjöf-
ina.
I ljósi þessa átaks mætti ætla að
reynt væri að skipuleggja umferð
þannig að ekki ýtti undir of hraðan
akstur, en því virðist oft vera
ábótavant á beinum og breiðum
brautum höfuðborgarinnar. Þannig
virðist maður oft og tíðum þurfa að
aka ívið hraðar en lög mæla fyrir
um ætli maður að komast á grænu
ljósi eftir Sæbrautinni, svo dæmi
sé tekið. Sálfræðin á bak við þetta
kann að vera sú að með því að
knýja umferðina til að nema staðar
hægi á henni. Hins vegar er hætt
við að þeir, sem þekkja til á við-
komandi vegarkafla, láti freistast
til að aka ívið hraðar en leyfilegt er
til að lenda ekki á rauðu. Það skýt-
ur skökku við að umbun löghlýðn-
innar skuli felast í því að sitja eftir
á rauðu ljósi.